Morgunblaðið - 17.01.2004, Side 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Sunna kemur í dag. Arc-
tic Wolf fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lómur 2. fer í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Miðar á
þorrablót verða seld-
irmánudag 19. jan. og
þriðjudag 20. jan. kl. 13–
17.
Félag eldri borgara,
Ásgarði Glæsibæ. Félag
eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni, ferða-
nefndir um utanlands-
og innanlandsferðir
halda kynningarfund
sunnudaginn 18. janúar
kl. 14 í Ásgarði Glæsibæ
um fyrirhugaðar ferðir
árið 2004. Kynntar
verða ferðir innan lands
og utan.
Gerðuberg, félagsstarf.
Fjölbreytt dagskrá
hvern virkan dag frá 9–
16.30,
veitingar í kaffitíma og
hádegi í Kaffi Berg.
Sím 575 7720.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14 á
morgun sunnudag kl. 14.
Kaffiveitingar.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
GA-Samtök spilafíkla,
Fundarskrá:
Þriðjud: Kl. 18.15, Sel-
tjarnarneskirkja, Sel-
tjarnarnes. Miðvikud:
Kl. 18, Digranesvegur
12, Kópavogur og Egils-
staðakirkja, Egils-
stöðum. Fimmtud: Kl.
20.30, Síðumúla 3–5,
Reykjavík. Föstud: Kl.
20, Víðistaðakirkja,
Hafnarfjörður. Laug-
ard: Kl. 10.30, Kirkja
Óháða safnaðarins,
Reykjavík
og Glerárkirkja, Ak-
ureyri. Kl. 19.15 Selja-
vegur 2, Reykjavík.
Neyðarsími: 698 3888
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa samtökin. Átröskun
/ Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is og
síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið hús
alla laugardaga frá kl.14.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Fífan Dalsmára 5 í
Kópavogi, tartanbrautir
eru opnar almennu
göngufólki og göngu-
hópum frá kl. 10–11.30
alla virka daga.
Blóðbankabíllinn. Ferð-
ir blóðbankabílsins: sjá
www.blodbankinn.is.
Minningarkort
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl.10–15. S.
568 8620. Bréfs.
568 8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533 1088 eða í
bréfs. 533 1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í s. 588 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd
á skrifstofutíma í s.
552 4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta
á vefslóðinni:
http://www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í s.
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í s.
551 7868 á skrifstofu-
tíma og í öllum helstu
apótekum. Gíró- og
kreditkortagreiðslur.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í s. 565 5727. All-
ur ágóði rennur til starf-
semi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í s.
588 9390.
Í dag er laugardagur 17. janúar,
17. dagur ársins 2004, Ant-
óníusmessa. Orð dagsins: Vakið,
standið stöðugir í trúnni, verið
karlmannlegir og styrkir. Allt sé
hjá yður í kærleika gjört. Náðin
Drottins Jesú sé með yður.
(1.Kor. 16, 13-14.23.)
Vefþjóðviljinn fjallarum samkvæmni í um-
ræðunni um lagasetningu
gegn hringamyndun í
viðskiptalífinu: „Í Við-
skiptablaðinu í gær er
bent á að ýmsir þeir sem
nú berjast gegn lagasetn-
ingu gegn hringamyndun
hafa í raun unnið mál-
stað sínum ógagn með
framgöngu sinni. Þessir
aðilar hafi, í stað þess að
ræða málið efnislega,
reynt að láta svo líta út
að andstæðingar þeirra,
einkum Morgunblaðið og
forsætisráðherra, séu í
máli þessu að halda fram
afstöðu sem sé önnur en
þeir hafi áður fylgt. En
eins og rakið er í Við-
skiptablaðinu þá er af-
staða bæði Morgunblaðs-
ins og forsætisráðherra
sú sama og jafnan áður,
óháð því hvernig vindar
blása í atvinnulífinu.
Viðskiptablaðið minnirá að „Morgunblaðið
gerði atlögu að við-
skiptaveldi Eimskips upp
úr 1990“ og rifjar jafn-
framt upp að þegar á ní-
unda áratug síðari aldar
var Morgunblaðið farið
að velta því upp hvort
„útþensla fyrirtækisins
sé að verða of mikil fyrir
þetta fámenna sam-
félag“. Og Viðskiptablað-
ið minnir á að strax í
stjórnarsáttmála fyrstu
ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar, árið 1991,
var eindregið stefnt að
„löggjöf gegn einokun og
hringamyndun“. Og
þetta var tveimur árum
fyrir EES, svona ef ein-
hverjum þykir það skipta
máli. Og eins og meðal
annars kemur fram í
Viðskiptablaðinu hefur
forsætisráðherra síðan
verið áfram um þetta
mál. Sama má segja um
ýmsa þingmenn Alþýðu-
flokksins, síðar Samfylk-
ingarinnar, og rekur Við-
skiptablaðið ýmis gömul
og ný stóryrði til dæmis
Össurar Skarphéð-
inssonar og Ólafs Ragn-
ars Grímssonar í þá átt.
Menn geta haft sínarskoðanir á því hvort
eðlilegt sé að lög gildi
um það sem kallað er
hringamyndun. Gegn því
má færa rök, en það
gera þeir ekki sem reyna
að halda því fram að til
að mynda forsætisráð-
herra og Morgunblaðið
sveiflist í málinu eftir því
hvernig vindar blási.
Bæði blaðið og ráð-
herrann hafa verið sjálf-
um sér samkvæm, rétt
eins og Vefþjóðviljinn,“
segir á vefritinu. Pistl-
inum lýkur á vangavelt-
um um afstöðu þeirra
Samfylkingarmanna sem
áður hafi fjölyrt um
nauðsyn lagasetningar
gegn hringamyndun: „Ef
þeir hafa einfaldlega
sannfærst um röksemdir
Vefþjóðviljans og ann-
arra slíkra, og þá vænt-
anlega líka sömu rök-
semdir gegn
samkeppnislögum al-
mennt, þá er það fagn-
aðarefni. Ef þeir eru að
skipta um skoðun af öðr-
um ástæðum, þá er það
rannsóknarefni, að
minnsta kosti fyrir al-
menna flokksmenn
þeirra.“
STAKSTEINAR
Hringamyndun
og samkvæmni
Víkverji skrifar...
Víkverja þykir gott að hlusta áútvarp, sérstaklega þegar um
er að ræða vitsmunalega umræðu
en ekki endalausa síbylju hinna
„frjálsu“ útvarpsstöðva, sem virð-
ast þó aldrei spila annað en það
sem situr fremst í plöturekkum
plötuverslana sem fyrir furðulega
tilviljun eru í eigu sama eiganda
og „frjálsu“ útvarpsstöðvarnar.
Þegar Víkverji beið eftir vini
sínum um daginn kveikti hann á
bílútvarpinu og hlustaði á Kast-
ljósið í Ríkisútvarpinu. Þar karp-
aði þingmaður af hægri kantinum
við hátt settan hjúkrunarfræðing
um fjárhagsvanda heilbrigðiskerf-
isins. Víkverji hefur löngum borið
virðingu fyrir þingmanninum
vegna hreinskilni hans og ein-
lægni, en í þetta skiptið þótti Vík-
verja þingmaðurinn skjóta langt
yfir markið.
Þingmanninum varð tíðrætt um
þá hugmynd að heilbrigðiskerfið
væri að sliga skattborgarana og
klingdi þá í kunnugum bjöllum
hægra heilahvelsins. Sömu rök
koma þegar kvartað er og kveinað
yfir sköttum og skyldum og hinu
hræðilega ríkisbákni sem ætlar
allt lifandi að drepa með skatt-
píningu sinni.
Víkverji er kannski bara meðsvona sterkt bak, en hann
hefur, þrátt fyrir að vera fyr-
irvinna heimilisins, lítið fundið
fyrir sligun eða gríðarlegum
þunga. Hann borgar sína skatta
með bros á vör og veit að hann
getur gengið að einni bestu heil-
brigðisþjónustu í heimi og ágætu
menntakerfi, sem þó má vel bæta.
Orðið „bara“ kom oft fyrir hjá
þingmanninum, en það orð nota
þeir gjarnan sem telja lausnina
svo einfalda að viðmælandinn
hljóti að vera tregur að geta ekki
séð hana. Dæmi um notkun: „Þú
bara forgangsraðar þjónustunni,“
eða „þú bara skipuleggur þig bet-
ur.“ Síðan er það algerlega óljóst
hvort „barafólkið“ myndi í raun
standa sig betur þegar það ætti
að bregðast við þeim vandamálum
sem það átti svo auðvelt með að
leysa í stólnum í Kastljósinu. Vík-
verji sér fyrir sér þingmanninn
takast á við þau erfiðu mál sem
upp koma á hverjum degi hjá
starfsfólki heilbrigðisstofnana.
Það dugar ekkert „bara“ þegar
tekist er á við flókin vandamál
lífsins. Í orðinu „bara“ felst of
mikil einföldun.
Fimm ára dóttir Víkverja
skiptir hann mestu máli í heim-
inum. Að hún geti gengið að
ókeypis og öruggri læknisþjón-
ustu ef eitthvað kemur fyrir
skiptir Víkverja meira en nokkrir
þúsundkallar á mánuði, sem þá
færu bara í einhvern bévítans
óþarfa eins og venjulega. Ef Vík-
verji mætti ráða, þá væri byrjað á
því að lækka kostnað spítalanna
með því að losa þá við einokun
lyfjaheildsala. Það væri ágætis
byrjun á góðu verki. En Víkverji
kannast ekki við að vera sligaður,
þjáður og píndur af sköttum.
Morgunblaðið/Golli
Hvar á „bara“ að skera niður?
LÁRÉTT
1 tvístígur, 4 snauð, 7
giftast aldrei, 8 aft-
urkalla, 9 rödd, 11 skrif-
aði, 13 verkfæri, 14 kind-
urnar, 15 falskur, 17
mjög góð, 20 illgjörn, 22
huldumaður, 23 illkvittið,
14 út, 25 hirða um.
LÓÐRÉTT
1 hörfar, 2 taki snöggt í,
3 sefar, 4 flutning, 5
spjald, 6 lyftitæki, 10 hót-
ar, 12 hreinn, 13 ósoðin,
15 ríki, 16 heimshlutinn,
18 varkár, 19 blaðra, 20
spaug, 21 atlaga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 merkilegt, 8 lifur, 9 ræpan, 10 lóð, 11 karra, 13
illur, 15 bossa, 18 gatan, 21 sær, 22 lærin, 23 espir, 24
fagnaðinn.
Lóðrétt: 2 elfur, 3 kurla, 4 lærði, 5 gepil, 6 slök, 7 knýr,
12 rós, 14 lóa, 15 bóls, 16 sorta, 17 asnan, 18 greið, 19
túpan, 20 næra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Útvarp Saga
á Akureyri?
ÉG bý á Akureyri og vil
ég koma á framfæri þakk-
læti mínu fyrir Útvarp
Sögu. Það eru góðir þættir
hjá þeim öllum á stöðinni.
Stöðin er mjög skemmti-
legt talmálsútvarp og er
hennar sárt saknað hér á
Akureyri.
Maður vildi gjarnan
borga eitthvert afnota-
gjald ef það yrði til þess að
hægt væri að endurvarpa
stöðinni hér fyrir norðan.
Væri ekki hægt að fá
þessa stöð aftur á Norður-
landið?
Hlustandi.
Nálarstungur
við mígreni
MIG langar að athuga
hvort einhver getur bent
mér á einhverja sem eru
með nálarstungur eða ann-
að sem virkar á mígreni.
Ég er búin að prófa nál-
arstungur hjá heimilis-
lækni og Kínverjunum í
Kópavogi og hvorugt dug-
ar.
Ég fór í nálarstungur
hjá Úlfi Ragnarssyni fyrir
a.m.k. tíu árum og losnaði
algerlega við mígrenið þar
til nú fyrir stuttu.
Þeir sem gætu liðsinnt
mér eru beðnir að hafa
samband við Jóhönnu í
síma 862 2737 eða á
n10@bl.hhi.is
Myndasögurnar
aftur
MYNDASÖGULESARI
vildi koma þeirri skoðun
sinni á framfæri að hann
vildi fá gömlu, góðu
myndasögurnar aftur í
Morgunblaðið því hann er
mjög óánægður með þess-
ar nýju.
Tapað/fundið
Lítill bangsi
í óskilum
LÍTILL bangsi fannst á
bílastæðunum við Kringl-
una um jólaleytið. Upplýs-
ingar í síma 568 7215.
Kvengullúr
týndist
KVENGULLÚR týndist í
Kringlunni eða á leiðinni
upp á Sogaveg. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 693 0464.
Heyrnartól
í óskilum
13. janúar sl. fundust ný-
leg heyrnartól á Jófríðar-
staðavegi í Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma
555 4028 eða 864 4028.
Dýrahald
Sólon
er týndur
SÓLON er hvítur með
svart skott með hvítum
hring og svart á öðru eyra.
Hann týndist frá Klepps-
vegi 82 sl. sunnudag. Hann
er með svarta ól en
ómerktur. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 695 1278.
Kettlingar
fást gefins
TVEIR kettlingar, fress
og læða, fást gefins, 8
vikna, kassavanir. Upplýs-
ingar í síma 661 1920.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is