Morgunblaðið - 07.02.2004, Page 1

Morgunblaðið - 07.02.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 37. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Út í heim bæklingurinn fylgir blaðinu í dag Bragðlaukar kitlaðir Ljúffengar kræsingar í alþjóð- legum saumaklúbbi | Daglegt líf Lesbók og Börn í dag Lesbók | Í kompaníi við Ragnar Goðmögn og töfratákn Andrúmsloft borgarinnar Börn | Ballettdans á skautum Af hverju eru beljur með horn? Nútíma-indíánar „VIÐ komumst ekki neitt áfram, bíllinn var orðinn rafmagnslaus þannig að við sátum bara í honum og gátum ekkert gert,“ segir Ás- rún Ýr Rúnarsdóttir en hún og fjórar vinkonur hennar sátu í tæpa þrjá tíma í rafmagnslausum bíl norðan við Holtavörðuheiði í brjáluðu veðri og biðu björgunar. Þegar Morgunblaðið náði tali af þeim voru vinkonurnar, sem eru á nítjánda ári og frá Akureyri, á leið til Hvammstanga í fylgd björgunarsveitarmanna sem drógu bílinn. Ásrún Ýr segir að þær hafi haft teppi í bílnum en það hafi verið mjög kalt. „Við vorum alveg að frjósa. Við reyndum bara að hlýja hver annarri, það var lítið annað að gera.“ Fegnar björguninni Aðspurð segir hún að vinkon- urnar hafi verið rosalega fegnar þegar björgunarsveitarmennirnir komu þeim til hjálpar. Þær gistu hjá frænku einnar þeirra á Hvammstanga í nótt en voru ansi svekktar að komast ekki til Reykjavíkur þar sem þær ætl- uðu út á lífið. „Vinkona okkar er að fara að flytja til Svíþjóðar, við vorum að fara suður til að kveðja hana og það beið okkar hótel í Reykjavík. Við ætlum að reyna að komast yf- ir á morgun [í dag]. Það er reynd- ar búið að bjóða okkur á þorrablót hér, ef allt fer illa,“ segir Ásrún Ýr, þannig að ekki ætti að væsa um vinkonurnar norðan heið- arinnar. „Við vorum alveg að frjósa“ GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði skipað óháða nefnd til að rann- saka leyniþjón- ustugögn um meinta gereyðing- arvopnaeign Íraka fyrir innrásina í Írak. Rannsókn- inni á að ljúka 31. mars á næsta ári. Bush sagði að stjórn sín væri staðráðin í að komast til botns í því hvers vegna engin efna- eða sýklavopn hafa fund- ist í Írak. Níu menn eiga sæti í nefndinni og hún verður undir forystu demókrat- ans Charles Robbs, fyrrverandi rík- isstjóra Virginíu og öldungadeildar- þingmanns, og íhaldsmannsins Laurence Silbermans, fyrrverandi dómara áfrýjunarréttar. Repúblikaninn og öldungadeildar- þingmaðurinn John McCain var einnig skipaður í nefndina, en hann hefur oft gagnrýnt stjórnina og var meðal þeirra fyrstu sem hvöttu til rannsóknarinnar. McCain sagði að nefndin myndi ekki aðeins rannsaka mistök leyniþjónustunnar, heldur einnig hvernig stjórnvöld notuðu gögn hennar. Bush ýtir rannsókn úr vör Washington. AFP. George W. Bush FERÐALANGAR þurftu frá að snúa, vegum var lokað og rafmagn fór af Árneshreppi á Ströndum í norðanstórhríð sem gekk yfir landið í gær og nótt. Stórhríðin skall fyrst á á Vestfjörðum. Segir Jón G. Guðjónsson í Litlu-Ávík á Ströndum að vindmælar hafi farið úr 5 m/sek. í 22 m/sek. á nokkrum mínútum. Um miðjan dag fór rafmagnið í Árneshreppi en á tíunda tímanum í gærkvöldi komst það aftur á. Óveðrið þokaðist síðan austur eftir landinu og var orðið vitlaust veður í Húnavatnssýslum síð- degis. Ekki sást milli húsa á Hvammstanga og voru björgunarsveitir kallaðar út til að aðstoða fólk í bílum sem sátu fastir á Holtavörðuheiði. Ófært var víðar um land, m.a. um Bröttubrekku, Óshlíð, Súðavíkurhlíð, Steingrímsfjarðarheiði, Klettsháls og Strandir. Fjórar björgunarsveitir voru að störfum við að aðstoða ökumenn á Holtavörðuheiði og reyna að fá þá til að snúa við. „Hér er fullt af bílum stopp. Það er engin leið að segja hvað þeir eru margir. Annar björgunarsveitarbíll er kominn við efri endann á bílalestinni, hann tapaði tölunni á bílunum. Ég er búinn að sjá um 15–20 bíla og ég er bara neðst í lestinni,“ sagði Ásgeir Sæmundsson, formaður Björgunarsveitarinnar Brákar, sem var staddur við sunnanverða Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Hann sagði að skyggni væri sama og ekki neitt. Fólk lenti víða í vandræð- um í norðanstórhríð Morgunblaðið/Alfons Blindbylur var í Ólafsvík síðdegis í gær. LÖGREGLA í Bretlandi rannsakar nú hvort 19 manns, sem drukknuðu við skelfiskstínslu í Morecambe-flóa í fyrrakvöld, hafi verið að vinna fyrir glæpagengi. Yfir 30 manns, aðallega kínverskir innflytjendur, voru að tína hjartaskeljar á leirum við ströndina þegar skyndilega flæddi að og fólkið komst ekki í land. Sextán manns fundust á lífi. Svæðið er afar hættulegt vegna þess hve hratt flæðir að, auk þess sem þarna myndast kviksyndi. Lögreglan hóf strax að rannsaka hvers vegna fólkið vann þar við svo hættulegar að- stæður. Fjórtán þeirra sem bjargað var eru Kínverjar, þar af níu hælis- leitendur og fimm ólöglegir innflytj- endur. Hinir tveir sem komust lífs af eru Bretar. „Glæpamenn af versta tagi“ Julia Hodson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í Lancashire, sagði að ver- ið væri að meta hvort lagðar yrðu fram ákærur vegna slyssins, að því er fram kom á fréttavef BBC. Hún lýsti foringjum glæpahringja, sem græddu á þrælavinnu ólöglegra innflytjenda, sem „glæpamönnum af versta tagi“. Formaður sambands breskra verkalýðsfélaga sagði að yfirvöld þyrftu að „beita lögunum af fullum krafti“ gegn þeim sem stjórnuðu skeljatínslunni. „Þetta veitir okkur sjaldgæfa sýn á þessar hættulegu að- stæður og misnotkun sem margir inn- flytjendur verða að þola daglega.“ Nítján drukknuðu við skelfiskstínslu Rannsaka hvort fólkið vann fyrir glæpagengi AP Breskir lögregluþjónar ganga hér framhjá pokum fullum af hjartaskeljum sem fólkið sem drukknaði hafði safnað í flæðarmálinu kvöldið áður. Lundúnum. AFP.  Nítján drukknuðu/20 OLÍUFÉLAGIÐ, Esso, lækkaði í gær verð á 95 oktana bensíni á sjálfs- afgreiðslustöðvum um 3,20 kr. Jafn- framt lækkaði félagið verð á dísilolíu um 5,70 kr. Aðeins eru fjórir dagar síðan félagið, ásamt Skeljungi og Ol- ís, hækkaði eldsneytisverð. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Ol- íufélagsins, segir að verðlækkunin sé í samræmi við þá verðstefnu félags- ins að bjóða ávallt hagstætt verð. „Ef keppinautar okkar á markaði fylgja ekki eftir í verðbreytingum upp á við innan ákveðinna tíma- marka þá einfaldlega lækkum við aftur. Sama gildir ef aðrir lækka meira en við.“ Esso lækk- ar eldsneyti  Olíufélagið/11 HJARTASKELJAR, samlokur af báruskeljaætt, þykja ljúffengar og eru verðmætustu lindýr við strend- ur Bretlands. Verðmæti hjartaskelja hefur aukist mjög að undanförnu vegna umdeilds banns við tínslu þeirra á mörgum leirum á Englandi og í Wa- les. Eiturefni hafði fundist í skelj- um á nokkrum svæðum og reyndist það yfir hættumörkum. Verðmætar skeljar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.