Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 36
FERÐALÖG 36 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ VAR ánægður hópur KR-inga sem lenti heilu og höldnu á Keflavík- urflugvelli sunnudaginn 1. febrúar eftir vikudvöl á skíðum í Tékklandi, sem teljast má harla nýstárlegan skíðakost fyrir Íslendinga. Hópurinn, sem var samtals 55 manns og skiptist nánast jafnt í börn og fullorðna, var mjög ánægður með dvölina og alla aðstöðu. Miðað við svo stóran hóp, breitt aldursbil og mismunandi getu- stig þátttakenda í fjölskylduferðinni, hafi ferðin svo sannarlega staðið und- ir væntingum allra, að sögn Elísabet- ar Jónu Sólbergsdóttur lyfjafræðings sem sá um skipulagningu ferðarinnar ásamt Halldóri Hreinssyni, formanni skíðadeildar KR. Skíðadeild KR fór í fyrsta skipti í fjölskyldu-, ævintýra- og æfingaferð til útlanda með yngstu börnin fyrir tveimur árum og varð skíða- skólabærinn Geilo í Noregi þá fyrir valinu. Noregsferðin þótti takast með afbrigðum vel og því hefur verið ákveðið að stefna á utanlandsferðir með skíðaiðkendur úr KR á aldrinum 5–13 ára á tveggja ára fresti og að sjálfsögðu slást þeir foreldrar í hóp- inn sem sjá sér fært að fara með hverju sinni. Tékkland varð nú fyrir valinu þar sem Halldór formaður þekkti þar til, en hann rekur fyr- irtækið Iceland Explorer eða Íslands- vini og fór í fyrsta skipti með hóp af Ís- lendingum á skíði til Tékklands í febrúar í fyrra. Hann áformar þang- að aðra ferð í febrúar og stefnir jafnvel að þriðju ferð- inni í mars vegna mikillar eft- irspurnar. Glæsilegar veitingar KR-ingarnir fóru hins vegar ekki í gegnum ferðaskrifstofu heldur kusu að vera á eigin vegum og sjá sjálfir um skipulagninguna. „Í stuttu máli má segja að flugið hafi verið dýrt, en annað mjög ódýrt enda er verðlag í Tékklandi afar hagstætt. Hvað varðar frí þá kom ferðin líka vel út fyrir okkur sem erum vinnandi því við náðum sjö skíðadögum þrátt fyrir aðeins fimm frídaga,“ segir Elísabet. „Hópurinn flaug með Flugleiðum til Lundúna að morgni laugardagsins 24. janúar. Þar var beðið í þrjá tíma eftir flugi British Airways til Prag þar sem rúta beið hópsins og ók síðan sem leið lá 160 km norður af höf- uðborginni, til skíðabæjarins Spindleruv Mlyn, sem er við landa- mæri Tékklands og Póllands. Þegar komið var á fjögurra stjörnu hót- elið, Harmony Club þar sem mein- ingin var að halda til næstu dag- ana, um kvöldmatarleytið beið Íslendinganna eitt það flottasta kvöldverðarhlaðborð, sem menn höfðu upplifað um dagana,“ segir Elísabet. Svo komust menn að því að þessi flottheit áttu ekki bara við á laugardags- kvöldum heldur öll kvöld. „Aldrei sáum við tvisvar sinnum sama réttinn í hlað- borðinu þau sjö kvöld sem við stoppuðum, en yfirleitt voru tvenns konar súpur, fimm til tíu litlir for- réttir, fimm tegundir af heitum mat og fimm eft- irréttir auk fjölbreytts úrvals ferskra ávaxta. Morgunverð- arhlaðborðin voru að sama skapi glæsileg og þar hægt að finna flest það sem hugurinn girntist áður en haldið var út í skíðabrekkurnar. Hót- elið býður bæði upp á íbúðir og mis- stór herbergi, sem eru svolítið hrá að innan, en sameiginleg aðstaða, svo sem veitingastaðir og barir, eru til fyrirmyndar. Hótelið býður jafn- framt upp á alla hugsanlega afþrey- ingu til dægrastyttingar og heilsu- ræktar, en greiða þarf sérstaklega fyrir hana að sundaðstöðu barna und- anskilinni. Læstir skápar eru fyrir skíðabútbúnað gestanna. Salerni eru þrifleg og böð inni á öllum her- bergjum auk síma og sjónvarps með erlendum stöðvum.“ Góðar snjóaðstæður Hótelið er í miðju skíðasvæðinu, sem er besta skíðasvæði Tékklands, en þangað sækja um 700 þúsund gestir ár hvert. Staðurinn er sér- staklega vinsæll meðal danskra skíðaáhugamanna. Þar er m.a. að finna 25 km af skíðabrekkum, 70 km af gönguskíðabrautum, fjórar stóla- lyftur auk ellefu toglyftna af ýmsu tagi, en samanlagt eru lyfturnar sagðar geta flutt allt að 18 þúsund skíðamenn á klukkutíma. Sérstakt skíðasvæði er fyrir næturhrafna og önnur svæði fyrir snjóbrettaiðk- endur. Inniaðstaða í skálum er oft lít- il sem engin og var því vinsælla að borða utan dyra í fjallinu, en þrátt fyrir stillur gat verið kalt. Skíða- skólar eru reknir á svæðinu, en KR- ingarnir ákváðu að taka með sér tvo skíðaþjálfara að heiman sem fengu Flugleiðalegginn til London frían og þeir fengu sömuleiðis fría bæði gist- ingu og skíðapassa. Spurð út í kostn- aðartölur, svarar Elísabet því til að flugið hafi kostað frá 37.300–44.500 fyrir manninn. Hins vegar hafi gist- ing í sjö nætur á fjögurra stjörnu hót- eli með morgunverðarhlaðborðinu inniföldu kostað 16 þúsund krónur að jafnaði á manninn. Til að ná fram hagstæðasta gistimöguleika, var not- ast við aukarúm fyrir börnin, eins og hægt var inn í herbergi og íbúðir. Kvöldverðarhlaðborð í jafnmarga daga hafi hljóðað upp á 3.600 kr. fyrir börn yngri en 13 ára og 7.250 kr. fyrir aðra. „Við fjölskyldan pöntuðum okkur síðan yfirleitt mat í hádeginu í fjall- inu. Við hjónin fengum okkur gjarn- an snitsel og heitt rauðvín eða bjór og börnin fjögur hamborgara, franskar og gos. Þetta kostaði að meðaltali 1.500 kr.“ Lokakvöld í Prag Þegar mannskapurinn hafði notið útiverunnar og lystisemda hótelsins í vikutíma og skoðað litla skíðabæinn þar sem er m.a. að finna skíðabúðir, kaupfélag og krystalbúð, flutti rúta hópinn á hótel Ibis Praha Karlin ná- lægt miðborg Prag seinnipart laug- ardagsins 31. janúar og notuðu marg- ir tækifærið til að skoða sig um í miðborginni um kvöldið. Hægt var að komast á fimm mínútum með neð- anjarðarlest niður í miðborgina. El- ísabet segist hafa farið ásamt eig- inmanni sínum og börnum á aldrinum 10–13 ára á pitsuveit- ingastað í nágrenninu, pantað sjö eld- bakaðar pitsur, sem hver hafi verið nálægt 16 tommum að stærð, auk rauðvínsflösku, vatns og fimm kók- flaskna og hafi reikningurinn fyrir allt saman hljóðað upp á sem svarar um þremur þúsundum króna.  SKÍÐASVÆÐI| KR-ingar æfðu sig í Tékklandi Frábær aðstaða og ódýrt að lifa Íslendingar eru farnir að líta til austurs eftir skíða- paradísum og hafa uppgötv- að Tékkland í því sambandi. Elísabet Jóna Sólbergsdóttir er ánægð með aðstöðuna þar. Á skíðum: Hópur 5–13 ára krakka úr KR í Tékklandi ásamt skíðaþjálfurunum Maríu og Helga Steinari. Slakað á: Elísabet Jóna Sólbergsdóttir ásamt börnun sínum Sólrúnu, Að- alheiði, Hjörleifi og Vilborgu Guðjónsbörnum og Atla Guðjónssyni, sem fékk að fljóta með fjölskyldunni join@mbl.is Hótelið Harmony Club ul. 28. rijna 170, Ostrava Marianske Hory Tékklandi www.czechhotels.cz www.skiarealspindl.cz www.hotelibis.cz www.motylek.com/pardubice/ harmony_club/default.asp Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar. (Afgr. gjöld á flugvöllum). Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna, minibus og rútur. Sumarhús og íbúðir. Norðurlönd og Mið - Evrópa. Hótel. Heimagisting. Bændagisting. www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU gisting í Kaupmannahöfn frá DKK 90,- www.gisting.dk sími: 0045 32552044 Kynningarfundur um gönguferðir erlendis Sími 585 4140 og 585 4100 verður haldinn sunnudaginn 8. febrúar kl. 15.00 á Hótel Loftleiðum, Víkingasal Myndasýning og ferðalýsingar •Gönguferðir í „hefðbundnum takti“ •Gönguferðir í „léttari takti“ •Gönguferð fyrir matgæðinga Áfangastaðir: Mallorca, Pyreneafjöll, Krít, Toscana, Dolomitafjöll, Tatrafjöll í Slóvakíu og Türingen í Þýskalandi Aðgangur, kaffi og kökur kr. 600
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.