Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 67
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir hlýju og ein-
lægni og ert blátt áfram.
Fólk kann að meta jarð-
bundið skopskyn þitt, en um
leið hefur þú sterkar hug-
sjónir. Þú þarft meira frelsi
og ný sambönd gætu mynd-
ast á árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er rétt að huga að
markmiðum og væntingum.
Ert þú að uppfylla eigin
væntingar, eða væntingar
annarra?
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tímabært er að gera áætlanir
um framtíð þína í starfi. Þú
skalt velta fyrir þér hvort mál
hafi tekið þá stefnu, sem þú
ætlaðir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Á næstu vikum væri upplagt
að ferðast. Forvitni þín um
umheiminn er vakin og nú
gæti komið tækifæri til að
leggja land undir fót.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Búast má við að ræða þurfi
fjármál og fasteignir. Sam-
eiginlegar eignir verða líkast
til á döfinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að fá málin á hreint
gagnvart félaga eða nánum
vini. Ekki forðast erfið mál,
sem valda þér áhyggjum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er rétti tíminn til að beita
huganum. Þú vandar þig
mjög um þessar mundir og
lætur fátt fram hjá þér fara.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft ekki að réttlæta all-
ar þínar gerðir. Stundum er
ánægja næg ástæða til að
gera eitthvað. Ekki láta
stjórnast af væntingum ann-
arra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú er rétt að eiga samskipti
við foreldri, meðal annars
vegna þess að þú átt um þess-
ar mundir auðvelt með að
færa innstu hugsanir þínar í
orð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú munu hlutirnir gerast
hratt í lífi þínu. Ekki berjast á
móti heldur láttu berast með
straumnum með bros á vör.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur meiri áhyggjur af
viðskiptum þessa dagana en
endranær, en nærð líklega
takmarki þínu vegna þess að
þú skipuleggur hlutina vand-
lega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú finnur fyrir þörf til að
ræða við aðra og koma skoð-
unum þínum á framfæri. Þú
finnur einnig fyrir ferðalöng-
un og vilt kanna heiminn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Erfitt er að losna við dag-
draumana um þessar mundir.
Ekki láta segjast þótt þú eigir
erfitt með einbeitinguna. Þú
ert einfaldlega annars hugar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VOR BORG
Ó, byggið traust! svo borg vor fái staðið
í blárri fjarlægð tímans, endalaust,
og risavaxna hallarmúra hlaðið
á hellubjargsins grunni. – Byggið traust!
og kastið burtu efnum einskisnýtum,
svo öll vor borg sé risin, sterk og hrein,
úr gráum steini, gulum eða hvítum,
og greypið vora list í þennan stein.
Í múrsins óði bjarg við bjarg skal ríma,
svo börn vor kynnist hruni voru og sorg,
og gruni vora gleði, – einhvern tíma,
er grafa þau úr jörðu vora borg.
Guðmundur Böðvarsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 10. febrúar
nk. verður Pálmi Hann-
esson bifvélavirkjameistari
fimmtugur, af því tilefni
munu hann og kona hans
Sara K. Olsen taka á móti
ættingjum og vinum í KK-
húsinu, Vesturbraut 17–19,
Keflavík, í dag, laugardag-
inn 7. febrúar, frá kl. 20 til
kl. 23.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 30. ágúst 2003 í Garðakirkju
þau Ragnheiður Arngrímsdóttir og Árni Már Haraldsson.
Sagnir eru svo lélegar að
það tekur því ekki að nefna
þær. En eitt af því skemmti-
lega við bridsspilið er ein-
mitt það að stundum græðir
maður á því að spila vonda
samninga. En þá þarf
tvennt að koma til: Vönduð
spilamennska og góð lega.
Þraut fjögur:
Norður
♠10842
♥KG975
♦–
♣G984
Suður
♠ÁK3
♥ÁD10
♦Á
♣ÁD6532
Þú ert í suður og spilar
sjö lauf. Útspil vesturs er
tíguldrottning.
Hver er áætlunin?
– – –
Norður
♠10842
♥KG975
♦–
♣G984
Vestur Austur
♠D5 ♠G976
♥8643 ♥2
♦DG96542 ♦K10873
♣– ♣K107
Suður
♠ÁK3
♥ÁD10
♦Á
♣ÁD6532
Lausn: Þetta spil snýst
auðvitað bara um tromp-
kónginn. Þegar þrjú spil eru
úti er rétt að svína, enda lík-
legra að kóngurinn sé eitt af
tveimur (eða þremur) spil-
um í austur en blankur í
vestur. En ef austur á öll
þrjú trompin (K107) verður
að fara af stað með gosann
fyrst. Í því tilfelli gæti þurft
tvær innkomur í borð og það
er óþarfi að treysta á þær
báðar í hjarta. Því er best að
trompa tígulásinn og fara af
stað með laufgosa. Ef aust-
ur leggur á (sem hann gerir
væntanlega), er síðan nóg
að fara einu sinni inn í borð
á hjarta til að svína aftur
fyrir lauftíu.
Stig: Þú tekur 10 stig fyr-
ir að trompa fyrsta slaginn
og spila laufgosa. Ef þú
tókst slaginn heima á tíg-
ulás og spilaðir hjarta á
borðið og laufgosa þaðan: 6
stig. Ef þú svínaðir strax
drottningunni: 4 stig. Og ef
þú lagðir niður laufás: 1 stig
(það er aldrei að vita!).
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Rf3 d6 2. d4 Rf6 3. c4 g6 4.
Rc3 Bg7 5. e3 c6 6. Bd3
Dc7 7. O-O O-O 8. b3 Rbd7
9. Bb2 e5 10. Dc2 exd4 11.
exd4 Rb6 12. Ba3 He8 13.
Hae1 Bg4 14. Rd2 d5 15.
c5 Rbd7 16. h3 Be6 17. Rf3
Rf8 18. b4 a6 19. Bc1 h6
20. a4 Dd7 21. Re5 Dc8 22.
b5 axb5 23. axb5 R6d7 24.
f4 Rxe5 25. fxe5 Bxh3 26.
gxh3 Dxh3 27. Be3 Ha3
28. Hf2 Bxe5 29. dxe5
Hxe5 30. Rb1
Staðan kom upp í Skák-
þingi Reykjavík-
ur sem lauk fyrir
skömmu. Krist-
ján Örn Elíasson
(1730), svart,
hafði í þessari
skák gegn Gísla
Jóhannessyni
(1935) fórnað
tveimur mönnum
fyrir fjögur peð.
Það dugði til að
rugla andstæð-
inginn í ríminu
enda sókn svarts
ekki auðveld við-
ureignar. Í stað
síðasta leik hvíts
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik
hefði 30. Dc1! getað valdið
svörtum töluverðum erf-
iðleikum. 30... Hxd3! Eftir
þetta er staða hvíts töpuð
enda fær svartur of mörg
peð fyrir manninn sem
hann verður undir. 31.
Dxd3 Hg5+! 32. Bxg5
Dxd3 33. Bf6 Re6 34. bxc6
bxc6 35. Rc3 g5 36. Be5 f5
37. Ha2 Kf7 38. Ha7+ Kg6
39. He2 f4 40. Bh8 Dg3+
41. Kf1 Rxc5 42. Hg7+
Kh5 43. Hg2 Dd3+ 44.
Kg1 De3+ 45. Kh1 De1+
46. Kh2 f3 47. Hg3 Df2+
48. Kh3 Re6 49. Hf7 Rf4+
50. Hxf4 gxf4 51. Hg8
Dh4#
Framvegis áttu að
sleppa "voru daglega
brauði".
KONAN
TÍSKUVÖRUVERSLUN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10 – SÍMI 544 4035
Verðhrun
Ótrúlegt verð
Frá 500 kr.
Stærðir 34 - 56
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími mán. - fös. kl. 11-18 & lau. kl. 12-16
Útsölulok
Útsölulok
Útsölulok