Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 69
ÍÞRÓTTIR
ARSENAL, Manchester United
og Chelsea hafa fengið aðvörun
frá Knattspyrnusambandi Evr-
ópu, UEFA, um að liðin komist
ekki upp með það að gefa leik-
menn sína ekki eftir í 100 ára af-
mælisleik Alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins, FIFA – leik
heimsmeistara Frakklands 1998
og Brasilíu 2002, sem á að fara
fram í París 20. maí, eða tveimur
dögum fyrir bikarúrslitaleikinn í
Englandi, sem fer fram í Cardiff
22. maí. Ensku liðin þrjú, sem
hafa í herbúðum sínum landsliðs-
menn frá Frakklandi og Brasilíu,
hafa látið í ljós furðu sína á vali á
leikdegi.
Liðin hafa marga Frakka og
Brasilíumenn í herbúðum sínum
og koma þeir til með að vera
valdir til að leika í París – leik-
menn eins og Thierry Henry,
Patrick Vieira, Robert Pires og
Gilberto Silva hjá Arsenal,
Claude Makelele hjá Chelsea og
Mikael Silvestre og Kleberson
hjá Manchester United.
Michael Platini, sem hefur séð
um að skipuleggja leikinn fyrir
FIFA, segir að leikdagurinn hafi
verið ákveðinn fyrir fjórum árum
og honum verði ekki breytt. „Ég
geri mér fyllilega grein fyrir að
ef Arsenal eða hin liðin tvö leika
til úrslita verða leikmenn sem
valdi verða til að leika afmæl-
isleikinn að semja við landsliðs-
þjálfara að leika aðeins hluta af
afmælisleiknum,“ sagði Platini.
Arsenal, Man. Utd. og
Chelsea fá aðvörun
ARON Kristjánsson, handknattleiks-
maður hjá danska úrvalsdeildarlið-
inu Tvis/Holstebro, sem íslenska
landsliðið saknaði sárt á Evrópumót-
inu í Slóveníu á dögunum, hefur enn
ekki jafnað sig á hnémeiðslum og
óvíst er hvort hann geti nokkuð spila
meira með á yfirstandandi leiktíð.
Aron gekkst undir aðgerð í lok októ-
ber en í ljós kom að brjósk í hné hans
var skemmt og hnéskelin sködduð.
„Það eru framfarir í æfingaferlinu
en það er nokkuð langt þar til ég get
farið að spila handbolta að nýju. Ég á
erfitt með að beygja mig niður og
taka hliðarskref. Það sem gerðist var
að hnéskelin fór af stað og hún slóst
utan í brjósk í utanverðu lærbeininu
alveg við hnjáliðinn. Það getur farið
svo að ég þurfi að fara í aðra aðgerð
en auðvitað vona ég að þess gerist
ekki þörf og að ég geti náð síðustu
leikjunum með Tvis á tímabilinu,“
sagði Aron við Morgunblaðið í gær.
Aron gerði tveggja ára samning við
danska úrvalsdeildarliðið Tvis/
Holstebro síðastliðið vor en þegar
honum bauðst að koma til síns gamla
félags aftur, Skjern, og taka við
starfi aðstoðarþjálfara þá nýtti hann
sér uppsagnarákvæði í samningnum
og yfirgefur hann því Tvis/Holstebro
eftir tímabilið. „Ég er mjög spenntur
að fara aftur til Skjern. Þetta er frá-
bær klúbbur og það verður gaman að
vinna með Anders Dahl á nýjan leik.
Hann byrjaði að þjálfa Skjern á sama
tíma og ég byrjaði að spila með liðinu
og þar er toppmaður á ferð,“ sagði
Aron.
Útlitið ekki gott hjá
Aroni Kristjánssyni
Aron Kristjánsson
Það var aðeins jafnræði með lið-unum fyrstu tíu mínúturnar en
eftir að norðanmenn náðu undirtök-
unum um miðjan
fyrri hálfleik slepptu
þeir þeim aldrei. Þeir
náðu mest sex marka
forskoti fyrir hlé,
staðan var 19:14 í hálfleik, og þrátt
fyrir ágæta byrjun Stjörnunnar og
fjögurra marka mun eftir nokkrar
mínútur í síðari hálfleik, voru KA-
menn fljótir í gírinn á ný. Þeir gerðu
út um leikinn um miðjan síðari hálf-
leik með fjórum mörkum í röð, kom-
ust þá í 28:19 og eftirleikurinn var
þeim auðveldur.
KA lagði grunninn að sigrinum
með sterkum varnarleik. Liðið spilaði
3-2-1 vörn á löngum köflum með góð-
um árangri, hleypti hinum kraftmikla
Vilhjálmi Halldórssyni aldrei inn í
leikinn og fyrir aftan vörnina var
Hafþór Einarsson mjög öruggur. Þar
voru gæðin framar magninu, 12 skot
varin þykir kannski ekki mikið en þau
höfðu mun meiri þýðingu fyrir KA en
þau 17 skot, sem Jacek Kowal í marki
Stjörnunnar náði að stöðva, höfðu
fyrir Garðbæinga.
Í sóknarleik KA var Einar Logi
Friðjónsson sérlega öflugur og
Stjörnumenn réðu lítið við hann, auk
þess sem Arnór Atlason skilaði sínu
og var öruggur í vítaköstunum. And-
rius Stelmokas greip flest sem hönd á
festi á línunni og var sérstaklega
drjúgur seinni part fyrri hálfleiks.
Jónatan Magnússon er liðinu geysi-
lega mikilvægur í sókn og vörn, dríf-
ur það áfram og spilar samherja sína
vel uppi. Það vakti þó athygli að þrátt
fyrir örugga stöðu um miðjan síðari
hálfleik keyrði Jóhannes Bjarnason,
þjálfari KA, á sömu sex mönnunum í
sókninni þar til 3 mínútur voru eftir
og þar gæti helsti veikleiki KA legið
þegar á líður – í skorti á breidd.
Stjarnan er þegar komin lengra en
flestir spáðu. Garðabæjarliðið komst
frekar óvænt inn í úrvalsdeildina og
byrjar hana í ágætri stöðu, með 6
stig. Það er þó hætt við að róðurinn
verði þungur því reynslan er lítil. En
það býr mikið í þessu unga liði og Sig-
urður Bjarnason er greinilega á
réttri leið með það. Í þessum leik
voru sérstaklega sóknarmistökin lið-
inu dýrkeypt og fyrir þau var því
refsað. Sigurður lék talsvert með
sjálfur, sem hann gerði lítið af í for-
keppninni, og þegar hann kemst
sjálfur í betri leikæfingu styrkist lið-
ið. Stjarnan þarf á því að halda í þess-
ari úrvalsdeild að hann og Gústaf
Bjarnason, þessir þrautreyndu fyrr-
um atvinnu- og landsliðsmenn, dragi
vagninn. Strákarnir valda því ekki
einir, þó efnilegir séu. David Kekelia
var frískastur Stjörnumanna að
þessu sinni ásamt Kowal markverði,
og margir yngri strákanna áttu
ágæta spretti.
Æfðum rosalega vel í fríinu
„Það var vissulega erfitt að byrja
aftur eftir svona langt hlé. Við vorum
fyrstu tíu mínúturnar að ná áttum en
síðan kom þetta. Við ætluðum okkur,
eins og allir aðrir, að byrja á sigri og
það var okkur afar mikilvægt að ná
því, og það á svona sannfærandi
hátt,“ sagði Jónatan Magnússon, fyr-
irliði KA, við Morgunblaðið eftir leik-
inn.
Það var ekki annað að sjá á leik
ykkar en að þið hafið nýtt fríið vel.
„Já, við æfðum rosalega vel. Við
héldum öllu liðinu saman, nema
Stelmokas, og höfum ekki átt við nein
meiðsli að stríða. Við spiluðum
nokkra æfingaleiki við Þór og fórum
einu sinni suður þar sem við náðum
þremur leikjum. Síðan æfðum við af
miklum krafti, oft tvisvar á dag. Okk-
ur fannst við ekki vera í nægilega
góðri æfingu fyrir áramótin og
reyndum því að bæta vel við okkur.
Miðað við fyrsta leik virðist það hafa
tekist, allavega náðum við að keyra
lengur en Stjörnumenn og úrslitin
voru í raun ráðin um miðjan síðari
hálfleik. Þó þeir minnkuðu muninn af
og til höfðum við alltaf kraft til að
gefa í á ný.“
Hver eru ykkar markmið í upphafi
nýrrar úrvalsdeildar?
„Við settumst niður í fríinu og sett-
um okkur það takmark að ná einu af
fjórum efstu sætunum og fá þannig
heimaleikjarétt í úrslitakeppninni.
Það er verðugt markmið í hörkudeild
eins og hún verður. Það er nóg fram-
undan, núna bíður okkar rútuferð og
heimkoma í nótt, leikur við Fram á
sunnudag, og síðan undanúrslitaleik-
ur í bikarnum á þriðjudag, þar sem
við ætlum okkur alla leið,“ sagði Jón-
atan.
KA-menn til
alls líklegir
Morgunblaðið/Golli
Arnór Atlason leikmaður KA brýst framhjá Sigurði Bjarnasyni leikmanni og þjálfara Stjörnunnar.
KA-MENN koma greinilega vel
undirbúnir til leiks eftir vetr-
arfríið í handboltanum. Þeir
unnu mjög sannfærandi sigur á
Stjörnunni, 34:26, í fyrstu um-
ferð úrvalsdeildarinnar í Garða-
bænum í gærkvöld og virðast til
alls líklegir í seinni hluta Ís-
landsmótsins. Stjörnunnar bíð-
ur aftur á móti erfið barátta fyrir
því að ná einu af sex efstu sæt-
unum ef marka má þennan leik
þar sem Garðbæingar voru allt-
af skrefinu á eftir andstæð-
ingum sínum.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
DENNIS Bergkamp, Hollending-
urinn í liði Arsenal, jafnar í dag met
danska markvarðarins Peters
Schmeichels spili hann leikinn gegn
Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Schmeichel er sá út-
lendingur sem leikið hefur flesta
leiki fyrir eitt lið í ensku úrvalsdeild-
inni – lék 252 leiki fyrir Manchester
United á tímabilinu 1992-1999.
BERGKAMP hefur spilað 251 leik
fyrir Arsenal og er næstur í röðinni á
eftir Schmeichel, Daninn Claus Lun-
dekvam er í þriðja sæti með 244 leiki
fyrir Southampton, Frakkinn Pat-
rick Vieira fjórði með 232 leiki fyrir
Arsenal og Ítalinn Gianfranco Zola
fimmti með 229 leiki fyrir Chelsea.
DWIGHT Yorke frá Trínidad og
Tobaco er sá útlendingur sem á
flesta leiki að baki í ensku úrvals-
deildinni. Hann hefur spilað 327 leiki
en fyrir þrjú félög, Aston Villa, Man-
chester United og Blackburn þar
sem hann leikur núna.
RYAN Giggs er sá breski leikmað-
ur sem á flesta úrvalsdeildarleiki að
baki fyrir eitt og sama liðið en Giggs
hefur leikið 361 leik fyrir Manchest-
er United. Ray Parlour kemur næst-
ur með 328 leiki fyrir Arsenal.
ARSENAL sækir Wolves heim í
dag í ensku úrvalsdeildinni og tapi
Arsenal ekki leiknum verður þetta
besta byrjun liðsins í úrvalsdeildinni.
Arsenal hefur enn ekki tapað leik í
deildinni á þessu tímabili en leikur-
inn í dag er sá 24. í röðinni. Arsenal
hefur ekki tapað nema tveimur af
síðustu 44 leikjum sínum í úrvals-
deildinni.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
verður á varamannabekk Úlfanna en
hann hefur fengið fá tækifæri með
liðinu á undanförnum vikum. Paul
Ince er í leikbanni en stuðningsmenn
Úlfanna vonast eftir því að þeirra
menn velgi toppliði Arsenal undir
uggum eins og þeir gerðu gegn Man-
chester United og Liverpool. Wolv-
es lagði United fyrir skömmu, 1:0, og
gerði 1:1 jafntefli Liverpool.
ÍSLENDINGASLAGUR verður á
Stamford Bridge á morgun þegar
Chelsea tekur á móti Charlton.
Ógerningur er að spá því hvaða
framherjapari Claudio Ranieri,
stjóri Chelsea, stillir upp en Eiður
Smári lék aðeins tvær síðustu mín-
úturnar í sigri Chelsea á Blackburn
um síðustu helgi. Hermann Hreið-
arsson verður hins vegar á sínum
stað í vörn Charlton sem hafði betur
í rimmu liðanna á The Valley, 3:1.
ANNAR Íslendingaslagur er á
dagskrá í ensku 1. deildinni í dag
þegar Coventry og Nottingham
Forest eigast við. Bjarni Guðjónsson
verður nær örugglega í byrjunarliði
Coventry en Brynjar Björn Gunn-
arsson verður að öllum líkindum á
bekknum hjá Forest.
FÓLK