Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 30
LANDIÐ 30 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Fjarðabyggð | Fjarðabyggð hefur sent til athugunar Skipulagsstofnunar mats- skýrslu um snjóflóðavarnir á svonefndu Tröllagiljasvæði í Norðfirði. Tillaga að framkvæmdinni og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 4. febrúar til 17. mars 2004 á bæjarskrifstofu Fjarðabyggð- ar í Neskaupstað, á bókasafni Neskaup- staðar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipu- lagsstofnun. Matsskýrslan er einnig aðgengileg á vefnum www. honnun.is. Allir hafa rétt til að kynna sér fram- kvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og ber- ast eigi síðar en 17. mars 2004 til Skipulags- stofnunar. Þriðji áfangi af sex til varnar byggðinni Í matsskýrslunni segir að þéttbýlið á Norðfirði sé að mestu leyti staðsett á snjó- flóðahættusvæði, þó að hættan sé mismikil eftir staðsetningu. Nú þegar er búið að verja byggðina neð- an Drangagils með keilum, þvergarði og upptakastoðvirkjum. vel að landslaginu og verði ekki áberandi frá þéttbýlinu séð. Varnirnar munu verða meira áberandi séð frá innkeyrslunni í bæinn, ofan þeirra og frá sjó. Þessi neikvæðu sjónrænu áhrif eru einna neikvæðustu áhrif framkvæmd- arinnar. Tillögur landslagsarkitekta um frágang svæðisins eru á þann veg að skapa útivist- arsvæði á garða- og keilusvæði, sem mun breyta nýtingu svæðisins í nokkurs konar manngert útivistarsvæði í skjóli tröllslegra mannvirkja, eins og segir í skýrslunni. Fyrirhugað er að verkið hefjist sumarið 2004 og gera má ráð fyrir að verktími sé allt að 4 ár. Kostnaður við snjóflóðavarnir, færslu stofnæðar vatnsveitu og uppkaup á íbúðarhúsnæði hefur verið áætlaður 1.135 milljónir króna á verðlagi í byrjun ársins 2003. Á framkvæmdatíma má gera ráð fyrir að þörf fyrir vinnuafl aukist. Öryggi fólks og fasteigna mun aukast með uppsetningu snjóflóðavarnanna. Til lengri tíma litið er samkvæmt skýrslunni áætlað að fram- kvæmdin hafi jákvæð áhrif á samfélagið og íbúaþróun í Norðfirði. Í þessum áfanga er fyrirhugað að koma upp snjóflóðavörnum fyrir svokallað Tröllagiljasvæði í Norðfirði. Framkvæmd- araðili er Fjarðabyggð. Varnir á Trölla- giljasvæðinu eru þriðji áfangi af sex í því að verja byggðina í Norðfirði gegn snjóflóð- um. Í frumathugun snjóflóðavarna fyrir Tröllagiljasvæðið er lagt til að byggja stoð- virki á hluta upptakasvæða snjóflóða til að takmarka stærð flóða, keilur til að hægja á flóðum og þvergarð til að stöðva snjóflóð, ásamt leiðigarði til að beina flóðum frá vest- asta hluta byggðarinnar. Tilgangur með byggingu varnarvirkj- anna er að verja byggð neðan þeirra gegn snjóflóðum, þannig að öryggi byggðarinnar verði viðunandi. Markmiðið er að draga úr snjóflóðahættu þannig að öryggi íbúanna gagnvart ofanflóðum verði tryggt. Breytir yfirbragði bæjarins Varnarvirkin eru umfangsmikil og munu breyta yfirbragði bæjarins og útsýni til fjalls. Áhrif á landslag eru einna helst sjón- ræns eðlis og ásýnd landsins mun breytast vegna efnistöku, skeringa og varnarmann- virkja. Segja má að varnirnar falli nokkuð Skipulagsstofnun send matsskýrsla um snjóflóðavarnir Þriðji áfangi af sex til varnar byggð í Norðfirði Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Keilur til varnar: Hluti af núverandi snjóflóðavarnamannvirkjum fyrir ofan Neskaupstað, en þau setja sterkan svip á Norðfjörð. Hornafjörður | Fundist hefur 50 gráða heitt vatn í tveimur u.þ.b. 420 metra djúpum holum við Miðfell í Hornafirði en þar hefur að undanförnu verið leitað að heitu vatni í nægilegu magni til húsahitunar á Höfn. Borunum er nú lokið í bili og verða holurnar nú „hvíldar“ sögn Ómars Bjarka Smárasonar, jarðfræð- ings hjá jarðfræðistofunni Stapa. Hitastigið í holunum verður mælt eftir tvær vikur en verið getur að hitinn muni hækka á þeim tíma. Ómar Bjarki segir að margt geti truflað vatnskerfið á svæðinu og meðal annars renni vatn úr holu sem bor- uð var fyrir áratug. „Við erum ekki komnir á beinu brautina ennþá og ég vil taka eitt skref í einu í þessu,“ segir Ómar Bjarki. Jarðboranir ehf. hafa séð um borun en verkið er er á vegum Stapa. Bor Jarðborana er væntanlegur austur eftir tvær vikur og þá verður borunum haldið áfram. Markmiðið með þessum áfanga að staðsetja vinnsluholuna. „Það bendir allt til þess að þarna sé nægjanlegt heitt vatn en menn geta samt sem áður aldrei verið vissir fyrr en vatnið er komið upp úr holunni,“ segir Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur. Ef nægilegt magn af heitu vatni finnst við Miðfell verður það leitt um 20 km leið til Hafnar. Þar verður því veitt á dreifikerfi Rarik, sem langflest íbúðarhús í bænum tengjast. Kostnaður við að koma upp hitaveitu á Höfn er því einungis fólginn í borun vinnsluholu og lagn- ingu 20 km. hitaveitulagnar. Talið er að kostnaður við þær framkvæmdir nemi u.þ.b. 300 milljónum króna. Þar við bætist kostnaður við jarðhitaleit en í þessum áfanga er áætlað að verja 6-8 milljónum til verkefn- isins. Jarðhitaleit í Hornafirði Morgunblaðið/Sigurður Mar Borað: Holurnar verða „hvíldar næstu vikurnar“. 50 °C heitt vatn í tveimur holum ALLIR kennarar grunnskólanna fjögurra í Húnaþingi eru að vinna þróunarstarf til að þróa og bæta starfshætti skólanna nem- endum til hagsbóta. Verkefnið heitir: Læsi til framtíðar og hefur það að meg- inmarkmiði að auka lestrarfærni nemenda, einkum lesskilning. Nemendur læra að beita misjöfnum aðferðum við lestur og nám, allt eftir því sem best hentar hverjum og einum. Kenna þarf nem- endum aðferðir sem eru í senn einfaldar en áhrifaríkar. Nú eru kennarar að læra hvernig kenna má nemendum að nota hugtakakort. ugtakakort auðveldar hugsun og skilning, er myndrænt, skráir og flokkar upplýsingar o.fl. Þá auðveldar hug- takakortið skilning, tileinkun nýrra hugtaka, skipulagningu hug- taka, yfirsýn yfir nám o.fl. Skipulag og framkvæmd þróunarstarfsins er í höndum Rósu Eggertsdóttur, sérfræðings á Skólaþróunarsviði Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Hópurinn: Kennarar skólanna ásamt leiðbeinanda á fyrsta fræðslufundi ársins sem haldinn var í félagsheimilinu á Blönduósi. Kennarar í Húnaþingi þróa og bæta starfshætti skólanna Bolungarvík | Að frumkvæði atvinnumálaráðs Bol- ungarvíkur og með stuðningi Svæðismiðlunar Vest- fjarða, er um þesssar mundir verið að hleypa af stokkunum átaki til atvinnusköpunar í Bolungarvík. Þau verkefni sem ráðist verður í nú eru ann- arsvegar aukið aðgengi og sérstök þjónusta við fjar- námsnemendur í Bókasafni Bolungarvíkur og hins- vegar uppsetning og þróun listasmiðju fyrir almenning. Atvinnuleysistryggingarsjóður styrkir þessi verk- efni næstu sex mánuði og er gert ráð fyrir því að verkefnin skapi þrjú stöðugildi fyrst til að byrja með, eitt í Bókasafninu og tvö við listasmiðjuna. Í húsnæði því sem Bolungarvíkurkaupstaður legg- ur til undir starfsemi listasmiðjunar voru þær Ragna J. Magnúsdóttir formaður atvinnumálaráðs og Guðný Eva Birgisdóttir starfsmaður listasmiðjunar að kanna aðstæður og leggja á ráðin með undirbúning starf- seminnar, en bráðlega verða í boði námskeið fyrir al- menning í gerð listmuna. Listasmiðjan verður formlega opnuð laugardaginn 14. febrúar kl. 11 þá er öllum sem áhuga hafa á verk- efninu boðið að skoða aðstöðuna og þiggja kaffi og með því en þann sama dag kl. 12 verður haldið nám- skeið í keramikmálun. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Lagt á ráðin: Guðný Eva Birgisdóttir listasmiðju og Ragna J. Magnúsdóttir formaður atvinnumálaráðs. Átak til atvinnusköpunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.