Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
John Edwards, frambjóðandi íforkosningum demókrata,þykir undarlegur stjórn-málamaður. Hann er millj-
ónamæringur sem ber reiði verka-
manns í brjósti; er með klippingu
auðmanns en ber ódýrt tölvuúr og
gengur í slitnum skóm; á fjögur
hús, hefur barnfóstru og ráðskonu
en fer samt alltaf með konunni sinni
á ódýran hamborgarastað þegar
þau eiga brúðkaupsafmæli af því að
þangað fóru þau fyrst eftir að þau
giftust.
Sumir segja að Edwards sé hinn
nýi Bill Clinton. Hann þykir mynd-
arlegur og hafa kjörþokka, hann er
líka frá Suðurríkjunum sem ætti að
teljast honum til tekna í ljósi sög-
unnar því þaðan hafa allir forsetar
úr Demókrataflokknum komið síð-
ustu 40 árin.
Honum hefur gengið nokkuð vel í
kosningabaráttunni, í forkosning-
unum á þriðjudag sigraði hann í
einu ríki af sjö, Suður-Karólínu,
varð í öðru sæti í tveimur ríkjum en
í því fjórða í þremur ríkjum. Það
sem helst er talið há honum er
reynsluleysi, hann er nýliði í pólitík
sem á eftir að sanna sig.
Hann á enn möguleika á að verða
forsetaefni demókrata í nóvember
en verður að herða róðurinn, John
Kerry virðist hafa talsvert forskot.
Kominn af fátæku fólki
Edwards er fylgjandi rétti
kvenna til fóstureyðinga og styður
jákvæða mismunun minnihlutahópa.
Hann er fylgjandi dauðarefsingum
en andvígur rétti samkynhneigðra
til að gifta sig, eins og reyndar hinir
þrír efstu frambjóðendurnir eru
líka. Hann greiddi atkvæði með því
að ráðast inn í Írak en gegn 6.000
milljarða króna fjárveitingu til upp-
byggingar og hernaðar í landinu
sem samþykkt var á þinginu í
haust.
Edwards er 51 árs og starfaði
sem lögfræðingur áður en hann var
kosinn á þing. Hann ólst upp í smá-
bænum Piedmont í Norður-
Karólínu þar sem faðir hans vann í
myllu og móðir hans rak verslun og
vann á pósthúsi. Hann var sá fyrsti
í fjölskyldunni til að fara í háskóla
og vann í sömu myllu og faðir hans
til að borga skólagjöldin. Hann út-
skrifaðist með lagagráðu 1977,
starfaði sem lögmaður í tæplega
tuttugu ár og hagnaðist gríðarlega.
Eiginkonu sinni Elizabeth kynnt-
ist hann í lagaskóla og giftu þau sig
rétt eftir útskrift. Þau eignuðust
fjögur börn en hið elsta lést í bíl-
slysi 1996. Eftir þann atburð hætti
Edwards að starfa sem lögmaður og
hellti sér í stjórnmálin, var kjörinn
á þing fyrir Norður-Karólínu 1998
og hóf af alvöru að vinna að því að
verða forsetaefni. Elizabeth starfaði
um árabil sem lögfræðingur á skrif-
stofu saksóknara í Norður-Karólínu
en síðar hjá einkafyrirtæki. Hún
hefur unnið að góðgerðarmálum og
þau hjónin stofnað styrktarsjóði og
veitt fé til ýmissa verkefna.
Milljónamæringur sem talar
eins og verkalýðsleiðtogi
Edwards er lifandi dæmi um am-
eríska drauminn, maður kominn af
fátæku fólki sem tekst að mennta
sig, verða milljónamæringur og
komast til efstu metorða í þjóðfélag-
inu. Hann leggur mikla áherslu á
þennan uppruna sinn í kosningabar-
áttunni, og reynir að höfða til hinna
tekjuminni. Hann setur sjálfan sig
fram sem lítilmagnann, nokkurs
konar Davíð sem þarf að berjast við
Golíat. „Þetta er Ameríka sem trúir
því enn að sonur manns sem vann í
myllu geti unnið son forseta,“ segir
hann í ræðum sínum.
Hann þykir oft minna á verka-
lýðsleiðtoga þegar hann heldur
ræður en hann talar gjarnan um að
bandarísku þjóðirnar séu tvær, „ein
fyrir þá sem hafa allt sem þeir
þurfa og önnur fyrir fólk sem þarf
að strita dag hvern bara til að kom-
ast af“.
Sumir kunna að efast um að hann
virki trúverðugur þegar hann talar
með þessum hætti þar sem hann er
vellauðugur sjálfur. Svo virðist þó
ekki vera, þessi aðferð hefur gefist
vel hingað til. Hann er enda alltaf
fljótur að koma því að að hann sé
kominn af fátæku fólki þegar hann
kemur fram á fundum.
Hin sterka hlið Edwards eru
efnahagsmálin en hann þykir veik-
ari fyrir þegar kemur að utanrík-
ismálunum, málaflokki sem talið er
að muni hafa mikið vægi í forseta-
kosningunum í nóvember.
Of myndarlegur?
Kjósendur hrífast af bjartsýni
Edwards og léttleika, hann þykir
töfrandi og ljúfur. Hins vegar telja
sumir hættu á að hann virðist ekki
nógu alvarlegur. EJ Dionne hjá
Brookings-stofnuninni, sem sérhæf-
ir sig í rannsóknum og greiningu á
sviði stjórnmála, segir að hann þjá-
ist af því sem mætti kalla „heimska
ljóskueinkennið“ í pólitík. „Edwards
er ungur og gríðarlega mynd-
arlegur, en það er notað gegn hon-
um og sagt: Getur hann verið alvar-
lega þenkjandi ef hann er svona
ungur og myndarlegur?“
Heimildir: BBC, New York Tim-
es, Newsweek, BusinessWeek og
www.johnedwards2004.com.
Reuters
Edwards heldur ræðu í háskólanum í Norfolk í Virgíníu á miðvikudag.
Auðmaður á
slitnum skóm
John Edwards er ameríski
draumurinn holdi klæddur
’ Getur hann veriðalvarlega þenkjandi
ef hann er svona
ungur og mynd-
arlegur? ‘
AÐ minnsta kosti nítján manns, sem
voru að tína skelfisk á leirum í More-
cambe-flóa á Norður-Englandi, létu
lífið í fyrrakvöld þegar skyndilega
flæddi að og fólkið komst ekki í land.
Sextán manns var bjargað en leit að
fólki var haldið áfram í gær.
Fólkið, sem var að tína hjartaskel,
verðmætan skelfisk sem finna má í
flæðarmálinu rétt undir yfirborði
sandsins, var hluti af stórum hópi kín-
verskra innflytjenda. Grunur leikur á
að þeir hafi verið fluttir ólöglega inn í
landið, gagngert til að vinna við skel-
fisktínsluna sem er hættulegt starf.
Flestir voru þeir táningar eða á milli
tvítugs og þrítugs. Sagði lögregla að
sumir hefðu ekki viljað láta yfirvöld
finna sig og það hafi gert leitina erf-
iðari.
Aðstoðarinnanríkisráðherra Bret-
lands, Beverly Hughes, sagði að dauði
fólksins undirstrikaði hversu fólki
sem smyglað væri inn í landið af
„þaulskipulögðum glæpahringjum“
gæti verið mikil hætta búin.
Nakin í ísköldum sjónum
Einn björgunarmannanna, Harry
Roberts, sagði slysið hafa verið
„versta harmleik sem hann hefði orð-
ið vitni að“ í starfi sínu.
„Þetta var mjög sársaukafullt á að
horfa. Þau voru ekki með neinn ör-
yggisbúnað og sum þeirra voru nakin
af því þau höfðu farið úr fötunum til
að auðveldara væri að synda.“ Hann
segir hitastig vatnsins ekki hafa verið
mikið yfir frostmarki og hvasst var á
svæðinu.
Þrír þeirra sem björguðust voru
fluttir á sjúkrahús vegna ofkælingar
en hinir á lögreglustöð til yfirheyrslu.
Lögregla sagði tungumálaörðugleika
hafa valdið því að erfitt var að fá upp-
lýsingar um fólkið auk þess sem það
virtist hafa verið hrætt við yfirvöld.
Svæði þetta þykir afar hættulegt
vegna þess hve hratt flæðir að auk
þess sem þarna myndast kviksyndi.
Fyrir tveimur árum fórust þarna
feðgar eftir að hafa villst í þoku og
lent í aðfallinu. Þá hafði einn björg-
unarmanna á orði að miklar rigningar
síðustu daga hefðu líklega gert svæð-
ið enn hættulegra.
Mikil gróðavon
Geraldine Smith, þingmaður svæð-
isins, sagði slysið hafa verið harmleik
sem hlyti að koma að. „Skelfiskurinn
á ströndinni er afar verðmætur, en
því miður býst ég við að þetta vesa-
lings fólk sem lét lífið hafi ekki fengið
mikið af gróðanum, og var líklega í
nauðungarvinnu.“
Í ágúst á síðasta ári handtók lög-
regla 37 Kínverja í Chatsworth á
Morecambe-svæðinu en stjórnvöld
höfðu áhyggjur af umfangi skelja-
tínslunnar í flóanum. Það er ekki and-
stætt lögum að tína skeljar á þessum
slóðum, en heimamenn kvörtuðu yfir
því að glæpahópar flykktust til More-
cambe-flóa til að reyna að græða á
skeljatínslunni. Skeljarnar eru aðal-
lega seldar til útlanda.
Nítján drukknuðu
við skelfisktínslu
Lundúnum. AP. AFP.
!
"#$"%& '()*(+%",
%-''./01,"&'
("%/(".
2(/'-."(/%"3..0
$
'
!"# $%&
!'% $
Innflytjendur sem unnu við stórhættulegar aðstæður
AP
Þyrla flýgur yfir poka, fulla af hjartaskeljum sem fólkið, sem fórst í gær,
hafði tínt við Morecambe-flóa á Englandi.
09/03, ssk., grásans,
ekinn 10 þús. km.
7 manna.
Til sölu og sýnis hjá
Bílasölu Reykjavíkur
Til sölu einn með öllu Volvo XC 90 2,5 turbo
Bíldshöfða 10, 110 Reykjavík, sími 587 8888, www.bilasalarvk.is