Morgunblaðið - 07.02.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
edda.is
Fiskveisla fiskihatarans
eftir Gunnar Helga
Kristinsson er óvenjuleg
matreiðslubók, full af
fróðleik, bráðskemmti-
legum athugasemdum
og girnilegum upp-
skriftum.
Bók sem á heima jafnt
á náttborðinu sem í
eldhúsinu.
Einstakur skemmtilestur
MJÖG GÓÐ LOÐNUVEIÐI
MJÖG góð veiði var á loðnumið-
unum í gær, svo góð að nætur
sprungu vegna of mikils afla. Segj-
ast sjómenn sjaldan eða aldrei hafa
séð jafn mikið af loðnu á miðunum.
Þeir segja loðnukvóta vertíðarinnar
ekki gefa rétta mynd af ástandi
stofnsins og skora þeir á stjórnvöld
að veita meira fé til loðnurannsókna
hið fyrsta.
Óbreytt rekstrarform
Stjórn SPRON hefur ákveðið að
falla frá tillögu um breytingu á
rekstrarformi sparisjóðsins í hluta-
félag eftir að Alþingi hefur gert
breytingar á lögum um sparisjóði.
Nánari grein verður gerð fyrir mál-
inu á fundi stofnfjáreigenda 10. febr-
úar nk.
Tugir létu lífið í árás
Að minnsta kosti 39 manns létu
lífið og á annað hundrað særðist í
sjálfsmorðsárás í neðanjarðarlest í
Moskvu í gærmorgun. Vladímír Pút-
ín, forseti Rússlands, kenndi téts-
enskum aðskilnaðarsinnum um
hryðjuverkið en leiðtogi þeirra, Asl-
an Maskhadov, neitaði því.
Drukknuðu við skeljatínslu
Að minnsta kosti nítján manns,
sem voru að tína hjartaskeljar í
Morecambe-flóa á Norður-
Englandi, drukknuðu í fyrrakvöld
þegar skyndilega flæddi að og fólkið
komst ekki í land. Lögreglan er að
rannsaka hvort fólkið, aðallega kín-
verskir innflytjendur, hafi verið að
vinna fyrir glæpagengi.
Rannsóknarnefnd skipuð
George W. Bush Bandaríkja-
forseti tilkynnti í gærkvöldi að hann
hefði skipað óháða nefnd til að rann-
saka leyniþjónustugögn um meinta
gereyðingarvopnaeign Íraka fyrir
innrásina í Írak. Rannsókninni á að
ljúka 31. mars á næsta ári.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 50/57
Viðskipti 16 Hestar 48
Erlent 18/20 Kirkjustarf 48/49
Höfuðborgin 25 Úr Vesturheimi 34
Akureyri 26 Staksteinar 66
Suðurnes 28 Myndasögur 64
Árborg 29 Bréf 64
Landið 30 Dagbók 66/67
Listir 31/32 Leikhús 72
Neytendur 38 Fólk 72/77
Heilsa 39 Bíó 74/77
Forystugrein 40 Ljósvakamiðlar 78
Viðhorf 44 Veður 79
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið „Sumarið
2004“ frá Icelandair.
Einnig fylgir blaðinu auglýs-
ingablaðið „Sumar 2004“ frá Heims-
ferðum.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LÍNA Langsokkur var á heimaslóðum í gær en þá
heimsótti hún krakkana á leikskólanum Sjónarhóli í
Grafarvogi.
Lína var alveg í essinu sínu og reytti af sér brand-
arana og sýndi auðvitað krafta sína eins og henni
einni er lagið. Eins og kunnugir vita er heim-
ilisfangið hennar Línu einmitt Sjónarhóll, þó ekki sá
sem hún heimsótti, en engu að síður gerði Lína sig
heimakomna og lét fara vel um sig meðal krakk-
anna.
Morgunblaðið/Ásdís
Lína kunni vel við sig á Sjónarhóli
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Kaldbakur hf.
keypti í gær breska útgerðarfyrirtækið Boyd Line
af Brimi, dótturfélagi Eimskipafélagsins. Greitt er
fyrir hlutinn með hlutabréfum í Íslandsbanka, en
Kaldbakur seldi í gær öll hlutabréf sín í bankanum
til Burðaráss, dótturfélags Eimskipafélagsins.
Gengi hlutabréfanna sem Burðarás keypti í Ís-
landsbanka var 7,4 og markaðsverð þeirra nemur
tæpum 3,3 milljörðum króna. Boyd Line var keypt
á 1.660 milljónir króna.
Viðræður við Samherja um kaup
Eftir viðskiptin á Eimskip 5,2% hlut í Íslands-
banka, en félagið átti 1% í bankanum fyrir. Sam-
anlagt eiga Landsbankinn, stærsti hluthafinn í
Eimskip, og Eimskip nú 9,2% hlut í Íslandsbanka.
Miðað við hluthafalista í gær, að teknu tilliti til
þessara viðskipta, er Eimskipafélagið nú þriðji
stærsti hluthafi bankans. Stærsti hluthafinn er
Lífeyrissjóður verslunarmanna, með 8,1%, og í
öðru sæti er Straumur með 5,8%. Landsbankinn
er einnig meðal stærstu hluthafa Íslandsbanka
með 4,0% hlut.
Í tilkynningu frá Kaldbaki segir að félagið hafi
hafið viðræður við Samherja og hollenska sjáv-
arútvegsfyrirtækið Parlevliet & Van der Plas um
kaup þessara aðila á Boyd Line. Í samtali við
Morgunblaðið segist Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, ekki gera ráð fyrir að
nokkrir hnökrar geti komið upp sem hindri söluna
á Boyd Line áfram.
Spurður um hvernig atvikast hafi að þessi við-
skipti ættu sér stað á sama tíma segir hann að
Samherji, sem Kaldbakur sé stærsti hluthafinn í,
hafi haft áhuga á að kaupa Boyd Line. „Og það er
alveg ljóst að við fundum fyrir áhuga hjá Burðar-
ási á að kaupa í Íslandsbanka,“ segir Eiríkur og
bætir því við að frumkvæðið hafi því í raun komið
frá báðum aðilum.
Eiríkur segir þessi viðskipti ánægjuleg á tvenn-
an hátt. Þau hafi skilað Kaldbaki mjög viðunandi
hagnaði af bréfunum í Íslandsbanka á skömmum
tíma, 640 milljónum króna. Þessu til viðbótar muni
Boyd Line skila Samherja góðum ávinningi og þar
með koma Kaldbaki til góða í gegnum eignarhlut
félagsins í Samherja.
Magnús Gunnarsson, stjórnarformaður Eim-
skipafélagsins, segir félagið hafa mikla peninga
milli handanna eftir sölu eigna að undanförnu og
það hafi verið að leita fjárfestingartækifæra. Þessi
möguleiki sem orðið hafi ofaná hafi komið upp í
viðræðum við Kaldbak. Eimskipafélagið hafi viljað
selja Boyd Line og hafi einnig talið Íslandsbanka
ágætis fjárfestingu. Félagið sé því að fá bréfin í Ís-
landsbanka og greiða þau að hluta til með Boyd
Line.
Spurður að því hvort ætlunin sé að eiga bréfin í
Íslandsbanka áfram segir Magnús að svo sé, og
bendir á að það sé ekkert nýtt að Eimskipafélagið
eigi hlut í Íslandsbanka, félagið hafi árum saman
átt hlutabréf í bankanum og forverum hans.
Inntur eftir því hvort Eimskipafélagið muni
sækjast eftir því að taka þátt í stjórn Íslandsbanka
segir Magnús að engin ákvörðun hafi verið tekin
um slíkt, enda kaupin nýafstaðin og engar vanga-
veltur verið uppi þar að lútandi.
Kaldbakur kaupir Boyd
Line af Eimskipafélaginu
Eimskip og Landsbank-
inn með samanlagt 9,2%
í Íslandsbanka
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir grafið undan áhrifum Alþingis
þegar tiltekin verkefni eða verksvið
innan stjórnsýslunnar séu að hluta
eða í heild felld undan yfirstjórn ráð-
herra og falin sjálfstæðum stjórn-
völdum, sem skipað sé til hliðar við
hið eiginlega stjórnkerfi. „Í sjálf-
stæði þeirra felst að þau eru undan-
skilin eftirlits- og boðvaldi ráðherra,
nema lög heimili annað sérstaklega.
Þegar svo ber undir er hins vegar
skorið á þau tengsl, sem eru for-
senda þess að ráðherra geti borið þá
ábyrgð á stjórnsýslu slíkra stjórn-
valda, sem einungis er á hans valdi
að bera gagnvart þinginu. Til þess
brestur þá bæði lagalegar og sið-
ferðilegar forsendur,“ sagði Davíð í
ávarpi á ráðstefnu um aldarafmæli
þingræðis á Íslandi í hátíðarsal Há-
skóla Íslands í gær.
„Sjálfstæð stjórnvöld af þessu tagi
eru þó ekki aðeins undanskilin
stjórnunar- og eftirlitsheimildum
ráðherra. Þau eru jafnframt undan-
skilin því aðhaldi sem ríkisstjórnin
hefur af þinginu á grundvelli þing-
ræðisvenjunnar. Ekkert sambæri-
legt samband er á milli þings og
hinna sjálfstæðu stjórnvalda. Þingið
getur ekki krafið stjórnir þeirra eða
forstöðumenn um að standa því skil
gjörða sinna, veitt þeim aðhald með
sama hætti og ráðherrum eða komið
þeim frá,“ sagði forsætisráðherra.
Verkefni færð frá ráðherra
Grefur undan
áhrifum Alþingis
Forseti/11
SJÖ hús í Bolungarvík, við Dísar-
land og Traðarland, þar sem 25 íbú-
ar eru, og eitt hús með tveimur íbú-
um á Seyðisfirði voru rýmd seint í
gærkvöldi vegna hættu á snjóflóð-
um. Íbúarnir dvöldu hjá ættingjum
í nótt. Veðurstofan lýsti einnig yfir
viðbúnaðarstigi á Austfjörðum og
norðanverðum Vestfjörðum.
Veðurspá fyrir Austfirði þótti
óvenjuslæm í gærkvöldi og var veð-
urútlit verst á Seyðisfirði. Því var
ákveðið að rýma svæði sem rýmt
var fyrr í vikunni, þar sem er eitt
íbúðarhús og einhver atvinnustarf-
semi.
Þá var ákveðið að lýsa yfir hættu-
ástandi í Bolungarvík þar sem
snjóalög voru ótrygg og vindátt
óhagstæð þótt veður hefði að miklu
leyti gengið niður þar í gærkvöldi.
Hafði Veðurstofan áhyggjur af
snjóalögum í giljum í Bolafjalli fyrir
ofan Bolungarvík, þar sem safnast
hafði snjór. Snjóflóðahætta annars
staðar á norðanverðum Vestfjörð-
um var talin óveruleg, samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofu.
Hús í Bol-
ungarvík
og Seyð-
isfirði rýmd