Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN SPRON kom saman til
fundar í gær. Eftir fundinn sendi
stjórnin frá sér eftirfarandi yfir-
lýsingu:
„Áform stjórnar SPRON um
breytingu á rekstrarformi spari-
sjóðsins í hlutafélag hafa miðað að
því einu að tryggja rekstur spari-
sjóðsins til framtíðar sem sjálf-
stæðrar og öflugrar einingar og
þar með hagsmuni starfsfólks og
viðskiptavina. Stjórn sparisjóðsins
fór í þessu efni að gildandi lögum.
Alþingi hefur nú samþykkt
stjórnarfrumvarp, sem kollvarpar
áformum stjórnar SPRON með
hagsmuni sparisjóðsins til fram-
tíðar í huga. Er það óneitanlega
sérstakt að sett séu lög til að
hindra að farið verði eftir gildandi
lögum og er lagabreytingunni
leynt og ljóst beint gegn viðskipta-
samningi. Um leið er komið í veg
fyrir að myndaður verði sex millj-
arða króna sjóður, sá langstærsti
sinnar tegundar á Íslandi, sem
ætlað var að styðja við menningar-
og líknarmál í Reykjavík og ná-
grenni.
Stjórn SPRON hefur lagt sig
fram við að fara að vilja löggjafans
og hefur því ákveðið að falla frá til-
lögu um breytingu á rekstrarformi
sparisjóðsins í hlutafélag. Gerð
verður grein fyrir málinu á fundi
stofnfjáreigenda 10. febrúar nk.
Í kjölfar hinnar nýju lagasetn-
ingar horfir stjórn sparisjóðsins til
framtíðar og kappkostar að efla
starfsemi sparisjóðsins og treysta
sterka stöðu hans í krefjandi sam-
keppnisumhverfi.“
SPRON ekki
breytt í hlutafélag
KB BANKI sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem segir, að ekkert
verði af fyrirhuguðum kaupum
bankans á SPRON. Yfirlýsingin er
svohljóðandi: „Í ljósi þess að stjórn
SPRON hefur samþykkt að falla frá
áformum sínum um að breyta
SPRON í hlutafélag mun ekkert
verða af fyrirhuguðum kaupum
Kaupþings Búnaðarbanka á SPRON
hf. Yfirlýsing SPRON og Kaupþings
Búnaðarbanka frá 21. desember
2003 og samningur Kaupþings Bún-
aðarbanka og SPRON-sjóðsins ses.
frá í janúar 2004 höfðu að geyma fyr-
irvara um samþykki fundar stofn-
fjáreigenda en nú er ljóst að tillaga
þess efnis að breyta SPRON í hluta-
félag mun ekki verða borin upp á
fundi stofnfjáreigenda.“
Ekkert verður
úr kaupum KB
banka á SPRON
JÓN G. Tómasson, stjórnarformað-
ur SPRON, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að með lagasetning-
unni í fyrrakvöld hefði verið tekið
forræði af löglega kjörinni stjórn
SPRON sem hefði miðað áform sín
að því að tryggja rekstur sparisjóðs-
ins til framtíðar. M.a. hefði með við-
skiptunum átt að mynda sex millj-
arða króna sjóð, sem veitti árlega
háar fjárhæðir til menningar- og
líknarmála. Í veg fyrir þá sjóðs-
myndun hefði verið komið með þess-
ari lagasetningu.
Jón G. Tómasson
Forræði tekið af lög-
lega kjörinni stjórn
UM 500 erlendir sem innlendir
þátttakendur, frá þrettán löndum,
eru samankomnir á ferða-
kaupstefnunni Mid-Atlantic, sem
hafin er í Reykjavík. Icelandair
stendur að kaupstefnunni, sem er
sú stærsta til þessa og hefur þátt-
takendum fjölgað ár frá ári, sam-
kvæmt upplýsingum Steins Loga
Björnssonar, framkvæmdastjóra
markaðs- og sölusviðs Icelandair.
Markmiðið með ferðakaupstefn-
unni er að tengja saman kaupendur
og seljendur ferðaþjónustu í
Bandaríkjunum og Evrópu. Eru
staddir hér á landi fulltrúar frá
löndum sem hafa mikil ferðaþjón-
ustutengsl við Ísland auk fulltrúa
frá fjarlægari löndum s.s. frá Rúss-
landi, Úkraínu, Japan, Eystrasalts-
löndunum og Póllandi, skv. upplýs-
ingum Steins Loga.
Markaðssetja leiðakerfi og
Ísland sem ferðamannaland
Hann segir þetta í tólfta skipti
sem félagið heldur ferðakaupstefn-
una og ljóst sé að hún beri góðan
árangur, bæði við markaðssetningu
á leiðakerfi Icelandair og við kynn-
ingu á Íslandi. Á kaupstefnunni er
m.a. stór hópur kaupenda og selj-
enda frá Bandaríkjunum sem hér
eru að kaupa ferðaþjónustu frá
Norður-Evrópu, sem þeir selja síð-
an neytendum vestra og hins vegar
nota þeir tækifærið og kynna sínar
heimaslóðir fyrir evrópskum ferða-
þjónustuaðilum. „Hér eru ferða-
skrifstofur og ferðaheildsalar frá
Bandaríkjunum, kaupendur frá
Skandinavíu og síðan eru hér líka
fulltrúar ferðamálaráða og birgjar
frá Bandaríkjunum og Evrópu,“
segir hann.
Meðal þátttakenda eru fulltrúar
ferðaskrifstofa, hótela, bílaleigna
og skemmtigarða og auk þess eru
hér m.a. fulltrúar frá versl-
unarmiðstöðinni Mall of America í
Minneapolis.
500 þátttakendur frá 13
löndum á ferðakaupstefnu
Morgunblaðið/Jim Smart
MEÐALTALSSALA Morgunblaðs-
ins á síðari helmingi síðasta árs var
52.321 eintak á dag, skv. upplagseft-
irliti Verslunarráðs Íslands. Á sama
tíma árið 2002 var meðaltalssalan
53.612 eintök á dag. Þessar upplýs-
ingar eru staðfestar með skoðun
bókhaldsgagna Morgunblaðsins.
Fréttablaðið og Morgunblaðið eru
þátttakendur í Upplagseftirliti
Verslunarráðs Íslands. Annars veg-
ar er um að ræða eftirlit með seldum
eintökum Morgunblaðsins fyrir
tímabilið júlí – desember 2003 og
hins vegar upplýsingar um prentun
og dreifingu Fréttablaðsins fyrir
sama tímabil. Fram kemur í tilkynn-
ingu frá Verslunarráði að samkvæmt
upplýsingum frá Fréttablaðinu og
prentsmiðju, um prentun og dreif-
ingu fyrir tímabilið október – desem-
ber 2003, hafi verið staðfest að
prentuð blöð á tímabilinu voru að
meðaltali 96.000 til 97.500 á dag.
Meðaltalssala Morgunblaðsins
52.321 eintak á dag
DNA-sýni úr nælonsokki og
hönskum sem fundust nálægt
Sparisjóði Reykjavíkur í Hátúni
eftir bankarán þar 9. janúar sl.
pössuðu ekki við mennina tvo sem
lögregla handtók vegna málsins.
Talið var að mennirnir hefðu notað
sokkinn sem andlitsgrímu við rán-
ið.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, segir að þetta sanni
ekki annað en það að mennirnir
sem lögregla handtók eftir ránið
hafi ekki notað þennan tiltekna
nælonsokk og þessa hanska við
ránið. Hann segir það þó ekki
hreinsa mennina af öllum grun,
enda hlutirnir ekki tengdir ráninu
með óyggjandi hætti þótt þeir hafi
fundist á flóttaleið ræningjanna.
Málið er enn í rannsókn.
DNA sýni eiga ekki
við þá grunuðu
ICELANDAIR kynnir í dag ný
fargjöld til fimm áfangastaða fé-
lagsins, Glasgow, London, Kaup-
mannahafnar, Berlínar og Ham-
borgar. Um er að ræða svokallaða
Netsmelli, fargjöld sem aðeins fást
á Internetinu, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá félaginu.
Lægsta smellfargjaldið til Glasg-
ow mun kosta kr. 14.490, báðar
leiðir með sköttum, og til London,
Kaupmannahafnar, Hamborgar og
Berlínar 16.900 kr., báðar leiðir
með sköttum.
Kynna sumarbækling
á ferðasýningu
Þá býður Icelandair pakka-
fargjald fyrir fjóra, tvo fullorðna og
tvö börn, til Kaupmannahafnar,
London og Glasgow með bíla-
leigubíl í eina viku á kr. 19.900 á
einstakling.
Skv. upplýsingum félagsins eru
hinir nýju verðflokkar og tilboð
meðal margra annarra nýjunga
sem félagið kynnir í dag í tengslum
við útkomu sumarbæklings Ice-
landair 2004. Í tilefni af útkomu
bæklingsins verður ferðasýning op-
in almenningi í dag á Nordica Hot-
el en þar stendur nú yfir ferða-
kaupstefna Icelandair með þátttöku
fulltrúa ferðaþjónustufyrirtækja
víðs vegar að úr heiminum.
Icelandair kynnir ný fargjöld til fimm áfangastaða
Lægsta fargjaldið 14.490 krónur