Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Leikfélag | Þórólfur Árnason, borg- arstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar á fimmtudag að hann hefði fengið bréf frá Leikfélagi Reykjavíkur þar sem tilkynnt var að það væri nú opið félag. „Allir geta orðið félagar í LR,“ sagði hann og hvatti Reykvíkinga til að taka þátt í starfinu. Skúffumál | LR var mikið til um- ræðu á borgarstjórnarfundinum. Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálf- stæðismanna, sagði að ef sjálfstæðismenn hefðu ekki barist fyrir auknum fjárveitingum til félags- ins væri málið enn í skúffu borgar- stjóra. Uppdráttarsýki | Stefán Jón Hafstein, R-lista, sagði að fjárhags- leg- og félagsleg endurskipulagning LR hefði orðið að fara fram. „Það má segja að fyrir nokkrum árum hafi húsið þjáðst af uppdráttarsýki,“ sagði hann. Nú drægi leikhúsið fólk að og rekstrarvanda ætti að leysa til langs tíma. Það ætti að fara varlega með skattfé borgaranna. Sjálfumgleði | Björn Bjarnason, D-lista, sagði að formaður menning- armálanefndar ætti að rökstyðja full- yrðingu sína að uppdráttarsýki hefði ríkt í LR. „Var það áður en þessum 54 starfsmönnum var sagt upp?“ spurði Björn. „Ég held hann ætti að rök- styðja þessar fullyrðingar sínar um leið og hann talar hér í sinni alkunnu sjálfumgleði um sjálfan sig og allt það sem hann getur gert fyrir aðra.“ Brugðið | „Það lá við að mér brygði svo mikið við að ég ætlaði ekki í ræðustól við að heyra síðustu orð borgarfulltrúa Björns Bjarnasonar og dómsmálaráðherra, hvernig hann talar til viðstaddra borgarfulltrúa hér um alkunna sjálfumgleði,“ sagði borg- arstjóri og bætti svo við að Björn væri líka kirkjumálaráðherra. „Ég vona að ættingjar mínir heyri það.“ Stjórnendaskipti | Stefán Jón sagði að Björn ætti að kynna sér skipti á framkvæmdastjórum, leik- hússtjórum og deilur innan LR und- anfarinn áratug til að skilja af hverju hann notaði orðið uppdráttarsýki. „Það má nota orðið sjálfumgleði um þann sem hér stendur og nota það oft. Í þessu tiltekna máli passar það ekki,“ sagði Stefán Jón og vísaði til þess ár- angurs sem stjórnendur LR höfðu náð. Niðurrifssinnar | Ólafur F Magnússon, F-lista, sagði ágreining kominn upp innan R-listans varðandi framtíð Austurbæjarbíós. Las hann upp bókun í menningarmálanefnd þar sem sagt er að húsið hafi ótvírætt menningarsögulegt gildi. Þessu hefði verið snúið á haus í borgarráði sem sýndi að „niðurrifssinnar“ hefðu tögl og hagldir þar. Aldarafmæli | Ólafur sagði búið að samþykkja að styrkja hátíðardag- skrá um 250 þúsund í tilefni af ald- arafmæli Ragnars í Smára. Á meðan væru lögð á ráðin um að rífa Austur- bæjarbíó, en hann hefði verið einn af brautryðjendum þeirra sem vildu reisa bíóið. Honum væri mikil óvirð- ing sýnd með þessu. Stefnubreyting | Vilhjálmur sagði það auðvitað svo að fulltrúar Vinstri grænna í borgarstjórn hefðu lítinn áhuga á að rífa bíóið. Það fælist stefnubreyting í þessari bókun menn- ingarmálanefndar. Ef það væri ekki rétt mat vildi hann að Árni Þór Sig- urðsson forseti borgarstjórnar, leið- rétti sig. Sjónarmið | Björn sagði að nú væru sjónarmið Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur að koma fram, sem hefðu verið þögguð niður með þeim afleiðingum að hún sagði af sér sem varaborgarfulltrúi. „Hann virðist vera með manneskjuna á heilanum,“ sagði Stefán Jón um að Steinunn Birna væri nefnd í þessu samhengi.  „ÞAÐ er von að tölvukerfið klikki,“ sagði Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á þingfundi í fyrrakvöld, þegar forseti þingsins, Halldór Blöndal, hafði tilkynnt þing- heimi að vegna bilunar í tölvukerfi færi lokaatkvæðagreiðslan um sparisjóðafrumvarpið fram með handauppréttingu. Pétur, eini þing- maðurinn sem var á móti sparisjóða- frumvarpinu, rauk eftir þessa til- kynningu forsetans upp í pontu, sagði fyrrgreinda setningu og rauk svo aftur niður í þingsæti sitt. Hon- um var greinilega mikið niðri fyrir enda hafði hann fyrr um kvöldið haft stór orð um samþykkt frumvarpsins. Meðal annars lýsti hann því yfir að samþykkt þess fæli í sér alvarlegt brot á réttarríkinu. Af svipbrigðum Halldórs Blöndal, Helga Bernódussonar, aðstoð- arskrifstofustjóra þingsins, og Vig- dísar Jónsdóttur, forstöðumanns á skrifstofu þingsins, sem sátu fyrir aftan ræðustól og stjórnuðu fundi, mátti ráða að þessi ferð Péturs upp í pontu hefði komið þeim gjörsamlega í opna skjöldu. Kannski ekki nema von þar sem þingmaður þarf leyfi forseta þingsins til að taka til máls. Þremenningarnir litu sem snöggvast hver á annan, síðan var eins og Halldór ætlaði að segja eitt- hvað, en hefði hætt við þegar Pétur var á augabragði aftur kominn í sæt- ið sitt. Engar athugasemdir voru því gerðar að þessu sinni; þingfundi var haldið áfram, eins og ekkert hefði í skorist; atkvæðagreiðsla fór fram með handauppréttingum og frum- varpið var samþykkt með 43 at- kvæðum gegn einu. *** En áfram um bilunina í tæknibún- aði þingsins í fyrrakvöld. Ástæðu hennar mátti nefnilega rekja til bil- unar í atkvæðagreiðsluhnappi á borði Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokks. Kristinn er jafnframt varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins og hafði fyrr um kvöldið mælt fyrir meirihlutaáliti nefnd- arinnar, sem mælti með samþykkt títtnefnds frumvarps. Pétur H. Blöndal, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, hafði hins vegar mælt fyrir minnihlutaáliti, gegn frum- varpinu, sem hann stóð einn að. Í þessu ljósi er því skondin til- viljun að hnappur Kristins skyldi einmitt bila á ögurstundu. Kristinn hafði eins og aðrir þingmenn tekið þátt í atkvæðagreiðslum um ein- stakar greinar frumvarpsins fyrr um kvöldið og ævinlega ýtt á „græna takkann“ eða „já-takkann“. En þeg- ar leið á atkvæðagreiðsluna fór takkinn að bila. Að lokum logaði bara rautt ljós á borði Kristins – sem þýðir nei – hvernig sem þingmað- urinn hamaðist á „já-takkanum“. Þingmenn gerðu síðar grín að þessu og sögðu að „einhverjum álfum“ í tölvukerfinu hefði þótt nóg um hve Kristinn væri orðinn hliðhollur frumvarpi frá ríkisstjórninni. Þeir hefðu því tekið upp á því að sýna rautt ljós þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir Kristins til að ýta á „já“. *** Viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, lagði fram sparisjóða- frumvarpið á Alþingi á þriðjudag, eins og kunnugt er, þegar ljóst var að mikill stuðningur var meðal al- mennra þingmanna um slíka laga- setningu, þ.e. að skil yrðu sett milli stofnfjáreigenda í sparisjóði annars vegar og stjórnar sjálfseignarstofn- unarinnar hins vegar. Þegar Val- gerður hafði boðað frumvarpið ákváðu Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, og Lúðvík Berg- vinsson, Samfylkingu, að draga til baka áform um að leggja fram sam- bærilegt frumvarp. Samkvæmt heimildum undirrit- aðrar var frumvarp ráðherra samið í viðskiptaráðuneytinu á mánudags- kvöld og aðfaranótt þriðjudags. Fyrsta umræða fór síðan fram á miðvikudag og á fimmtudag var mál- ið tekið til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd. Stefnan var sú að af- greiða málið frá þingi síðar þann sama dag. Meirihluti nefndarinnar tók hins vegar sinn tíma til að fara yfir málið og kallaði m.a. til sín lög- fræðinga frá viðskiptaráðuneytinu. Í samráði við þá var unnið að því að lagfæra frumvarpið, þannig að markmið þess yrðu skýrari. Eftir að hafa fundað frá morgni til kvölds skilaði meirihlutinn hins vegar áliti sínu og var frumvarp ráðherra sam- þykkt, með áorðnum breytingum meirihlutans, á ellefta tímanum á fimmtudagskvöld. Og það þrátt fyrir bilanir í tölvukerfi og þingmann á rauðu ljósi.      Þingmaður á rauðu ljósi EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra sagði í umræðum um sparisjóðafrumvarpið á Alþingi í fyrradag að frumvarpið hefði ekki verið beint lagt fram til að koma í veg fyrir viðskiptin milli Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis, SPRON, og KB banka. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fullyrti hins veg- ar að frumvarpinu væri stefnt gegn samningum þessara aðila. Ráðherra sagði að það væri ekk- ert launungarmál að frumvarpið hefði verið lagt fram í ljósi þess að uppi hefðu verið áform um við- skipti milli SPRON og KB banka. „Það [er] hins vegar ekki lagt fram til þess beint að koma í veg fyrir þau viðskipti. Það er hins vegar þannig [...] að SPRON eins og önnur fyrirtæki þarf að taka mið af lögum og lagaumhverfið breyt- ist með þessu frumvarpi verði það að lögum og það er aðalatriðið.“ SPRON þarf að taka ákvarð- anir á grundvelli laganna Pétur sagðist ekki skilja þessa afstöðu ráðherra. „Hæstvirtur ráð- herra segir að þessu lagafrum- varpi sé ekki stefnt gegn samn- ingum SPRON og Kaupþings banka. En samt muni stjórn SPRON þurfa að taka veigamiklar ákvarðanir á grundvelli þessara breyttu laga. Bíðum nú við. Af hverju þarf hún að taka einhverjar ákvarðanir? Hún er búin að gera samning. Hún ætlar bara að fram- kvæma samninginn. Hún ætlar bara að ganga eftir þeim samningi í samræmi við gildandi lög sem enn eru í gildi akkúrat núna klukkan tíu,“ sagði Pétur. Við- skiptaráðherra kallaði þá úr sæti sínu: „Þeim verður breytt.“ Pétur hélt þá áfram og sagði: „Já verður breytt, einmitt. Og þá þarf hún [stjórn SPRON] að gera eitthvað nýtt. Þá vil ég fullyrða að þessum lögum er stefnt gegn þessum samningum og það mun nefnilega hafa í för með sér að það verður að rifta þeim.“ Stefnt gegn samningnum Um klukkutíma eftir þessi orða- skipti fór fram lokaatkvæða- greiðsla um sparisjóðafrumvarpið, þar sem það var samþykkt með 43 atkvæðum gegn einu atkvæði Pét- urs. Hann sagði rétt fyrir at- kvæðagreiðsluna að augljóst væri að Alþingi væri að setja lög gegn einum ákveðnum samningi. „Það er alveg á hreinu,“ sagði hann, „miðað við það sem kom hér fram áðan að Alþingi telur nauðsynlegt að flýta þessu frumvarpi þvílíkt að klukkan hálfellefu að kvöldi er verið að hefja þriðju umræðu með afbrigðum. Málið var lagt fram í gær [á miðvikudag]. Þvílíkur er hraðinn. Það er sem sagt greini- legt að þessu frumvarp er stefnt gegn ákveðnum samningi sem gerður hefur verið í samræmi við lög og það er með ólíkindum, herra forseti, að slíkt skuli vera að gerast“. Valgerður Sverrisdóttir um sparisjóðafrumvarpið Ekki lagt fram til að hindra viðskipti SPRON og KB banka Morgunblaðið/Golli Þingmennirnir Einar K. Guðfinnsson, Pétur Blöndal, Birgir Ármannsson og Ögmundur Jónasson ræðast við. FYLGI Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingarinnar hefur aukist lítillega frá síðasta mánuði skv. nýjum nið- urstöðum fylgiskönnunar Þjóðar- púls Gallup. Ef kosið yrði til Alþingis í dag fengi Sjálfstæðisflokkurinn tæplega 38% fylgi en var 35% og Samfylkingin mælist með 30% fylgi en það var 28% fyrir mánuði. Í skýr- ingum Gallup er þó bent á að ekki sé marktækur munur á breytingum sem mældar eru í könnuninni. Aðrir flokkar mælast með svipað fylgi og síðast, Framsóknarflokkur- inn fengi 14%, Vinstrihreyfingin – grænt framboð 13% og Frjálslyndi flokkurinn tæplega 6% ef kosið yrði nú. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 54% en mældist 53% í síð- ustu könnun. Tæplega 17% taka ekki afstöðu í könnuninni eða neita að gefa hana upp og rúmlega 8% sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosn- ingar færu fram nú. Könnunin fór fram í gegnum síma dagana 6. til 27. janúar. Úrtakið var 1.789 manns á aldrinum 18 til 75 ára og var svarhlutfallið 64%. Vikmörk í könnuninni eru á bilinu 1–3 pró- sentustig. Fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar eykst lítillega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.