Morgunblaðið - 07.02.2004, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 11
FORSETINN hefur
ekki óbundnar hendur
um hverjum hann felur
að mynda ríkisstjórn
segir Davíð Oddsson
forsætisráðherra. Að-
koma hans að stjórnar-
myndunarviðræðum sé
eina starfið sem stjórn-
skipunin geri ráð fyrir
að forseti sinni án at-
beina ráðherra, en
stjórnarskráin geti hins
vegar í engu hlutverks
hans við stjórnarmynd-
anir. „Ég sé fyrir mér
að ákvæði um það gæti
átt heima í stjórnarskrá
og þá tengjast því að þingræðisreglan
væri fest í sessi sem og skilyrðum til
að mynda utanþingsstjórn,“ sagði
Davíð í ávarpi á ráðstefnu um aldaraf-
mæli þingræðis á Íslandi í hátíðarsal
Háskóla Íslands í gær. Hann er
reiðubúinn til samstarfs við formenn
annarra stjórnmálaflokka til að end-
urskoða afmarkaða þætti stjórnar-
skrárinnar.
„Samkvæmt stjórnarskrá skipar
forseti ráðherra með atbeina for-
sætisráðherra eða eftir atvikum for-
sætisráðherraefnis þegar ný ríkis-
stjórn er mynduð. Af
þingræðisreglunni leiðir hins vegar
að forseti hefur ekki óbundnar hend-
ur um hverjum hann felur að mynda
ríkisstjórn og sá er tekur slíkt verk að
sér ekki heldur. Af henni leiðir að
þeim er skylt haga athöfnum sínum í
samræmi við vilja meirihluta Alþing-
is. Í því felst kjarni þingræðisreglunn-
ar,“ sagði Davíð og forseta beri því
skylda til að fela þeim umboð til
stjórnarmyndunar sem sé líklegastur
til að geta myndað ríkisstjórn.
Eina hlutverk forsetans
„Þetta er reyndar hið eina hlutverk
forsetans, sem hann ber ábyrgð á
sjálfur, enda er hann ábyrgðarlaus af
öllum öðrum athöfnum, sem atbeina
hans þarf til. Þær eru unnar á ábyrgð
stjórnarinnar eða viðkomandi ráð-
herra og annað inngrip hans í þær,
myndi reyndar vinna gegn þingræð-
inu,“ bætti hann við.
Davíð sagðist tilbúinn til að endur-
skoða stjórnarskrána og færa megi
ýmis atriði í fyrsta og öðrum kafla
hennar til nútímalegra horfs. „Þar er
fjallað um stjórnarformið og grund-
vallarreglur stjórnskipunarinnar, um
forsetakjör, lögkjör forseta og störf
hans og ráðherra. Almennt mætti í
þessum köflum draga upp skýrari
mynd af ríkjandi stjórnarfari og færa
ákvæði um það nær því sem það er í
raun.“
Ber pólitíska ábyrgð
Davíð hefur áður sagt að hann telji
tímabært að færa þessa kafla stjórn-
arskrárinnar til nútímalegra horfs
þegar hann svaraði fyrirspurn Stein-
gríms J. Sigfússonar
um skipun stjórnar-
skrárnefndar á Alþingi
5. nóvember 2003.
Skipan æðstu stjórn-
ar framkvæmdavalds-
ins á hverjum tíma, það
er ríkisstjórnin, er und-
ir því komin að þingið
vilji styðja hana eða
a.m.k. þola í embætti
sagði Davíð. Á þeim
grundvelli beri ríkis-
stjórnin pólitíska
ábyrgð gagnvart
þinginu, sem séu tryggð
stjórnarskrárbundin
úrræði til að fylgja
þeirri ábyrgð eftir og veita ríkis-
stjórninni aðhald.
„Í þessu ljósi virðist næsta sjálfgef-
ið hvers vegna framkvæmdarvaldið
hlýtur að lúta pólitískri forystu. Rík-
isstjórnin starfar í skjóli hinna þjóð-
kjörnu fulltrúa – þiggur í raun umboð
sitt frá þeim – og ber á grundvelli
þingræðisvenjunnar og 14. gr. stjórn-
arskrárinnar ábyrgð á verkum sínum
gagnvart þinginu. Til að stefna þeirra,
sem þá ábyrgð bera, nái fram að
ganga, þarf uppbygging stjórnkerfis-
ins jafnframt að vera með þeim hætti,
að ráðherrar hennar fari, hver á sínu
sviði, með yfirstjórn stjórnsýslunnar
og hafi raunveruleg tækifæri til að
hafa á hana áhrif. Stjórnskipunin ger-
ir þannig ráð fyrir að völd og ábyrgð
fari saman,“ sagði forsætisráðherra.
Þó að þingræðið og lýðræðisleg
stjórnskipun og stjórnarhættir séu
þannig beinlínis undir því komnir að
uppbygging stjórnsýslunnar sé með
þessum tiltekna hætti segir Davíð að
nokkuð hafi borið á því að tiltekin
verkefni eða verksvið innan stjórn-
sýslunnar séu að hluta eða í heild felld
undan yfirstjórn ráðherra og falin
sjálfstæðum stjórnvöldum sem skip-
að er til hliðar við hið eiginlega stjórn-
kerfi.
Losa sig við erfið viðfangsefni
„Ég hef bæði innan þings og utan
leitast við að stemma stigu við að
grafið sé á þennan hátt undan þeim
áhrifum sem þinginu er á grundvelli
þingræðisreglunnar ætlað að hafa á
stjórn landsins og lagt á það áherslu
að slíkum stofnunum sé ekki komið á
fót án ígrundaðs mats á því, hvort
kostir þess eða ávinningur yfirgnæfi
áreiðanlega þann alvarlega ágalla að
stjórn þeirra lýtur ekki þeim lögmál-
um sem lýðræðisleg stjórnskipun
gerir almennt ráð fyrir.
Hitt er hins vegar staðreynd að
ráðherrar hafa gegnum tíðina verið
meira en fúsir til að veita hluta af
valdi sínu í þennan farveg, til að losna
við erfið viðfangsefni og losa sig und-
an ábyrð. Við þessu ætti þingið að
sporna, en þekkir iðulega ekki sinn
vitjunartíma hvað þetta varðar,“
sagði Davíð Oddsson.
Forsætisráðherra segir ráðherra
hafa viljað losa sig undan ábyrgð
Forseti hefur
ekki óbundnar
hendur við stjórn-
armyndanir
Davíð Oddsson
KRISTINN Kristjáns-
son lést á Landspítal-
anum við Hringbraut
að kvöldi miðvikudags-
ins 4. febr. sl., 79 ára
að aldri.
Kristinn fæddist á
Hellnum 17. júlí 1925.
Foreldrar hans voru
Kristján Brandsson út-
vegsbóndi í Bárðarbúð
og kona hans Kristjana
Þorvarðardóttir hús-
freyja.
Hann starfaði sem
kaupmaður og fisk-
verkandi á Hellnum
um árabil.
Kristinn var síðasti farkennarinn
á Snæfellsnesi og kennari við
grunnskólann á Hell-
issandi frá 1975–
1995.
Hann skrifaði ljóð,
sögur og leikþætti;
gaf út ljóðabókina
„Höll birtunnar“ árið
1996 og árið 2000 gaf
hann út bókina „Ver-
öld stríð og vikurnám
undir Jökli“ þar sem
hann skráði þætti úr
sögu Breiðuvíkur-
hrepps á árunum
1935-1970.
Kristinn tók virkan
þátt í félagsmálum.
Hann var um árabil
fréttaritari Morgunblaðsins og Rík-
isútvarpsins.
Andlát
KRISTINN
KRISTJÁNSSON
SNJÓ kyngdi niður á höfuðborg-
arsvæðinu í fyrrinótt. Þegar líða
tók á daginn fór að fjúka og fáir
voru á ferli þegar verst lét.
En þeir sem þurftu að ferðast um
höfuðborgina þurftu að hafa svolít-
ið fyrir því. Flestir bílar voru á kafi
í snjó í gærmorgun og fáfarnar göt-
ur illfærar. Það rættist þó úr færð-
inni þegar líða tók á daginn enda
starfsmenn borgarinnar iðnir við
að ryðja götur og gangstéttir.
Morgunblaðið/Ásdís
Allt á kafi í snjó í Reykjavík
OLÍUFÉLAGIÐ lækkaði í gær
verð á bensíni og olíu. 95 oktana
bensín lækkaði um 3,20 kr. í sjálfs-
afgreiðslu og 2,20 kr. í fullri þjón-
ustu. Verð á dísilolíu lækkaði um
5,70 kr. í sjálfsafgreiðslu og um
4,70 kr. í fullri þjónustu. Hjörleifur
Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins,
segir að félagið vilji með þessari
lækkun mæta því verði sem lægst
býðst á markaðinum. Hann segir
hins vegar að forsendur séu ekki
fyrir þessari verðlækkun því
heimsmarkaðsverð á olíu hafi verið
að hækka.
Hjörleifur sagði í samtali við
Morgunblaðið að Olíufélagið hefði
mótað sér verðstefnu sem byggðist
á tveimur forsendum, heimsmark-
aðsverði á olíu og samkeppnisstöðu
á markaðnum. Hann sagðist
treysta sér til að fullyrða að verð-
breytingar Olíufélagsins á síðustu
misserum, með tilliti til heims-
markaðsverðs, hefðu verið gegn-
sæjar, ábyrgar og „hafnar yfir
gagnrýni“.
„Okkar verðstefna byggist á því
að við heitum að bjóða viðskipta-
vinum okkar hagkvæmt verð. Hjá
okkur fá þeir eldsneyti á sam-
keppnishæfu verði miðað við það
sem lægst gerist á hverju mark-
aðssvæði fyrir sig,“ sagði Hjörleif-
ur.
„Við höfum markað þá stefnu að
verð í sjálfsafgreiðslu sé 2–4 kr.
lægra en verð fyrir fulla þjónustu.
Undanfarna 12 mánuði hefur þessi
munur verið 4 kr. á helstu mörk-
uðum, en 2 kr. í smærri byggð-
arlögum úti á landi.
Ekki forsendur
fyrir verðlækkun
Við höfum einnig markað þá
stefnu að verð í sjálfsafgreiðslu á
þjónustustöðvum okkar sé sam-
bærilegt og hjá þeim sem lægst
bjóða. Safnkortið okkar kemur
sterkt inn í okkar verðstefnu en
safnkortshafar fá einnar krónu af-
slátt til viðbótar. Okkar vildarvið-
skiptavinir eiga því alltaf að fá hag-
stætt verð.“
Hjörleifur sagði að Olíufélagið
væri oftast leiðandi í verðlagningu
á bensíni og lækkaði og hækkaði
verð með tilliti til breytinga á
heimsmarkaði.
„Ef keppinautar okkar á mark-
aði fylgja ekki eftir í verðbreyt-
ingum upp á við innan ákveðinna
tímamarka þá einfaldlega lækkum
við aftur. Sama gildir ef aðrir
lækka meira en við. Sumir eru
kannski undrandi á því að við skul-
um vera að hækka og lækka svo
aftur, en ástæðan er einfaldlega sú
að við erum að vinna eftir ákveð-
inni verðstefnu sem byggist á því
að bjóða okkar viðskiptavinum
hagkvæmt verð.“
Hjörleifur sagði aðspurður að
þrátt fyrir þessa ákvörðun væru
engar forsendur fyrir verðlækkun.
Ef horft væri á heimsmarkaðsverð
á olíu hefði grunnverðið þurft að
hækka um síðustu mánaðamót.
„Þetta ástand sem nú er á mark-
aðnum getur því ekki varað mjög
lengi, en við teljum mikilvægt að
koma til móts við viðskiptavini okk-
ar á þennan hátt,“ sagði Hjörleifur.
Olíufélagið lækkar verð
á bensíni um 3,20 kr.
VERÐ á e-pillum hefur lækk-
að um helming frá árinu 2000,
að því er fram kemur í nýrri
könnun SÁÁ á meðal vist-
manna á Vogi, og kostar hver
pilla nú að meðaltali 1.430 kr.,
en kostaði 2.960 kr. að með-
altali árið 2000.
Að öðru leyti virðast ekki
vera miklar breytingar á götu-
verði eiturlyfja og bendir það
til nokkuð stöðugs framboðs
efnanna. Verð á hassi er með
því hæsta sem það hefur verið
frá því að farið var að kanna
verðið hjá SÁÁ, og sögðust
sjúklingar að meðaltali hafa
greitt 2.200 kr, fyrir hvert
gramm.
Verð á
e-pillum
lækkar
SÓTTVARNARLÆKNIR mælir
ekki gegn því að fólk ferðist til
svæða þar sem fuglainflúensa geis-
ar í fiðurfé. Fólk er hins vegar ein-
dregið hvatt til að forðast fugla-
markaði, snertingu við fiðurfé og
ráðlagt að þvo sér regulega um
hendur og huga að hreinlæti. Þetta
kemur fram í ráðleggingum Har-
aldar Briem sóttvarnarlæknis til
ferðamanna vegna fuglainflúens-
unnar í Asíu. Ráðleggingarnar má
finna í heild á vef Landlæknisemb-
ættisins. Þar segir m.a. að fugla-
inflúensan sé þekkt að því að geta
borist frá fiðurfé til manna, sem
starfa á hænsnabúum, og valdið al-
varlegri inflúensu. Þá segir að ekki
sé vitað til þess að smit hafi borist
milli manna.
Sóttvarnarlæknir
varar við fuglaflensu