Morgunblaðið - 07.02.2004, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
25% afsláttur af ýmsum munum í febrúar
Skartgripir, úr, silfurmunir o.fl.
Erna. Skipholti 3. Sími 552 0775
Opið í dag laugardag kl. frá11-16 og alla virka daga frá kl. 10-18
www.erna.is
ERNA
gull- og silfursmiðja
80 ára
1924 2004
Handsmíðað mokkasett með 25% afsl. kr. 187.500
MOKVEIÐI var á loðnumiðunum
austur af landinu í gær, bæði í
flottroll og nót. Sjómenn segjast
sjaldan hafa séð jafnmikið af loðnu
á miðunum og vilja aukinn loðnu-
kvóta.
Svo mikil veiði var á miðunum í
gær, að a.m.k. tvö nótaskip
sprengdu næturnar vegna mikils
afla og trollskipin fengu hundruð
tonna eftir nokkurra mínútna tog.
Í gær höfðu nærri 70 þúsund
tonn af loðnu borist á land frá ára-
mótum en samtals um 170 þúsund
tonn að sumar- og haustvertíðun-
um meðtöldum, samkvæmt upplýs-
ingum frá Samtökum fiskvinnslu-
stöðva.
Loðnukvóti ársins er 497 þúsund
tonn eða nærri helmingi minni en
á undanförnum árum. Skipstjórn-
armenn sem Morgunblaðið hefur
rætt við telja margir að óhætt sé
að veiða meira, enda verði nú vart
við mikið magn af loðnu á mið-
unum. Þeir hvetja stjórnvöld til að
veita meira fé til loðnurannsókna,
enda gríðarmiklir hagsmunir í
húfi.
Jón Axelsson, skipstjóri á Júpi-
ter ÞH, segir miklar breytingar
hafa orðið á miðunum allra síðustu
daga. „Við sjáum gríðarmikla
loðnuflekki og það er stöðugt að
bætast í. Göngumynstur loðnunnar
virðist gerbreytt, hún kemur nú
austan úr hafi og er mun seinna á
ferðinni en venjulega. Þetta er
loðna sem fiskifræðingarnir hafa
aldei séð og þar af leiðandi ekki
getað mælt. Ég hef aldrei séð jafn-
mikið af loðnu á miðunum og nú,
þetta er mjög falleg, átulaus loðna
sem er alveg kjörin til frystingar.
Það væri sorglegt að horfa á hana
synda framhjá og fá ekkert að
gert,“ segir Jón.
Forsendur fyrir
góðri vertíð
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni EA, efar að Hafrann-
sóknastofnunin hafi fengið rétta
niðurstöðu í loðnurannsóknarleið-
angri sínum í síðasta mánuði og
þar af leiðandi sé ráðgjöf þeirra
um loðnukvóta vertíðarinnar fjarri
öllum sanni. „Ég held að nú séu
uppi allar forsendur fyrir góðri
loðnuvertíð. Það sást mikið af
loðnu í sumar og niðurstaða seiða-
talningar eftir hrygninguna árið
2001 var ein sú besta sem sést hef-
ur í langan tíma. Þessi árgangur
ætti að skila af sér mjög góðum
veiðistofni nú. Loðnan er mjög vel
framgengin, lítur vel og er talsvert
þyngri en í meðalári. Hún hefur
greinilega haft góðan haga allt í
kringum landið undanfarin tvö
sumur. Ég sé því engar forsendur
fyrir því að vertíðin ætti að
klikka,“ segir Bjarni.
Hann segist ekki vera að kasta
rýrð á aðferðir Hafrannsókna-
stofnunarinnar. Hins vegar megi
öllum vera ljóst að stofunin verði
að fá meiri fjármuni til að gera ít-
arlegri mælingar á stofninum.
„Það er hneyksli að ekki skuli
fylgst betur með stofninum. Það er
öruggt að loðan finnst ekki á með-
an hafrannsóknaskipið er bundið
við bryggju í Reykjavík. Ráða-
menn virðast ekki átta sig á að hér
er um mikla hagsmuni að ræða. Fé
til frekari loðnurannsókna myndi
borga sig margfalt til baka.“
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Mokveiði var á loðnumiðunum í nótt, bæði í flottroll og nót.
Loðnan
mokveiðist
PÉTUR Björnsson formaður Sam-
taka verslunarinnar sagði á aðal-
fundi samtakanna í gær að umbjóð-
endur samtakanna væru hræddir
við að opinbera ástand, sem þeir
segja að ríki í viðskiptalífinu, vegna
ótta við hefndaraðgerðir. „Fleiri og
fleiri greinar falla nú undir tvo eða
þrjá ráðandi aðila með 80% mark-
aðshlutdeild eða þar yfir. Allt frá
stofnun FÍS fyrir rúmum 75 árum
hefur eitt helsta baráttumál samtak-
anna verið frelsi í viðskiptum og virk
samkeppni. Fákeppni er ekki bönn-
uð sem slík, en dyggur fylgifiskur
hennar er misnotkun á markaðsráð-
andi stöðu og það er bannað með
lögum. Þetta ástand er orðið svo
slæmt að það kennir orðið hálfgerðs
vonleysis hjá sumum félagsmanna
okkar í þeim greinum sem rammast
kveður að. Við höfum verið óþreyt-
andi við að vekja athygli ráðamanna
á þessu en höfum þann djöful að
draga að okkar umbjóðendur eru
hræddir við að opinbera ástandið
vegna ótta við hefndaraðgerðir.
Okkur eru sögð dæmi af viðskipta-
háttum sem ekki eiga heima í ís-
lensku viðskiptalífi, miklu frekar
suður í álfum,“ að sögn Péturs.
Efla Samkeppnisstofnun
Pétur segir að Samtök verslunar-
innar telji að sporna verði við fá-
keppni í verslun með því að efla
starfsemi Samkeppnisstofnunar
þannig að áherslur starfseminnar
verði einkum á það meginhlutverk
hennar að koma í veg fyrir misnotk-
un á markaðsráðandi stöðu og vinna
gegn ólögmætu samráði fyrirtækja.
„Við teljum að þarna sé hægt að
bæta töluvert úr án þess að aukið fé
komi til. Það er vert að minna á að í
apríl 2001 kynnti stofnunin skýrslu
sína Matvörumarkaðurinn – verð-
lagsþróun í smásölu 1996–2000. Þar
var ein helsta niðurstaðan að „mat-
vörumarkaðurinn einkennist nú af
kaupendastyrk verslunarkeðja sem
hefur leitt til viðskiptahátta sem
kunna í sumum tilfellum að vera
andstæðir samkeppnislögum. Jafn-
framt voru gefin þar fyrirheit um að
stofnunin myndi láta fara fram
stjórnsýsluúttekt á viðskiptaháttum
smásölukeðja. Engar efndir hafa
orðið þar á og því jafnframt borið við
að annir séu slíkar við önnur verk-
efni svo sem olíufélagamálið og mál-
efni tryggingarfélaganna sem hefur
verið að veltast á borðum þar í rúm
6 ár. Það verður að teljast ámæl-
isvert, í meira lagi, hversu slælega
samkeppnisyfirvöld hafa staðið sína
plikt við eftirlit á þessum markaði.
Þrátt fyrir þær eindregnu vísbend-
ingar sem koma fram í fyrrnefndri
skýrslu frá 2001 um kaupendastyrk
verslunarkeðja hefur ekkert verið
aðhafst,“ sagði Pétur.
Banna sölu á undirverði
Hann sagði að Samtök verslunar-
innar vilji að bannað verði með lög-
um að selja vöru á undirverði. „Það
kann að vera neytendum hagkvæmt
á þeirri stundu sem þeir kaupa til-
tekna vöru á verði langt undir inn-
kaupsverði en til lengri tíma er þetta
óhagkvæmt og óheilbrigt og leiðir til
brenglunar á verðskyni enda gert í
þeim tilgangi meðal annars. Slík
drápsverðlagning er víða bönnuð í
nágrannaríkjum okkar t.d. Bret-
landi.
Í þriðja lagi að settur verði rammi
um leyfilegt háttalag stóru kaupend-
anna í umgengni við birgja til að
koma í veg fyrir að mönnum sé hent
út í kuldann af ástæðum sem ekki
eiga sér neinar heilbrigðar við-
skiptalegar forsendur. Slík löggjöf
hefur verið sett m.a. í Frakklandi og
víðar,“ að því er fram kom í erindi
formanns Samtaka verslunarinnar.
Pétur segir að Samtök verslunar-
innar vilji hafa sem víðtækast frelsi í
öllum viðskiptum. „Hjá því verður
ekki komist að settar verði ákveðnar
leikreglur. Slíkt er nánast algilt í
siðuðum samfélögum. Í knatt-
spyrnu, þar sem menn skemmta sér
við sparka á milli sín bolta, eru
ákveðnar reglur og eftirlitsmenn til
að gæta þess að eftir þeim sé farið.
Samtökin finna til einmanaleika í
þessari baráttu sinni þegar horft er
til viðbragða eða öllu heldur þagnar
annarra hliðstæðra samtaka og má
það furðu gegna. Ég leyfi mér því að
kalla eftir skoðunum okkar ágætu
kollega,“ að sögn Péturs.
Á varðbergi
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra gerði þær
breytingar sem átt hafa sér stað í ís-
lensku viðskiptalífi að umræðuefni í
sinni ræðu. Sagði hún að á tímum
hraðra breytinga þurfi að vera sér-
staklega vel á varðbergi gagnvart
aukinni samþjöppun og hættunni á
hringamyndun í okkar litla sam-
félagi.
„Frjálst markaðshagkerfi byggir
á frelsi í viðskiptum og frjálsri sam-
keppni. Frelsi er hins vegar vand-
meðfarið á hvaða sviði sem er. Frelsi
eins getur skapað öðrum ófrelsi og
þannig snúist upp í andhverfu sína.
Það er á þessu grundvallar viðhorfi
sem samkeppnislög byggja, frelsi
eins til viðskipta og til að keppa má
ekki takmarka möguleika annarra
til viðskipta, þjóðfélaginu til skaða.
Því er það hlutverk samkeppnis-
reglnanna að hafa taumhald á atferli
fyrirtækja að því leyti sem það at-
ferli heftir starfsemi annarra fyrir-
tækja til skaða fyrir markmið sam-
keppnisreglnanna,“ að sögn
Valgerðar.
Valgerður segir að hagkvæmni at-
vinnurekstrar vaxi yfirleitt með auk-
inni stærð enda verði vöxturinn í
samkeppni við önnur fyrirtæki. „Það
er jafnframt ljóst að okkar litla hag-
kerfi gerir það að verkum að fyr-
irtæki sem eingöngu starfa hér á
landi eiga erfiðara með að ná sömu
hagkvæmni í rekstri og fyrirtæki í
sömu grein á stærri mörkuðum. Við
getum því hvorki bannað fyrirtækj-
um
að vera stór eða að verða stór. Við
getum heldur ekki skert athafna- og
samningsfrelsi fyrirtækja til að
kaupa í öðrum fyrirtækjum einfald-
lega vegna þess að þau eru stór og
hafa peninga til þess. Inngrip í slík
viðskipti verða aðeins gerð með stoð
í skýrum reglum og til að vernda
lagalega skilgreinda hagsmuni þjóð-
félagsins. Efni íslenskra samkeppn-
islaga er að þessu leyti í samræmi
við það hvernig samsvarandi sam-
keppnisreglum er beitt í öðrum ríkj-
um Evrópu.
Ég er þeirrar skoðunar að eftir
því sem frelsið í viðskiptum verður
meira og þátttaka ríkisins í atvinnu-
rekstri minni verður þörfin fyrir eft-
irlit með því að fyrirtækin hegði
starfsemi sinni í samræmi við for-
sendur frelsisins meiri, t.d. eftirlit
með því að samkeppni sé í raun
frjáls og að allir sitji við sama borð
hvað varðar kauphallarviðskipti svo
annað dæmi sé tekið. Þetta liggur í
hlutarins eðli. Ég er ekki þar með að
segja að eftirlit þurfi að vera yfir-
þyrmandi bákn, viðskiptalífinu til
íþyngingar og trafala.
Eftirlitið verður hins vegar að
vera nægjanlega öflugt til þess að
það veiti fyrirtækjum á markaðinum
samkeppnislegt aðhald og stuðli þar
með að virkri samkeppni,“ sagði
Valgerður Sverrisdóttir.
Samþjöppun ríkjandi
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður hagfræðistofnunar Há-
skóla Íslands, sagði að samþjöppun
væri ríkjandi hér á landi í matvöru,
byggingavörum, tryggingum, flutn-
ingum, lyfjum, olíu og fjölmiðlum, en
hafði þó fyrirvara á því síðastnefnd-
ar þar sem óvíst væri um lokanið-
urstöðu í þeim málaflokki, eins og
hann orðaði það.
Tryggvi fjallaði sérstaklega um
þróun hlutdeildar fyrirtækja á mat-
vörumarkaði frá árinu 1995. Þar
kom fram að árið 1995 hafði stærsta
fyrirtækið, sem þá var Hagkaup,
24% markaðshlutdeild. Árið 1998
var stærsta fyrirtækið á markaðn-
um með 35% hlutdeild, Baugur, og
árið 2003 hafði stærsti aðilinn 51%
hlutdeild á markaðnum, einnig
Baugur. Aðeins fjórir aðrir stórir
aðilar eru með Baugi á markaðnum í
dag samkvæmt erindi Tryggva, en
árið 1995 voru helstu markaðsaðilar
12 talsins, til samanburðar. „Þannig
að það hefur orðið gríðarlega mikil
samþjöppun á matvörumarkaði á Ís-
landi,“ sagði Tryggvi og bætti því
við að ekki væri þó hægt að segja
óyggjandi að hækkandi matvöru-
verð stafaði af samkeppni, eða skorti
á henni.
Hann bar ástandið á Íslandi sam-
an við hin Norðurlöndin þar sem
svipað er ástatt; einn stór aðili er
ríkjandi og tveir aðeins minni sigla í
kjölfarið. „Munurinn er að þetta
ástand hefur varað síðustu 10 ár eða
lengur á Norðurlöndunum en er
nýtt hér á Íslandi.“
Að lokum sagði Tryggvi að ekki
mætti leyfa aðila að beita markaðs-
valdi, en ekki mætti heldur hindra
hann í að nýta stærðarhagkvæmni.
Hann sagði einnig að mikilvægt
væri að hlaupa ekki til og setja ný
lög og reglugerðir nema að vel at-
huguðu máli og taldi að styrkja ætti
samkeppnisyfirvöld og auka þekk-
ingu þeirra, þannig að þau geti
fylgst vel með þróun markaða af
kunnáttu, innsæi og skynsemi, eins
og Tryggvi orðaði það á fundi Sam-
taka verslunarinnar í gær.
Pétur Björnsson á aðalfundi Samtaka verslunarinnar
Hræddir við
hefndaraðgerðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pétur Björnsson, formaður Samtaka verslunarinnar, fjallaði um sam-
keppni í verslun á aðalfundi samtakanna í gær. Auk Péturs fluttu Tryggi
Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Styrmir Gunn-
arsson, ritstjóri Morgunblaðsins, erindi á fundinum.
ÚR VERINU