Morgunblaðið - 07.02.2004, Page 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 21
Í takt við þínar þarfir
BIKARKEPPNI
KKÍ & LÝSINGAR
Úrslitaleikirnir í Lýsingarbikarnum í körfuknattleik
hefjast í dag klukkan 13:00
Meistaraflokkur kvenna kl. 13:00 Keflavík - KR
Meistaraflokkur karla kl. 16:30 Njarðvík - Keflavík
Í hálfleik í leik karla fá tveir heppnir þátttakendur í skotleik Lýsingar
að reyna sig við 100.000 króna skotið.
Kalli Bjarni Idol stjarna skemmtir fyrir leik í karlaflokki.
Lukkudýr liðanna verða á staðnum á báðum leikjum.
Stuðningsmenn hvers liðs fá gefins boli frá Lýsingu í lit síns félags.
Miðaverð kr. 1.000 fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri.
Miðinn gildir á báða leikina.
Sætaferðir verða frá Kaffi Duus í Keflavík og Biðskýlinu í Njarðvík kl. 11:30 og 15:00. Miðaverð kr. 100.
Ókeypis sætaferðir frá KR heimilinu við Frostaskjól kl. 12:00
h
ö
n
n
u
n
: w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
PERVEZ Musharraf, forseti Pak-
istans, hefur fyrirgefið Abdul Qad-
eer Khan, föður pakistönsku kjarn-
orkusprengjunnar, að hafa komið
kjarnorkuleyndarmálum til ann-
arra landa, það er að segja til Ír-
ans, Líbýu og Norður- Kóreu. Hins
vegar var haft eftir pakistönskum
embættismönnum í gær, að Khan
mætti búast við að vera í raun í
stofufangelsi það sem hann ætti
eftir ólifað.
Musharraf
sagði, að Khan
væri „þjóðhetja“
þótt honum
hefðu orðið á
„mistök“ en við
yfirheyrslur ját-
aði hann á sig
sök og endurtók
það síðan í
beinni sjón-
varpsútsend-
ingu. Haft er eftir heimildum innan
pakistönsku stjórnarinnar, að
Khan hafi stýrt svartamarkaðsneti
frá Dubai og þangað hafi hann far-
ið 44 sinnum á síðustu fjórum ár-
um. Þá hafi hann einnig átt erindi
til Malasíu, Líbýu og Írans. Hafi
annar pakistanskur kjarneðlis-
fræðingur, Mohammad Farooq,
einnig tekið þátt í svartamarkaðs-
sölunni með kjarnorkuleyndarmál
og auk þess einstaklingar frá Suð-
ur-Afríku, Þýskalandi, Hollandi,
Sri Lanka, Malasíu og Dubai. Mus-
harraf sagði í fyrradag, að það
hefði fyrst og fremst verið fé-
græðgi, sem stjórnað hefði gerðum
Khans.
Ekkert samstarf við IAEA
Það var Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin, IAEA, sem krafðist
rannsóknar á þessu máli, en Mus-
harraf sagði, að henni yrði ekki
kynnt það, sem fram hefði komið
við rannsóknina að öðru leyti. Þá
sagði hann, að Sameinuðu þjóðun-
um yrði ekki leyft að hafa eftirlit
með kjarnorkumannvirkjum í Pak-
istan.
Það er mikið áfall fyrir Pakistani
að komast að raun um framferði
Khans og í gær efndu íslamistar til
verkfalla og uppþota í ýmsum
borgum til að mótmæla „niðurlæg-
ingu þjóðhetjunnar“.
Khan fyrirgefinn kjarnorkulekinn
Verður hugsanlega látinn vera í stofufangelsi það sem hann á eftir ólifað
Islamabad. AFP.
Abdul Qadeer
Khan
SÆNSKA lögreglan hefur hand-
tekið tvo fyrrverandi frammámenn
hjá sænska tryggingafélaginu
Skandia nú í vikunni en báðum er
gefið að sök að hafa notað stórfé úr
sjóðum fyrirtækisins til að endur-
nýja lúxusíbúðir sínar.
Ulf Spång, fyrrverandi fjármála-
stjóri Skandia, var handtekinn í
fyrrakvöld og yfirheyrður í gær en
þá fékk Ola Ramstedt, fyrrverandi
forstjóri Skandia Liv, dótturfyrir-
tækis Skandia, að fara heim til sín
eftir að hafa setið inni í þrjá daga.
Báðir eru þeir grunaðir um að hafa
misnotað fé fyrirtækisins og eiga
sex ára fangelsi yfir höfði sér, verði
þeir fundnir sekir.
Skandia-hneykslið, sem snýst
meðal annars um bókhaldssvik og
gífurlegar greiðslur til æðstu
stjórnenda, hefur verið fyrirferð-
armikið í sænskum fjölmiðlum að
undanförnu en þar fyrir utan er
verið að rannsaka misferli hjá
sænsku áfengiseinkasölunni, sam-
göngufyrirtæki Stokkhólmsborgar,
sænsk-svissnesku samsteypunni
ABB og hjá fjarskiptarisanum Er-
icsson.
Fjármálahneyksli hafa verið
heldur ótíð í Svíþjóð og er um það
samstaða í ríkisstjórn og á þingi að
taka þessi mál engum vettlingatök-
um.
Skandia-
stjórar
handteknir
Stokkhólmi. AFP.
NOKKRIR breskir vísindamenn
vinna nú að því mikla verkefni að
koma 5,5 milljónum loftmynda úr
síðari heimsstyrjöld yfir á Netið.
Er áhuginn á þeim svo mikill, að
miðlarinn hefur margsinnis kiknað
undir álaginu og hefur stundum
orðið að loka honum að hluta um
tíma.
Myndirnar eru af ýmsum toga en
flestar sýna afleiðingar hernaðarins
og sundursprengdar borgir og
mannvirki. Þar er meðal annars
mynd af Köln í Þýskalandi, að
mestu í rústum en yfir auðninni
gnæfir dómkirkjan í umkomulausri
tign. Önnur mynd, jafnvel enn dap-
urlegri, er af óskemmdum fanga-
búðunum í Auschwitz, tekin árið
1944. Liðast reykurinn frá skor-
steinum líkbrennsluofnanna en í
búðunum voru hundruð þúsunda
gyðinga tekin af lífi. Sagði frá þessu
framtaki bresku vísindamannanna í
Jyllands-Posten í gær.
5,5 milljónir mynda eru ekkert
smáræði en þó aðeins brot af þeim
loftmyndum, sem teknar voru í
stríðinu. Talið er, að bandamenn
hafi tekið 50 milljónir slíkra mynda
og við það bætast síðan þýskar,
ítalskar og rússneskar myndir.
Slóðin fyrir myndirnar er: http://
www.evidenceincamera.co.uk
Heimsstyrjöldin
Loftmyndir
á Netinu
♦♦♦