Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 28
SUÐURNES
28 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMASTJÓRN 1904
Sýningin er unnin í samvinnu
við Þjóðminjasafn Íslands.
www.thjodmenning.is
Heimastjórn 1904 -
sýning í Þjóðmenningarhúsinu.
Opið alla daga frá kl. 11-17
Sandgerði | Framkvæmdir við upp-
byggingu miðbæjar Sandgerðis hóf-
ust í gær með því að tekin var fyrsta
skóflustunga að húsi fyrir íbúðir og
skrifstofur bæjarins við Miðnestorg.
Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn
byggja húsið en selja Sandgerðisbæ
og leigja það pláss sem félagið nýtir
ekki sjálft.
Steinunn Finnbogadóttir, varafor-
maður Búmanna, og Guðrún Sif Pét-
ursdóttir, 14 ára Sandgerðingur,
tóku fyrstu skóflustunguna. Guðrún
er fulltrúi þessa bekkjar Grunnskóla
Sandgerðis en börnin eru jafngömul
bæjarfélaginu. Þeim var boðið að
vera við upphaf framkvæmda. Við
athöfn í Fræðasetrinu blessaði séra
Björn Sveinn Björnsson fram-
kvæmdina.
Búmenn munu eiga átta íbúðir í
húsinu og Sandgerðisbær að auki
fjórar þjónustuíbúðir sem áhugi er á
að Búmenn reki. Að auki er aðstaða
fyrir skrifstofur Sandgerðisbæjar,
bókasafn og ýmsa aðra þjónustu.
Búmenn eru að fara inn á nýjar
brautir með því að taka að sér bygg-
ingu þessa húss. Daníel Haf-
steinsson framkvæmdastjóri segir
að félagið hafi áhuga á því að taka
upp samvinnu við sveitarfélög um
uppbyggingu þjónustu í tengslum
við Búmannaíbúðir. Samstarfið við
Sandgerðisbæ sé frumraunin.
Búmenn sömdu við verktakafyr-
irtækið Húsagerðina hf. í Keflavík,
að undangengnu útboði, um bygg-
ingu hússins. Því verki á að vera að
fullu lokið í ágúst á næsta ári.
Fyrsta skóflustungan
að miðbæjarhúsi
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Foreldrar í Skýjaborg | Starfs-
fólk félagsmiðstöðvarinnar Skýja-
borgar í Sandgerði hefur áhuga á
að fá foreldra og alla sem áhuga
hafa á starfinu í heimsókn. Í því
skyni hafa verið skipulög sérstök
mömmu- og pabbakvöld þar sem
gestum gefst kostur á að sjá hvað
fram fer í miðstöðinni.
Kaffi verður á könnunni og
sjoppan opin en þar er hægt að
kaupa hressingu af nemendaráði.
Skýjaborg er á efri hæð Reynis-
heimilisins að Stafnesvegi 7.
Kvöld fyrir foreldra nemenda í
8. til 10. bekk verður næstkomandi
mánudag, kl. 19 til 22 og kvöld fyr-
ir foreldra nemenda í 6. og 7.
bekkjar verður á þriðjudag kl. 17
til 19.
Vogar | Þórey Eyþórsdóttir hefur
opnað talmeina- og sálfræðistofu í
Vogum. Hún verður opin einn dag í
viku, á föstudög-
um, í heilsu-
gæslustöðinni.
„Mér skilst að
það hafi lengi
verið bið eftir því
að komast í tal-
þjálfun um allt
land. Ég geri ráð
fyrir því að það
sé einnig svo hér
á Suðurnesjum
og ég hef áhuga á að bjóða fram
þekkingu mína og reynslu,“ segir
Þórey í samtali við Morgunblaðið.
Hún segir að Fræðsluskrifstof-
urnar vinni gott starf á þessu sviði
en ágætt sé fyrir fólk að hafa val.
Þórey mun taka að sér greiningu,
ráðgjöf, þjálfun og meðferð. Hún
nefnir þætti sem varða tal-, mál-,
framburðar- og raddþjálfun, per-
sónuleikapróf og ráðgjöf varðandi
náms- og hæfnismat. Einnig upp-
eldis- og sálfræðiráðgjöf.
Þórey hefur rekið talmeina- og
ráðgjafarstofu á Akureyri í mörg
ár, verði skólastjóri Þjálfunarskóla
ríkisins þar, starfað við Fræðslu-
skrifstofu Norðurlands og unnið
sérfræðistörf fyrir Fjórðungs-
sjúkrahúsið þar og Skólaskrifstofu
Suðurlands. Hún starfaði í mörg ár
í Noregi, þar á meðal sem for-
stöðumaður Uppeldis- og sál-
fræðiþjónustu í Vestfold og við
greiningarstöð ríkisins fyrir suður-
hluta Noregs auk þess sem hún
vann sem talmeinafræðingur og
sérkennari.
Þórey verður einnig með opna
stofu í Domus Medica í Reykjavík
og starfar einn dag í viku á Selfossi.
Hún hefur einnig áhuga á að halda
áfram listsköpun en hún er text-
íllistamaður og rak Gallerí Allra-
handa í Listagilinu á Akureyri.
Opnar talmeina- og
sálfræðistofu
Þórey Eyþórsdóttir
Garður | Sveitarfélagið Garður
hefur keypt vitavarðarhús og úti-
hús við Garðskagavita. Fyrirhug-
að er að byggja við byggðasafnið
sem hefur útihúsin til afnota.
Byggðasafnið í Garði býr við
þröngan kost í útihúsum við Garð-
skagavita. Til athugunar var að
byggja nýtt sýningarhús niðri á
sjávarkambinum en frá því hefur
verið horfið vegna kostnaðar og
vegna þess að fjárfestar sýndu því
ekki áhuga að ganga til liðs við
sveitarfélagið um reksturinn, að
sögn Sigurðar Jónssonar bæjar-
stjóra. Hefur því verið ákveðið að
byggja við safnhúsið á Garðskaga.
Útihúsin sem safnið hefur haft
til afnota og íbúðarhús sem vita-
vörðurinn hafði á sínum tíma til
afnota voru keypt af ríkinu fyrir
eina milljón kr. og nú er verið að
undirbúa viðbyggingu.
Vélasafnið fær aukið rými
Sigurður segir áformað að
byggja hús sem er liðlega 550 fer-
metrar að grunnflatarmáli. Á efri
hæð verður 120 fermetra salur
þannig að alls verður húsið liðlega
670 fermetrar að stærð. Sérstaða
Byggðasafnsins í Garði er ein-
stakt safn véla sem Guðni Ingi-
mundarson hefur safnað og gert
upp. Hefur aðeins verið hægt að
koma fyrir litlum hluta vélanna í
safninu. Viðbótin er ekki síst ætl-
uð til að hægt verði að gera véla-
safninu hærra undir höfði, að
sögn Sigurðar. Áformað er að
vera með kaffisölu í sal á efri hæð
nýbyggingarinnar. Ekki hefur
verið ákveðið hvernig vitavarðar-
húsið verður nýtt en Sigurður
segir uppi hugmyndir um að gera
það að gistiheimili.
Bæjarstjórnin samþykkti sam-
hljóða að hefja viðræður við
Braga Guðmundsson og Tryggva
Einarsson verktaka um byggingu
hússins. Sigurður vonast til að
hægt verði að hefjast handa með
vorinu og að framkvæmdinni ljúki
á næsta ári.
Byggt við hús Byggða-
safns við Garðskagavita
Sandgerði | Bæjarstjórn Sandgerð-
isbæjar er í viðræðum við Eignar-
haldsfélagið Fasteign hf. um sölu
og endurleigu á öllum skólamann-
virkjum og Samkomuhúsi bæjarins.
Er talið að með því náist sparnaður
í rekstri fasteignanna og að vaxta-
gjöld lækki um 20 milljónir á ári.
Drög að leigusamningi og kaup-
samningi voru lögð fram til umræðu
á bæjarstjórnarfundi í vikunni og
var samþykkt að vísa þeim til ann-
arrar umræðu og umsagnar hjá við-
komandi fagnefndum. Samningarn-
ir ná til allra bygginga á lóð
Grunnskóla Sandgerðis, þar á með-
al skólahússins sjálfs og íþrótta-
mannvirkja, og Samkomuhúss bæj-
arins. Á fundi bæjarstjórnar kom
fram að með þessu fyrirkomulagi
verði rekstur eignanna hagstæðari
en nú er og um leið verði gerðar
nauðsynlegar endurbætur á eign-
unum og umhverfi þeirra, meðal
annars endurbygging á Samkomu-
húsi Sandgerðis og frágangur lóðar
þess.
Skuldir verða lækkaðar
um 300 milljónir króna
Fulltrúar meirihlutans, Samfylk-
ingar og óháðra og Sjálfstæðis-
flokks, lýstu því yfir á fundinum að
verði það niðurstaða bæjarstjórnar
að selja eignirnar muni verða lagt
til að 300 milljónum kr. verði varið
til að lækka skuldir bæjarins og þar
með að minnka vaxtagjöld um 20
milljónir kr. á ári.
Viðræður um sölu fast-
eigna Sandgerðisbæjar
Drög að
samningi
um skóla-
húsnæði
Reykjanesbær |
Fyrsta sýning árs-
ins í Listasafni
Reykjanesbæjar í
Duus-húsum verður
opnuð í dag, laugar-
dag, kl. 15. Sýnd eru
verk portúgalska
málarins Carlos
Barão. Um er að
ræða verk unnin
með blandaðri
tækni á striga.
Carlos er fæddur
í Lissabon árið
1964. Hann nam
myndlist við Nova
University í Lissa-
bon og vann lengi
sem hönnuður við
auglýsingastofur.
Hann er einnig
menntaður í sál-
fræði og má ef til
vill sjá áhrif þess í
viðfangsefnum
listamannsins, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Listasafni Reykjanesbæjar.
Í sýningarskrá segir Margarida
Salet listsagnfræðingur meðal ann-
ars: Í verkum sínum sækist Carlos
Barão eftir því að ná til tilfinninga
áhorfandans. Viðfangsefni hans er
að kljúfa niður þá heima sem við
hrærumst í og smækka tilveru okk-
ar. Efniviðurinn er minningarnar,
staður þar sem táknin og þeir hlutir
sem snerta hinn innri mann líða
ósjálfrátt og stjórnlaust fyrir aug-
um.
Frá árinu 2000 hefur Carlos sýnt
víða í heimalandi sínu og einnig á
Ítalíu, Brasilíu og Spáni. Þetta er
fyrsta eiginlega einkasýning Car-
losar á Íslandi en sjá mátti eitt
verka hans við opnun Saltfiskset-
ursins í Grindavík árið 2002.
Sýningin er opin alla daga frá
klukkan 13 til 17 og stendur til 14.
mars.
Carlos Barão sýnir
í Listasafninu
Run Baby Run: Carlos Barao sýnir
verk með blandaðri tækni á striga.
Fyrsta sýning ársins: Carlos Barao opnar sýningu í
Listasafni Reykjanesbæjar næstkomandi laugardag.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn