Morgunblaðið - 07.02.2004, Qupperneq 29
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 29
INFORMATION MEETING IN ICELAND
Date: Monday, February 9
Time: 18.00 – 19.30: MBA (Executive MBA)
19.30 – 20.15: Master of Science (BScB)
Venue: Radisson SAS Saga Hotel Reykjavik, Hagatorg
BI Norwegian School of Management, one of the leading private business schools in Europe, will be holding
an information meeting in Iceland to present its graduate programs: MSc and MBA. Icelandic BI alumni will
be present to answer your questions. For those interested, information about the international full time
Bachelor of Science in Business(BScB) and part time Executive MBA program will also be available.
MASTER OF SCIENCE – TWO YEARS FULL TIME
- state of the art knowledge based on cutting edge research
(MSc in Business, Financial Economics, Marketing, Organizational Psychology, Business &
Economic History)
MBA- 11 MONTHS FULL TIME
- strategic leadership through international group work
(General management MBA with a focus on Leadership, Strategy, Corporate Finance
and group work)
More information: www.bi.edu study@bi.no Telephone: + 47 22 98 50 50
Húsnæðismál | Félagsmálanefnd
Árborgar samþykkti á fundi sínum
26. janúar nýtt viðmiðunarverð fast-
eigna vegna viðbótarlána. Eftirtaldar
breytingar voru samþykktar: 1 í fjöl-
skyldu 9,2 milljónir, 2 í fjölskyldu 9,9
milljónir, 3 í fjölskyldu 11,2 milljónir,
4 í fjölskyldu 12,7 milljónir og stærri
fjölskyldur 13,6 milljónir.
Stefnumótun í barnavernd | Á
fundi félagsmálaráðs Árborgar 26.
janúar var lagt fram bréf bæjarráðs
frá 22. janúar 2004 þar sem félags-
málanefnd er falið að vinna drög að
stefnumótun og framkvæmdaáætlun.
Tíðarfar og vatnsnotkun | Sala á
heitu vatni hefur dregist saman hjá
Selfossveitum um 10% á sl. mánuðum
vegna góðs tíðarfars. Selfossveitur
hafa ekki breytt gjaldskrá sinni eftir
tíðarfari og verður þeirri stefnu hald-
ið. Fullvíst má telja að íbúar Árborg-
ar muni fagna þessum tíðindum að
þeir verði áfram með ódýra hitaveitu.
Átak í vatnsveitu | Hafinn er und-
irbúningur að átaki í málefnum
Vatnsveitu Árborgar þar sem tekið
verður á virkjunarrannsóknum,
vatnsvinnslu frá núverandi vatns-
bólum og gæðaeftirliti á afhentu
vatni. Stjórn Selfossveitna fagnaði
átakinu á fundi sínum og fól veitu-
stjóra að leggja fram rannsókn-
aráætlun að frekari neysluvatnsöflun.
Fjölbýlishúsalóðir | Á fundi skipu-
lags- og byggingarnefndar Árborgar
27. janúar var samþykkt tillaga frá
formanni nefndarinnar sem lagði til
breytt skipulag á þjónustureit við
Ástjörn á Selfossi. Tillagan felur í sér
að skipulagðar verði fjölbýlis-
húsalóðir í framhaldi af þeim fjöl-
býlishúsalóðum sem fyrir eru við göt-
una.
Sýningar | Vegfarendur geta notið
listsýninga á Selfossi og kennir þar
ýmissa grasa.Tvær sýningar eru í
Ráðhúsinu. Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir sýnir í Listagjánni. Þar gefur
að líta myndir málaðar með blandaðri
tækni, vatnslitamyndir, teikningar og
olíumálverk. Á fyrstu hæð Ráðhúss-
ins er sýning frá Skátafélaginu
Fossbúum í tilefni 60 ára afmælis fé-
lagsins. Í Kaffi Krús sýnir Elínborg
Jónsdóttir vatnslitamyndir. Hörður
Friðjónsson sýnir í Gallery Österby
sem er á rakarastofu Leifs Österby í
Gamla bankanum. Í kaffihúsinu og
leirkerasmiðjunni Eldstó í kjall-
aranum að Austurvegi 4 sýnir Mar-
grét Hjálmarsdóttir höggmyndir og
loks er Snorra Gallerí að Austurvegi
opið alla daga klukkan 13–18.
Bæjarmál í Árborg
Selfoss | „Ef maður hefur gaman af
því að umgangast fólk þá er maður á
réttum stað í starfi og líka ef manni
líkar vel að vera á spjalli við fólk.
Maður veit auðvitað margt en segir
ekki allt. Ég hef þá meginreglu í rak-
arastofuspjallinu að ef ég heyri sömu
söguna þrisvar frá sitthverri mann-
eskjunni þá er óhætt að segja hana.
Þetta hefur gefist vel því þá er mað-
ur örugglega ekki að fleipra neitt um
neinn,“ segir Leif Österby, rakari á
Selfossi, sem byrjaði feril sinn í fag-
inu 6. júní 1960 hjá Helga heitnum
Björgvinssyni rakara sem þá var
með rakarastofu í Ingþórsbúð á
Austurvegi 11 á Selfossi.
Leif er þekkt persóna á Selfossi
og starfrækir rakarastofu sína í
Gamla bankanum við Austurveginn
á Selfossi. Leif flutti 3ja ára á Selfoss
1946 með foreldrum sínum, Her-
manni og Ólöfu Österby, sem bæði
komu við sögu í bæjarlífinu, hann
sem mjólkurfræðingur og hún sem
félagsmálakona og leikari.
Meiri hraði núna
„Það er auðvitað allt önnur lína í
spjallinu á stofunni núna miðað við
það sem áður var. Þá biðu menn ró-
legir á stofunni í hátt í tvo tíma eftir
klippingu. Bændurnir komu kannski
með mjólkurbílnum og fóru svo dag-
inn eftir. Nú er meiri hraði á öllu
menn hafa ekki tíma til neins, varla
til að taka sér klukkutíma frá vinnu
dagsins. Það þarf allt að gerast
strax. Það var oft gaman á þessum
árum hjá Helga. Menn töluðu mikið
á stofunni og jafnvel allir í einu,
þetta voru sannkallaðar samkomur,
stundum. Við Helgi leiddum þetta
áfram með því að skjóta að einu og
einu orði og afstýra rifrildi ef í það
stefndi,“ segir Leif og hefur greini-
lega gaman af því að rifja upp fyrri
tíma.
Sleppti síldarplássi
„Ég var sjómaður á þessum tíma
en þetta kom þannig til að móðir mín
fór í klippingu hjá Helga og komst
þá að því að hann vantaði rakara.
Hún dreif mig í viðtal hjá honum og
ég sló til, sleppti síldarplássi í Kefla-
vík og byrjaði að klippa og hef gert
það sleitulaust síðan. Mér fannst
þetta svolítið virðuleg stétt og móðir
mín sagði mér að Aron í Kauphöll-
inni hefði verið rakari og það
skemmdi ekki. Hún hafði lag á
þessu, gamla konan, og hvatti okkur
áfram öll systkinin og það hafði sín
áhrif til góðs,“ segir Leif þegar hann
rifjar upp fyrstu kynni sín af iðn-
greininni. „Maður notar bara þenn-
an titil, rakari, og það er bara gott og
skilst,“ segir hann og vill ekkert vera
að blanda orðinu meistari aftan við
rakarann þó að auðvitað sé hann
meistari í greininni.
Fylgist með mínu fólki
„Ég fylgist ákaflega grannt með
viðskiptavinum mínum en það kem-
ur til af því að maður lítur á þá sem
sitt fólk og maður tengist fólkinu
nokkuð sterkt. Það kemur til af ná-
lægðinni, maður spyr hvernig það
hafi það og manni er annt um hóp-
inn. Ég veit oft að morgni hverjir
muni koma þann daginn og það
gengur eftir. Ég hef reyndar trú á
því að menn fái frá mér sendingar
þegar ég hugsa til þeirra og hef
reyndar sannreynt það, spurði mann
eitt sinn að því hvað hann hefði verið
að hugsa hér austur í Flóa þegar
hann renndi í gegnum bæinn daginn
áður og hérna framhjá. Jú, vel að
merkja hann var að hugsa um að
koma til mín en gerði það ekki en
kom daginn eftir en ég bjóst við hon-
um daginn sem hann ók hér í gegn,“
segir Leif.
Listfengi í stéttinni
„Já það er alveg rétt, það er
ákveðinn sjarmi yfir stéttinni. Mér
finnst skemmtilegast að fylgjast
með straumum og stefnum í faginu
og því sem er að gerast í tískunni.
Þetta er gefandi fag og nauðsynlegt
að hafa ungt fólk með sér á stofunni.
Nemarnir kenna mér mikið, þeir eru
ferskir í hugsun og djarfari en við
þessir eldri.
Það er nátúrulega alveg klárt að
menn þurfa að vera handlagnir og
ekki skemmir að menn séu listfengir
í þessu starfi. Maður þarf að sjá línur
og hvernig hár og andlit fara saman
svo vel sé. Ég hef alla tíð verið góður
í teikningu eins og öll mín systkini,“
segir Leif en hann býður listamönn-
um að sýna listaverk á rakarastof-
unni. Verkin vekja athygli en hver
sýning stendur yfir í 1–2 mánuði svo
sem flestir geti notið hennar.
„Það má segja að mitt líf byggist
upp á hreyfingu af öllu tagi. Hér í
eina tíð voru það langhlaup en núna
eru það sleðaferðir og jeppatúrar inn
á hálendið. Hálendið á hug minn allt
árið, þar á ég heima. Það er heillandi
að komast inn á hálendið, inn í frið-
inn og fegurðina. Ég er rosalega
þakklátur fyrir allt sem mér hefur
verið gefið,“ segir Leif Österby, rak-
ari á Selfossi.
Það er allt önnur lína í rak-
arastofuspjallinu en áður var
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Í stólnum: Leif Österby leggur hér
síðustu hönd á klippingu fasta-
kúnna, Magnúsar Guðjónssonar.
Leif Österby kann vel við rakarastarfið eftir 44 ár í faginu
Þorlákshöfn | Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran og Ólafur Kjartan
Sigurðarson baritón ásamt undir-
leikaranum Kurt Kopercky píanó-
leikara fluttu frábæra söngdagskrá í
Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, sunnu-
dagskvöldið 1. febrúar.
Á efnisskránni voru m.a. lög og
textar eftir bræðurna Geroge og Ira
Gershwin, þekkt lög eins og Sum-
mertime og It’t aint Necessarely So
úr óperunni Porgy og Bess og minna
þekkt lög sem söngvararnir fluttu á
eftirminnilegan hátt. Tónleikarnir
hófust á aríum úr óperunni Brúð-
kaupi Figaros eftir Mozart sem
frumsýnd verður í Íslensku óp-
erunni í lok febrúar. Hulda Björk og
Ólafur Kjartan sungu einnig aríur
úr Don Giovanni eftir Mozart og
fyrri hluta tónleikanna lauk með
fjórum íslenskum sönglögum. Það er
óhætt að segja að listamennirnir
hafi sungið sig inn í hug og hjörtu
áheyrendanna sem fóru sælir og
glaðir heim eftir ógleymanlega upp-
lifun af söng, leik og húmor.
Hulda Björk Garðarsdóttir og
Ólafur Kjartan Sigurðarson eru
bæði fastráðin við Íslensku óperuna.
Austurríkismaðurinn Kurt Kop-
ercky er píanóleikari og tónlistar-
stjóri Óperunnar.
Eftir tónleikana höfðu tónleika-
gestir á orði að svona ætti hvert ein-
asta sunnudagskvöld að vera.
Menningarnefnd Sveitarfélagsins
Ölfuss stóð fyrir tónleikunum og eru
þeir upphafið að metnaðarfullri dag-
skrá nefndarinnar fyrir árið 2004.
Morgunblaðið/Jón H.Sigurmundsson
Ólafur Kjartan Sigurðsson, baritón og Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran
sungu við undirleik Kurt Kopercky, píanóleikara í Versölum.
Gershwin og annað góðgæti