Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 34
ÚR VESTURHEIMI 34 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MANITOBA í Kanada státar af fjórum höf- uðborgum. Winnipeg er höfuðborg fylkisins, Gimli höfuðborg Nýja Íslands, Narcisse er snákahöfuðborg heims og Komarno mosk- ítóhöfuðborg veraldar. Tvær síðastnefndu nafnbæturnar eru ef til vill ekki eftirsókn- arverðar, en heimamönnum þykir mikið til koma og fengu J. Marlene Hourd, áður Magnuson, til að gera listaverk í samræmi við einkenni svæðanna. Marlene er af íslenskum ættum, en for- eldrar hennar voru Jóhann Magnuson og Guðrún Sigbjörnson. Hún fæddist í Winni- peg 1932 og bjó lengst af í Inwood í Mani- toba en hefur búið í nágrenni við yngstu dóttur sína og fjölskyldu í Árnesi við Winni- pegvatn undanfarin ár, skammt frá æsku- heimili Vilhjálms Stefánssonar landkönn- uðar. „Við skulum tala ensku,“ segir hún þegar blaðamaður spyr hvort við eigum að spjalla saman á íslensku eða ensku. „Ég hef aldrei farið til Íslands en lærði íslensku með því að hlusta á fólk og lesa málið. Ég get lesið íslensku en tala ekki málið. Mál- fræðin er svo snúin.“ Óvenjuleg verkefni Hún býr ein í gömlu húsi, en það er lif- andi og heimilislegt, ekki síst vegna verka hennar. Hvert sem litið er má sjá málverk, teikningar og ýmiss konar styttur og skúlp- túra úr leir og gifsi. Mest ber á hestum enda kemur í ljós að Marlene er hestakona en auk þess eru styttur af framandi dýrum nánast úti um allt. „Ég hef föndrað við þetta í frístundum en aldrei lært neitt í skóla í þessu efni,“ segir hún og bætir við að listsköpunin sé í ættinni og vísar til Hauks Stefánssonar, listmálara á Íslandi, í því sambandi. „Mér hefur alltaf þótt gaman að teikna og búa til skúlptúra og mér þótti skemmtilegt þegar ég var beðin um að hanna stórt verk af moskítóflugu fyrir Komarno, sem er í næsta nágrenni við Inwood. Þetta var fyrir um 20 árum en Komarno er úkraínskt orð og þýðir mosk- ítófluga. Það var nóg af þeim í Komarno og íbúarnir nefndu staðinn eftir flugunum, en landnemarnir áttu í mestu erfiðleikum með að halda flugunum frá sér. Þá voru ekki til varnir eins og úðabrúsar og krem.“ Verkefnið var ögrandi og þó Marlene seg- ist ekki hafa komist hjá því að sjá mosk- ítóflugur bendir hún á að hún hafi aldrei rannsakað þær sérstaklega. „Ég byrjaði á því að gera skissur og stækkaði myndir af flugunum til að gera mér betur grein fyrir stærðarhlutföllunum. Ég fangaði nokkrar flugur og hafði þær í krukku til að fylgjast með flugi þeirra, því verkið átti að snúast eins og vindhani. Eftir að hafa komið þessu öllu heim og saman gerði ég lítið líkan og lokaverkið eftir því, en það er heldur stærra.“ Narcisse er skammt fyrir norðan Inwood, en snemma á sumrin og á haustin flykkjast þangað ferðamenn víða að til að sjá hæg- fara snákana í tugþúsunda tali skríða á svæðinu. Þetta eru litlir snákar, um 30 til 70 sm að lengd að meðaltali, sem liggja í dvala fyrir neðan frosna jörðina á veturna, en koma upp á vorin og skríða um 40 km vegalengd. Síðan halda þeir sömu leið til baka á haustin. „Ég og annar listamaður sendum inn tillögur að listaverki og mín varð fyrir valinu en við unnum saman að verkinu,“ segir Marlene um framlag sitt til að vekja athygli á snákahöfuðborg heims. Trú uppruna sínum byrjaði hún samt í ís- lenskum bæ áður en hún lét til sín taka í fyrrnefndum „höfuðborgum“. Í Lundar var reist stór gæs 1978 og þar hefur Marlene lagt hönd á plóg. „Ég setti fjaðrirnar á hana og málaði hana, hef reyndar málað hana nokkrum sinnum, en hvor vængur um sig er 12 fet að lengd, um fjórir metrar.“ Vinnur við bókaskreytingar Ekki alls fyrir löngu vann Marlene við að teikna myndir af bjálkahúsi í bók sem verið er að gera um landnemasögu tiltekinnar ættar. „Ég hef teiknað mikið en þetta er fyrsta verkefni mitt vegna bókaútgáfu. List- in hefur fyrst og fremst verið áhugamál hjá mér en það er ánægjulegt að finna að áhugamálið vekur athygli annarra.“ Með moskítóflugur í krukkum Almennt er fólki ekki um moskítóflugur gefið og þær eru ekki til ama á þessum árstíma en J. Marlene Ho- urd, sem er af íslenskum ættum, hefur haft þær í krukku heima hjá sér. Steinþór Guðbjartsson tók hús á henni í Árnesi í Manitoba í Kanada og forvitn- aðist um málið. Marlene hefur teiknað myndir af bjálkahúsi í bók sem verið er að gera um landnemasögu. Moskítóflugan í fullri stærð í Komarno í Manitoba. Morgunblðið/Steinþór Marlene Hourd með líkanið sem hún gerði af moskítóflugunni. steg@mbl.is Morgunblaðið/Steinþór VESTUR-ÍSLENSKU rithöfund- arnir David Arnason og Bill Holm standa fyrir tveimur ritlist- arnámskeiðum í Vesturfarasetrinu á Hofsósi í sumar og er þetta fimmta sumarið í röð sem þessi háttur er viðhafður. Fyrra námskeiðið verður 31. maí til 6. júní en það seinna 9. til 17. júní og verður rithöfundurinn Judith Neimi félögunum til aðstoðar auk þess sem íslenskir rithöfundar leggja sitt af mörkum, en nám- skeiðin fara fram á ensku. Bill Holm (icelandworks- hop@yahoo.com) og David Arnason (davidarnason@yahoo.com) veita nánari upplýsingar og taka við skráningum til 5. mars en 20 manns að hámarki komast að á hvort nám- skeið. Ritlistarnámskeið á HofsósiSIGRÚN Björg- vinsdóttir hefur sent frá sér bókina Loksins verður hjarta mitt rótt – dagbók frá dvöl í Kanada – um dvöl sína í Manitoba haustið 1998 en út- gefandi er Publ- ishIslandica. Í bókinni, sem er 164 blaðsíður, rek- ur Sigrún samskipti sín við íbúa vestra, en þar hitti hún meðal annars frændfólk sem hún vissi ekki um áður. „Lengst mun fylgja henni hjálpsemi og glaðlyndi þeirra er hún kynntist þar,“ segir á bókarkápu. „En henni er einnig ríkt í huga hve örlög landnem- anna urðu henni nátengd við að koma á þessar slóðir.“ Nálgast má bókina á vefnum www.publishamerica.com/books/3593. Dagbók frá Kanada VESTUR-ÍSLENSKI rithöfund- urinn Betty Jane Wylie er á meðal þeirra sem fá æðstu við- urkenningu Kanada, Kanadaorð- una eða the Order of Canada, innan skamms. Kanadaorðan er veitt í þremur stigum og fá fimm manns æðsta stigið að þessu sinni, 22 það næstæðsta og 64 þriðja stigið. Betty Jane Wylie er í síðast- nefnda hópnum, en í fyrra var hún sæmd heiðursnafnbót við Manitobaháskóla í Winnipeg. Betty Jane Wylie býr í Mac- Tier í Ontario. Hún hefur skrifað meira en 40 bækur um hin margvísleg- ustu efni og haldið úti eigin sjónvarpsþætti. Meðal annars hefur Betty Jane Wylie skrifað leikrit, ljóð og barnabæk- ur. Eftir að hún varð ekkja skrif- aði hún metsölubókina Beginn- ings: A Book for Widows, og í kjölfarið fylgdu margir fyrirlest- ar um ekkjulíf. Á meðal bóka hennar eru Letters to Ice- landers, The Write Track, Beg- innings: A book for Widows, New Beginnings, Men Quota- tions about men by women, Lif- e’s Losses og Reading Between the Lines: Diaries of Women. Betty Jane Wylie hefur líka látið til sín taka í félagsmálum og m.a. verið formaður Rithöfunda- samtaka Kanada og í stjórn Samtaka leikritahöfunda í Kan- ada. Fær æðstu viður- kenningu Kanada Betty Jane Wylie

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.