Morgunblaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 37
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 37
Útsala
útsala
Síðasta
vika
50%
afsláttur
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
Ráðstefna Öryrkjabandalags Íslands
Aðgengi að upplýsingasamfélaginu
Grand hótel Reykjavík, 12. febrúar 2004.
Ráðstefnustjóri Kristján Kristjánsson sjónvarpsmaður
Dagskrá
09:00 Mæting
09:15 Setning ráðstefnu. Afhending viðurkenningar Öryrkjabandalags Íslands fyrir störf að upplýsingamálum. Garðar Sverrisson formaður
Öryrkjabandalags Íslands.
09:30 Þróun fjölmiðla í náinni framtíð og lausn á þörfum ólíkra hópa. Stefán Jökulsson lektor í upplýsingatækni og miðlun hjá Kennaraháskóla Íslands.
10:00 Kaffi hlé
10:20 The Information Society and people with disabilities. Karin Bendixen yfirmaður samskiptatækni Dansk Center for Tilgængelighed.
10:40 Aðgengi að breskum heimasíðum. Sigrún Þorsteinsdóttir notendaviðmótsfræðingur.
11:00 Prófun heimasíðna með aðgengi í huga. Sirrý Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Sjá ehf.
11:20 Vandinn við að hanna aðgengilegar síður. Már Örlygsson vefhönnuður.
11:40 Stjórnarráðsvefurinn og hönnun hans. Sigurður Davíðsson, vefstjóri stjórnarráðsvefsins.
12:00 Hádegisverðarhlé
13:00 Hjal-verkefnið og þróun talgervils. Helga Waage, tæknistjóri Hex.
13:30 Upplýsingasamfélagið og heyrnarskertir. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir varaþingmaður.
13:40 Fólk með þroskahömlun og upplýsingasamfélagið. Sigurður Fjalar Jónsson framhaldsskólakennari.
13:50 Lesblindir og upplýsingasamfélagið. Snævar Ívarsson varaformaður Félags lesblindra á Íslandi.
14:00 Aðgengi fatlaðra að vísindaritum og æðri menntun. Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður.
14:20 Nýtt upplýsingakerfi Strætó BS og bætt aðgengi. Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó bs.
14:40 Rafræn þjónusta Landsbankans. Viggó Ásgeirsson forstöðumaður vefsviðs Landsbanka Íslands.
15:00 Kaffi hlé
15:20 Microsoft og bætt aðgengi. Elvar Þorkelsson framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi og Gísli Rafn Ólafsson sérfræðingur Microsoft Íslandi.
15:40 Hvernig vinna skjálesarar? Hartmann Guðmundsson forstöðumaður Örtækni og Hlynur Már Hreinsson leiðbeinandi í Örtækni.
16:10 Umræður
17:00 Ráðstefnuslit
Ráðstefnugjald:
kr. 5000. Kaffi veitingar í
fundarhléum og hádegisverður
innifalinn.
Skráning og upplýsingar:
www.obi.is // bsj@obi.is
sími: 530 6700
Bára Snæland, upplýsingafulltrúi
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
„AUÐVITAÐ á maður orðið mjög
marga uppáhaldsstaði á Íslandi,
en ef ég þyrfti að setja einn í for-
gang, þá væri það án nokkurs vafa
Þingvellir,“ segir Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, spurð um eft-
irlætisstaðinn sinn hér á landi.
„Ég fer mjög oft til Þingvalla,
hvort sem er vetur, sumar, vor
eða haust. Fyrir utan hvað þetta
er þægileg leið frá Reykjavík, fer
ég ekki síst þangað vegna þess að
mér finnast Þingvellir fallegasti
staður í heimi og ennfremur vegna
allrar þeirrar sögu, sem tengist
staðnum. Þetta eru gjarnan dags-
ferðir. Ég fer í göngutúra um
svæðið og sest svo niður með kaffi
á brúsa úti í náttúrunni.“
Fyrir allar pyngjur
Erna segist hvorki eiga sum-
arbústað né nútíma viðleguútbún-
að á borð við fellihýsi eða tjald-
vagn. „Ég fór auðvitað hér áður
fyrr þegar börnin voru lítil í úti-
legur með gamla tjaldið mitt, en
nú nenni ég því ekki lengur enda
er nú orðið svo gríðarlega mikið
framboð og mikil fjölbreytni í
gististöðum út um allt land fyrir
allar pyngjur og mismunandi
smekk fólks. Mér finnst því nú
orðið mest gaman að keyra um
landið og svo gisti ég á hótelum
og gistiheimilum, allt eftir því
hvað við á hverju sinni.“
Noregur og Frakkland
í toppsætum
Erna segist ferðast bæði innan-
lands og utan í fríum sínum. „Ég
myndi segja að Noregur og
Frakkland bitust um að vera í
toppsætinu hjá mér hvað varðar
eftirlætislöndin utan Íslands, en
það sem einkum höfðar til mín
þegar ég er á ferðalögum erlendis
er landslag, matur og menning.
Til Noregs hef ég komið ótal sinn-
um og farið með öllum tegundum
af farartækjum um landið, allt frá
syðsta odda þess til hins nyrsta.
Ég held að mér þyki Noregur eitt
fallegasta landið erlendis sem ég
hef farið um,“ segir Erna Hauks-
dóttir að lokum.
Fer oft til Þingvalla
Erna Hauksdóttir: Noregur er eitt fallegasta land sem hún hefur komið til.
Morgunblaðið/Þorkell
EFTIRLÆTISSTAÐUR| Erna Hauksdóttir Kynning á gönguferðum
GÖNGUKLÚBBURINN Göngu-
Hrólfur boðar til kynningarfundar á
morgun, sunnudaginn, 8. febrúar.
Kynningarfundurinn verður haldinn
á hótel Loftleiðum Víkingasal og
hefst klukkan 15.00
Þar verða kynntar gönguferðir í
hefðbundnum takti, í léttari takti og
fyrir matgæðinga til staða eins og
Mallorca, Pyreneafjalla,
Toscana, Krítar, Dólómíta-
fjalla á Ítalíu, Tatrafjalla í
Slóvakíu og Thüringen í
Þýskalandi. Aðgangseyrir
er 600 krónur með kaffi og
kökum.
Heimsókn frá
knattspyrnuskóla
Bobby Charlton
IAN Bateman, skóla-
stjóri Bobby Charlton-
skólans, kemur til Íslands
og verður með kynningu á
skólanum mánudaginn 9. febrúar á
Akureyri og þriðjudaginn 10. febr-
úar í Reykjavík. Á Akureyri verður
sýnikennsla í Boganum kl. 17.00 og
kynningarfundur í Félagsheimili
Þórs að Hamri kl. 18.30. Í Reykja-
vík verður kynningarfundur í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardag kl.
20.00 á þriðjudaginn. Einnig býðst
félögum að fá Ian í heimsókn.
Knattspyrnuskóli Bobby Charlton
er fyrir unga knattspyrnumenn á
aldrinum 12 til 17 ára, stelpur jafnt
sem stráka, einstaklinga, hópa og
lið. Viku til 10 daga ferðir verða í
boði lok júlí eða byrjun ágúst, en
lið geta einnig komist að um
páskana.
Hús til leigu í Frakklandi
Í SUÐUR-Frakklandi stendur til
boða að leigja hús til sumardvalar í
þorpinu Mas Carbades sem er í
Aude-fylki. Þar búa 200–300 manns
allt árið, en mun fleiri á ferða-
mannatímanum. Þorpið er 21 km
norður af borginni Carcassonne,
320 km frá Barcelona og um 90 km frá Toulouse. Í húsinu er aðstaða
fyrir 6 manns og er hægt að leigja það í minnst eina viku frá því í apríl
fram í október. Margt er hægt að skoða í þorpinu sem er í gili í Mon-
tagne Noire-fjöllunum. Flestar neysluvörur er hægt að kaupa í lítilli
verslun, en slátrarinn kemur í bæinn tvisvar í viku og er látið vita af
komu hans með því að kalla í lúður sem er tengdur hátölurum í fjöll-
unum í kring. Sami háttur er hafður á þegar bakarinn og grænmetissal-
inn koma í bæinn. Vikuleiga er frá 30.000–40.000 krónur.
Þeir sem hafa áhuga á
að dvelja í Mas Carbades
geta haft samband við:
Kristínu Magnússon net-
fang: kristinm@hafro.is og
kmhsk@simnet.is. Símar:
545 8382, 551 1590 og
899 7733.
Upplýsingar um Knatt-
spyrnuskóla Bobby Charl-
ton hjá ÍT- ferðum í Laug-
ardal
Sími 588 9900
Netfang:itferdir@itferdir.is;
veffang: www.itferdir.is
Upplýsingar um göngu-
ferðir á vegum Göngu-
Hrólfs veitir Úrval-Útsýni í
Smáranum.
Sími: 585 4140.
Fréttasíminn
904 1100