Morgunblaðið - 07.02.2004, Síða 38
DAGLEGT LÍF
38 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Trönuhrauni 6, 220 Hafnarfjörður • Sími: 565 1533
www.polafsson.is • polafsson@polafsson.is
púlsmælar fyrir alla þjálfun
NÝTT WM42 (þyngdarstjórnunartæki)
Mathákur
íslenskt næringarforrit
+
POLAR WM42
þyngdarstjórnunartæki
frábær tvenna á aðeins
17.450.-
Halló Norðurlönd - vinur í vanda
Ertu að hugsa um að flytja til
annars Norðurlands?
Hefur þú siglt í strand í
kerfinu eftir flutning?
Halló Norðurlönd
er upplýsingaþjónusta
Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Skoðaðu heimasíðuna
www.hallonorden.org,
þar finnur þú mikilvæg
netföng og símanúmer.
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Þær eru allar útlendingar, aðheita má hver frá sínulandinu, en hafa kynnst ís-lenskum mönnum sem
fengu þær í hnapphelduna. Kon-
urnar hafa búið hér á landi mislengi
en eru sammála um að fyrstu árin á
Íslandi hafi verið þeim erfiðust því
alltaf taki það sinn tíma og sinn toll
að aðlagast nýju samfélagi. Ekki fóru
þær varhluta af tungumálaerf-
iðleikum í fyrstu og ákváðu því, hver
í sínu horni, að skella sér í íslensku-
nám fyrir útlendinga við Háskóla Ís-
lands og þar tókust með þeim kynni.
Konurnar hittast tvisvar í mánuði
yfir vetrartímann og fá karlarnir að
fljóta með við sérstök tilefni og eins
hafa konurnar staðið fyrir ösku-
dagsballi fyrir börnin sín, sem sam-
tals eru fjórtán á aldrinum fimm til
sextán ára. Þær segjast auðvitað
deila sorgum og sigrum, eins og
kvenna sé vani, og oft séu fundirnir
þeirra eins og ódýr en gefandi sál-
fræðitími.
Daglegt líf brá sér í heimsókn í
saumaklúbb, sem haldinn var á
bóndadagskveldi, en þegar kon-
urnar voru inntar eftir því hvernig
stæði á því að þær væru ekki að
dekra við mennina sína á þessu
kvöldi, sögðust þær ekki koma ná-
lægt íslenskum hrútspungum. Eig-
inmennirnir þyrftu enga aðstoð við
að innbyrða þorramatinn.
Remojón með túnfiski
(Ida Marguerite Semey)
Remojón er spænsk uppskrift sem
gjarnan er borin fram með saltfiski.
Þá er saltfiskurinn skorinn í þunnar
sneiðar, grillaður eða steiktur á
heitri pönnu og hann settur ofan á
appelsínurnar. Í staðinn fyrir salt-
fisk, má allt eins nota túnfisk, eins
og hér er gert.
3–4 appelsínur,
1–2 rauðlaukar,
1 dós túnfiskur í olíu,
1 dós ólífur,
1–2 msk. ólífuolía.
Appelsínurnar afhýddar og
skornar til helminga og síðan í þunn-
ar sneiðar. Rauðlaukurinn skorinn í
þunna hringi. Túnfisksdósin opnuð
og olíunni hellt af og geymd. Appels-
ínuskífunum raðað á disk. Túnfisk-
inum dreift jafnt yfir og rauðlaukn-
um síðan dreift ofan á túnfiskinn.
Skreytt með ólífum. Túnfisksolíunni
hellt yfir þetta allt saman.
Svissnesk möndlu-
og sveskjubaka
(Andrea Burgherr)
Sveskjufylling:
150 g þurrkaðar sveskjur,
5 dl vatn,
1 msk. sykur,
2 msk. 40% kirsuberjavín eða
koníak.
Sveskjurnar settar í skál og soðnu
vatninu hellt yfir þær. Látið standa í
eina klukkustund. Vatninu þá hellt
af og sveskjurnar settar í bland-
ara. Víninu blandað saman við og
þetta látið kólna.
Möndlufylling:
150 g fínmalaðar möndlur,
75 g sykur,
½ dl vatn,
½ msk sítrónusafi.
Öllu blandað saman, en gott er að
búa til fyllingarnar deginum áður til
að fá þær þéttari.
Deig: 1 pakki
smjördeig eða
400–500 g.
Skipta
deiginu í
tvennt.
Báða
helminga
skal fletja
út kringl-
ótt. Gott er
að miða við
bökunarform,
sem er 26 cm í
þvermál. Setja á bök-
unarpappír og á kaldan stað.
Annar helmingur smjördeigsins
er settur í ofnskúffu og fyllingarnar
settar á, en skilja skal eftir 2 cm
breiða rönd meðfram og bleyta hana
með vatni. Á hinn helming smjör-
deigsins er skorið mynstur að miðj-
unni, hver skurður er 3 cm langur.
Lokið sett yfir og röndin fest saman.
Röndinni er þrýst upp á átta stöðum
með skeiðsoddi til að fá sérstakt útlit
kökunnar. Bakað í um 35 mín. í
miðjum 200°C forhituðum ofni. Ekki
má opna ofninn meðan á bakstri
stendur. Slökkt á ofninum og hann
opnaður aðeins. Kakan látin standa
inni í ofninum í um 10 mín. Flórsykri
stráð yfir.
SAUMAKLÚBBUR| Þær kynntust þegar þær voru í íslenskunámi fyrir útlendinga í HÍ
Alþjóðlegar
kræsingar
Þær hittast tvisvar í mánuði og eiga það sam-
eiginlegt að vera útlendingar á Íslandi. Jóhanna
Ingvarsdóttir fór í alþjóðlegan saumaklúbb og
bragðaði á ýmsu góðgæti.
flutti 1994 eftir að hafa lokið meist-
aranámi í norrænum tungumálum
við háskólann í Helsinki.
Pamala Hansford frá Englandi
frétti að hægt væriað vinna sér inn
peninga með því að fara á vertíð í
frystihúsi á Íslandi. Hún réði sig til
fiskvinnslustarfa á Rifi á Snæfells-
nesi árið 1985. Grím Sæmundsson
sá hún hinum megin við frystiplöt-
una. Hún starfar nú sem ensku-
kennari í Breiðagerðisskóla.
Hilda Torres frá Mexíkó kom fyrst
til Íslands árið 1990 eftir að hafa
hitt Ásgeir Sighvatsson, sem hafði
verið á ferðalagi í Mexíkó. Hilda
hefur síðan starfað sem spænsku-
kennari í Verslunarskóla Íslands og
í Málaskólanum Mími.
Rosenda Guerrero frá Kólumbíu
er hagfræðingur að mennt, en
starfar á sambýli fyrir fjölfötluð
börn í Reykjavík eftir að hafa unnið
á Hrafnistu og stundað kennslu-
störf í Hjallaskóla. Hún kom fyrst
Ida Marguerite Semey er hálf-
dönsk og hálfhollensk að ætt og
uppruna, en bjó á Spáni frá 14 til
20 ára aldurs. Hún var í mast-
ersnámi í Hollandi 1987 þegar hún
kynntist Bjarna Guðmundssyni og
fluttist með honum til Íslands ári
síðar. Ida kennir nú spænsku við
Menntaskólann í Hamrahlíð.
Andrea Burgherr frá Sviss starfar
sem smíða- og nýsköpunarkennari
við Foldaskóla og sem leið-
sögumaður. Hún kom fyrst til Ís-
lands sem skiptinemi árið 1983,
kom síðan þrívegis sem leið-
sögumaður til landsins og 1989
kynntist hún Guðmundi Gunn-
arssyni og fluttist hingað.
Marjakaisa Matthíasson frá
Finnlandi starfar sem ritari í
finnska sendiráðinu í Reykjavík.
Hún kom fyrst til Íslands í sum-
arbúðir árið 1989 og ákvað að koma
aftur til þess að læra íslensku. Hún
kynntist Haraldi Matthíassyni og
til Íslands sem skiptinemi árið 1988
og segist fyrst hafa hitt Baldur
Andrésson í heitu pottunum í
Laugardalslauginni.
Marianne Skovsgård frá Dan-
mörku fluttist til Íslands 1989 eftir
að hafa gifst Jóni Pálmasyni úti í
Danmörku. Hún starfar við þýð-
ingar , aðallega tæknilegs eðlis, úr
íslensku á dönsku.
Tveir stofnfélagar saumaklúbbs-
ins búa nú erlendis en eru í góðu
sambandi við vinkonurnar á Ís-
landi.
Vicky Cribb frá Bretlandi er
bókmenntaþýðandi, var ritstjórn-
arfulltrúi Iceland Review og starfs-
maður Eddu forlags. Hún flutti ný-
lega til Englands og starfar m.a.
við þýðingar á íslenskum bók-
menntum.
María Eugenia Birgisson frá
Venezúela bjó lengi á Íslandi og
var nemi í HÍ. Hún stundar há-
skólanám í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Saumaklúbburinn samanstendur af konum sem koma hver frá sínu landinu: Ida Marguerite Semey, Andrea Burg-
herr, Marjakaisa Matthíasson, Pamala Hansford, Hilda Torres, Rosenda Guerrero og Marianne Skovsgård.
Konur sem koma víðsvegar að