Morgunblaðið - 07.02.2004, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐLEGU meistararnir
Bragi Þorfinnsson (2.380) og Jón
Viktor Gunnarsson (2.376) urðu
efstir og jafnir á Skákþingi
Reykjavíkur sem lauk á miðviku-
dagskvöld. Sigurvegarar Skák-
þings Reykjavíkur 2004 hafa oft
áður komist á þann stall.
Jón Viktor Gunnarsson er
margfaldur Skákmeistari Reykja-
víkur og þótt Bragi Þorfinnsson
hafi aldrei hampað titlinum sjálf-
um hefur hann a.m.k. tvívegis
orðið efstur ásamt öðrum. Þeir
félagar þurfa að heyja tveggja
skáka einvígi um titilinn Skák-
meistari Reykjavíkur. Fyrri skák-
in var tefld í gærkvöldi og hafði
Jón Viktor hvítt í þeirri skák. Sú
síðari verður tefld í dag, laug-
ardag, kl. 17 og þá stýrir Bragi
hvítu mönnunum.
Þó að þeir Bragi og Jón Viktor
væru stigahæstu keppendur
mótsins fór því fjarri að þeir
ynnu auðvelda sigra á andstæð-
ingum sínum en með seiglu og
sigurvilja náðu þeir jafnan að
landa vinningnum. Fyrir síðustu
umferð voru þeir jafnir í efsta
sæti með 8 vinninga. Fyrirfram
mátti búast við því að Bragi ynni
öruggan sigur á Heimi Ásgeirs-
syni (2.107) með hvítu í lokaum-
ferðinni, en Jóns Viktors beið það
erfiða hlutskipti að sigra Kristján
Eðvarðsson með svörtu. Reyndin
varð hinsvegar sú að Bragi lenti í
mesta basli gegn Heimi og í
miklu tímahraki stóð kóngur
Braga í skák í marga leiki án
þess að keppendur tækju eftir
því. Að lokum féll Heimir á tíma
og var Braga því úrskurðaður
sigurinn. Jón Viktor tefldi hins
vegar sína bestu skák í mótinu og
vann Kristján örugglega.
Hvítt: Kristján Eðvarðsson
Svart: Jón Viktor Gunnarsson
1. c4 Rf6 2. Rc3 c5 3. Rf3 e6 4.
g3 b6 5. Bg2 Bb7 6. O-O Be7 7.
d4 cxd4 8. Dxd4 d6 9. Hd1 a6 10.
Rg5 Bxg2 11. Kxg2 Rc6 12. Df4
Dc7
Eins og margir muna þá var
Broddgaltarafbrigðið í enska
leiknum oft upp á teningnum í
einvígi Jóhanns Hjartarsonar og
Viktors Kortsnojs. Jóhann hefur
oft teflt þetta afbrigði og lék m.a.
12...0-0 gegn Helga Ólafssyni í
Gausdal 1996. Helgi vann þá skák
snoturlega og með það í huga
virðist textaleikurinn prýðilegur
valkostur.
13. Rce4?!
Bæði 13. b3 og 13. Rge4 voru
fýsilegri leikir þar sem eftir þetta
stendur riddarinn á g5 ekki nógu
vel.
13...Re5!
Áður hefur verið leikið
13...Hd8.
14. b3 Dc6 15. f3
15. Kg1 kom einnig til álita að
mati Jóns en textaleikurinn er
ekkert síðri.
15... h6 16. Rxf6+ gxf6!? 17.
Re4 f5 18. Rf2 Bg5 19. Dd4 Bf6
20. Hb1 O-O-O
Upp er komin óvenjuleg staða í
þessu afbrigði þar sem svartur
hefur langhrókerað og hyggst
hefja sókn á kóngsvæng. Vegna
þessa þarf hvítur að bregðast
hraustlega við enda er sókn
svarts tiltölulega hraðskreið.
21. De3?
Þessi leikur er of hægfara og
án tengsla við skýra áætlun. Bæði
21. Be3 og 21. e4 komu frekar til
álita og er þá allsendis óvíst að
hvítur standi verr að vígi. Í fram-
haldinu er taflmennska hvíts
stefnulaus á meðan svartur eykur
hægt og sígandi sóknartök sín á
kóngsvæng.
21... h5! 22. Bb2 h4 23. Bxe5
Bxe5 24. g4 Hdg8 25. h3 fxg4 26.
hxg4 f5 27. Kf1?
Hvítur hefði getað haldið bar-
áttu sinni áfram eftir 27. Kh3 þó
að staða hans væri töluvert lak-
ari.
Sjá stöðumynd 3.
27... fxg4! 28. Rxg4 Hxg4! og
hvítur gafst upp enda fátt um fína
drætti eftir 29. fxg4 Dh1+ 30.
Dg1 Hf8+.
Lokastaðan á Skákþingi
Reykjavíkur:
1.-2. Bragi Þorfinnsson,
Jón V. Gunnarsson 9 v.
3. Dagur Arngrímsson 8 v.
4.-5. Davíð Kjartansson,
Sævar Bjarnason 7½ v.
6.-10. Björn Þorsteinsson,
Júlíus Friðjónsson,
Guðmundur Kjartansson,
Kjartan Maack,
Magnús Magnússon 7 v.
11.-14. Kristján Eðvarðsson,
Jónas Jónasson,
Halldór Pálsson,
Helgi Brynjarsson 6½ v.
15.-19. Heimir Ásgeirsson,
Haraldur Baldursson,
Valgarð Ingibergsson,
Þórir Benediktsson,
Hjörvar S. Grétarsson 6 v.
20.-26. Helgi E. Jónatansson,
Gísli Hólmar Jóhannesson,
Kristján Örn Elíasson,
Rúnar Gunnarsson,
Hilmar Þorsteinsson,
Ingi Tandri Traustason,
Arnar Sigurðsson 5½ v.
o.s.frv.
Keppendur voru 44. Skákstjóri
var Ólafur Ásgrímsson.
Hraðskákmót Reykjavíkur
Hraðskákmót Reykjavíkur fer
fram sunnudaginn 8. febrúar og
hefst kl. 14. Teflt verður í félags-
heimili Taflfélags Reykjavíkur að
Faxafeni 12. Tefldar verða 2x7
umferðir eftir Monrad-kerfi með
5 mínútna umhugsunartíma.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir
16 ára og eldri og 300 kr. fyrir 15
ára og yngri.
Meistaramót Taflfélagsins
Hellis hefst á mánudag
Meistaramót Hellis 2004 hefst
mánudaginn 9. febrúar klukkan
19:30. Mótið er 7 umferða opið
kappskákmót. Þetta er í þrett-
ánda sinn sem mótið fer fram, en
núverandi skákmeistari Hellis er
Björn Þorfinnsson sem jafnframt
hefur oftast hampað þeim titli eða
fimm sinnum. Mjög vegleg og
fjölbreytt verðlaun eru í boði.
Umhugsunartíminn verður 1½
klst. á 36 leiki og 30 mínútur til
að ljúka skákinni. Mótið er öllum
opið og verður reiknað til alþjóð-
legra skákstiga. Skráning:
www.hellir.is (skráningarform)
Tölvupóstur: hellir@hellir.is
Sími: 856 6155 (Gunnar)
Skráning á mótsstað fyrir 19:30
Aðalverðlaun verða 25.000 kr.
fyrir efsta sæti, 15.000 kr. fyrir
annað sæti og kr. 10.000 fyrir
þriðja sæti.
Aukaverðlaun:
Skákmeistari Hellis: Chess
Assistant 7.1
Besti árangur undir 2.000 skák-
stigum: Chess Assistant 7.1
Besti árangur undir 1.800 skák-
stigum: 5.000-
Besti árangur undir 1.600 skák-
stigum: 5.000-
Besti árangur stigalausra:
Skákklukka eða taflsett
Unglingaverðlaun: Þrír efstu
keppendurnir 15 ára og yngri fá
vegleg bókaverðlaun.
Stúlknaverðlaun: Þrjár efstu
stúlkurnar 15 ára og yngri fá veg-
leg bókaverðlaun.
Þátttökugjald er 2.000 kr. fyrir
félagsmenn Hellis, en 2.500 kr.
fyrir aðra. Unglingar 15 ára og
yngri greiða lægra gjald, fé-
lagsmenn 1.500 kr. en aðrir 2.000
kr.
Umferðatafla:
1. mánud. 9. feb. kl. 19:30
2. miðvikud. 11. feb. kl. 19:30
3. föstud. 13. feb. kl. 19:30
4. mánud. 16. feb. kl. 19:30
5. miðvikud. 18. feb. kl. 19:30
6. mánud. 23. feb. kl. 19:30
7. miðvikud. 25. feb. kl. 19:30
Alþjóðlegir meistarar efstir
á Skákþingi Reykjavíkur
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
SKÁKÞING REYKJAVÍKUR
11. jan. – 4. feb. 2004
Stöðumynd 3.
EINS og áður hefur Bolli Dav-
íðsson í Frímerkjahúsinu sent
þættinum flest þessara merkja og
eins þær upplýsingar um þau, sem
honum er kunnugt um. Færi ég
honum þakkir fyrir hvort tveggja.
Heldur fækkar þeim samtökum,
sem gefa út jólamerki. Í fyrra voru
þau níu, en að þessu sinni urðu þau
átta. Ekki er það vænlegt fyrir þá,
sem helga sig þessari söfnun.
Áreiðanlega finnst mörgum
óþarft að kaupa þessi merki á jóla-
bréf sín og jólakort, þar sem Póst-
ur- og sími hóf útgáfu jólafrí-
merkja árið 1981. Svo tók
Íslandspóstur hf. við þeim arfi á
sínum tíma.
Ég spáði því í upphafi, að útgáfa
póstyfirvalda á sérstökum jólafrí-
merkjum gæti orðið einstöku
styrktar- og líknarfélögum þung í
skauti, en þau höfðu verið ein um
hituna um mörg ár og eitt þeirra,
Thorvaldsensfélagið allar götur frá
árinu 1913. Ýmislegt annað kemur
einnig til og hefur orðið þess
valdandi, að sendendur jólabréfa
og -korta hafa dreifzt á milli líkn-
arfélaga.
Ýmis samtök senda félagsmönn-
um sínum óumbeðið bæði merki og
eins merkimiða á jólaböggla í von
um, að þeir styrki sitt félag. Hér á
ég m.a. við Rauða krossinn. Vissu-
lega er þessi útgáfustarfsemi
góðra gjalda verð, en afleiðingin
getur orðið neikvæð fyrir önnur fé-
lög.
Að venju verður fyrst í röðinni
jólamerki Thorvaldsensfélagsins.
Stjórn félagsins hefur sent þætt-
inum örk af síðasta merki þess,
sem ég þakka. Félagið mun í upp-
hafi hafa fengið leyfi til að selja
merki sín á pósthúsinu í Reykja-
vík, enda þá eitt um hituna. Hefur
mér skilizt, að sú samvinna hafi
haldizt æ síðan. Fyrir síðustu jól
var tekið fram hér í Mbl., að þessi
merki væru til sölu hjá Thorvald-
sensbazarnum í Reykjavík og eins
hjá félagskonum, en auk þess á öll-
um pósthúsum landsins. Ekki veit
ég, hvernig salan hefur almennt
farið fram á vegum Íslandspósts
hf., en hitt veit ég, að merkin voru
ekki fáanleg á mínu pósthúsi, þeg-
ar ég spurðist fyrir um þau.
Á síðasta jólamerki félagsins var
myndin „Englar“ eftir Þröst
Magnússon. Er það í annað skipt-
ið, sem hann hannar merki fyrir
félagið. Sama er að segja um graf-
ískan hönnuð þess, Robert Guille-
mette.
Allur ágóði af sölu merkjanna
fer til styrktar veikum börnum.
Framtíðin á Akureyri er næst í
röðinni. Merkið teiknaði Aðalheið-
ur S. Eysteinsdóttir myndlistar-
kona. Valdi hún jólaköttinn til að
prýða merkið. Var merkið til sölu á
pósthúsinu á Akureyri og eins á
tveimur stöðum í Reykjavík.
Ásprent á Akureyri prentaði
merkið, en allur ágóði af sölu þess
rennur í Styrktarsjóð aldraðra á
Akureyri.
Þriðja merkið er gefið út af Rot-
aryklúbbi Hafnarfjarðar. Skúli
Þórsson hefur tjáð mér, að höf-
undur þessa merkis sé einn félaga
klúbbsins, Sigurbjörn Kristinsson.
Myndefnið er tengt svonefndu Sív-
ertsenshúsi í Hafnarfirði, öðru
nafni húsi Bjarna riddara að ég
hygg, sem hann reisti 1803. Er
húsið því 200 ára gamalt. Tók Rot-
aryklúbburinn ásamt fleiri félaga-
samtökum þátt í uppbyggingu
(endurgerð) þess árið 1974.
Fjórða merkið gefur Líknarsjóð-
ur Lionsklúbbsins Þórs út í 38.
skiptið.
Hefur Líknarsjóðurinn um ára-
bil styrkt Tjaldanesheimilið í Mos-
fellsbæ og barnadeildir sjúkrahús-
anna í Reykjavík o. fl. Merkið
prýðir að þessu sinni mynd af
Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Er það hannað af Þórhildi Jóns-
dóttur auglýsingateiknara, en hún
hefur teiknað merki klúbbsins um
nokkur ár.
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar gefur út jólamerki 17. árið í
röð samkv. tilkynningu sambands-
ins. Að þessu sinni er teikning af
kirkjunni í Hjarðarholti í Stafholt-
stungum, en hún var reist 1895.
Guðmundur Sigurðsson teiknaði
merkið eins og öll fyrri merki sam-
bandsins. Er þetta 17. merkið af
22, sem hann hefur teiknað af
kirkjum um Borgarfjörð og Mýrar
fyrir Ungmennasambandið. Merk-
in eru fáanleg bæði tökkuð og
ótökkuð. Fást þau á skrifstofu
UMSB, Borgarbraut 61 í Borgar-
nesi, en svo má panta þau í síma
eða um tölvupóst, umsb@mmedia.-
is.
Félag frímerkjasafnara gefur út
jólamerki í þriðja sinn, takkað og
ótakkað. Merkið er hið snotrasta
og mun „jólalegra“ en merkið í
fyrra.
Hönnuður þess er hinn sami og
áður, Sigrún Ásta Gunnlaugsdótt-
ir. Þetta merki er fáanlegt hjá fé-
laginu í Síðumúla 17.
Rauði kross Íslands bætir enn
verulega við safn jólamerkja, eins
og hann hefur gert um nokkur ár.
Jóla-, líknar-
og styrktar-
merki 2003
FRÍMERKI
Jól 2003
Jólamerki Barnauppeldissjóðs Thorvald-
sensfélagsins, Framtíðarinnar á Akur-
eyri, Rotaryklúbbs Hafnarfjarðar, Líknar-
sjóðs Lionsklúbbsins Þórs, Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar, Félags
frímerkjasafnara. Rauða kross Íslands,
Hins íslenska biblíufélags.