Morgunblaðið - 07.02.2004, Page 66
DAGBÓK
66 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Skógarfoss fer í dag.
Guðmundur í Nesi og
Cielo Del Baltico koma
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Cielo Del Baltico kem-
ur í dag. Kiliutaq
fer í dag.
Mannamót
Árskógar 4. Laug-
ardaginn 14. febrúar
verður þorrablót kl. 19,
kennsla hefst í brids kl.
14.30 miðvikudag.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
hemilið Hraunsel er op-
ið frá kl. 9–17 alla virka
daga vikunar
Gerðuberg, félagsstarf.
Alla virka daga vinnu-
stofur opnar og frá há-
degi spilasalur opinn,
vist og brids.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krumma-
kaffi kl. 9.
Famos. Ganga í dag frá
Hlégarði kl. 11. Aðal-
fundur Famos verður í
Safnaðarheimili Lága-
fellssóknar miðviku-
daginn 11. febrúar og
hefst kl. 20.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis.
Fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús laugard. frá kl. 14.
Oa-samtökin. Átröskun
/ Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is og
í síma 878 1178.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud. frá
kl. 14–17. Leið10 og 110
ganga að Kattholti.
GA – Samtök spila-
fíkla, Fundaskrá:
Þriðjud.: Kl. 18.15, Sel-
tjarnarneskirkja, Sel-
tjarnarnes. Miðvikud.:
Kl. 18, Digranesvegur
12, Kópavogur, og Eg-
ilsstaðakirkja, Egils-
stöðum. Fimmtud.: Kl.
20.30, Síðumúla 3–5,
Reykjavík. Föstud.: Kl.
20, Víðistaðakirkja,
Hafnarfjörður. Laug-
ard.: Kl. 10.30, Kirkja
Óháða safnaðarins,
Reykjavík, og Glerár-
kirkja, Akureyri. Kl.
19.15, Seljavegur 2,
Reykjavík. Neyðarsími:
698 3888.
Fífan, Dalsmára 5 í
Kópavogi. Tart-
anbrautir eru opnar al-
mennu göngufólki og
gönguhópum frá kl. 10–
11.30 alla virka daga.
Blóðbankabílinn. Ferð-
ir blóðbankabílsins: sjá
www.blodbankinn.is.
Minningarkort
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans. Tekið er við
minningargjöfum á
skrifst. hjúkrunarfor-
stjóra í s. 560 1300 alla
virka daga milli kl. 8 og
16. Utan dagvinnutíma
er tekið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
s. 560 1225.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru
fáanleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561 4307/fax
561 4306, hjá Halldóru
Filippusd., s. 557 3333,
og Sigurlaugu Hall-
dórsd., s. 552 2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu
hjá Þórði Tómassyni, s.
487 8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni,
Skeiðflöt, s. 487 1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551 1814, og
hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk 9,
s. 557 4977.
Minningarkort, Félags
eldri borgara, Selfossi,
eru afgreidd á skrifstof-
unni í Grænumörk 5,
fimmtudaga kl. 13–15,
sími 482 4477.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5, s.
482 1134, og verslunni
Írisi í Kjarnanum,
Austurvegi 3–5.
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s.
568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562 1581, hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551 7193,
og Elínu Snorradóttur,
s. 561 5622.
Í dag er laugardagur 7. febrúar,
38. dagur ársins 2004.
Orð dagsins: Forustusauðurinn
fer fyrir þeim, þeir ryðjast fram,
fara í gegnum hliðið og halda út
um það, og konungur þeirra fer
fyrir þeim og Drottinn er í
broddi fylkingar þeirra.
(Mika 2, 13.)
Deila forseta lýðveld-isins og tveggja hand-
hafa forsetavalds verður
enn tilefni til skrifa í póli-
tísku vefritunum.
Á Frelsi.is, vef Heim-dallar, er birt ályktun
frá stjórn Heimdallar,
svohljóðandi:
„Í ljósi umræðna síð-
ustu daga telur Heimdall-
ur f.u.s. í Reykjavík
ástæðu til að ítreka þá
skoðun sína að embætti
forseta Íslands beri að
leggja niður. Embættinu
var í upphafi ætlað að
koma í stað embættis kon-
ungs. Við stofnun lýðveld-
is 1944 tók forseti yfir
þær embættisskyldur sem
konungur Danmerkur
bar og voru þær ekki
margar. Forsetaembættið
er engu veigameiri hluti
íslenskrar stjórnskipunar
heldur en konungsemb-
ættið var áður. Hlutverk
þess er nær einvörðungu
táknræns eðlis. Íslensk
stjórnsýsla hefur jafnan
verið einföld og laus við
allt prjál. Stingur því hið
þarflausa forsetaembætti
nokkuð í stúf. Þá er emb-
ætti forseta Íslands afar
kostnaðarsamt fyrir
skattgreiðendur landsins.
Enn fremur þykir það
furðu sæta að embætt-
ismaður sem hefur færri
skyldur en tali tekur,
skuli ekki sjá sér fært að
vera viðstaddur merk-
isatburði á borð við 100
ára afmæli heima-
stjórnar. Sé þeim embætt-
ismanni sem embættinu
gegnir raunverulega ætl-
að að vera sameining-
artákn þjóðarinnar er það
lágmarkskrafa að hann
fagni með þjóðinni á þeim
dögum sem hafa sér-
stakan sess í sögu henn-
ar.“
ÁKreml.is skrifar Eirík-ur Bergmann Ein-
arsson og virðist ann-
arrar skoðunar um völd
forseta – sennilega búinn
að gleyma öllu sem hann
lærði í stjórnmálafræð-
inni:
„Ráðamenn þjóð-
arinnar eru komnir í
sandkassana í þessu
heimastjórnar- og rík-
isráðsmáli. Og fyrst við
erum komin á þann vett-
vang er kannski ekki úr
vegi að minna á að forset-
inn getur auðvitað leyst
ríkisstjórnina frá störfum
og veitt öðrum flokks-
formanni en Davíð stjórn-
armyndunarumboðið. Í 15
grein stjórnarskrárinnar
segir: „Forsetinn skipar
ráðherra og veitir þeim
lausn. Hann ákveður tölu
þeirra og skiptir störfum
með þeim.“ Röksemda-
færslan geti verið sú að
ófært sé að trún-
aðarbrestur sé á milli for-
setans og forsætisráð-
herrans sem í ákveðnum
skilningi situr í skjóli for-
seta, en í 13. grein stjórn-
arskrár segir: „Forsetinn
lætur ráðherra fram-
kvæma vald sitt.“ Og bara
til að taka af öll tvímæli
um að forseti sitji í forsæti
ríkisráðs þá segir í 16.
grein stjórnarskrárinnar
að „Forseti lýðveldisins
og ráðherrar skipa rík-
isráð, og hefur forseti þar
forsæti.“
STAKSTEINAR
Leggja niður forsetann
eða ríkisstjórnina?
Víkverji skrifar...
Víkverji neytir ekki „ólöglegravímuefna“ og hefur aldrei hvatt
til neyslu þeirra en samt sem áður
blöskrar honum framferði forráða-
manna Samfés, samtaka félags-
miðstöðvanna, gagnvart rokk-
hljómsveitinni Mínus og reyndar
skjólstæðingum sínum, krökkunum
sem sækja félagsmiðstöðvarnar.
Málið er víst að Samfés-stjórarnir
riftu samningi við sveitina og hættu
þar með við að láta hana spila á fyr-
irhuguðum unglingadansleik eftir að
þeim blöskraði umsagnir í íslenskum
fjölmiðlum um umsagnir í erlendum
fjölmiðlum um meinta „ólöglega
vímuefnaneyslu“ sveitarinnar. Mín-
usmenn hafa hins vegar aldrei, svo að
Víkverji viti, skorið úr um op-
inberlega hvort þessar lýsingar út-
lendra blaðamanna eigi við rök að
styðjast og það er bara þeirra mál.
Það er líka alfarið mál þeirra Mínus-
liða hvort þeir neyti ólöglegra eða
löglegra vímuefna yfirhöfuð. Ekki
ætlar Víkverji, reglulegur neytandi
hinna löglegu vímuefna, að fordæma
þá fyrir það því slíkt myndi flokkast
undir hræsni. En vangaveltur um
hvort þeir séu dópistar eða ekki eru
ekki aðalmálið hér, því það kemur
hvort eð er engum við. Aðalmálin eru
tvö.
x x x
Fyrsta gengur út á vangaveltur umhvort rokkæðislegt og grodda-
kennt fas þeirra Mínusmanna hvetji
ungt og áhrifagjarnt fólk til ólög-
legrar vímuefnaneyslu. Ef svo þá
væri það í engu frábrugðið því er
unglingum þótti spennandi hér forð-
um að prófa hitt og þetta sem Bítlar,
Dylan, Stóns og Bubbi sungu um og
mærðu. Ekki sér Víkverji þó að hægt
sé að sanna með fullri vissu hvort
Mínusarnir hafi með beinum hætti
hvatt til neyslu ólöglegra vímuefna.
Hafi þeir gert það er slíkt vitanlega
ámælisvert og ekki til eftirbreytni
því rokkstjörnur verða jú upp að
vissu marki að huga að áhrifamætti
sínum og jafnvel einhvers konar
ábyrgð. En að ætla að skikka menn-
ina til að gefa út einhverja yfirlýs-
ingu, óháð því hvort hún sé rétt eða
röng, um að hafa aldrei neytt ólög-
legra vímuefna, er yfirgangur og
vanvirðing eins og Mínusarnir orða
það sjálfir, en ekki bara við Mínus
heldur krakkana líka sem er greini-
lega ekki betur treyst en svo að þau
geti ekki greint á milli góðra tónleika
og vafasamra ummæla í erlendum
fjölmiðlum. Eru einhver fordæmi um
það að íslenskir popparar eða aðrir
listamenn hafi verið krafðir um slíkt?
Er ekki ólíklegt að meðlimir Trú-
brots hafi þurft að gera það þegar
þeir léku í Höllinni fyrir æsta æsku
árið 1969? Og hefðu Gunnar og Rún-
ar samþykkt að skrifa undir slíka yf-
irlýsingu? Hefði Bubbi fengið mörg
tækifæri til að leika fyrir unglinga ef
slík fanatík hefði viðgengist er
frægðarsól hans skein hvað skærast
á 9. áratugnum? Samt sagði hann það
sem hann sagði í Rokki í Reykjavík.
x x x
Nei, auðvitað er þetta dæmi umeinhverja makalausa firru sem
nú skekur Skerið og minnir hvað
helst á rétthugsunarherferð þá sem
siðapostular í Bandaríkjum, með frú
Gore, fyrrum varaforsetafrú, í far-
arbroddi, hafa rekið með skelfilegum
árangri undanfarinn áratug.
Hvað er næst? Senda alla poppara
í lyfjapróf áður en þeir stíga á svið?
Þakkir til
landsmanna
HINN 12. desember sl. lent-
um við börnin mín í því að
það kviknaði í hjá okkur og
var ég ekki tryggð. Það var
sett af stað söfnun og langar
mig að þakka kærlega fyrir
okkur, því ég veit ekki hvar
við stæðum án ykkar.
Takk fyrir okkur.
Jóna Júlía,
Arnar Freyr,
Katrín Perla og
Hafsteinn Ingi.
Boltanum stolið
ÞEIR tóku boltann minn
segir hæstvirtur forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar
Grímsson. Er það nokkur
furða þó að hann sé reiður?
Er það nokkuð skrítið þó að
hæstvirtum forseta finnist
hann vera puntstrá, sem er
að verða að sinu? Nú eru
búin að vera hátíðarhöld
sem varða íslensku þjóðina
kannski miklu og eru fleiri
slíkar samkomur á þessu
ári á biðlista hjá stjórninni,
sem seinna verða ákvarðað-
ar. Að sögn fréttamiðla er
forsetinn alveg óþarfur á
þessar samkomur. Engin
boðskort fær hann og ekk-
ert sæti meðal þessara
höfðingja. Heilög þrenning
úr hópi ráðherra og alþing-
ismanna tekur að sér hans
verk og nýtir sér ágætlega
þær fjarverustundir sem
hann veitir sér. Mér er
spurn, er nokkur þörf á for-
seta yfir þessu landi þegar
til eru þjónar sem taka að
sér hans verk í sínum frí-
stundum? Getum við ekki
sett þá peninga sem svara
launum hæstvirts forseta í
heilbrigðisþjónustuna? Við
gætum kannski mínusað
laun forsætisráðherrans
líka frá þjóðarútgjöldunum
og látið þau renna í sama
kerfi. Það eru kannski til
menn sem geta tekið hans
störf að sér líka. Ég tek
heils hugar undir orð for-
seta landsins Ólafs Ragnars
Grímssonar og skil reiði
hans yfir þessari óhæfu. Að
halda uppá 100 ára þing-
ræði þjóðarinnar án þess að
hafa forsetann með er van-
virða við embættið og for-
setahjónin. En það var nú
höfðinglegt að bjóða þeim
hjónum með tveggja vikna
fyrirvara að horfa á sjón-
varpsþáttinn í Þjóðmenn-
ingarhúsinu. Það er nú dá-
lítið stór plús í gerðum þess,
sem réð öllu þessu klandri.
Kristjana Vagnsdóttir.
Tapað/fundið
Barnabílstóll
og barnadót
ÁTT þú gráan Toyota
Avensis sem lagt var beint
fyrir framan Faxafen 14 í
hádeginu mánudaginn 2.
feb. sl. og fannst barnabíl-
sessu í aftursætinu á hon-
um? Ef svo er viltu þá vin-
samlegast hafa samband
við Rögnu Margréti í síma
863-3960 eða Hildigunni í
664-4335, en þau leiðu mis-
tök áttu sér stað að ásamt
bílstólnum var heilmiklu
barnadóti komið fyrir í aft-
ursætinu og skottinu á
röngum bíl og er þess sárt
saknað af litlum dreng.
Gullarmband tapaðist
MJÓTT gullarmband tap-
aðist annaðhvort á Leifs-
stöð, á bílastæðinu fyrir
framan eða í flugvél á leið til
Brussel 21. október sl.
Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 557-8407.
Gleraugu töpuðust
MÁNUDAGINN 2. febr-
úar sl. töpuðust gleraugu í
gráu hulstri. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Guðrúnu í
síma 845-1956.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 smánarlegur, 8 sekkir,
9 vondur, 10 greinir, 11
myntin, 13 liggja í sæng,
15 brúnar, 18 spilið, 21
skynsemi, 22 kyrrsævi,
23 loftgatið, 24 gætnar.
LÓÐRÉTT
2 ósar, 3 ellihrumleikinn,
4 í vafa, 5 fuglinn, 6
stutta leið, 7 baun, 12
ríkidæmi, 14 ólm, 15 elds,
16 bölva, 17 sáldur, 18
var skylt, 19 skjóða, 20
nálægð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 skálm, 4 þefar, 7 grunn, 8 rellu, 9 nam, 11
auða, 13 anga, 14 gæran, 15 senn, 17 nota, 20 æki, 22
sýlar, 23 lúðan, 24 augun, 25 tærar.
Lóðrétt: 1 segja, 2 áburð, 3 menn, 4 þarm, 5 fælin, 6
rausa, 10 afrek, 12 agn, 13 ann, 15 sýsla, 16 nýleg, 18
orður, 19 annar, 20 æran, 21 illt.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16