Morgunblaðið - 07.02.2004, Qupperneq 71
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2004 71
Í reglum danska íþrótta- og ólymp-
íusambandsins, sem nýverið voru
samþykktar, segir að þeir sem hafa
fallið á lyfjaprófi fái ekki að taka
þátt í Ólympíuleikum sem hluti af
keppnisliði Dana. Eiga þessar regl-
ur jafnt við íþróttamenn sem þjálf-
ara þeirra. Það gæti því farið svo að
Vésteini Hafsteinssyni, fyrrverandi
landsliðsþjálfara Íslands í frjálsum,
yrði meinað að fara með Joachim B.
Olsen til Aþenu í sumar. Olsen
keppir þar í kúluvarpi og er Vé-
steinn landsliðsþjálfari Dana í kast-
greinum. Samkvæmt frétt á vef
danska ríkisútvarpsins ætlar Vé-
steinn að sækja um undanþágu frá
þessum reglum en hann féll á lyfja-
prófi árið 1984 á ÓL í Los Angeles,
þar sem hann keppti í kringlukasti.
Fær Vésteinn ekki að fara
á ÓL í Aþenu?
DANSKA úrvalsdeildarliðið OB
ætlar ekki að gera Eggerti Stefáns-
syni varnarmanninum sterka úr liði
Fram tilboð en Eggert er kominn
heim frá Danmörku þar sem hann
var til reynslu hjá OB í nokkra
daga. OB taldi sig ekki geta haft
not fyrir Íslendinginn þar sem fé-
lagið gerði á dögunum samning við
hollenskan miðvörð.
Eggert verður því með Fröm-
urum í sumar en nokkur erlend fé-
lög hafa á undanförnum mánuðum
haft augastað á þessum 24 ára
gamla varnarmanni og hann var til
að mynda til reynslu hjá ensku lið-
unum Stoke, Ipswich og Barnsley á
síðasta ári.
Fyrstu tíu mínúturnar gekkhvorki né rak hjá Fram. Vörn-
in náði ekki að stilla sig af og
sóknarleikurinn var
í molum en þau
skot sem komust í
gegnum vörn ÍR
tók Ólafur H. Gísla-
son með tilþrifum. Framarar
bættu það upp með því að taka
vörnina fastari tökum og þegar
Héðinn Gilsson tók til við þrumu-
skotin dugði það að halda Fram á
floti.
Í upphafi síðari hálfleiks var
stórskyttan Einar Hólmgeirsson,
sem hafði skorað með hverju
þrumuskotinu á fætur öðru, tekinn
úr umferð. Við það riðlast sókn-
arleikur ÍR, sem kom Fram á
bragðið og eftir 11 mörk úr 14
sóknum munaði aðeins einu marki,
22:23, og 15 mínútur eftir. „Það
kom okkur ekki á óvart, við ætl-
uðum að spila frjálst og agað all-
ann leikinn, ekki endilega bundnir
við leikkerfin okkar,“ sagði Júlíus
Jónasson, þjálfari og leikmaður
ÍR, um það. Fram að því hafði
markvörður ÍR aðeins varið tvisv-
ar eftir hlé en hrökk í gang með
því að verja vítakast. Það vakti
líka félaga hans af værum blundi
og heimamenn áttu ekkert svar við
því.
„Við byrjuðum mjög illa og spil-
uðum illa í heildina en það vantaði
herslumuninn um miðjan síðari
hálfleik að við kæmust inn í leik-
inn,“ sagði Heimir Ríkarðsson,
þjálfari Fram, eftir leikinn. „Við
fengum á okkur alltof mikið af
ódýrum mörkum þegar við áttum
möguleika á að vinna upp forskotið
og leikmenn mínir gerðu sig seka
um alltof mörg mistök, hvort sem
var í vörn eða sókn. ÍR-ingar hirtu
hvern einasta bolta sem datt dauð-
ur niður því við einfaldlega fórn-
uðum okkur ekki í að taka þá.
Það má því segja að liðið sem
vildi frekar sigur hafi fengið hann.
Menn verða annaðhvort að mæta
tilbúnir til leiks eða sleppa því al-
veg. Það er staðreynd að menn
voru ekki tilbúnir núna, værukær-
ir með óyfirveguð skot og varn-
arleik út úr kortinu. Til að komast
inn í leikinn er ekki nóg að skora,
það verður líka að varna því að
hinir skori og við fáum á okkur
alltof mörg mörk í ekki hraðari
leik en þetta svo segja má að varn-
arleikurinn hafi verið skelfilegur í
dag.“ Egidijus Petkevicius, mark-
vörður Fram, stóð rækilega fyrir
sínu, sérstaklega þegar hann fór
að fá hjálp frá vörn sinni og Héð-
inn átti góða spretti en aðrir voru
nokkuð frá sínu besta.
Öllu léttara var yfir Ólafi H.
Gíslasyni, markverði ÍR, sem fór á
kostum til að byrja með og átti
mestan þátt í að ÍR náði góðri for-
ystu þegar hann varði 15 skot fyrir
hlé, flest erfið og tvö vítaskot. „Við
byrjum stórkostlega sem er fyrir
öllu og ég átti ágætan leik. Við
komum ákveðnir til leiks og sýnd-
um það strax með því að ná ágætis
forskoti og náðum síðan að halda
haus þótt við höfum aldrei náð að
hrista Framara alveg af okkur því
þeir neita alveg að gefast upp, en
það vissum við líka fyrir. Það
lærðum við í bikarkeppninni og
það kom aldrei til greina að tapa
aftur fyrir þeim,“ sagði markvörð-
urinn en eftir hlé varði hann tvö
skot í tæpar 20 mínútur. „Þá fór
þreytan að segja til sín. Við skor-
uðum 32 mörk í leiknum og hlup-
um allan tímann svo að við urðum
bara þreyttir eins og annað fólk.
Við köstuðum mæðinni um stund
en fórum síðan aftur í gang. Það
var aðeins farið að fara um mann
með eitt mark í forskot og farið að
líkjast bikarleiknum um of en við
höfðum þetta af.“ Sem fyrr segir
var Ólafur góður og Einar óstöðv-
andi lengi vel, eitthvað dró úr
kjarkinum þegar vörn Fram hafði
látið hann vita af sér. Fannar Þor-
björnsson var einnig sterkur fram-
an af og Bjarni Fritzson lét ljós
sitt skína í lokin, þegar þurfti að
leysa málin.
KRISTÍN Rós Hákonardóttir
setti heimsmet í 200 m bak-
sundi í sínum fötlunarflokki,
S7, á Reykjavíkurmeist-
aramótinu í sundi um sl. helgi.
Kristín Rós, sem keppir fyrir
Fjölni, synti á 3.04,59 mín. og
bætti heimsmet sitt verulega.
Gamla metið var 3.06,15 mín.,
sem hún setti á Bikarmeist-
aramótinu 2002. Kristín Rós
er byrjuð að búa sig undir ól-
ympíumót fatlaðra sem verður
í Aþenu í haust.
Kristín
Rós setti
heimsmet
Eggert fær
ekki tilboð
frá OB
SIGFÚS Sigurðsson skoraði eitt
mark fyrir Magdeburg sem lagði
Hamborg í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöld, 32:27. Læri-
sveinar Alfreðs Gíslasonar eru nú í
öðru sæti deildarinnar með 31 stig að
loknum 19 umferðum en Flensborg
er í efsta sæti með 34 stig.
LIÐ Guðmundar Hrafnkelssonar,
Kronau-Östringen tapaði á heimvelli
gegn Minden, 22:28, en liðin áttust
við í gærkvöld. Kronau-Östringen er
í næstneðsta sæti með 9 stig en
Minden er í tólfta sæti með 14 stig.
HEIÐAR Helguson leikur sinn síð-
asta leik fyrir Watford í dag áður en
hann tekur út þriggja leikja bann
vegna rauða spjaldsins sem hann
fékk í leiknum við WBA um síðustu
helgi. Watford mætir Sunderland á
heimavelli og verður Heiðar í
fremstu víglínu. Hann byrjar svo að
afplána bannið um næstu helgi og
missir af leikjunum á móti Preston,
Walsall og Wimbledon.
WATFORD fór þess á leit við Phil
Crossley, dómara leiksins, að fella
niður rauða spjaldið þar sem myndir
þóttu sanna að Heiðar hefði ekki gef-
ið mótherja sínum olnbogaskot.
Crossley stóð hins vegar fast á sínu
og neitaði að draga spjaldið til baka.
NICOLAS Anelka, framherji Man-
chester City, vill spila með franska
landsliðinu á nýjan leik. Anelka lenti
upp á kant við Jacques Santini, þjálf-
ara franska landsliðsins, í fyrra og
sagðist ekki ætla að spila fyrir þjóð
sína aftur. Anelka segir í viðtali við
franska íþróttablaðið L’Equipe að
hann vilji snúa til baka og freista
þess að vinna sér sæti í liðinu sem
keppir á Evrópumótinu í sumar.
NBA-meistararnir í Los Angles
Lakers máttu þola háðuglega útreið
gegn Philadelphia 76ers í fyrrinótt.
Meistararnir steinlágu, 96:73, þar
sem Allen Iverson fór á kostum í liði
Philadelphia og skoraði 39 stig þrátt
fyrir að hann væri hvíldur megnið af
fjórða leikhlutanum.
SHAQUILLE O’Neal skoraði að-
eins 17 stig og var stigahæstur í liði
Lakers en honum brást illilega boga-
listin af vítalínunni. Shaq tók 15 víta-
skot í leiknum og rötuðu aðeins þrjú
þeirra ofan í körfuna. Lakers lék án
tveggja sterkra leikmanna en bæði
Kobe Bryant og Karl Malone voru
fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
BJARKI Már Sigvaldason úr HK
og Heiðar Geir Júlíusson úr Fram,
16 ára drengjalandsliðsmenn í knatt-
spyrnu, fara til æfinga hjá norska úr-
valsdeildarliðinu Brann síðar í þess-
um mánuði. Þeir æfðu einnig með
félaginu fyrr í vetur og var í fram-
haldi af því boðið þangað aftur.
MIKILL áhugi er í Þrándheimi í
Noregi á knattspyrnuliði bæjarins,
Rosenborg, en nú þegar hafa 8000
ársmiðar verið seldir á leiki liðsins.
FÓLK
Morgunblaðið/Golli
Hafsteinn Ingason og Jón Björgvin Pétursson, varnarmenn úr liði Fram, reyna að stöðva ÍR-inginn
Hannes Jón Jónsson í Safamýrinni í gærkvöld. Hannes Jón hafði betur í rimmunni að þessu sinni.
ÍR þreyði
þorrann
ÖFLUG byrjun Breiðhyltinga lagði grunninn að 32:27 sigri á Fram í
Safamýrinni í gærkvöldi því að heimamenn þurftu að gefa allt sitt til
að jafna leikinn, loks er þeir tóku við sér, en það dugði ekki til. ÍR-
ingar þurftu bara að hugsa um þegar Fram sló þá út úr bikarkeppn-
inni til að hrökkva í gang á ný.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Breiðablik
sýknað af
kröfu Þórs
Í GÆR var tekið fyrir mál
Þórs frá Þorlákshöfn gegn
Breiðabliki vegna kæru Þórs-
ara á hendur Blikum. Töldu
þeir að Kyle Williams, leik-
maður Breiðabliks, hefði ver-
ið ólöglegur í leiknum þar
sem hann var ekki með at-
vinnu- og dvalarleyfi hér á
landi. Þórsarar fóru fram á
að úrslit í leik Þórs og
Breiðabliks, sem fram fór í
Intersport-deildinni 18. jan-
úar sl., yrðu gerð ógild og
Þór dæmdur sigur. Á þetta
féllst dómstóll KKÍ ekki og
sýknaði Breiðablik af kröfu
Þórs Þ. Frá þessu er greint á
heimasíðu KKÍ.
Vésteinn Hafsteinsson
Morgunblaðið/Ásdís