Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær móðir mín, amma og langamma, GUNNÞÓRUNN HELGA JÓNSDÓTTIR, elli- og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, áður Akralandi 3, Reykjavík, lést föstudaginn 19 mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þorbjörg G. Aradóttir, Helga Sigurðardóttir, Chris Mayjo, Anna Dóra Steinþórsdóttir, Matthías Valdimarsson, Ari Freyr Steinþórsson, Oddný Teitsdóttir, Þröstur I. Steinþórsson, Khadija Yahyaoul og barnabarnabörn. Elskulegur móðurbróðir okkar, ÞORSTEINN JÓHANNSSON, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður til heimilis á Kárastíg 5, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 23. mars, verður jarð- sunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 2. apríl kl. 15.00. Einar Halldórsson, Guðfinna Halldórsdóttir, Jóhann Halldórsson. Okkar kæra móðir, ÁSDÍS KJARTANSDÓTTIR, Bugðustöðum, Hörðudal, lést föstudaginn 26. mars. Erla Guðrún Kristjánsdóttir, Gunnar B. Kristjánsson, Kristín Inga Kristjánsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR, Ennisbraut 8, Ólafsvík, lést á Landspítalanum Fossvogi að morgni sunnudagsins 28. mars. Kristín Lárusdóttir, Snæbjörn Aðalsteinsson, Þórheiður Lárusdóttir, Kurt Hilbrecht, Þorsteinn Reynir Hauksson, Kristín Bjargmundsdóttir, Guðbjörn Smári Hauksson, Rut Hauksdóttir, Peter Lund, Hilmar Þór Hauksson, Sigurbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Framnesvegi 7, lést sunnudaginn 28. mars. Þóra Stefánsdóttir, Valdimar Stefánsson, Bryndís Stefánsdóttir. ✝ Guðrún Sigur-geirsdóttir fædd- ist í Reykjavík 23.11. 1924. Hún andaðist á gjörgæsludeild Land- spítala við Hring- braut 21.3. síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sigur- geir Finnur Magnús- son, f. 26.5. 1896, d. 30.5. 1987 og Lín- björg Árnadóttir, f. 16.6. 1896, d. 16.10. 1966. Þau eignuðust sjö börn og var Guð- rún næstelst þeirra. Systkini hennar eru: Lárus, f. 22.10. 1923, Steinunn, f. 12.11. 1925, d. 27.8. 2002, Hafsteinn, f. 6.2. 1927, d. 20.5. 1927, Hallgerð- ur, f. 3.4. 1928, Áslaug, f. 26.4. 1929, d. 5.5. 1987 og Ragna, f. 22.6. 1930, d. 19.9. 1937. Guðrún giftist 7.4. 1955 Stefáni Ólafi Bogasyni lækni, f. 2.9. 1927, d. 16.10. 2001. Börn Stefáns og Guðrúnar eru: 1) Sigurður Bogi læknir, f. 10.8. 1956. 2) Ragna Haf- dís, húsmóðir og bókasafnsfræðingur, f. 9.12. 1961. Sam- býlismaður hennar er Jón Logi Sigur- björnsson bygginga- verkfræðingur, f. 19.5. 1956 og eiga þau tvö börn, Guð- rúnu Völu, f. 11.11. 1986 og Sigurbjörn Boga, f. 27.1. 1990. Guðrún starfaði á yngri árum við ýmis störf, einkum sauma og ræstingar. Hún sinnti ýmsum störfum fyrir verkakvennafélagið Framsókn. Lengst af var hún heimavinnandi húsmóðir. Útför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Enn er höggvið skarð í systk- inahópinn frá Fálkagötu 30, Guðrún systir mín lést skyndilega 21. mars síðastliðinn. Þrátt fyrir löng og erf- ið veikindi hennar um árabil grun- aði mig ekki að svo stutt væri í endalokin. En ætli svo sé ekki al- gengt, við viljum öll halda sem lengst í þá sem okkur þykir vænt um. Við vorum sjö systkinin og var Guðrún næstelst. Þetta var sam- heldinn hópur sem stóð þétt saman í blíðu og stríðu. Þar sem Guðrún var elst okkar systra stóð hún oft- ast í framvarðasveit ásamt Stein- unni systur og lágu þær þá ekki á liði sínu ef á þurfti að halda. Bón- betri manneskju en Guðrúnu hef ég ekki kynnst, að hjálpa og veita stuðning hvenær sem á þurfti að halda var sjálfsagt. Stend ég þar eins og fleiri í mikilli þakkarskuld. Guðrún var mikil gæfumanneskja í lífi sínu, eignaðist yndislegan eig- inmann, Stefán Bogason lækni og tvö börn, Sigurð Boga geðlækni og Rögnu Hafdísi bókasafnsfræðing, maki Jón Logi Sigurbjörnsson. Þau voru líf hennar og yndi, ekki hve síst eftir andlát Stefáns árið 2001 og áttu barnabörnin tvö Guðrún Vala og Sigurbjörn Bogi ansi stóran þátt. Eftir að heilsu Guðrúnar fór al- varlega að hraka og hún orðin ein, tóku börnin hennar málið í sínar hendur og gerðu henni kleift að halda sjálfstæði sínu og búa á eigin heimili til dauðadags. Var það gert af miklum kærleik og til mikillar fyrirmyndar. Þökk sé þeim. Systkinahópurinn frá Fálkagötu 30 er nú orðin ansi fámennur, að- eins tvö eftir. En þetta er gangur lífsins. Guðrúnu systur minni þakka ég samfylgdina í öll þessi ár og óska henni velfarnaðar á nýjum vegum á lífsins landi. Sigurði Boga, Rögnu og Jóni Loga og börnum þeirra votta ég dýpstu samúð mína og hluttekningu. Þeir sem átt hafa mikið, missa mest. Þín systir, Hallgerður. Guðrún svilkona mín er látin, tæplega áttræð að aldri. Þegar fólk hefur átt samleið með tengdum í meira en fimmtíu ár er margs að minnast. Stundum koma upp í hug- ann margs konar atvik á samveru- stundum og vissulega gerist það við andlát Guðrúnar. En þó verður ann- að minnisstæðara á þessari stundu, manneskjan sjálf, sú manneskja sem Guðrún var, eins og hún kom mér fyrir sjónir. Guðrún var sterkur persónuleiki, dul og alvörugefin, með ákveðnar lífsskoðanir. Ég hygg að lífsskoð- anir hennar hafi náð fullum þroska strax á unglingsárum, en hún reyndi fljótt að flest er fallvalt. Á unglingsárunum og fram á fullorð- insár kom það í hennar hlut að vera móður sinni og systkinum stoð og stytta og varð sjálf að mæta afgangi um sinn. Guðrún ólst upp á Grímsstaða- holtinu í heimskreppunni miklu. Grímsstaðaholtið hefur ekki verið þekkt fyrir að þar væri auður í garði. Hins vegar var samfélagið gott. Fyrir löngu fékk ég þá tilfinn- ingu að þar hafi samstaða verið meiri en almennt gerðist, ekki síst þegar mikið reyndi á. Í þessu and- rúmslofti ólst Guðrún upp og hún tók tryggð við þetta samfélag. Þar átti hún heima og lengi vel festi hún ekki annars staðar yndi. Tvisvar sinnum á fyrstu starfsárum Stefáns, fór hann til starfa úti á landi. En það stóð stutt. Reykjalundur í Mos- fellssveit var jafnvel í of mikilli fjar- lægð frá æskuslóðum hennar. Lengi vel bjuggu þau því í næsta nágrenni við Grímsstaðaholtið, á Tómasar- haganum og síðar við Kaplaskjóls- veg. Síðan bjuggu þau svo í Aust- urbænum, Sporðagrunni 19, en það var ekki fyrr en samfélagið á Grímsstaðaholtinu hafði dreifst um víða vegu. Hér hefur verið sagt dæmi um staðfestu Guðrúnar og tryggð. En þetta er aðeins eitt af mörgu sem hægt er að segja því til sönnunar. Umhyggju hennar fyrir sínum nán- ustu var viðbrugðið. Fyrr í þessu máli kom fram að hún hefði verið dul og alvörugefin. Þess vegna var hún ekki fljót að kynnast fólki, en kynnin entust því betur enda var gott að vera samvistum við hana. Trúarskoðunum sínum flíkaði hún ekki en lífsskoðanir hennar byggð- ust á siðalögmálum trúar. Að svo miklu leyti sem ég skynjaði þær má segja að þær hafi byggst á „guði í sjálfum þér“. Byggst á því að rækta hið góða með sjálfri sér og hafa samúð með þeim sjónarmiðum og athöfnum sem fremur máttu verða til þess að bæta samfélag mann- anna. Hún tók vægt á brestum manna. Hins vegar lét hún ekki kyrrt liggja það sem henni þótti ranglega gert af ráðnum hug. Guðrún fór sem unglingur að vinna utan heimilis. Hún vann þá vinnu sem var að hafa hverju sinni, en seinast vann hún skrifstofustörf. Hún giftist Stefáni Ólafi Bogasyni lækni þrítug að aldri og eftir það starfaði hún ekki utan heimilis. Hún helgaði sig heimilinu og það bar þess merki í myndarskap og hlýju. Hún var ekki fullkomlega heilsu- hraust og háði það henni því meira sem árin urðu fleiri. Síðasti áratug- urinn var henni erfiður. Líkamlega þrekið bilaði og smátt og smátt fjar- lægðist hún. Hún varð meiri áhorf- andi en þátttakandi. Veislurnar hennar Guðrúnar hurfu. Jólaboðin fóru til næstu kynslóðar. Það er gangur lífsins. En hún vildi halda áfram að halda heimili og eftir að GUÐRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR MINNINGARGREINUM í Morgunblaðinu hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Til að öllu efni Morgunblaðsins verði haganlega fyrir komið reynist nauðsynlegt að setja minningargreinum, sem og öðru efni, ákveðin lengdarmörk. Því hefur verið ákveðið að fyrir utan aðalgrein verði aðrar greinar 1.500 slög (með bilum), sem eru um 50 línur í blaðinu (17 dálk- sentimetrar) og í kringum 300 orð. Hinsta kveðja – nýtt form Jafnhliða þessu verður tekin upp nýjung sem kölluð er HINSTA KVEÐJA þar sem hægt verður að senda örstutta kveðju (5–15 línur), þegar það á við. Þetta form á við þegar votta á virðingu án þess þó að það sé gert með langri grein (sjá sýn- ishorn). Lengd minningargreina Hæfileg lengd. Til þess að sjá lengd minningargreinar í t.d. Word-ritvinnslu, þá er valið Tools-valblaðið og síðan Word Count. Þá opnast þessi upplýs- ingagluggi og sýnir orðafjöldann (Words); slagafjölda án orðabila (Characters (no spaces)); slaga- fjölda með orðabilum (Characters (with spaces)): 1.500. g fa g n ar n k, a ð- m g m n- r ir ð r- i. m r- n- í ar l- u í ð ð- gg g Sú hugsun að svo kynni að fara var manni þó oftast fjarri, svo mikill var lífsþróttur hennar, hugurinn vökull og atorkan óbilandi. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj. lkasdjf laksjf laks jdf. Laksdjælaskdjfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs kd. Jón Jónsson og Jónína Jónsdóttir Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh dfgh dfgh dfh fdgh. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- HINSTA KVEÐJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.