Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 29
Pólitísk örlög Jean-PierreRaffarins, forsætisráð-herra Frakklands, hénguá bláþræði í gær, daginn
eftir að borgaralegu flokkarnir sem
að ríkisstjórn hans standa guldu af-
hroð í seinni umferð héraðsstjórna-
kosninga í landinu. Jacques Chirac
forseti íhugaði að grípa til víðtækrar
uppstokkunar á stjórninni til að
bregðast við hinum harkalega dómi
kjósenda yfir henni. Vangaveltur
blossuðu upp um hvort Chirac
myndi gera Raffarin að blóraböggli
fyrir kosningaófarirnar.
Talsmenn beggja embætta, for-
setans og forsætisráðherrans, héldu
sig til hlés í gær. Þó fréttist að Raff-
arin hefði verið ekið til lokaðs fundar
með Chirac. Að honum loknum lét
einn talsmanna forsetans AFP-
fréttastofuna hafa eftir sér að forset-
inn væri „að vinna með forsætisráð-
herranum að ákvörðunum sem hann
mun verða að taka á næstu dögum“.
Stærsti stjórnarflokkurinn, Lýð-
fylkingin (UMP) sem er flokkur
Chiracs, og samstarfsflokkurinn
Lýðræðisfylkingin (UDF), lutu í
lægra haldi fyrir Sósíalistaflokknum
í 22 af 26 héruðum Frakklands.
UMP og UDF fengu samtals á
landsvísu aðeins um 37% atkvæða
en sósíalistar, í bandalagi við græn-
ingja og kommúnista, náðu í heildina
rétt yfir 50% atkvæða. Þjóðfylking-
in, flokkur Jean-Marie Le Pens sem
er yzt á hægri vængnum, fékk
12,55% á landsvísu, en hún náði í
aðra umferð kosninganna í 17 af hér-
uðunum 26. Það var eingöngu í Els-
ass sem hægrimenn tryggðu sér
áframhaldandi meirihluta á héraðs-
þinginu.
Sextán ár eru síðan vinstrimenn
náðu síðast hreinum meirihluta at-
kvæða í kosningum í Frakklandi, en
það var þegar Francois Mitterrand,
sem kom úr röðum sósíalista, hlaut
endurkjör með rúm 54% atkvæða, á
móti Chirac sem var þá frambjóð-
andi hægriflokkanna.
François Hollande, leiðtogi sósíal-
ista, sagði úrslitin mesta kosninga-
sigur franskra vinstrimanna síðan í
forsetakosningunum 1981, þegar
Mitterrand náði fyrst kjöri.
Dregur úr hraða kerfisumbóta
Stjórnmálaskýrendur voru í gær
ekki í neinum vafa um að uppstokk-
un stjórnarinnar væri nú í vændum
og að nokkrir háttsettir hausar
myndu fá að fjúka. Aðeins ætti eftir
að koma í ljós hversu víðtækar
mannabreytingarnar yrðu á ráð-
herraliðinu.
Sigur sósíalista og bandamanna
þeirra á vinstri vængnum einangr-
aði hinn íhaldssama forseta og liðs-
menn hans sem svo alvarlega er far-
ið að fjara undan í augum kjósenda,
nú þegar helmingur er liðinn af
fimm ára kjörtímabili hans.
Úrslit héraðsstjórnakosninganna
voru sem jarðskjálfti í hinu pólitíska
landslagi Frakklands og eru túlkuð
sem ótvíræð skilaboð kjósenda til
ríkisstjórnarinnar að breyta um
stefnu.
Stjórnmálaskýrendur telja enda
að í kjölfar ósigursins á sunnudag
muni franska stjórnin sjá sig knúna
til að hægja á kerfisumbótunum sem
hún hefur verið að reyna að koma í
framkvæmd við misjafnar undir-
tektir almennings.
En talsmenn stjórnarinnar sögðu
þó í gær að umbæturnar yrðu að
halda áfram. „Að stöðva umbæturn-
ar væri stórskaðlegt fyrir land vort,“
sagði aðaltalsmaður stjórnarinnar,
Jean-Francois Cope.
Enda er líkum að því leitt að
Chirac muni halda Raffarin á sínum
stað enn um sinn, unz hann hefur
komið áformuðum umbótum á heil-
brigðistryggingakerfinu í gegn.
Þessi áform hafa nú þegar kallað á
reiðilestur úr herbúðum vinstri-
manna. Þegar þau verða komin til
framkvæmda gæti Chirac þvegið
hendur sínar af hinum óvinsælu að-
gerðum með því að skipta um mann í
brúnni.
Raffarin, sem Chirac sótti fyrir
tveimur árum af hliðarlínunni í for-
sætisráðherrastólinn til þess einmitt
að taka til hendinni og fylgja nauð-
synlegum kerfisumbótum úr hlaði,
lét engan bilbug á sér finna, að
minnsta kosti ekki út á við.
„Umbæturnar verða að halda
áfram einfaldlega vegna þess að þær
eru nauðsynlegar,“ sagði Raffarin á
sunnudag. Hann varði gerðir stjórn-
ar sinnar, sem hefur yfirgnæfandi
meirihluta á þjóðþinginu, en sagðist
hafa skilning á „áhyggjum og óþol-
inmæði“ sem kjósendur virust vera
að tjá.
Sóknarfæri fyrir sósíalista
Fyrir Sósíalistaflokkinn jöfnuðust
úrslitin nú á við upprisu úr ösku-
stónni eftir niðurlægjandi ósigra
bæði í forseta- og þjóðþingskosning-
um árið 2002. Hin sterka staða
flokksins í héraðsstjórnmálunum
skapar honum góðan grunn til sókn-
ar fyrir næstu forsetakosningar árið
2007.
Ósigur hægriflokkanna í héraðsstjórnarkosningum í Frakklandi
Víðtækrar
uppstokk-
unar vænzt
AP
Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, og Jacques Chirac
forseti á tröppum Elysée-hallar í janúar, er betur horfði fyrir stjórnina.
auar@mbl.is
, - & . /
+
+
345-678 9 :-5;(5-77- <9
* B * -*
+ ' + *) '
0 . - / C
D!'C%@ E!F%G
#! H * B
* )@ +I
2 ! % J!
E !D E
( )
J*!
E *@ %
!*
( !*
DC
(
C E!*
J !C 2! !
%K
D!!
E D)
J! L
D) -*
*
%
'
Fréttaskýring | Búizt er við því að Chirac
forseti stokki upp í ríkisstjórninni eftir
kosningaófarir stjórnarflokkanna á sunnu-
dag en bíði hugsanlega með að skipta um
forsætisráðherra unz umdeildar kerfis-
umbætur eru komnar til framkvæmda.
Pólitísk staða Jacques ChiracsFrakklandsforseta hefurveikzt eftir hinn mikla ósig-
ur borgaraflokkanna í héraðs-
þingkosningum á sunnudaginn, en
að fá nýjan mann í stað Jean-Pierre
Raffarins í forsætisráðherraemb-
ættið gæti reynzt pólitískt hættu-
spil. Þetta álit kemur fram í for-
ystugreinum helztu dagblaða
Frakklands í gær.
„Endalok Chirac-ismans,“ skrif-
ar hið vinstrihneigða Liberation yf-
ir leiðara sinn um málið. „Keisar-
inn er klæðlaus: Jacques Chirac
hefur beðið mikinn ósigur, án mild-
andi kringumstæðna. Kjósendur
hafa, eftir 30 ár, loks áttað sig á öll-
um tilburðum hans,“ segir í leið-
aranum.
Hið íhaldssama Le Figaro segir í
sínum leiðara um kosningasigur
sósíalista og bandamanna þeirra:
„Niðurstöður fyrri umferðar [kosn-
inganna sem fram fóru fyrir hálf-
um mánuði] mögnuðust upp; bleik
bylgja hefur dembzt yfir landið.“
Stærsti stjórnarflokkurinn, Lýð-
fylkingin (UMP) sem er flokkur
Chiracs, og samstarfsflokkurinn
Lýðræðisfylkingin (UDF) guldu af-
hroð í flestum héruðum Frakk-
lands í kosningunum, en Sósíalista-
flokkurinn verður næsta kjörtíma-
bilið við völd í 20 af 22 héraðsþing-
um landsins.
Kjósendur á hægri vængnum
voru klofnir og hlaut Þjóðfylking
Jean-Marie Le Pens, sem er yzt til
hægri, 12,5% atkvæða í heild á
landsvísu, en flokkurinn komst í
aðra umferð kosninganna í 17 af
héruðunum 22.
Einmenningskjördæmakerfið
sem við lýði er í Frakklandi veitir
jafnan stærsta flokknum langflesta
kjörnu fulltrúana en útilokar smá-
flokka.
„Þótt meirihluti þjóðarinnar
kjósi enn til hægri hafa UMP og
UDF tapað á öllum vígstöðvum,“
segir Le Figaro.
En Liberation varar við því að
sigur sósíalista sé frekar að rekja
til óánægjukjörs gegn ríkisstjórn-
inni en nokkurra hugmynda-
fræðilegra tengsla kjósenda við
Sósíalistaflokkinn; stefna hans
væri enn langt frá því að vera full-
mótuð.
Vangaveltur um hvað yrði um
Raffarin forsætisráðherra voru
áberandi í blöðum gærdagsins.
Parísarblaðið Le Parisien skrifaði
með stríðsfréttaletri „Hvað gerir
hann?“ á forsíðu, með mynd af
Chirac í þungum þönkum.
Fyrir kosningarnar var talið lík-
legt að stokkað yrði fljótlega upp í
stjórninni, er kjörtímabil þjóð-
þingsins er hálfnað, og Raffarin
héldi áfram sem forsætisráðherra
að minnsta kosti fram á næsta
haust. Stærð kosningaósigursins
þykir hins vegar hafa grafið mjög
undan honum.
En Le Figaro bendir á að Chirac
sé enn þeirrar hyggju að bezt væri
að Raffarin yrði áfram merkisberi
ríkisstjórnarinnar bæði í Evrópu-
þingkosningum í júní og við að
hrinda í framkvæmd umdeildum
umbótum á velferðarkerfinu,
vinnulöggjöfinni og á orkufyrir-
tækjum í ríkiseigu.
Sarkozy næstur
Forsetinn er líka hikandi við að
ýta Raffarin frá vegna þess að
maðurinn sem líklegastur þykir til
að koma í hans stað er innanríkis-
ráðherrann Nicolas Sarkozy, en
hann er jafnframt keppinautur
Chiracs um forystuna fyrir miðju-
og hægrivængnum, að sögn Le Fig-
aro.
„Með Sarkozy [í broddi fylking-
ar] myndu hægriflokkarnir halda
völdum, en fyrir Jacques Chirac
myndu vandræðin byrja fyrir al-
vöru,“ segir í Figaro-leiðaranum.
Liberation tekur enn dýpra í ár-
inni og fullyrðir að með hinn vin-
sæla Sarkozy í forsætisráðherra-
stólnum myndi „Chirac-tímabilinu
ljúka á morgun“.
Chirac í klípu
Frönsk blöð segja það myndu reyn-
ast pólitískt hættuspil fyrir forset-
ann að skipta um forsætisráðherra
París. AFP.
efur m.a.
annsókn-
fiski við
dum
el á
ðherra
að ósk
a í sjávar-
síðan eng-
ni en þau
ulltrúa,
ar. Auk
ðar á sel
nda vegna
ón með
talningu
irra. Þá
ulega
skum auk
varlíf-
aður
lagi að
é í útrým-
það litlar
verandi
marga
aldið því
ð og að
ut. „Ég á
m] fækki
ðarnar
rið hefur
segir
sýna að
kar á
ngað til
marka
in mark-
rsu stór
ú séu
.
Erlingur bendir á að útbreiðsla
útsels sé orðin vandamál að mati
margra í Kanada og sendinefndir
þaðan komið hingað til að kynna
sér nýtingu sels hér á landi. „Kan-
adamenn ætla einmitt að fara í það
að fækka útselnum út af ormi og
fiskáti, eins og við erum búin að
vera að gera,“ segir Erlingur.
Þrjátíu veiddu sel á síðasta ári
Útbreiðsla útsels er takmörkuð
við Norður-Atlantshafið og Eystra-
salt. Við Ísland er útselur tíðastur
við vestanvert, norðvestanvert og
suðaustanvert landið. Mestu kæpi-
stöðvar eru í Hvalseyjum við Mýrar,
í Breiðafjarðareyjum, við norðan-
verðar Strandir, Skaga og á Skeið-
arársandi.
Hringormanefnd hefur frá árinu
1982 greitt til selveiða við Ísland.
Fyrstu árin var greitt fyrir alla seli,
en frá 1. mars árið 1990 hefur að-
eins verið greitt fyrir veiðar útsela.
Erlingur segir að bændur sem veiði
sel séu nú um þrjátíu en þeim hefur
fækkað ört undanfarin ár. Hann
segir svonefnda landhelgi lögbýla
gilda þegar kemur að leyfum til
veiða á sel en strangt til tekið megi
hver sem er veiða útsel úti á sjó. Er-
lingur segir líka nokkuð um það að
hringormanefnd greiði fyrir útseli
sem komi grásleppunet.
Á síðasta ári voru greiddar sam-
kvæmt ákvörðun hringormanefnd-
ar 4.000 krónur fyrir fyrsta flokks
skinn af útsel, 3.000 kr. fyrir lakari
skinn og ekkert fyrir ónothæf
skinn. Erlingur segir að nýting á
skinni og kjöti útsels hafi aukist
undanfarin ár.
Morgunblaðið/RAX
a þurfi
selsins
% & ' (
A=5 A=> A?< A?> A<< A<:
5><<
5<<<
8><<
8<<<
><<
<
85
88
8<
?
=
6
9
>
!.
5
6 !
(%(3.
,7%
ega helming frá árinu 1990.
90. Stofninn er ekki í út-
ngs á Hafrannsóknastofnun.