Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ  ARNAR Sigurðsson, fremsti tennisleikari landsins, var í miklum ham með liði sínu, Pacific Tigers, í bandarísku háskólakeppninni um helgina. Arnar vann alla leiki sína, bæði í einliðaleik og tvíliðaleik, í tveimur sigurleikjum Tigers sem unnu Riverside, 7:0, á laugardag og University of San Francisco, 5:2, á sunnudag. Arnar og félagar hafa nú unnið sjö af síðustu átta leikjum sín- um.  KFÍ á Ísafirði hélt lokahóf sitt um sl. helgi og þar var Berglind Ingv- arsdóttir valin besti leikmaðurinn í kvennaliðinu sem lék í 2. deild á Ís- landsmótinu í körfuknattleik. Þór- katla Albertsdóttir fékk viðurkenn- ingu fyrir framfarir en Guðbjörg Einarsdóttir var útnefnd efnilegasti leikmaðurinn. Pétur Már Sigurðs- son fékk viðurkenningu sem besti leikmaður meistaraflokks karla sem bjargaði sér frá falli úr úrvalsdeild. Birgir Björn Pétursson fyrir fram- farir og Sigurður Þorsteinsson þótti efnilegastur. Greint er frá þessu á heimasíðu félagsins.  FORRÁÐAMENN þýska knatt- spyrnuliðsins Dortmund eru afar þreyttir á hegðun framherja liðsins Marcio Amoroso sem er frá Bras- ilíu. Hann fór í aðgerð á hné fyrir þremur mánuðum og hefur dvalið í heimalandi sínu að undanförnu en honum hafði verið gert að mæta á æfingar liðsins á ný 18. mars sl. en hinn 29 ára gamli leikmaður hefur ekki látið sjá sig.  Á SÍÐASTA ári ásakaði leikmað- urinn lækna liðsins um vanrækslu og sagði að þeir hefðu ekki kunn- áttu til þess að greina áverka sem hann átti við að stríða í hné. Hann fór til Brasilíu til þess að hitta sér- fræðinga sem hann taldi betri en þá þýsku og kom Amoroso einum mán- uði og seint til Þýskalands á ný.  VARAMARKVÖRÐUR Arsenal, Stuart Taylor, verður frá keppni út leiktíðina vegna meiðsla á öxl en hinn 23 ára gamli Taylor hefur að- eins verið fjórum sinnum á vara- mannabekk aðalliðsins í vetur og leikið fáa leiki með varaliðinu. Tay- lor fer í aðgerða vegna meiðslanna á næstunni og mun Rami Shaaban leika með varaliðinu og vera til taks á varamannbekknum í leikjum að- alliðsins.  JAMES Milner, leikmaðurinn efnilegi frá Leeds, hefur verið val- inn í 21-árs landslið Englands í knattspyrnu sem mætir Svíum í Gautaborg í kvöld. Milner, sem er 18 ára, er yngsti leikmaðurinn í enska liðinu. Hann er sá yngsti sem hefur skorað mark í ensku úrvals- deildinni en hann var 16 ára og 357 daga þegar hann skoraði fyrir Leeds gegn Sunderland fyrir 15 mánuðum. FÓLK REYKVÍSKIR sundmennunnu stigakeppnina á al- þjóðlegu sundmóti sem fram fór um helgina í Danmörku. Þar kepptu sundmenn frá 38 félögum frá Danmörku, Sví- þjóð, Noregi, Færeyjum auk íslenska sundfólksins. Íslenska sundfólkið fékk 22 gullverðlaun, 8 silfur og 5 brons og setti 16 mótsmet. Tvö Íslandsmet litu dagsins ljós, í 4x50 metra fjórsundi stúlkna, en sveitin synti á 2.06,15 og í 4x50 metra skriðsundi stúlkna þar sem stúlkurnar syntu á 1.51,76. Hjörtur Már Reynisson varð stigahæsti keppandi mótsins með 844 stig, Árni Már Árna- son varð stigahæstur pilta, Auður Sif Jónsdóttir stiga- hæst stúlkna og Sigrún Brá Sverrisdóttir stigahæst telpna. Reykvískir sundmenn stóðu sig vel ÞAÐ var gríðarleg spenna á fyrsta stórmóti ársins hjá atvinnukonum í golfi, Kraft Nabisco meist- aramótinu, en þar börðust Aree Song og Grace Park frá S- Kóreu um sigurinn allt fram á 72. holu en mótinu lauk s.l. sunnudag. Song gerði sér lítið fyrir og fékk örn á 18. braut sem er par 5, þar sem hún setti niður langt pútt og var þá stundina á sama höggfjölda og Park sem átti eftir um 2 metra pútt og gat tryggt sér sigurinn með því að setja kúluna ofan í. Park gerði engin mis- tök og tryggði sér sigur í fyrsta sinn á stórmóti á samtals 11 höggum und- ir pari, en hún fékk um 17 millj. kr. fyrir sigurinn. „Það virtist sem ég væri róleg þegar ég framkvæmdi síðasta púttið en í raun var ég mjög óróleg. En mér tókst að leyna spennunni og gat einbeitt mér að því að koma bolt- anum rétta leið,“ sagði Park en hún er 25 ára gömul en Song er nýliði á mótaröð atvinnukvenna. Það vekur athygli að í síðasta ráshópnum á lokadegi mótsins voru þrjár konur frá S-Kóreu, en Lee Jung-Yeon náði sér ekki á strik á lokadeginum og endaði í 8. sæti. Af fimmtán efstu á mótinu voru fimm keppendur frá S- Kóreu. Song endaði á 10 höggum undir pari og fékk rúmar 10 millj. kr. Michelle Wie, áhugamaður frá Bandaríkunum endaði í fjórða sæti en hún má ekki þiggja verðlaunafé sem áhugamaður. Mikil barátta hjá Song og Park Um 60 keppendur voru mættir tilleiks og var Raj sérstaklega ánægður með það en hann hafði í nógu að snúast sem mótstjóri, þjálfari, foreldri keppanda og keppandi sjálfur. „Það eru margir ungir keppendur farnir að láta að sér kveða og gaman að sjá þá standa sig svona vel. Ég gef samt ekkert eftir og hinir læra á því, það þarf að læra að keppa á móti boltanum en ekki ein- göngu andstæðingnum – það skiptir miklu máli. Ég vona reyndar að þeir sem ég er að þjálfa vinni mig allir fyrr eða síðar, það þýðir bara fram- farir,“ hélt Raj áfram og sagði Andra erfiðan mótherja. „Hann er að keppa í Kaliforníu og ég fylgist með honum á Netinu, hann stendur sig mjög vel,“ bætti Raj við en hann spilar fyrir Víking og Andri fyrir Badminton- og tennisfélag Hafnarfjarðar. Spennan var ekki síðri í úrslitaleik kvennaflokks. Sigurlaug, sem er í Tennisfélagi Kópavogs, lagði í úrslit- um í fyrra Rakel systur Rebekku en þær æfa allar saman. „Við erum góð- ar vinkonur og spilum mikið saman en það þýðir ekkert að fást um. Það venst en það er miklu erfiðara að verja titil því það er meiri pressa,“ sagði Sigurlaug en til marks um bar- áttuna í kvennaflokki tókst henni ekki að sigra á mótinu utanhúss í fyrra. Hún æfir eins mikið og hægt er, fimm sinnum í viku, og er síðan í líkamsræktinni. Í sumar fer hún aft- ur til Þýskalands þar sem hún tekur á sumrin þátt í liðakeppni fyrir þýskt lið. „Ég verð að berjast fyrir sæti mínu í því liði.“ Keppnin í tvíliðaleik karla var einnig spennandi og henni lauk ekki fyrr en klukkan var orðin tvö aðfara- nótt mánudagsins. Þrjú pör mættu til leiks og stóðu Andri Jónsson og Jón Axel Jónsson upp sem sigurvegarar, unnu Frey og Kára Pálssyni 8:2 og síðan Raj Bonifacius og Árna Björn Kristinsson 8:4. Leikur Raj/Árna Björns við Frey/Kára endaði 8:7 (7:1) fyrir Frey og Kára Morgunblaðið/Stefán Sigurlaug Sigurðardóttir og Raj Bonafacius, Íslandsmeistarar í tennis innanhúss 2004. Titilvörn hjá Raj og Sigurlaugu MEÐ mikilli baráttu tókst Raj Bonafacius og Sigurlaugu Sigurð- ardóttur að verja titla sína á Íslandsmeistaramótinu í tennis innan- húss, sem fram fór í Sporthúsinu í Kópavogi um helgina. Sigurlaug hafði 6-1 og 6-0 sigur á Rebekku Pálsdóttur og Raj vann Andra Jónsson 6-2 og 6-3. „Andri hefur unnið mig síðustu ár en ég hef ekki keppt við hann í tvö ár og þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum,“ sagði Raj eftir mótið. Stefán Stefánsson skrifar SIGFRÍÐUR Sigurðardóttir úr KFR og Magnús Magnússon úr KR urðu í gær Íslandsmeistarar í keilu. Sigfríður lagði Elínu Ósk- arsdóttur, KFR, í úrslitum, 435 stig gegn 392 stigum, og í karla- flokki vann Magnús Ásgeir Þ. Þórðarson, ÍR, 430:391. Þau Sig- fríður og Magnús öðlast með þessu rétt til að keppa á Evrópumóti landsmeistara sem fram fer í Tyrklandi í haust. Sigfríður og Magnús, Íslandsmeistarar í keilu. Sigfríður og Magnús meistarar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.