Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 16
ERLENT 16 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ CONDOLEEZZA Rice, þjóðarör- yggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, varði í fyrrakvöld þá ákvörðun sína að gefa ekki vitnisburð fyrir opnum tjöldum fyrir framan þingnefnd sem rannsakar tildrög hryðjuverkaárás- anna á Bandaríkin 11. september 2001. Rice sagðist í viðtali í sjón- varpsþættinum „60 mínútur“ hins vegar ekkert hafa að fela, þær ásak- anir væru rangar að ekki hefði allt það verið gert af hálfu bandarískra stjórnvalda fyrstu mánuði ársins 2001 sem hægt var að gera til að af- stýra hryðjuverkunum. Rice hefur tvívegis komið fyrir þingnefndina, sem rannsakar hryðju- verkin. Þeir fundir hafa hins vegar verið lokaðir almenningi. Hún sagði í „60 mínútum“ í fyrrakvöld að hún vildi mjög gjarnan koma fyrir nefnd- ina en sagði að grundvallarreglan hefði verið sú að starfandi þjóðarör- yggisráðgjafar bæru ekki vitni opin- berlega fyrir þingnefndum. Meðal þeirra sem hafa krafist þess að Rice bæri vitni eru fjölskyldur fólks sem dó 11. september 2001. Af- staða hennar hefur vakið nokkra úlf- úð í Bandaríkjunum og hefur sann- arlega ekki orðið, nema síður sé, til að draga úr þeim titringi sem ummæli Richards Clarkes, fyrrverandi ráð- gjafa Bandaríkjaforseta í hryðju- verkavörnum, hafa valdið. Clarke sakar George W. Bush Bandaríkja- forseta um það í nýrri bók, Against All Enem- ies, að hafa staðið sig „hörmulega“ í barátt- unni gegn hryðjuverka- ógninni. Rice viðurkenndi á sunnudagskvöld að for- setinn hefði beðið Clarke um það daginn eftir árásirnar á New York og Washington að athuga hvort Írakar hefðu haft eitthvað með hryðju- verkin að gera. Hún sagði Bush hins vegar ekki hafa verið að reyna að hafa áhrif á störf Clarke eða fá hann til að segja, að Írak hefði borið ábyrgð á ódæðunum. Clarke segir frá því í bók sinni að Bush hafi virst mjög umhugað um að tengja Saddam Hussein Íraksforseta við hryðjuverkin. „Hér var um ríki að ræða sem við höfðum háð stríð við nokkrum sinn- um, Írakar voru að skjóta á flugvélar okkar á flugbannssvæðinu yfir Írak. Það var fullkomlega eðlilega að spyrja um hugsanlega aðild Íraka,“ sagði Rice í fyrrakvöld. Cheney gagnrýnir Clarke Rice var ekki sú eina úr framlínu- sveit Bush Bandaríkjaforseta sem kom fram í fjölmiðlum á sunnudag en Bush er mikið í mun að draga úr þeim pólitíska skaða, sem staðhæfingar Clarkes kunna að hafa valdið honum. Colin Powell utanríkisráð- herra sagði m.a. að hann hefði sótt fundi þar sem rætt var um hættuna sem stafaði af al-Qaeda þegar í upphafi forseta- tíðar Bush. „Við þurft- um ekkert á Dick Clarke að halda til að segja okk- ur að ástæða væri til að hafa áhyggjur af hryðju- verkaógninni,“ sagði Powell. Dick Cheney varaforseti lét þess hins vegar getið í samtali við tímarit- ið Time að hann teldi Clarke einfald- lega vera að reyna að selja bók sína. „Hann hefur nýtt sér þær aðstæður sem voru uppi í þessari viku til að kynna sjálfan sig og bókina. Ég þekki náungann ekki svo vel. Ég hef átt nokkur samskipti við hann í gegnum tíðina, en svo ég dæmi bara út frá því sem ég séð, þá er hann ekki hátt skrifaður hjá mér,“ sagði Cheney. Clarke sagði fyrir sitt leyti að um- mæli varaforsetans væru liður í per- sónulegum árásum Hvíta hússins á hann. Markmið þeirra væri að beina athyglinni frá þeirri alvarlegu gagn- rýni sem hann hefði sett fram. Ver ákvörðun um að bera ekki vitni Condoleezza Rice segir allt hafa verið gert til að koma í veg fyrir hryðjuverkin mannskæðu 11. september 2001 Washington. AP, AFP. Condoleezza Rice KJÓSANDI í Batumi í Adsjaría-héraði í suðvesturhluta Georgíu hlustar af ákefð á kosningatölur í gær. Þingkosningar voru í landinu á sunnudag og bentu síðustu tölur til þess að flokkar hliðhollir núverandi forseta, Mikhail Saakashvili, myndu vinna yfirburðasigur. Var þeim spáð allt að þrem fjórðu þingsæta. AP Hvernig fór? DAN Leach, rúmlega tvítugur mað- ur í Texas í Bandaríkjunum, gaf sig fram við lögregluna fyrr í þessum mánuði og játaði á sig morð á unn- ustu sinni. Gerði hann það eftir að hafa séð Píslargönguna, kvikmynd Mel Gibsons, en hún varð til að fylla hann mikilli iðrun. Ashley Nicole Wilson, ófrísk unn- usta Leach, fannst látin 18. janúar sl. og segist Leach hafa látið líta út fyrir, að hún hefði stytt sér aldur. Fannst hún í íbúð sinni og virtist sem hún hefði hengt sig. Þar fund- ust líka nokkur orð á miða þar sem hún lýsti þunglyndi sínu og vanlíð- an. Kom þetta fram á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins, í gær. Leach gaf sig fram við lögregluna 9. mars sl. en var sleppt meðan mál- ið var kannað nánar. Var hann síðan handtekinn síðastliðinn þriðjudag. Mynd Gibsons hefur víða vakið upp heitar tilfinningar og deilur og hafa margir gyðingar gagnrýnt hana fyrir þá mynd, sem dregin er upp af trúbræðrum þeirra á dögum Krists. Sá Píslargönguna og játaði á sig morð NÝ RÍKISSTJÓRN sósíalista á Spáni hefur ákveðið að fjölga um helming spænskum her- mönnum í Afganistan, fer tala þeirra upp í 250 í sumar, að því er fram kom í máli fulltrúa varnarmálaráðuneytisins í gær. Spænska stjórnin hyggst þó ekki hverfa frá þeim áformum sínum, að kalla spænska herinn heim frá Írak taki Sameinuðu þjóðirnar ekki við stjórn mála í landinu af Bandaríkjamönnum. Talsmaður Federico Trillo, fráfarandi varnarmálaráð- herra, sagði að Trillo hefði tek- ið ákvörðun um það í síðustu viku að fjölga í liði Spánverja í Afganistan. Var málið borið undir Jose Bono, verðandi varnarmálaráðherra í ríkis- stjórn sósíalista, og hann gerði engar athugasemdir. Sagði talsmaðurinn, Jose Luis Fernandez, að hermönn- unum yrði fjölgað úr 125 í 250 í ágúst nk. Það var í síðustu viku sem fyrst fréttist af því að spænska stjórnin hygðist fjölga í herliði sínu í Afganistan en ákvörðunin er sögð liður í því að verjast hugsanlegri gagnrýni banda- rískra stjórnvalda varðandi þá ákvörðun, að kalla heim þá 1.300 hermenn sem staðsettir eru í Írak. Spánverj- ar fjölga í Afganist- an-liði Madríd. AP. SENDIHERRA Bandaríkj- anna í Lettlandi, Brian Carl- son, gagnrýndi í gær harkalega ummæli rússneska stjórnmála- mannsins Vladímírs Zhírí- novskís sem hefur hótað Lett- um öllu illu. Segir Zhírínovskí að þjóðin kalli yfir sig hryðju- verk vegna aðildarinnar að Atl- antshafsbandalaginu, NATO, og kröfunnar um að lettneska verði notuð að hluta í skólum rússneskumælandi Letta. „Við hlæjum ekki að Zhírí- novskí,“ sagði Carlson. „Það er einstakt ábyrgðarleysi að tala með þessum hætti samtímis því sem Evrópusambandið er að ræða aðgerðir gegn hryðju- verkum eftir harmleikinn 11. mars [á Spáni]. Fólk sem hagar sér svona skipar sér í fylkingu með Osama bin Laden, ETA, al-Qaeda, 17. nóvember-hópn- um, Rauðu herdeildunum og sams konar hryðjuverkasam- tökum.“ Zhírínovskí er ekki leyft að heimsækja Lettland. „Ekkert verður eftir af Lettlandi,“ sagði hann í viðtali við lettneska sjón- varpið í liðinni viku. „Ég lofa ykkur því, bókstaflega ekkert verður eftir. Allir munu gleyma Lettlandi og lettneskri tungu. Við munum eyða öllu ef þið hróflið við Rússum og rúss- neskum skólum, því heiti ég.“ Lettland Zhírínovskí hótar gereyðingu Riga. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.