Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 19 Opnunartími virka daga frá kl. 14.00-18.00, um helgar frá kl. 10.30-18.00 Stendur til 4. APRÍL. Upplýsingasími 511 2226 í Perlunni GRÍÐARLEGT ÚRVAL AF SPORT- OG GÖTUSKÓM BANJO Cintamani RUCANOR BACKSTAGE FIREFLY DARE 2 BE catmandoo OKKAR TAKMARK: Verð 50-80% undir fullu verði : i ll i Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð: ADIDAS sundbolir .................................. 1.000 kr. ............... 2.990 kr. ASICS hlaupaskór ................................... 4.990 kr. ............. 11.890 kr. CINTAMANI flíspeysur ................. 1.990/2.990 kr. ..... 6.990/7.990 kr. REGATTA/DARE 2 BE barnaúlpur .......... 2.500 kr. ..... 5.990/6.990 kr. BACKSTAGE barnaúlpur ........................ 1.990 kr. ............... 4.990 kr. BANJO smekkbuxur ............................... 1.000 kr. ............... 5.990 kr. PRO TOUCH barnaskór ........................... 1.750 kr. ............... 3.790 kr. Kuldagallar barna .................................. 2.990 kr. ............... 7.990 kr. ADIDAS hlaupaskór ............................... 4.000 kr. ............... 7.990 kr. Bómullar joggingbuxur ............................ 990 kr. ............... 4.990 kr. SLOGGI nærbuxur ..................................... 300 kr. Skíðahanskar ............................................. 300 kr. GÓÐ aðsókn hefur verið á barna- og fjölskylduleikinn Honk! sem Leik- félag Verkmenntaskólans á Ak- ureyri sýnir um þessar mundir í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Söngleikurinn Honk! er byggður á ævintýri H.C. Andersen um Ljóta andarungann, en er eftir þá George Stiles og Anthony Drew og er í þýð- ingu Gísla Rúnars Jónssonar. Nemendur lögðu mikla vinnu í uppsetningu verksins, hluti búninga er sérsaumaður af nemendur og for- eldrum, en sviðsmyndin var í hönd- um smíðanema skólans. Hljómsveit leikur undir og er hún skipuð nem- endum og kennurum en tónlistar- stjóri er Arnór Vilbergsson. Kór VMA tekur einnig þátt í uppfærsl- unni, enda tónlist stór hluti sýning- arinnar og söngatriði yfir 15 talsins. Um 50 manns taka þátt í sýningunni. Þrjár sýningar eru eftir, í kvöld, þriðjudagskvöldið 30. mars og svo næstu kvöld, miðvikudagskvöldið 31. mars og lokasýning er á fimmtu- dagskvöld 1. apríl. Sýningar hefjast kl. 19 í Gryfjunni, sal VMA. Verkmenntaskólinn á Akureyri sýnir söngleikinn Honk! í Gryfjunni. Góð aðsókn að Honk! Verklagsreglur fyrir sykur- sjúka| Hrafnhildur Sigurgeirs- dóttir M.Ed., kennari við Síðu- skóla, flytur erindi sem hún nefnir Aðgerða- og verklagsreglur fyrir sykursjúka nemendur í íslenskum grunnskólum. Fyrirlesturinn verður í dag, 30. mars, og er í stofu 16 í húsnæði kennaradeildar í Þingvallastræti 23 og hefst kl. 16:15. Hann er á vegum skólaþróunarsviðs kenn- aradeildar. Í fyrirlestrinum gerir Hrafnhild- ur grein fyrir niðurstöðum rann- sóknar sinnar til meistaraprófs við kennaradeild Háskólans á Ak- ureyri. Rannsóknin beindist að því hvort til væru aðgerða- og verk- lagsreglur fyrir sykursjúka nem- endur í íslenskum grunnskólum. Í rannsókninni voru gerð skil á því hvað slíkar reglur þyrftu að inni- halda og aðbúnaði þessara nem- enda í skólum. Afurð rannsókn- arinnar fólst í drögum að bæklingi sem inniheldur allar helstu upplýs- ingar sem skólar, foreldrar og aðr- ir sem umgangast sykursjúka ein- staklinga þurfa að vita og hafa. SÝNING á verkum Aðalsteins Vestmanns, listmálara og fyrrverandi myndmenntakennara, stendur um þessar mundir yfir á veitingastaðnum Café Karolínu í Listagilinu á Akureyri. Tuttugu myndir eru á þessari sýningu Aðalsteins, ýmist unnar með olíu, akrýl eða vatnslitum. Síðasta sýning Aðalsteins var vorið 2001 í Barnaskóla Ak- ureyrar, þegar hann hætti að kenna þar eftir áratuga starf. Þar var um að ræða nokkurs konar yfirlitssýn- ingu; myndir frá ýmsum tímum, en á Karolínu sýnir Aðalsteinn eingöngu nýjar myndir. Málaðar á þessu ári og því síðasta. „Það hefur skapast mikill tími fyrir mig eftir að ég hætti að vinna, ég hef aldrei kynnst neinu í líkingu við þetta. Ég er þó ekki alltaf að mála; það koma kaflar þar sem ég mála mikið og þannig hefur það alltaf ver- ið. En ef ég stoppa lengi verð ég órólegur. Þetta er ástríða.“ Hann segir að sumum finnist ef til vill kjánalegt að vera að dunda sér með pensil, nú þegar myndbönd, hljóðlistaverk og alls kyns tölvuverk séu vinsæl, en segist ekki ætla að nýta sér hina nýju miðla. „Nei, – ég held bara mínu striki. Ég er kominn yfir sjötugt.“ Sannleikurinn er sá, að myndlistarmenn eru dálítið gamaldags, segir hann. „Kannski er einhver hreyfing á því núna en þeir þurfa þó alls ekki að vera slæmir sem sagðir eru gamanldags.“ Myndir Aðalsteins nú eru úr öllum áttum, eins og hann orðar það. „Mér finnst allt í lagi að það sé ekki allt saman eins.“ Í sumum myndanna að minnsta kosti má greina ein- hvers konar andlega upplifun og aðspurður kveðst listamaðurinn ætíð hafa verið svolítið upptekinn af andlegum hlutum. „Kærleiksveran“, „Beðið“ og „Sigla himinfley“ eru dæmi um myndir af þessum toga. „Hið andlega hefur alltaf skapað dálítinn sess en ég hef þó haldið því viljandi til baka úr myndunum. En nú er ég hættur að kenna og er alveg frjáls: Nú get ég gert hvað sem er í myndlistinni.“ Aðalsteinn gengur mikið á hverjum degi ásamt eig- inkonu sinni, og segja má að vatnslitamyndir hans séu einhvers konar dagbók úr þeim ferðum. „Við göngum mikið í Kjarnaskógi, Háskólahringinn og inni í innbæ svo dæmi séu tekin.“ Myndefnið í vatnslitunum er sem sagt mikið úr göngutúrum, staðir sem heima- menn kannast vel við. Aðalsteinn segist einu sinni áður hafa sýnt á Karol- ínu og það sé gott. „Þetta er góður staður til að kynna sig. Hann er miðsvæðis. En í gegnum árin hef ég reyndar alltaf verið latur við að sýna, því ég nenni ekki að hanga yfir sýningunni.“ Sýningu Aðalsteins Vestmanns á Café Karolínu lýk- ur 11. apríl. Nú er ég frjáls; get leyft mér hvað sem er Morgunblaðið/Skapti Aðalsteinn Vestmann við eina mynd sína á Café Karolínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.