Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vatnaskógur – sumarbúðir fyrir hressa stráka
– og það er bara það sem ég geri fyrir hádegi!
Upplýsingar í síma 588 8899 og á www.kfum.isNON
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
1
7
0
3
•
s
ia
.i
s Skráning hefst 31.
mars kl. 8.00
BIRGIR Íslefur Gunnarsson, formað-
ur bankastjórnar Seðlabankans, segir
bankann líta þá þróun mjög jákvæð-
um augum að viðskiptabankarnir hafi
verið að lengja í erlendum skuldum
sínum.
Greiningardeild Íslandsbanka
sagði í Morgunkorni sínu í gær að
með nýju löngu 35 milljarða króna er-
lendu láni Landsbankans og nýrri 22
milljarða króna lánalínu KB banka
ættu þær áhyggjur sem menn hafi
haft af erlendri skuldastöðu að
minnka. Birgir Ísleifur sagði í samtali
við Morgunblaðið að með bréfi Seðla-
bankans til viðskiptabankanna og
stærsta sparisjóðsins, sem sent hefði
verið í desember síðastliðnum, hefði
Seðlabankinn bent á að allt of mikið
væri treyst á skammtímafjármögnun.
Síðan hefðu bankarnir lengt töluvert í
lánum sínum, tekið ný lán til lengri
tíma en áður, og enginn vafi væri á því
að þetta bætti stöðuna verulega. Hins
vegar drægi þetta ekki úr heildar-
skuldabyrðinni sem væri alveg sjálf-
stætt áhyggjuefni.
Í Morgunkorni Íslandsbanka kem-
ur fram að á síðustu tólf mánuðum
hafi útlán innlánsstofnana aukist um
158 milljarða eða um 23%. Lands-
bankinn eigi stærstan hluta erlendu
útlánanna, eða um 45% af vextinum.
Næst komi KB banki með 25% vaxt-
arins og svo Íslandsbanki með 15%.
Mest af þessum útlánavexti hafi verið
í formi erlendra útlána til innlendra
aðila en þau lán hafi aukist um ríflega
68% eða um 120 milljarða króna á síð-
ustu tólf mánuðum. Í ljósi orða Seðla-
bankans hafi allir bankarnir unnið í
því að laga hlutfallið á milli erlendra
langtíma- og skammtímalána.
Skýringin á erlendu lántökunni
hefur verið talin vaxtamunurinn á
milli Íslands og annarra landa. Um
hvort líta mætti svo á að ástæðan fyr-
ir þessum miklu erlendu lánum væri
sú, að Seðlabankinn hefði haldið vöxt-
um sínum of háum of lengi og að þeir
væru enn of háir, sagði Birgir Ísleifur
að verðbólgan væri fyrsta markmið
Seðlabankans. Bankinn hefði metið
það þannig að vextirnir hefðu verið
nokkuð hlutlausir upp á síðkastið og
það styrkti þetta álit bankans að ýmis
lönd sem ekki hefðu ósvipað hagkerfi
hefðu mjög svipaða vexti. Nefndi
hann sem dæmi Ástralíu, þar sem
vextir væru 5,25%, og Nýja-Sjáland
og Pólland, sem einnig væru með
svipað vaxtastig og Ísland. Þau lönd
sem hefðu lægri vexti væru þau sem
væru að reyna að koma sér upp úr
þeirri efnahagslægð sem verið hefði
að undanförnu. Hér hefði hins vegar
ekki verið lægð og Seðlabankinn
hefði metið það svo, að með því að
lækka vextina frekar hefði hætta á
verðbólgu aukist, ekki síst með tilliti
til þeirra miklu framkvæmda sem
framundan væru.
Lenging erlendra lána jákvæð
Morgunblaðið/Ómar
Jákvæð þróun Bankastjóri Seðlabankans tekur undir með Íslandsbanka að
lenging bankanna á erlendum lánum sínum minnki áhyggjur vegna þeirra.
Heildarskuldabyrði bankanna
sjálfstætt áhyggjuefni
ÁNING ehf., félag í eigu Benedikts
Jóhannessonar, Þórðar Sverrisson-
ar, Einars Sveinssonar og fleiri,
hefur keypt 9,85% hlutafjár í Ný-
herja af Sjóvá-Almennum trygg-
ingum. Um er að ræða 26 milljónir
hluta á verðinu 8,9 og nemur kaup-
verðið því 231,4 milljónum króna.
Benedikt Jóhannesson er for-
maður stjórnar Nýherja og vara-
formaður í stjórn Sjóvár-Almennra
trygginga hf. Hann á 4,54% hlut
fyrir í Nýherja. Þórður Sverrisson
er forstjóri Nýherja hf. og átti fyr-
ir rúman 4% eignarhlut. Einar
Sveinsson, stjórnarformaður Ís-
landsbanka og fráfarandi forstjóri
Sjóvár-Almennra trygginga hf., á í
eigin nafni 1,4% hlutafjár í Ný-
herja.
Stærsti hluthafi í Nýherja er eft-
ir sem áður Vogun hf., sem er í
eigu Árna Vilhjálmssonar, með
21,6% eignarhlut. Nýherji á rétt
tæpan 10% hlut í sjálfu sér og er
því annar stærsti hluthafinn en Án-
ing er orðið sá þriðji stærsti.
Stjórnarmenn og stjórnendur
Nýherja hafa smám saman verið að
styrkja stöðu sína í félaginu. Í lok
janúar sl. keypti Þórður Sverrisson
13,2% eignarhlut í Nýherja af sjóð-
um í vörslu KB banka. Nýherji
keypti einnig 6,1% eignarhlut í
sjálfum sér af sömu aðilum. Kaup-
verðið var það sama og nú eða 8,9
krónur á hlut. Þórður seldi af hlut
sínum í febrúar m.a. til Benedikts
Jóhannessonar stjórnarformanns
og til Vogunar og Fiskveiðafélags-
ins Venusar, en Árni Vilhjálmsson
situr í stjórn Nýherja fyrir þessi
félög. Einnig keyptu nokkrir fram-
kvæmdastjórar hjá Nýherja hluti
af Þórði. Þórður lýsti því yfir á
þessum tíma að hann teldi afkomu-
og rekstrarhorfur Nýherja þegar
færi að líða á árið, og á næstu ár-
um, góðar og þess vegna væri þetta
áhugaverð fjárfesting. Hann sagði
yfirtöku og afskráningu úr kaup-
höll ekki á dagskránni.
Stjórnendur
í Nýherja auka
við hluti sína
!
"!
#$%
& !'()*
%%
+, -!%% $ %
!%'$ !.
(
/ %
0 1$ %(2 !0
+, -!%% *. 3'
4*.$ !%%
'
2
!
"
#
5
7
5 5
5 5 5
5 5 5 5 + ' $
!
VIÐ gerð skattframtalsins, sem nú
þarf senn að vera lokið, hefur hluta-
fjáreign í KB banka valdið sumum
hluthöfum hans heilabrotum. Skýr-
ingin er sú að hjá KB banka er hver
hlutur 10 krónur nafnverðs hlutafjár,
en ekki ein króna eins og hjá öðrum
skráðum íslenskum félögum um þess-
ar mundir.
Markaðsverð hlutafjáreignar KB
banka er því ekki reiknað eins og
markaðsverð hlutafjáreignar annarra
félaga. Eigi hluthafi 10.000 krónur að
nafnverði í bankanum á hann 1.000
hluti og til að finna markaðsverðið
þarf að margfalda saman fjölda hluta
og gengi hluta í bankanum, sem nú er
rúmlega 300. Kaupþing fækkaði hlut-
um sínum í nóvember árið 2002 í 1⁄10 af
því sem þeir voru áður og um mánuði
síðar var bankinn skráður í kauphöll-
ina í Stokkhólmi. Gengi sænsku krón-
unnar er nú um 9,4 krónur íslenskar,
sem er svipað og þegar Kaupþing var
skráð á sænska markaðinn, og gengi
hvers hlutar KB banka í sænskum
krónum er því rúmlega þrjátíu krón-
ur sænskar.
Þó að KB banki sé nú eina skráða
fyrirtækið hér landi sem er ekki með
einn hlut á móti einni mynteiningu, er
þetta algengt erlendis.
Hlutir í KB banka
valda heilabrotum
LÆKKUN erfðafjárskatts hefur
engin áhrif á fjármagnstekjuskatt af
hlutabréfum, þrátt fyrir að nú verði
miðað við markaðsverð en áður hafi
verið miðað við nafnverð við útreikn-
ings erfðafjárskattsins. Með lögum
sem taka gildi 1. apríl næstkomandi
mun erfðafjárskattur lækka og
verða í einu 5% þrepi, en áður var
hann á bilinu 5% til 45% eftir fjárhæð
og skyldleika. Þar sem erfðafjár-
skatturinn verður með nýju lögunum
reiknaður af markaðsverði hluta-
bréfa en ekki nafnverði þeirra eins
og áður, var verður afleiðingin sú, að
þrátt fyrir lækkun hlutfallsins getur
skattgreiðsla vegna hlutabréfa verið
mun hærri samkvæmt nýju lögunum
en þeim eldri, eins og sýnt var fram á
í Morgunblaðinu í síðustu viku.
Þrátt fyrir að nú sé miðað við
markaðsverð við útreikning erfða-
fjárskattsins verður engin breyting á
útreikningi fjármagnstekjuskatts af
söluhagnaði séu bréfin seld. Eftir
sem áður verður miðað við mun á því
verði sem bréfin voru keypt á og
söluverðinu, enda mun litið svo á að
erfinginn taki við öllum réttindum og
skyldum sem eigninni fylgja.
Fjármagnstekjuskattur
af hlutabréfum sá sami
Áhrif af lækkun erfðafjárskatts
● REKSTUR Þorbjörns Fiskaness hf.
skilaði tæplega 300 milljóna króna
hagnaði á árinu 2003. Árið áður varð
hagnaður-
inn einn
milljarður.
Rekstr-
artekjur
minnkuðu
frá fyrra ári
um nær
14% og
námu tæp-
um 3,9
milljörðum
króna. Er
þetta rakið
til lækk-
andi afurðaverðs og sterkrar stöðu
íslensku krónunnar. Rekstrargjöld
drógust einnig saman, um 7,5% og
námu rúmum 3 milljörðum. Hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði
var 827 milljónir. Þá drógust fjár-
munatekjur saman um 73% milli ára
og námu 172 milljónum.
Veltufé frá rekstri var 662 milljónir
króna á árinu miðað við 939 milljónir
árið áður. Eiginfjárhlutfall lækkaði frá
upphafi til loka árs úr 31,6% í 29,8%
og arðsemi eiginfjár fór úr 53,1% í
10,63%.
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
Hagnaður Þorbjörns
Fiskaness minnkar
!
!
"
#$%
%%&&
Hádegisfundur um jafnrétt-
islöggjöf kl. 13 til 14.15 í Lögbergi
stofu 101. Björg Thorarensen pró-
fessor, Atli Gíslason, lögmaður og
varaþingmaður Vinstri grænna og
Eggert Páll Ólason lögfræðingur hjá
KB banka ræða lagafrumvarp
Vinstri grænna um auknar heimildir
Jafnréttisstofu til að krefja fyrirtæki
um gögn ef grunur leikur á broti á
jafnréttislögum.
Í DAG
● SIGURÐUR Einarsson, starfandi
stjórnarformaður KB banka og Hreið-
ar Már Sigurðsson forstjóri sama
banka keyptu í gær hvor um sig 812
þúsund hluti í bankanum á verðinu
303 krónur á hlut og nemur kaup-
verðið því alls 492 milljónum króna.
Kaupin eru í samræmi við kaup-
réttaráætlun sem samþykkt var á að-
alfundi bankans um sl. helgi og eru
þeir Sigurður og Hreiðar skyldugir til
að eiga hlutina í þrjú ár. Bankinn hef-
ur jafnframt veitt þeim sölurétt að
keyptum hlutum sem ver þá fyrir
mögulegu tapi af viðskiptunum.
Keyptu hluti í KB banka
fyrir 492 milljónir