Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 22
LANDIÐ 22 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ísafjörður | Árshátíð Grunnskól- ans var haldin nú fyrir helgi og var þema hátíðarinnar að þessu sinni „Skólahald í 130 ár“ enda minnast Ísfirðingar þess að í ár eru 130 ár liðin frá því að barna- kennsla hófst formlega á Ísafirði. Höfðu nemendurnir frjálsar hend- ur um hvernig þau unnu með við- fangsefnið. Farið var yfir söguna og brugð- ið ljósi á ýmis tímabil með því t.d. að sýna hvernig börn og full- orðnir klæddust áður fyrr, hvaða leiki börnin léku í frímínútum, hvaða tónlist var vinsæl á hverj- um tíma og jafnvel rifjaðar upp gamlar skólaskemmtanir. Sí- breytileiki kennslu og námsefnis var skoðaður og jafnvel horft til framtíðar í þeim málum. Barnaskólinn á Ísafirði tók formlega til starfa haustið 1874 og var kennt í leigu- eða láns- húsnæði þann vetur. Tilsniðið hús var pantað frá Danmörku og skyldi samskotafé meðal bæj- arbúa ásamt gjafafé Sass stór- kaupmanns nægja til skólabygg- ingarinnar sem var reist á lóð númer þrjú við Silfurgötu um sumarið 1875. Í fyrstu starfaði barnaskólinn á Ísafirði án þess að til væri sérstök reglugerð um starfrækslu hans en 15. nóvember 1877 gaf landshöfð- ingi út reglugerð um skólann er bæjarfulltrúar höfðu samið. Er- indisbréf kennara var að stofni til það sama og kennarar við barna- skólann í Reykjavík unnu eftir með smávægilegum breytingum. Yngstu börnin í rúmlega 100 ára gamalli skólabyggingu Fyrstu árin er talið að nem- endur hafi verið á bilinu 20 til 40 en þeim fjölgaði ört næstu ár. Þegar leið að aldamótunum 1900 var skólahúsnæðið orðið alltof lít- ið og nauðsynlegt að reisa stærra hús. Hinn 7. október 1901 var vígt við hátíðlega athöfn nýtt einlyft barnaskólahús ásamt áföstu leik- fimishúsi og var það mun vand- aðra en gamla skólabyggingin. Í húsinu voru þó aðeins þrjár kennslustofur eða einni fleiri en í gamla skólahúsinu. Sú viðbót dugði skammt því árið 1906 voru um 90 nemendur í skólanum og bekkurinn þröngt setinn. Sumarið 1906 var byggð önnur hæð ofan á barnaskólahúsið ásamt viðbygg- ingu og var það þá nánast komið í þá mynd sem það er í dag, rúmri öld síðar. Húsið stendur enn á sínum upp- runalega stað við Aðalstræti og hefur alla tíð verið notað sem skólahúsnæði fyrir ýmsa aldurs- hópa. Þar hafði Menntaskólinn á Ísafirði aðstöðu fyrstu starfsár sín en undanfarin ár hafa tveir yngstu árgangar grunnskólans verið þar til húsa. Síðasta sumar var hafist handa við að gera húsið upp í samráði við Húsafrið- unarnefnd ríkisins og verður það mikil bæjarprýði þegar því verki lýkur. Brugðu ljósi á sögu skólans Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Perlur: Ingunn Ósk Sturludóttir stjórnaði söng Perlukórsins. 130 ár síðan barnakennsla hófst formlega á Ísafirði Blönduós | Blönduós-Húnavatns- þingshluti Stóru upplestrarkeppn- innar í 7. bekk sem hófst 16. nóvember sl. á afmælisdegi Jónasar Hallgríms- sonar lauk í Húnavallaskóla við Reykjabraut að viðstöddu fjölmenni. Sigurvegari var Helga Margrét Þor- steinsdóttir Grunnskóla Húnaþings vestra, í öðru sæti varð Bjarni Salberg Pétursson Húnavallaskóla og Hulda Margrét Birkisdóttir Húnavallaskóla varð þriðja. Sigurvegar fengu vegleg pen- ingaverðlaun frá Sparisjóði Húna- þings og Stranda og skólinn sem sig- urvegarinn kom frá fékk skjöld einn fagurlega útskorinn til varðveislu í ár. Skjöldurinn er gefinn til þessarar keppni af ættmennum Gríms Gísla- sonar að tilstuðlan hans í tilefni 90 ára afmælis hans. Keppnin tileinkuð Grími Gíslasyni Mættir voru 12 lesarar úr skólunum fjórum í Húnavatnssýslum, þ.e. úr Grunnskóla Húnaþings vestra, Grunn- skólanum á Blönduósi, Húnavalla- skóla og Höfðaskóla á Skagaströnd. Ungmennin 12 áttu það sameiginlegt að hafa verið valin bestu lesararnir í sínum skólum. Að sögn Gunnþóru Ön- undardóttur kennara á Húnavöllum var Stóru upplestrarkeppninni hrund- ið af stað skólaárið 1996–1997. Vorið 2003 var útlit fyrir að keppninni yrði hætt en menntamálaráðuneytið ákvað að styrkja hana áfram. Þegar útlit var fyrir að keppninni yrði hætt ákváðu skólastjórar grunn- skólanna í Húnavatnssýslum í samráði við Grím Gíslason frá Saurbæ í Vatns- dal að halda keppninni áfram og til- einka hana Grími í tilefni af 90 ára af- mæli hans 10. janúar 2002. Framvegis mun því keppnin heita framsagn- arkeppni grunnskólanna í Húnavatns- þingi. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Framsögn verðlaunuð: Sigurvegarar í framsagnarkeppninni ásamt Grími Gíslasyni, frá vinstri: Bjarni Salberg Pétursson, Helga Margrét Þorsteins- dóttir og Hulda Margrét Birkisdóttir. Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi Sauðárkrókur | Rúmlega eitt hundrað nemendur á starfs- brautum átta framhaldsskóla hitt- ust síðastliðið fimmtudagskvöld í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Tilefnið var keppni í stutt- myndagerð, þar sem framlag hvers skóla var kynnt, en síðan fjallaði dómnefnd um myndirnar og í lokin kynnti formaður nefnd- arinnar, Baltasar Kormákur, kvikmyndagerðarmaður og leik- stjóri, niðurstöður og afhenti verðlaun. Svo fóru leikar að nem- endur Fjölbrautaskólans í Garða- bæ báru sigur úr býtum. Þorkell Þorsteinsson aðstoð- arskólameistari bauð gesti vel- komna og kynnti heimaskólann ásamt Vilhjálmi Árnasyni, for- manni nemendafélagsins. Að því loknu sagði Karl Lúðvíksson, brautarstjóri Starfsbrautar, frá því starfi sem þar fer fram. Í máli Karls kom fram að nemendur brautarinnar í FNV eru níu og auk náms í skólanum eru þeir í starfsþjálfun hjá fjórtán fyr- irtækjum á Sauðárkróki og ná- grenni. Karl sagði að á haustönn hefði sú hugmynd komið fram að halda stuttmyndakeppni starfsbraut- anna ásamt söngvakeppni, en síð- an verið horfið frá því og stutt- myndirnar verið fluttar á vorönnina. Karl þakkaði þeim fjölmörgu sem hefðu lagt því lið að gera keppnina mögulega og sér- staklega minntist hann á nem- endur annarra brauta í FNV sem önnuðust alla tæknivinnu á þessu kvöldi og sáu einnig um skemmti- atriði á meðan dómnefnd sat að störfum. Sem áður segir var Baltasar Kormákur formaður dómnefndar, en í henni voru auk hans Jón Ormar Ormsson og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. Formaðurinn afhenti því næst verðlaunin, sem voru bikarar fyrir þrjú fyrstu sæt- in, en sigurvegarinn fékk að auki farandbikar, sem keppt verður um að ári. Jafnir í þriðja sæti urðu Borgarholtsskóli og Fjöl- brautaskóli Norðurlands vestra, í öðru sæti varð Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, en sigurvegarar voru nemendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ, og þeir munu þá annast keppnina að ári. Skemmtileg frásagnartækni Baltasar Kormákur lauk miklu lofsorði á myndirnar, sem hann sagði allar hinar prýðilegustu, en í dómsorði um sigurmyndina sagði hann að í henni kæmi fram skemmtileg frásagnartækni, smá- atriði væru notuð á markvissan og frumlegan hátt, í myndinni væri mikill húmor og myndatakan með ágætum. Sagðist Baltasar sjálfur vera einmitt núna að fara í gang með gerð kvikmyndar, og bauð hann sigurliðinu í heimsókn þar sem unnið yrði að gerð myndarinnar. Voru sigurvegararnir hylltir og dómnefndinni færð blóm fyrir vel unnin störf, en að lokum var diskótek fram undir miðnættið. Garðbæingar sigruðu í stutt- myndakeppni Morgunblaðið/Björn Björnsson Myndataka með ágætum: Baltasar Kormákur, formaður dómnefndar, les dómsorð um sigurmynd Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Geitagerði | Góublót eða síðbúið þorrablót var haldið í félagsheimilinu Végarði í Fljótsdal 13. mars og voru það Útbæingar sem stóðu fyrir því að þessu sinni. Vegna mikilla breytinga og við- bygginga við húsið, sem Landsvirkjun hefur staðið fyrir frá því í sumar, varð að hverfa frá hefðbundinni tímasetningu með „blótið“ en Landsvirkjun hefur samið við Fljótsdalshrepp um leigu á staðnum svo sem til skrifstofuhalds o.fl. til 10 ára og skilar þá umræddum mann- virkjum til sveitarfélagsins. Við þetta tækifæri var nýr hliðarsalur tekinn í notkun, nokkru minni en hinn eldri með „súlum“ á milli. Vegna þess að hann liggur ekki beint við leiksviðinu varð að leysa það mál með hjálp tækninnar og virtust gestir ánægðir með það. Dagskrá var með hefðbundnum hætti nema hvað virkjunarmálin komu nokkuð við sögu, en eins og alheimur veit eru allar framkvæmdir hér á heimsmælikvarða og eygja menn nú hvar- vetna nýja möguleika í allri flóðlýsingunni. Fyrsta skrefið á að vera stofnun nýs banka í sveitinni, sem nýlega stofnað auðkýfingafélag stendur að. Á skemmtuninni komu fram áhyggj- ur af kynjamisræminu, öllum piparsveinunum þar sem ekkert gengur né rekur og ekki lagast það með öllum þeim fjölda nýbúa sem allir eru af sama kyni. Töldu margir að þetta þýddi aukið álag fyrir þær fáu konur sem eru á svæðinu. Skiljanlega hafa margir þunga þanka af þessu aukna álagi. Að venju fór blótið vel fram. Hljómsveit var fengin norðan úr Bakkafirði og stóð hún vel fyr- ir sínu. Blótað á óvenjuleg- um tíma Morgunblaðið/Guttormur Þormar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.