Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 26
UMRÆÐAN 26 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÚ RÖKLEYSA hefur komið upp á Akureyri að landshlutar eða sveitarfélög eigi rétt á opinberum störfum í hlutfalli við íbúafjölda sinn. Í skýrslu Atvinnuþró- unarfélags Eyfirð- inga um staðsetningu opinberra starfa er staðhæft að þar sem 7,6% landsmanna búa í Eyjafirði eigi þar að vera staðsett 7,6% opinberra starfa, en því miður er þar „að- eins“ 6,6% slíkra starfa, uppá vantar 387 störf. Eyjafjörður er vissulega fallegur og gefur áreiðanlega íbúunum mikinn inn- blástur enda hafa þaðan komið margir andans kappar og skýrleiksmenn sem sett hafa mark sitt á söguna. Því er ekki furða þó við með- aljónarnir sem eigum okkar uppruna annars staðar rek- um upp stór augu þegar Eyfirð- ingar opinbera galla sína svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Maður hefði nú talið að vænlegra væri að leggja grunn og hlúa að verð- mætasköpun og atvinnuuppbygg- ingu frekar en að fiska eftir op- inberum störfum. Dæmi um öfgarnar Fleiri dæmi má nefna um eyfirsk- ar öfgar sem ég reyndar trúi ekki að nokkur skynsamur maður taki undir. Ýmsir forystumenn Eyfirð- inga og á Norðurlandi eystra eru til dæmis þeirrar skoðunar að leggja eigi hálendisveg sem ein- göngu hafi þann tilgang að tengja saman Akureyri og Reykjavík. Í vanmetakennd sinni álykta þeir að framtíð Akureyrar byggist framar öðru á Reykjavík en ekki á styrku samstarfi við nágranna sína. Og svo ekki fyrir alls löngu lét bæjarstjórinn Akureyrar hafa það eftir sér opinberlega að eitt mikl- vægasta verkefni bæjarins væri að laða fólk til hans úr nágranna- sveitarfélögunum. Þetta vekur óneitanlega efasemdir um að Eyjafjörður geti þróast sem ein byggð. Byggðavandi Eyjafjarðar er gríðarlegur og þar með talinn vandi Akureyrar. Ég hef gert út- tekt á íbúafjölda sveitarfélaga milli áranna 1992 og 2002. Þar sést greinileg og eindregin fækk- un fjölskyldufólks á landsbyggð- inni. Akureyringar eldast, því þó svo að þeim hafi í heild fjölgað um 8% hefur þeim sem eru á aldrinum 0- 44 ára fækkað um 0,3%. Fólk á þessum aldri er hið eiginlega fjöl- skyldufólk, eldri hlutinn getur af sér þann yngri sem er og byggir upp framtíðina, en framleiðslan er greinilega ónóg ef svo má að orði komast. Í þokkabót er fólk á vinnumarkaðsaldri, 20-64 ára, færra en landsmeðaltal segir til um, þar vantar 238 manns, næst- um þessi opinberu störf sem nú er krafist. Eldri borgurum fjölgaði hins vegar umfram landsmeðaltal. Aldurssamsetning Akureyringa er óhagstæð en eins og á skal að ósi stemma mun fólki ekki fjölga á Akureyri í framtíðinni nema með tilstyrk þeirra sem eru á fjöl- skyldualdri og dettur í hug að flytjast þangað. Og hvaðan á það að koma? Jú, bæjarstjórnin er í slag við nágrannasveitarfélögin um íbúana. Skoðum nokkur dæmi um hversu auðugan garð er að gresja annars staðar í Eyjafirði eða austan við hann. Í Dalvíkurbyggð hefur fjöl- skyldufólki fækkað um 6,8% frá því 1992 en þeim sem eru eldri en 45 ára hefur fjölgað lítilsháttar og þannig hefur vinnumarkaðurinn styrkst. Sömu sögu er að segja um Eyjafjarðarsveit, þar hefur því fækkað um 9% frá því 1992 og er fækkunin svo til eingöngu meðal yngsta fólksins. Unga fólkinu í Grýtubakka- hreppi fækkaði um rúm 10% og jafnvel gamla fólkinu hefur þar fækkað, er líkleg- ast farið til Akureyr- ar. Á Húsavík fækkar öllum, þó fyrst og fremst fjölskyldufólk- inu og vinnumark- aðurinn er undir landsmeðaltali en eldri borgurum fjölgar. Vandi Ólafsfirðinga er mestur. Þar fækkar um 13% í heild, en fækkun fjölskyldufólks er tæp 16%. Meira að segja vinnumarkaður- inn hefur látið mikið á sjá. Möguleikar Akureyringa felast aðeins í því að ná eldra fólki til sín, það yngra er farið suður eða til útlanda. Ljóst er því að bæj- arstjórnin þarf að etja kappi við höfuðborgarsvæðið og þá ætti samkeppnin um fólkið að fara að verða skemmtileg endist henni örendið. Leggja niður atvinnuþróunarfélögin? Hvers vegna fer unga fólkið í burtu? Er einhver leið að stöðva þennan fólksflótta? Í stuttri blaða- grein er ekki hægt að fara ná- kvæmlega ofan í lausn á vand- anum enda hafa margir mætir menn giskað á lausnir þó fáir hafi verið svo ófrumlegir að halda því fram að skortur á opinberum störfum sé grundvallaratriði. Þvert á móti hafa greinargóðir rannsakendur staðhæft að fækkun þeirra muni styrkja atvinnulífið. Þegar öllu er á botninn hvolft leysa sveitarfélög ekki nein verk- efni með því að efna til áfloga við önnur um íbúa, samgöngumál eða eitthvað annað. Á þessu ári eru um 110 milljónir króna teknar úr ríkissjóði til að halda úti sex atvinnuþróun- arfélögum og er þá ekki með talið framlag sveitarfélaga. Árangurinn af starfi þeirra er umdeilanlegur. Áhrifameira væri ef ráðherra af- henti hverjum landshluta þessa fjárhæð á sex ára fresti með þess- um orðum: Byggið upp atvinnu- lífið hjá ykkur með þeim hætti sem þið hafið best vit til eða kaup- ið ykkur aðstoð. Hugsanlega myndi árangurinn skila sér í styrkara atvinnulífi. Gallinn er hins vegar sá að innan héraðs gæti orðið mikill ófriður um þessa aura og vilja þá allir hreppar „sinn réttláta“ skerf. Af látunum mættum við hinir þó hafa meiri skemmtun en af atvinnuþróun- arfélögum. Í skjóli heppsrígsmóra myndu menn lemja nágranna sína, sundrung yrði í samböndum sveit- arstjórarmanna, stórmálaflokkar klofnuðu, eyðikot yrðu á einni nóttu að stórbýlum, krummaskuð lýsa yfir sjálfstæði, hreppstjórar verða bæjarstjórar og jafnvel borgarstjórar og á Alþingi láta menn hendur skipta. Þá myndi Egill gamli Skallagrímsson skemmta sér ef hann væri ekki löngu dauður. Að minnsta kosti er þetta gáfulegri hugmynd en finna má í skýrslu Atvinnuþróunarfélags Eyfirðinga. Eyfirskar öfgar Sigurður Sigurðarson skrifar um byggð í landinu Sigurður Sigurðarson ’ByggðavandiEyjafjarðar er gríðarlegur og þar með talinn vandi Akureyr- ar. ‘ Höfundur er rekstrarráðgjafi. FYRIR síðustu borgarstjórn- arkosningar var mikið rætt um upp- byggingu á hafnarsvæðinu, þar sem bygging Tónlistar- og ráðstefnuhúss ásamt hóteli var þungamiðjan en jafnframt hugað að uppbyggingu við vesturhöfnina. Einnig var mikið rætt um viðbót verslunarhúsnæðis við Laugaveg og mismunandi stórtækar hugmyndir um niðurrif gamalla húsa í miðborginni. Innan skipulags- og bygging- arnefndar Reykjavíkur hefur und- irritaður verið eini kjörni fulltrúinn, sem hefur barist gegn fyrirhuguðu fjöldaniðurrifi gamalla bygginga á miðbæjarsvæðinu. Fulltrúar R- og D-lista í nefndinni vilja ganga mun lengra í þeim efnum en faglegir ráð- gjafar telja verjandi. 19. aldar steinbæir og hlaðin steinhús eru sér- reykvísk fyrirbæri, sem fer ört fækk- andi ásamt fjölda gamalla timb- urhúsa. Í nafni misskilinnar þéttingar byggðar er þessum húsum fórnað á færibandi. Það sama á við um áformin um niðurrif Austurbæj- arbíós, þar sem litið er framhjá menningar- sögulegu hlutverki hússins og hinni heild- stæðu borgarmynd Norðurmýrarinnar. Sem betur fer eru nú komnar fram hug- myndir um stórtæka uppbyggingu á mið- bæjarsvæðinu, án þess að ráðast þurfi í gíf- urlegt niðurrif eldri byggðar til að rýma fyrir nýju skipulagi. Með því að byggja upp á vannýttu svæði, sem nær frá Lækjartorgi að Austurhöfninni, og vinna land þaðan vest- ur á bóginn er ætlunin að reisa 78 þúsund fer- metra byggð norðan núverandi byggðar í kvosinni. Til að þessar hugmyndir gangi upp þarf að koma til áhugi fjárfesta og samvinna borgaryfirvalda og einka- aðila um skipulagshugmyndirnar. Einnig verða samgöngu- og bíla- stæðamál svæðisins að ganga upp en um leið þarf að tryggja greiða og helst óhindraða gönguleið frá Lækj- artorgi að fyrirhuguðu Tónlistar- og ráðstefnuhúsi og hafnarsvæðinu. Hugmyndir um að setja Geirsgöt- una í stokk hafa fengið dræmar und- irtektir samgönguyfirvalda jafnvel þó að kostnaður vegna þessa yrði lágt hlutfall heild- arkostnaðarins vegna uppbyggingarinnar eða um 3 milljarðar króna. Sú lausn sem nú er ráðgerð er lakari en þó viðunandi ef umferð- arhraða og þar með há- vaða er haldið í skefjum. Hún felst í því að lyfta Geirsgötunni lítillega þannig að gangandi um- ferð komi undir götuna án þess að um eiginleg niðurgrafin undirgöng verði að ræða. Gengið verði inn í bílastæðahús úr þessum göngum. Hafnað er hugmyndum um að taka umferðina norður fyrir Tónlistar- og ráðstefnuhúsið og síðan meðfram hafn- arbakkanum, enda myndi sú lausn umferð- armála slíta hafn- arsvæðið frá mið- bænum. Þó að undirritaður hafi stutt hug- myndir um að setja Geirsgötu í stokk er hann almennt á móti því að setja stóran hluta umferðar í Reykjavík í göng neðanjarðar. Sums staðar verð- ur þó ekki hjá því komist til að tryggja nægilega umferðarrýmd. Margar hættur fylgja akstri í neð- anjarðargöngum, ekki síst á meðan sú ósvinna er látin viðgangast, að staðsetja olíugeyma í Örfirisey og flytja eldsneyti þaðan í gegnum mið- borgina. Umferð olíubíla um neð- anjarðargöng ætti ekki að leyfa á annatímum. Mikilvægt er fyrir hið nýja mið- bæjarskipulag, að efla samgöngur með norðurstönd nessins, sem höf- uðborgin stendur á. F-listinn vill að farin verði svokölluð nyrðri leið yfir Kleppsvíkina við lagningu Sunda- brautar, fremur en innri leið um El- liðaárvoginn. Nyrðri leiðin er vissu- lega dýrari til skemmri tíma litið en líkur benda til að hún sé mun betri en innri leiðin út frá samgöngu- og um- hverfissjónarmiðum. Í stefnuskrá sinni fyrir síðustu borgarstjórn- arkosningar lagði F-listinn áherslu á flýtingu Sundabrautar og byggðar meðfram ströndinni. F-listinn vill efla almennings- samgöngur og telur þær eina meg- inforsendu þess að nýi miðbærinn fái vaxið og dafnað. Raunhæf þétting byggðar annars staðar í borginni, með uppbyggingu sjálfbærra íbúðar- hverfa, stuðlar einnig að þessu. Sá aukakostnaður sem hlýst af eflingu almenningssamgangna getur skilað sér í minnkandi mengun, minnkandi sliti á götum og minni sóun, sem felst í risavöxnum bílaflota íbúa höf- uðborgarsvæðisins. En umfram allt þá mun bætt um- ferðarskipulag stuðla að því, að bestu hugmyndir um þéttingu byggðar í Reykjavík, sem fram hafa komið í langan tíma, geti ræst. Þá mun nýr og glæsilegur miðbær geta risið norðan núverandi byggðar í kvosinni. Nýi norðurmiðbærinn Ólafur F. Magnússon skrifar um skipulagsmál ’Nýr og glæsi-legur miðbær mun geta risið norðan núver- andi byggðar í kvosinni.‘ Ólafur F. Magnússon Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. Tillögur að nýju skipulagi miðbæjarins við höfnina í Reykjavík. SKRIFAÐ stendur „We Serve“ eða við þjónum. Þetta orð lætur lítið yfir sér en Lionshreyf- ingin á Íslandi og raun- ar annars staðar í heiminum hefur gætt þetta orð innihaldi sem flestir landsmenn hafa einhverja vitneskju um. Við í Lionshreyf- ingunni höfum skilning á því að með sam- takamætti okkar er hægt að ná betri ár- angri í samfélagsþjón- ustu en einstakling- urinn getur náð einn og sér. En hverjum eru lionsmenn að þjóna? Ég og félagar mínir í Lionsklúbbnum Ásbirni leit- umst við að þjóna bæjarfélaginu okkar í Hafnarfirði, ásamt tveimur öðrum lionsklúbbum, þ.e. Lions- klúbbnum Kaldá, sem er kvenna- klúbbur, og Lionsklúbbi Hafn- arfjarðar. Í þessum klúbbum er öflugt starf og hafa klúbbarnir í gegnum árin komið að margs konar styrktarverkefnum í bæjarfélaginu. Stundum einir og sér, stundum sam- eiginlega eða í samstarfi við önnur félagsamtök, nú síðast vegna tækja- kaupa til krabbameinsrannsókna við St. Jósefsspítalann í Hafnarfirði. Lionsklúbburinn Ástjörn hefur komið að mörgum styrktarmálum í Hafnarfirði í gegnum árin, enda er klúbburinn orðinn rúmlega þrítugur að aldri. Klúbbnum hefur tekist að finna verkefni þar sem stuðningurinn hefur komið í góðar þarfir. Ekki er ætlunin að telja þau verkefni upp, en okkur hefur lánast að koma stuðningi til þeirra sem minna mega sín í þjóðfélag- inu, s.s. til einstaklinga sem eiga um sárt að binda, eldriborgara, fatlaðra og vistmanna ýmiss konar heimila svo eitthvað sé nefnt. Þetta er ein- mitt einn megintilgangurinn með lionsstarfinu, en ekki sá eini. Með lionsstarfinu kynnumst við mönnum og málefnum og höfum gaman af því starfi sem við tökum þátt í. Við kynnumst hver öðrum, myndum vin- áttu og trúnað og leitumst við að fá sem flesta fjölskyldumeðlimi virka í starf og leik. Eitt af því sem gefið hefur mér mikla ánægju af að starfa í Lions- klúbbnum Ásbirni eru bingókvöldin á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þau höld- um við mánaðarlega yfir vetrarmán- uðina ásamt með Lionsklúbbnum Kaldá. Þessi kvöld eru gefandi og þakklæti vistmanna er einlægt. Einu sinni á sumri er farið í fjöl- skylduferð þar sem komið er saman á fögrum stað og gjarnan farið í göngutúr í leiðinni. Haustferð eða svonefnd jeppaferð er að verða fast- ur liður í starfsemi klúbbsins svo ekki sé minnst á bjórhátíðina okkar sem haldin er í byrjun marsmánaðar ár hvert. Sú hátíð er ein aðal- tekjuöflun klúbbsins og rennur allur ágóði til líknarmála. Starfsemi lionsklúbba víða um land er með svipuðu móti enda er til- gangurinn alls staðar sá sami að þjóna samfélaginu. Þetta er rifjað hér upp ekki síst í tilefni af lands- söfnun Lionshreyfingarinnar sem nú stendur yfir en að þessu sinni er söfnunin til styrktar langveikum börnum. Það er von okkar lions- manna að vel takist til. Hvers vegna Lions? Ólafur Friðriksson skrifar um rauðu fjöðrina ’Nú stendur yfir söfnuntil styrktar langveikum börnum. ‘ Ólafur Friðriksson Höfundur er skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu og félagi í Lionsklúbbnum Ásbirni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.