Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 36
KIRKJUSTARF 36 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ FJÖRUTÍU sveitir víðs vegar að af landinu spiluðu um helgina í und- anúrslitum Íslandsmótsins í sveita- keppni og var spilað í fjórum riðlum. Þrjár efstu sveitirnar unnu sér rétt til að spila til úrslita en það verða sveitir Orkuveitu Reykjavíkur, Sparisjóðs Siglufjarðar og Grant Thornton úr A-riðli, Sveitin mín, Eykt og sveit Gylfa Pálssonar úr B- riðli, sveit FerðaskrifstofuVestur- lands, Þórðar Sigurðssonar og Önnu Ívarsdóttur úr C-riðli og sveit Stef- áns G. Stefánssonar, SS og Tryggva Bjarnasonar úr D-riðli. Keppni í A-riðlinum var frekar dauf þar sem þrjár efstu sveitirnar höfðu tryggt sig inn í úrslitin fyrir síðustu umferðina. Lokastaða efstu sveita í A-riðlin- um: Orkuveita Reykjavíkur 193 Sparisjóður Siglufjarðar 176 Grant Thornton 161 ÍAV (Reykjanes) 144 Í B-riðli var sama uppi á teningn- um. Þann riðil sigraði Sveitin mín riðilinn nokkuð óvænt og sveit Roche sem kom inn sem varasveit fékk uppreisn æru og komst í úrslit. Efstu sveitir í B-riðli: Sveitin mín 189 Eykt 182 Roche 163 Sveit Gylfa Pálssonar 139 Mesta fjörið var í C-riðli en þar voru nokkrar sveitir sem höfðu veru- legan áhuga á að komast í úrslitin. Var barist til síðasta blóðdropa og endirinn sá að sveit Þriggja frakka fær frí um páskana með jafnmörg stig og sveitin sem endaði inni í úr- slitin. Lokastaðan í C-riðli: Ferðaskrifstofa Vesturlands 181 Þórður Sigurðsson 156 Anna Ívarsdóttir 150 Þrír Frakkar 150 Tryggingamiðstöðin 139 Í D-riðlinum gerðist það mark- verðast að Essó-sveitin, ein sterk- asta sveit landsins til margra ára, komst ekki áfram en sveit Stefáns G. Stefánssonar vann riðilinn með glæsibrag. Lokastaða efstu sveita: Stefán G. Stefánss. 200 SS-sveitin 162 Tryggvi Bjarnason 162 Tempra 138 Mótið var ágætlega skipulagt. Keppnisstjórarnir Björgvin Már Kristinsson og Aron Þorfinnsson skiluðu sínu óaðfinnanlega og Stef- anía Skarphéðinsdóttir stýrir hjörð- inni fagmannlega. Þá er ég lýk almennri umfjöllun og var meðal þátttakenda langar mig að leggja örfá orð í belg til stórmeist- aranna sem flestir spila í þessu móti. Ástæðan er sú að ég hef unnið mér rétt til að spila í undankeppninni undanfarin ár og haft gaman af. Margir spilaranna sem koma utan af landi eru í mínum sporum, þ.e. að styrkleiki spilara í klúbbnum okkar er ekki sá sami og á Reykjavíkur- svæðinu. Í þessu móti komu fram í mínum hópi fingurbrjótar sem auðveldlega má horfa framhjá en á okkur var tek- ið með lögum. Þetta er allt eðlilegt svo langt sem það nær. Ég þykist fullviss um að fleiri hafa sömu sögu að segja. Ég tel að þegar augljós, saklaus brot verða við borðið megi taka tillit til þess en síðan geti spil- arar tekist á í úrslitunum með öllum þeim fangbrögðum og fantabrögðum sem tíðkast. Fjórar landsbyggðar- sveitir í úrslitin Morgunblaðið/Arnór Svipmynd frá undankeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni. BRIDS Undankeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni 26.–28. mars. Spilastaður Síðumúli 35–37. Arnór Ragnarsson Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður að lokinni bænastund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl. 19 í neðri safnaðarsal. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altar- isganga, fyrirbænastund. Léttur máls- verður á sanngjörnu verði að helgistund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borg- ara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl. 13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Langholtskirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16. Fjölbreytt starf fyrir 7–9 ára börn. Umsjón hafa Ólafur Jóhann og Þóra Guðbjörg. Lestur Passíusálma kl. 18 í Guðbrands- stofu í anddyri Langholtskirkju. Allir vel- komnir. Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla Laug- arneskirkju kl. 20. Laufey Waage annast biblíulestur. Aðgangur ókeypis og gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar, baka- til. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Þor- valdur Halldórsson leiðir lofgjörðina ásamt kór Laugarneskirkju við undirleik Gunnars Gunnarssonar á flygilinn og Hannesar Guðrúnarsonar sem leikur á klassískan gítar. Gengið er inn um að- aldyr kirkju eða komið beint inn úr full- orðinsfræðslunni. Kl. 21.30 fyrirbæna- þjónusta við altarið í umsjá bænahóps kirkjunnar. Neskirkja: Litli kórinn-kór eldri borgara kl. 16:30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Foreldramorgunn miðviku- dag kl. 10–12. Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl. 10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16:00. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17:30. Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í safnaðar- heimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í Ártúnsskóla. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl 11:15 í kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Kl 12:00 léttur hádegismatur, helgistund og sam- vera. Þorvaldur Halldórsson kemur í heimsókn. Kaffi. Æfingar fyrir ferming- armessur. Kl. 14 æfing fyrir fermingu á skírdag kl. 10. Kl. 15 æfing fyrir ferm- ingu á skírdag kl. 12. Kl. 16 æfing fyrir fermingu á skírdag kl. 14. Kl. 17 æfing fyrir fermingu á annan í páskum kl. 11. Unglingakór Digraneskirkju kl 17:00– 19:00. KFUM&KFUK Fyrir 10–12 ára börn kl 17:00–18:15, húsið opnað kl 16:30. Alfa kl 19:00. Lokahóf. (sjá nán- ar:www.digraneskirkja.is) Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12 ára kl. 17. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30–15.30. Helgistund, söngur, spil og spjall. Kaffi og alltaf eitt- hvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30– 18.30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20. Lestur Passíusálma kl. 18.15. – 44. sálmur. Það sjöunda orðið Kristí. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi, les. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar kl. 9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyj- ólfssonar. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Sam- verustund kl. 14.30–16. Fræðandi inn- legg í hverri samveru. Lagið tekið undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og stutt helgistund. Allir hjartanlega vel- komnir. Starf með 8–9 ára börnum í Borgum kl. 17–18 í umsjón Dóru Guð- rúnar og Bóasar. Starf með 10–12 ára börnum á sama stað kl. 18–19 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3, kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12. SELA yngri deild kl. 20–22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10– 12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmti- legar stundir fyrir hressa krakka. Æsku- lýðsfélagið (Megas) heldur vikulegan fund kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa hafa Anna Hulda Ein- arsdóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er opið hús fyrir unglinga 13–15 ára. Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör- yrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spilað, spjallað og kíkt í blöðin. Samver- unni lýkur með helgistund kl. 16. Um- sjónarmaður Nanna Guðrún djákni. Þor- lákur sækir þá sem vilja og ekur þeim heim. Sími 869-1380. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30– 19. Þorlákskirkja. Bænastund kl. 09. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15:00 Kirkjuprakkarar Landakirkju, 6–8 ára krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ás- björnsson og leiðtogarnir. Kl. 16:00 Litlir lærisveinar, kóræfing yngri hóps. Kl. 17.10 Litlir lærisveinar, kóræfing eldri hóps. Stjórnandi Joanna Wlaszczyk og Kristín Halldórsdóttir. Kl. 17.30 ferming- aræfing fyrir þá sem fermast laugardag- inn 3. apríl. Skyldumæting fyrir börn og foreldra. Kl. 18.15 fermingaræfing fyrir þá sem fermast sunnudaginn 4. apríl kl. 11. Skyldumæting fyrir börn og foreldra. Kl. 19 fermingaræfing fyrir þá sem ferm- ast sunnudaginn 4. apríl kl. 14. Skyldu- mæting fyrir börn og foreldra. Keflavíkurkirkja. Alfahópur kemur saman í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur málsverð- ur, samfélag og fræðsla um kristna trú- .Einnig verður komið inn á stöðu atvinnu- lausra. Umsjón María Hauksdóttir. Styrktaraðilar eru Verkalýðs- og sjó- mannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verslunarmannafélagið og Iðnsveina- félagið ásamt Keflavíkurkirkju. Allir vel- komnir. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upplýsingar á www.kefas.is AD KFUK, Holtavegi 28. Ferð í kvöld kl. 18. Ferð í Hraungerðiskirkju ásamt AD KFUM efni í umsjá Kristins Ágústs Frið- finnssonar, sóknarprests. Kaffi í félags- heimilinu í lok fundar. Rúta frá Holtavegi. Verð 1.200 kr. Skráning á skrifstofu í síma 588 8899. Allir velkomnir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 2 (Lund- arskóli). Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl. 18.10. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30 Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Kl. 19.15 Alfanámskeið. Safnaðarstarf Ástir og samlíf Guðríðar Símonardóttur og Hallgríms Péturssonar Í KVÖLD, þriðjudagskvöld, lýkur námskeiði Stein- unnar Jóhannesdóttur um Tyrkjaránið 1627, Guðríði Símonardóttur og Hallgrím Pétursson sem haldið hefur verið í Safnaðarheimilinu í Sandgerði nú í mars. Lokafyrirlesturinn fjallar um ástir og samlíf Guð- ríðar og Hallgríms með höfuðáherslu á 14 fyrstu sambúðarár þeirra á Suðurnesjum. Þau komu með vorskipi til Keflavíkur 1637, bjuggu um tíma í hjá- leigu frá Ytri-Njarðvík en 1644 var Hallgrímur vígð- ur til prests í Hvalsnesi og þar bjuggu þau uns þau fluttu búferlum að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þar hlaut Hallgrímur prestsembætti 1651. Margvíslegir erfiðleikar mættu Hallgrími og Guð- ríði við komuna til Íslands, m.a flókin málferli vegna barneignarbrots, fátækt og barnamissir. Á Suð- urnesjum eignuðust þau öfluga bandamenn en einn- ig volduga óvini sem settu mark sitt á líf þeirra og lífsafstöðu. Þau deildu kjörum með alþýðu manna og meðal hennar mótaðist skáldið Hallgrímur Pét- ursson. Skáldgáfa hans slípaðist með bættum hag og aukinni ástundun í Saurbæ og þar náði hann hátindi iðju sinnar í Pássíusálmunum. Steinunn Jóhannesdóttir hefur undanfarin ár rannsakað sögu Hallgríms og Guðríðar og sam- ferðafólks þeirra á Suðurnesjum og mun í fyrirlestr- inum skýra frá nokkrum niðurstöðum sínum. Fyr- irlesturinn þriðjudaginn 30. mars er öllum opinn og hefst kl.20:30 í Safnaðarheimilinu í Sandgerði. Þeir sem ekki eru þátttakendur í námskeiðinu greiði 1500.- kr. í aðgangseyri. Björn Sveinn Björnsson, sóknarprestur Útskálum. Það er hægt að segja margar sögur um hann afa okkar í Sæbóli, húmorinn sem fær hvern sem er til að brosa. Það er mjög sárt og erfitt fyrir okkur að geta ekki ver- ið hér í dag. Með þessum orðum kveðjum við afa okkar í Sæbóli um stund. Megir þú hvíla í friði. Guð megum við sjá og heyra orð þín og huggun. Kenndu okkur að sýna ást til þeirra og blessaðu þá sem syrgja og þeir munu fá huggun. Amen. Með ástar- og saknaðarkveðju til fjölskyldu okkar. Heiðný Stefánsd., Stefán Jason, Guðlaug Stefánsd. og fjölskylda, búsett erlendis. Elsku afi minn. Nú þegar komið er að kveðjustund er svo margt sem ég hefði viljað segja þér. En þó ég geti ekki sagt það við þig í eigin persónu þá segi ég þér það í bænum mínum. Ég vil þakka þér fyrir öll árin sem við átt- um saman og þykir mér óskaplega vænt um þann tíma. Það var alltaf gaman að heimsækja þig út í Sæból HAUKUR TRYGGVASON ✝ HaukurTryggvason fæddist 14. nóvem- ber 1925. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 6. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dalvíkurkirkju 16. mars. og var ýmislegt brallað þar ásamt hundinum henni Úllu. Allar þær minningar geymi ég í hjarta mínu og mun alltaf gleðjast yfir þeim þegar ég hugsa til þín. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast manni eins og þér og mun ég segja börnun- um mínum frá því hversu frábæran lang- afa þau áttu. Þú varst alltaf svo jákvæður og með húmorinn á sínum stað. Jafnvel í veikind- um þínum gastu alltaf séð jákvæðu hliðarnar á hlutunum og voru það kostir sem öllum þótti vænt um. Ég veit að þér líður vel þar sem að þú ert núna, kominn til hennar ömmu, og að saman munið þið gæta okkar allra þangað til við hittumst aftur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þitt barnabarn, Katrín Júlía Pálmadóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust. Greinunum má skila í tölvupósti (netfang: minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf út- prentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/ eða sendanda (vinnu- og heimasíma). Móttaka afmælis- og minningar- greina er á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra, systkini, maka og börn, hvaðan útför- in verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir há- degi á föstudegi. Berist greinar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.