Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4507-4300-0029-4578 4741-5200-0002-5562 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.20. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 7, 9 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Gamanmynd eins og þær gerast bestar ! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. Hann mun gera allt til að verða þú!r llt til r ! Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu! l il ill il f l i í ili ! „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i Laugavegi 32 sími 561 0075 Sýnd kl. 5.30. B.i. 16.Sýnd kl. 8.10. B.i. 16. Sýnd kl. 10.15. Sean Penn besti leikari í aðalhlutverki Tim Robbins besti leikari í aukahlutverki Sýnd kl. 5.45. Sýnd kl. 6, 8 og 10.05.  J.H.H Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2 Sýnd kl. 8. „Stórkostlegt kvikmyndaverk“ HL. MBL „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i SLÆMT BLÓÐ Kynna Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Hann mun gera allt til að verða þú!r llt til r ! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. FULLT HÚS HJÁ ÖLLUM HELSTU GAGNRÝNENDUM LANDSINS! Skonrokk „Bráðfyndin“ HJ. MBL Ó.H.T. Rás2 „Hundrað sinnum fyndnari en Ben Stiller á besta degi.“ -VG. DV „Ótrúlega áhrifarík. Frumleg, fyndin og elskuleg.“ -BÖS, Fréttablaðið -Roger Ebert Sýnd kl. 6, 8 og 10.05. Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu! Kaldaljós og Hestasaga síðustu sýningar næstu helgi KABARETTVERKIÐ Paris at night var frumsýnt á sunnudag- inn. Verkið er byggt á ljóðum franska ljóð- skáldsins Jacques Préverts, sem var virkur meðlimur í hreyfingu súrrealista. Ljóð Préverts draga almennt dám af þess- ari stefnu og einnig þeim tíðaranda sem einkenndi París milli- stríðsáranna. Frelsi, hömluleysi, hverf- ulleiki ástarinnar og dýrð hversdagsins má segja að séu lykilorð þegar lýsa á ljóðum Préverts. Sýningin Paris at night reynir að fanga þennan tíð- aranda þar sem ljóð- lestur, söngur, tónlist, frásagnir af skáldinu og kvikmyndabrot vinna saman að því að skapa Parísar- stemmningu eins og hún var á tímabilinu 1920 til 1940. Fjölmargir mættu á frumsýninguna á sunnudaginn til að upplifa þessa stemn- ingu, sem Felix Bergsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir sjá um að koma til skila. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir en Paris at night er samstarfsverkefni Borgarleikhúss- ins og Á senunni. Kabarettverk frumsýnt í Borgarleikhúsinu Álfrún Perla fagnaði Felixi Bergssyni vel. Andrea Gylfadóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Kolbrún Halldórsdóttir fékk hlýjar hamingjuóskir frá Vigdísi Finnbogadóttur. París millistríðsáranna Morgunblaðið/Jim Smart LEIKRITIÐ And Björk of Course… eftir Þorvald Þorsteins- son vakti strax verulega athygli er það var frumsýnt í apríl 2002 og gekk það vel og lengi á fjölum Borgarleikhússins. Á sunnudaginn sýndi Sjónvarpið kvikmynd, byggða á verkinu í leikstjórn Lár- usar Ýmis Óskarssonar. Leikhóp- urinn í myndinni samanstendur af sömu leikurum og léku á sviðinu (fyrir utan að Katla Margrét Þor- geirsdóttir er kominn í stað Hall- dóru Geirharðsdóttur). And Björk of Course… er afar gráglettið verk sem segir af hópi fólks sem kemur saman á nám- skeiði með það fyrir augum að greiða úr vandamálum sínum og leita að hamingjunni. Sumar per- sónurnar eru vægast sagt trufl- aðar, einn maðurinn er barnaníð- ingur og í sjónvarpsmyndinni er afar svæsið nauðgunaratriði þar sem þrjár kvennanna múlbinda einn karlinn og koma fram vilja sínum við hann á fremur ógeðfelld- an hátt. Morgunblaðið fékk fjóra aðila til að tjá sig um myndina. Þeir sem rætt var við eru þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Jón Atli Jónasson rithöfundur og leikskáld, Oddný Sturludóttir rit- höfundur og Sif Gunnarsdóttir menningarfræðingur Myndin betri en sýningin „Mér þykir leitt að segja það en mér fannst myndin miklu betri en leiksýningin,“ segir Þórhildur Þor- leifsdóttir. „Mér fannst efninu drepið á dreif í sýningunni með endalausum bröndurum. Þegar ég sá myndina varð mér ljóst að þú átt að treysta góðum texta, treysta góðum leik og treysta því að áhorf- endur þurfi ekki alltaf að láta matreiða ofan í sig brandara. Myndin var mjög áhrifarík en það var sýningin ekki. Mér finnst líka athyglisvert að sjá hvað leikararnir standa sig vel því þeir eru búnir að lifa mjög lengi með persónunum. Þetta sér maður sjaldan í íslensku sjónvarpsefni eða kvikmynd- um.“ Gott efni en… Jón Atli er stuttorður: „Gott efni en ég set spurn- ingamerki við úrsvinnsluna.“ Mikilvægt að taka á erf- iðum málum „Ég var mjög sátt við þetta,“ segir Oddný Sturludóttir. „Þetta er verk sem tekur á erf- iðum málum og ég fagna slíku. Kímnigáfan er óspart notuð og það er kannski það sem fer í taugarnar á einhverjum. Þetta þykir kannski skrítið, sérstaklega er gamanið fer að kárna undir endann. Það sem var svo sláandi var hvað barnaníð- ingurinn kom vel fyrir. Og er ekki alltaf talað um að það séu hættu- legustu afbrotamennirnir? Mér fannst þetta skemmtileg tilraun og sérstaklega var þetta geysilega vel leikið enda leikararnir búnir að vinna lengi með þessar ógeðfelldu persónur, sem hlutu sín maklegu málagjöld á end- anum.“ Leikritið skil- ar sér ekki í sjónvarpið „Ég sá þetta á sínum tíma á sviði og fannst þetta gríðarleg sterkt verk,“ segir Sif Gunnars- dóttir. „Það er á hnífsegginni svo að segja allan tímann, það er svo tvírætt. Þessi styrkur verksins náði ekki í gegn í sjónvarpinu fannst mér.“ Sif segir að sjónvarpsverkið And björk of Course... hafi því ekki snert sig eins og leikritið en það sé ábyggilega ekki hlaupið að því að færa svona verk á milli miðla. Sjónvarpsmyndin And Björk of Course… var sýnd í Sjónvarpinu á sunnudag Atriði úr sjónvarpsmyndinni And Björk of Course… Deildar meiningar STÚLKURNAR í breska tríóinu Sugababes, sem eiga að halda tón- leika hér á landi hinn 8. apríl, brugðu á leik á laugardaginn og blésu um leið á sögusagnir þess efnis að þær væru að hætta. Á tónleikum sínum stigu þær Heidi, Mutya og Keisha djarfan dans á meðan þær fluttu lagið „Virgin Sexy“. Þegar laginu lauk tóku þær upp á hinu sama og sjá mátti þegar þeir 70 mínútna-menn brugðu sér á tónleika stúlknatríósins á dögunum. Þá buðu þær aðdáanda sínum að leggjast með sér í tvíbreitt rúm sem hringsnerist á sviðinu. Aðdáandinn, ungur maður að nafni Dan, var hand- járnaður við rúmið og settust stúlk- urnar klofvega á piltinn. Síðan tóku þær til við að flytja lag sitt „Nasty Ghetto“ og á meðan flutningnum stóð flengdu þær Dan. Vakti þetta atvik mikla kátínu meðal sumra tónleika- gesta en aðrir vissu varla í hvorn fót- inn þeir ættu að stíga. Engum sögum fer af því hvernig Dan kunni að meta þetta uppátæki en stúlkurnar skemmtu sér konunglega. Áður en stúlkurnar fluttu lokalagið á tónleikunum, hafði Heidi þetta að segja: „Ég vil koma einu á hreint. Mutya og Keisha eru ekki níðingar, þær eru ekki fantar og því fer fjarri að þær leggi mig í einelti. Hljóm- sveitin er ekki að hætta.“ Þóttu þær stöllur standa sig vel á umræddum tónleikum sem voru í Coventry og stóðu yfir í um einn og hálfan tíma. Heidi í Sugababes ávarpaði tónleikagesti Sugababes halda tónleika í Höllinni á fimmtudag í næstu viku. „Mutya og Keisha eru ekki níðingar“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.