Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 47
KÖRFUKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 47 „NÚ, jæja, ég gerði þá eitthvað af viti,“ sagði Anna María Sveinsdóttir, leikmaður Keflavíkur þegar henni var sagt að hún hefði tekið 17 fráköst í vörninni. „Það er ekki alltaf hægt að skora mikið. Það datt ekkert hjá mér í dag þannig að þá er ekkert annað að gera en reyna að leggja sig fram á öðrum sviðum. Fyrri hálfleikur var strembinn og þær fengu að taka allt of mörg fráköst í sókninni og fengu þannig nokkra sénsa í hverri sókn. Siggi sagði við okkur í hálfleik að þetta yrði síðasti hálfleikurinn sem við ætl- uðum að spila í vetur og við lögðum okkur fram og þá er ekki að spyrja að leikslokum. Mér finnst við hafa yfirburðarlið í vetur og ég hefði orðið svekkt ef við hefðum ekki unnið þessa rimmu 3:0,“ sagði Anna . Spurð hvort hún ætlaði að hætta: „Við erum bestar og ég ætla alls ekki að hætta!“ „Þetta var dálítið ströggl hjá okkur í fyrri hálfleik en þegar við fórum að spila eins og við eigum að okkur þá kom þetta,“ sagði Erla Þorsteinsdóttir, fyrirliði Keflvíkinga. „Við gáfum allt í þetta í síðari hálfleik og fórum að spila almennilega. Ég held að málið sé að við erum langbestar í dag. Við er- um ekki með neinn erlendan leikmann og vinnum samt allt sem hægt er að vinna. Við stefndum leynt og ljóst að því að vinna rimmuna 3:0 og stóðum við það,“ sagði ángæður fyrirliði Keflavíkur sem tók 13 fráköst í leiknum. „Við erum bestar og ég er alls ekki að hætta“ Leikurinn byrjaði af krafti, bæði liðléku maður á mann vörn, hrað- inn var mikill og kom það niður á nýt- ingunni. Keflvíkingar sýndu á sér nokkrar aðrar hliðar en venjulega, töpuðu boltanum nokkrum sinnum klaufalega í sókninni en Stúd- ínur börðust vel og náðu oft nokkrum tilraunum í hverri sókn með því að ná fráköstunum. Vörn heimastúlkna var ekki beysin í fyrsta fjórðungi og stað- an að honum loknum var 15:17 fyrir ÍS. Útlitið var samt ekki gott hjá ÍS því Alda Leif Jónsdóttir, þeirra sterkasti leikmaður, fékk þrjár villur í fjórð- ungnum og gat því eðlilega ekki beitt sér af fullum krafti í vörninni það sem eftir var leiks. ÍS hefði illa mátt við því að missa hana af velli. Hún byrjaði útaf í öðrum leikhluta og það var eins og við manninn mælt, heimastúlkur gerðu fyrstu 9 stigin á meðan Stúdínur rembdust við þriggja stiga skot sem náðu oftar en ekki einu sinni í spjaldið. Alda Leif kom aftur inn á og skoraði strax fjögur stig, fyrstu stig ÍS komu eftir þrjár og hálfa mínútu. Þegar staðan var 33:28 og skammt til leikhlés tók Erla Þor- steinsdóttir, sem venjulega leikur undir körfunni, sig til og fór út fyrir þriggja stiga línu og setti tvívegis nið- ur þaðan. Staðan í leikhléi var 39:32 og átti Svava Ó. Stefánsdóttir fína innkomu í þennan fjórðung, gerði níu stig. Þrátt fyrir að munurinn væri ekki mikill í leikhléi læddist að manni sá grunur að Keflvíkingar gætu bætt leik sinn til muna, sérstaklega vörn- ina. Það kom líka á daginn. Svæðis- vörn varð fyrir valinu og með viðeig- andi pressu eftir vítaköst og við innköst, pressu sem Stúdínur áttu í erfiðleikum með. En vörn ÍS var líka fín framan af fjórðungnum, en á móti kom að þær hittu illa og völdu skot sín ekki af kostgæfni. Svava, sem hafði byrjað þriðja leikhlutann á bekknum hjá Keflavík, kom inn á á ný og hófst handa þar sem frá var horfið fyrir hlé, gerði fimm stig eins og skot og þá fór vörn ÍS að lýjast. Síðasti leikhlutinn var hræðilegur hjá ÍS-stúlkum, sem virtust gjörsam- lega búnar. Skotin voru illa ígrunduð og heimamenn gengu á lagið, komust í 81:50 áður en ÍS náði að setja niður tvær þriggja stiga körfur á lokamín- útunni. Þær gerðu sem sagt aðeins sex stig lungann úr fjórðungnum. Keflavík er vel að sigrinum komið. Greinilegt er að stúlkurnar þar á bæ eru með langbesta liðið og erfitt að sjá að einhver breyting sé á því á næstunni haldi þær hópinn áfram. Það er erfitt að eiga við þær Erlu Þor- steinsdóttur og Önnu Maríu Sveins- dóttur inni í teignum og síðan kemur Birna Valgarðsdóttir einnig við sögu þar og fyrir utan. Erla Reynisdóttir og Rannveig Randversdóttir eru báð- ar sprækar, geta skotið og keyrt upp að körfunni ef því er að skipta. Ekki sakar síðan að vera með Svövu á bekknum með 19 stig og Marín Rós Karlsdóttur með 10. Mjög heilsteypt lið sem á eftir að verða enn betra því undir lok leiksins komu ungar stúlkur inn á, stúlkur sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Bryndís Guðmundsóttir er mikið efni, aðeins 15 ára, hávaxin og kröftug stelpa sem er eldfljót fram með bolt- ann og í góðu jafnvægi þegar hún tek- ur skot. Sömu sögu er að segja af jafnöldru hennar, Maríu Erlingsdótt- ur. Hjá ÍS var Casie Lowman dugleg, hélt uppi miklum hraða og á stundum fullmiklum fyrir samherja hennar að því manni virtist. Alda Leif stóð fyrir sínu þrátt fyrir villurnar. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Anna María Sveinsdóttir fagnar 11. Íslandsmeistaratitli Keflavíkurkvenna á 17 árum. Keflvíkingar eru langbestir KEFLAVÍKURSTÚLKUR sýndu mátt sinn og megin í körfuknatt- leiknum í gærkvöldi þegar þær tóku á móti ÍS í þriðja leiknum í úr- slitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. Keflvíkingar sigruðu 85:56 og urðu þar með Íslandsmeistarar í ellefta sinn, en fyrst unnu þær árið 1988. Til gamans má geta þess að Keflavík vann allt sem hægt var að vinna í ár og hefur síðan 1988 einnig orðið ellefu sinn- um bikarmeistari. Í gær sýndu þær svo ekki er um að villast að þær eru með langbesta liðið hér á landi. Skúli Unnar Sveinsson skrifar FÓLK Þær spiluðu litla vörn í fyrri háleikog gerðu þeim þetta dálítið auð- velt fyrir en svo fórum við að spila vörn og þá varð þetta stöðugt erfiðara og erfiðara fyrir þær. Það leit kannski út fyrir að vera auðvelt fyrir ÍS framan af leik, en það var það ekki og síðar er leið á leikinn þá var þetta aldrei spurning,“ sagði Sigurð- ur. Hann var við stjórnvölinn hjá kvennaliðinu í nokkur ár, en hefur verið fjarri góðu gamni síðustu ár, allt þar til nýlega að hann tók við lið- inu á lokasprettinum. Hann mundi ekki hversu oft hann hefði orðið meistari með stelpunum. „Ég man það ekki enda skiptir það ekki máli, ég á ekkert í þessum titlum, þær eiga þetta sjálfar,“ sagði Sigurður. Keflavík með betra lið „Við byrjuðum vel, lékum hraðan og skemmtilegan bolta og vorum að leggja okkur virkilega fram. En þeg- ar Keflvíkingar fóru að hitta úr þriggja stiga skotunum þá var þetta orðið erfitt fyrir okkur. Við verðum að leggja svo mikla áherslu á að stoppa þær inni í teignum, Erlu [Þor- steinsdóttur] og Önnu Maríu [Sveinsdóttur] og verðum að vera með tvo leikmenn á þeim og þá losnar um þær sem eru fyrir utan. Það er mjög erfitt að hjálpa við vörnina inn í teig og þurfa svo að rjúka út í skytt- urnar. Það fer svo mikil orka hjá stelpunum í þetta og við keyrðum okkur út í fyrri hálfleik,“ sagði Ívar Ásgrímsson, þjálfari Stúdenta eftir leikinn. „Annars held ég að sannleikurinn sé einfaldlega sá að þegar Keflavík- urstelpurnar spila eins og þær hafa gert í síðustu tveimur leikum, sem þær hafa spilað einstaklega vel, þá eigum við einfaldlega ekki mögu- leika. Það verður að segjast eins og er að Keflavík er með betra lið og eru vel að sigrinum komnar. Það er eitt sem ég er mjög óánægður með í þessum leik og það eru dómararnir. Keflavíkurstelpurn- ar eru það sterkar að þær þurfa ekki aðstoð frá dómurunum eins og í þess- um leik. Það var alveg sama hvað við gerðum í leiknum, reyndum að yfir- dekka og standa en það var alltaf dæmd villa á okkur. Það hjálpar ekki, en ég vil taka það skýrt fram að við töpuðum ekki leiknum á þessu. Ég næ því ekki að þegar verið er að leika til úrslita í kvennakörfuknattleik skuli vera settir menn til að dæma sem kunna varla á flautuna. Þetta er vanvirðing við kvennakörfuboltann, að það skuli ekki vera settir bestu dómararnir á svona leiki,“ sagði Ívar. Hann sagðist ánægður með körf- una hjá stúlkunum í vetur og sagði bjart framundan. „Svo er ég sem landsliðsþjálfari auðvitað ánægður með að „íslenskt“ lið skyldi verða meistari þó svo ég sé alls ekki sáttur við að tapa. Við lögðum okkur fram, en Keflvíkingar voru einfaldlega sterkari og við töpuðum fyrir betra liði en við erum með og það hefur engan tilgang að svekkja sig yfir því,“ sagði Ívar. Við erum langbestar Svava Stefánsdóttir var í miklu stuði í liði Keflavíkur og gerði fjórar þriggja stiga körfur. „Það varð ein- hver að taka af skarið í liðinu. Byrj- unin var nú ekki góð hjá okkur, en við vorum samt ekkert taugatrekktar fyrir leik. Við bjuggumst við að þetta yrði hörkuleikur en svo kom þetta sem betur fer í síðari hálfleik. Við er- um langbestar, höfum unnið allt í vet- ur og erum eina liðið sem er ekki með erlendan leikmann,“ sagði Svava, sem varð Íslandsmeistari í þriðja sinn með liðinu, en hún byrjaði í meistaraflokki 1999. Undirstrik- uðu hvaða lið er best „ÞETTA var flottur leikur hjá Keflavík og undirstrikar aðeins að þær eru með besta liðið hér á landi,“ sagði Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkurstúlkna eftir næsta auðveldan sigur Keflvíkinga á ÍS í úrslitarimmunni. Eftir Skúla Unnar Sveinsson  KARL Malone lék í fyrsta sinn gegn sínu gamla liði í NBA-deild- inni á sunnudag er Los Angeles La- kers tók á móti Utah Jazz. Malone lék í 18 ár með Utah en gekk í raðir Lakers í sumar í þeirri von að geta fagnað meistaratitli í fyrsta sinn á sínum ferli. Malone skoraði 19 stig og tók 13 fráköst á 34 mínútum í leiknum en Lakers hafði betur, 91:84, og hefur liðið unnið átta leiki í röð.  KOBE Bryant skoraði 34 stig fyr- ir Lakers gegn Utah en hann hefur skorað 32 stig að meðaltali í átta síðustu leikjum liðsins sem hafa all- ir endað með sigri Lakers.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.