Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 35
Stefán lést fyrir meira en tveimur árum bjó hún ein í sínu stóra húsi. Það var hluti af lífsviðhorfi hennar að halda heimili svo lengi sem stætt væri. Það hefði hún samt ekki getað nema fyrir frábæra umhyggju barna hennar sem komu daglega til að annast hana, eftir því sem þau höfðu frekast tækifæri til. Um- hyggja þeirra var einstök. Á heimili sínu fékk hún síðasta áfallið sem leiddi hana til dauða á sjúkrahúsi rúmum sólarhring síðar. Þegar aldurinn færist yfir fjölgar þeim skörðum sem myndast í hóp- inn í kringum mann. Nú er komið enn eitt skarðið þar sem Guðrún var. Á þessari stundu er efst í huga þakklæti okkar hjónanna fyrir að hafa fengið að verða henni sam- ferða. Og minningin um hana verð- ur með okkur enn um sinn. Árni Benediktsson. Guðrúnu Sigurgeirsdóttur, konu Stefáns móðurbróður okkar heitins, höfum við systkinin þekkt alla okk- ar ævi. Hún var hluti af fjölskyld- unni, hluti af lífinu. Nú er hún dáin og þar með verða dálítil kaflaskil. Heimili þeirra hjóna verður ekki lengur fastur punktur í tilverunni en minningarnar koma upp í hug- ann. Systkinin frá Garði, Stefán og mamma, voru mjög samrýmd. Þau voru miklir vinir á sínum æskuárum og eftir þau höfðu bæði fest ráð sitt kom það af sjálfu sér að mikill sam- gangur var á milli heimilanna. Við krakkarnir skynjuðum að Guðrún og Stefán voru mjög samhent hjón og myndarskapur Guðrúnar í öllu sem að heimilishaldi laut var aug- ljós. Þetta kom kannski hvað best í ljós í hinum óteljandi fjölskyldu- veislum fyrst á Kaplaskjólsvegin- um, síðan á Tómasarhaganum og á Sæbrautinni og að lokum í Sporða- grunninum. Veislurnar á jóladag, sem annað hvert ár voru heima hjá Guðrúnu og Stefáni, verða lengi í minnum hafðar. Kræsingarnar, dansinn kringum jólatréð, púkks- pilið og fleiri hefðir voru ómissandi þáttur í jólahaldinu. Þessum sam- verustundum ætlum við yngra fólk- ið reyndar að halda áfram, að hluta til minningar um horfna fjölskyldu- meðlimi. Þó hlutdeild Guðrúnar í fjöl- skylduheildinni sé okkur ofarlega í huga minnumst við hennar líka sem einstaklings. Við minnumst hennar sem tignarlegrar og svipmikillar konu, öruggrar í fasi. Okkur var kunnugt um listfengi hennar og veltum því fyrir okkur af hverju hún hætti að mála. Þær myndir sem við höfum séð eftir hana benda til að það hefði hún ekki átt að gera. Síðustu árin eftir að Stefán dó og heilsu Guðrúnar fór verulega að hraka komu vel í ljós hinir sterku innviðir í sambandi Guðrúnar við börn sín og barnabörn. Umhyggja Sigurðar Boga og Rögnu Hafdísar fyrir móður sinni var sérstök. Við vottum Sigurði Boga, Rögnu Hafdísi, Jóni Loga, Guðrúnu Völu og Sigurbirni Boga samúð okkar. Blessuð sé minning Guðrúnar Sig- urgeirsdóttur. Margrét, Björg og Benedikt. Hún Guðrún Sigurgeirsdóttir er dáin. Guðrún var mér alltaf mjög kær frænka, en hún var gift Stefáni Bogasyni lækni sem lést 2001. Mik- ill samgangur og kærleikur var á milli systkinanna fimm sem komust til manns, en tvö létust á fyrstu ár- um ævi sinnar. Systkinahópurinn bjó sín fyrstu ár á Fálkagötu 30, en pabbi minn, Lárus, var þeirra elst- ur. Eftir að systkinin hófu búskap var það oftar en ekki fastur liður hjá pabba og mér að fara á sunnu- dagsmorgnum vestur í bæ til að taka hús á systrum og mágum sem þar bjuggu. Alla tíð var gaman og gott að heimsækja Guðrúnu og fjöl- skyldu, því ég var alltaf svo hjart- anlega velkominn á þeirra heimili. Eftirlifandi börnum þeirra og öðrum aðstandendum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Guðrúnar Sigurgeirsdóttur. Gunnar Lárusson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 35 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ANNA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Akureyri, búsett í Danmörku, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 31. mars kl. 13.30. Gustav Behrend, Mette Nilsen, Auður María Behrend, Mark Uldahl, Mari Anne Behrend, Gunnar Jónsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Pétur Jónsson, Pálmi Geir Jónsson, Kristinn Örn Jónsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERNA ÞORGEIRSDÓTTIR, Snorrabraut 56, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 20. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 30. mars, kl. 13.30. Katrín Magnúsdóttir, Erna Hjaltested, Sigfús Þór Sigmundsson, Stefán Hjaltested, Guðrún Hlín Hjaltested, Guðrún Magnúsdóttir, Helgi G. Sigurðsson, Gunnar Páll Helgason, Jóhann Örn Helgason, Sighvatur Magnús Helgason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, GUÐNÝJAR BERGSVEINSDÓTTUR, Hornbrekku, Ólafsfirði. Björk, Guðbjörn, Reynir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS EIRÍKS JÓNSSONAR, Beinakeldu. Ingibjörg Eysteinsdóttir, Rósa Friðbjörg Eiríksdóttir, Ingi Friðbjörnsson, Eysteinn Jóhannsson, Hulda V. Arthúrsdóttir, Jón Jóhannsson, Guðráður B. Jóhannsson og öll afabörnin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, NIKULÁSAR JENSSONAR fyrrv. bónda í Svefneyjum, Austurbrún 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Aðalheiður Sigurðardóttir, Jónína, Jens Ragnar, Kristinn, Sigrún Elísabet, Kristján Valby, Þórhallur, Unnar Valby og Dagbjört Kristín, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Erna Þorgeirs-dóttir fæddist í Reykjavík 3. febrúar 1929. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 20. mars síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Þorgeir Pét- ur Eyjólfsson, f. á Eskifirði 3. nóvem- ber 1888, d. í Reykjavík 30. mars 1984, og Guðrún Runólfsdóttir, f. í Reykjavík 29. janúar 1887, d. 8. apríl 1981. Systkini Ernu voru Katrín Laufey, f. á Eskifirði 12. október 1910 , d. 3. febrúar 1965, Run- ólfur Óskar, f. í Reykjavík 19. desember 1912, og Guðrún, f. í Reykjavík 17. júní 1921, d. 18. júlí 1995. Uppeldisbróðir Ernu var Ólafur Galti Kristjánsson, f. 22. október 1922, d. 23. október 2001. Erna giftist Magnúsi Gunnari Magnússyni, f. 3. október 1923, d. 2. desember 1991, og eignuð- ust þau tvær dætur, þær eru: 1) Katrín, f. 23. september 1948, var gift Ófeigi Hjaltested og eign- uðust þau þrjú börn, Ernu, f. 10. október 1972, Stefán, f. 20. júní 1977, og Guð- rúnu Hlín, f. 26. apr- íl 1984, og 2) Guð- rún, f. 10. nóvember 1959, gift Helga G. Sigurðssyni, synir þeirra eru Gunnar Páll, f. 7. desember 1984, Jóhann Örn, f. 4. janúar 1988, og Sighvatur Magnús, f. 5. maí 1992. Erna útskrifaðist frá Kvenna- skólanum í Reykjavík, hóf síðan störf hjá Sjóvá tryggingarfélagi og starfaði þar til ársins 1979, eftir það starfaði hún hjá Lands- banka Íslands þar til hún fór á eftirlaun 1997. Erna og Magnús bjuggu lengst af á Freyjugötu 47 en fluttu á Melabraut 11 á Sel- tjarnarnesi árið 1978. Síðastliðin þrjú ár bjó Erna á Snorrabraut 56 í Reykjavík. Útför Ernu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Ég kveð hana ömmu mína með söknuði. Amma á Meló eða amma á Snorrabraut í seinni tíð var traust, ákveðin og einstaklega vel gefin manneskja. Ávallt átti ég hennar stuðning vís- an. Þegar ég var yngri var gaman að heimsækja ömmu og afa. Þá var boðið upp á ís, en einnig bakaði amma uppáhaldssmákökurnar mín- ar hver jól og geymdi sérstaklega í frysti handa mér út árið. Einnig var hefð fyrir því að bjóða upp á rjúpur á aðfangadagskvöld og beitti amma oft klækjabrögðum til þess að út- vega bestu rjúpurnar hverju sinni. Eftir menntaskóla lá leið mín í verkfræði við Háskóla Íslands og fyrsta veturinn bjó ég hjá ömmu, en þá var afi látinn. Stundum var því hent að ég byggi á hóteli enda hugs- aði amma mjög vel um mig, hún eld- aði fyrir mig, sá um þvott og önnur tilfallandi verk. Kann ég henni mín- ar bestu þakkir fyrir. Amma fylgdist vel með málefnum samtímans og gat rætt um allt milli himins og jarðar. Hún hefði eflaust sómt sér vel sem stjórnmálakona og var talsmaður öflugs velferðarkerfis samhliða einstaklingsfrelsi. Ósjald- an voru hápólitískar umræður í fjöl- skylduboðum og helstu málefni krufin til mergjar. Skoðanir ömmu byggðust á sanngirni, heiðarleika og réttsýni. Fátt fannst henni verra en spill- ing og ólýðræðislegir stjórnhættir. En amma var líka mikil félagsvera og á meðan ég bjó hjá henni var allt- af eitthvað að gerast hjá henni. Lá vinum mínum stundum á orði að hún kæmi seinna heim en ég á kvöldin. Hún er sú manneskja sem mér hefur þótt hvað vænst um á æv- inni. Ég kveð hana með söknuði og mun ég ávallt reyna að hafa hennar lífssýn í heiðri. Stefán H. Ófeigsson, verkfræðingur. Amma mín, Erna Þorgeirsdóttir- ,fæddist í Reykjavík og var alin upp yngst systkina sinna hjá foreldrum sínum á Lokastíg 24a. Hún var því sannkölluð Reykjavíkurmær. Hún ólst upp við mikið ástríki hjá for- eldrum sínum og átti því margar góðar minningar úr uppvextinum. Amma útskrifaðist úr Kvennaskól- anum 1946. Hefði hún verið fædd síðar á öldinni er ég viss um að hún hefði lagt enn frekara nám fyrir sig þar sem hún var skarpgreind og dugnaðarforkur. Eftir útskrift hóf hún sinn starfsferil en hún vann við skrifstofustörf alla tíð, m.a. hjá Sjóvá og Landsbanka Íslands þar til hún hætti fyrir nokkrum árum. Þá gegndi hún starfi trúnaðarmanns hjá Landsbanka Íslands í fjölmörg ár. Hún sinnti síðan heimili þeirra afa Magnúsar af sömu vandvirkni og dugnaði og öllu öðru sem hún tók sér fyrir hendur. Eftir að hún hætti að vinna er amma búin að njóta lífsins enn frek- ar og sagði að það væri ósköp þægi- legt að geta nú bara haft þetta eins og henni dytti í hug. Hún ferðaðist meðal annars til Brasilíu, Suður- og Austur- Evrópu og hafði virkilega gaman af. Þá stundaði hún fé- lagsstörf og leikfimi allt þar til hún veiktist síðastliðið haust. Amma mín hafði sterka réttlæt- iskennd og fylgdist ákaflega vel með fréttum og allri þjóðmálaumræðu. Þegar hún bjó á Seltjarnarnesinu tók hún 2. sæti á lista framboðs Al- þýðuflokksins í sveitarstjórnarkosn- ingum eitt árið. Hún vildi þó ekki gera mikið úr stjórnmálaþátttök- unni en var mikil jafnaðarmann- eskja enda átti hún ekki langt að sækja það. Guðrún Runólfsdóttir mamma hennar hafði verið mikil al- þýðuflokkskona og flutti landshorna á milli því hún var ekki sátt við að fá greidd laun með með því að fá inn- eign í kaupfélaginu. Þó að maður óski engum þess að greinast með krabbamein og vera gefinn stuttur tími er ég þakklát fyrir þann tíma sem við fengum undanfarna mánuði. Amma var líka þakklát fyrir hvern góðan dag og heyrði frá mörgum vinum og kunn- ingjum síðustu vikurnar sem hún hafði unnið með eða tengst á annan hátt. Henni þótti afskaplega vænt um það. Við nýttum tímann vel og nutum þess sérstaklega að fá að vera saman um jól og ármót og halda upp á 75 ára afmæli ömmu 3. febrúar síðastliðinn. Hún sagði mér að það hefði bara verið með betri dögum sem hún hefði upplifað því hún hefði fengið svo margar góðar kveðjur og heimsóknir. Amma var því lífsglöð og naut svo sannarlega lífsins á meðan hún var hér. Það er að mörgu leyti óraunverulegt að kveðja þegar návist þess sem farinn er er svo sterk innra með þeim sem eftir eru. Það verður eftirsjá að hressilegum skoðanaskiptum við ömmu við næsta upphlaup í þjóð- félaginu. Hún var bæði vel að sér og rökföst og það var því virkilega gaman að ræða við hana. Þá var hún traustur bakhjarl dætra sinna og barnabarna sem erfitt verður að vera án. Amma var sátt við sitt þótt hún hefði viljað fá að vera lengur með okkur. Hún sagðist hafa verið miklu heppnari en hún hefði oft gert sér grein fyrir. Við tímamót eins og þessi gerir maður sér einmitt betur grein fyrir því sem gleymist að þakka nógsam- lega í amstri hversdagsins. En ég er svo sannarlega þakklát fyrir að hafa fengið að eiga Ernu að ömmu. Erna Hjaltested. ERNA ÞORGEIRSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.