Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 2

Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Mad rid Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Florida Norte 21. október í 2ja manna herbergi morgunverði, flugvallarskattar og ísl fararstjórn. 49.930kr. Netver› á mann Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is ÁSÓKN Í HÁSKÓLANÁM Háskólar finna fyrir gríðarlegri aðsókn í nám fyrir næsta haust. Talsmenn þeirra segja skýringuna einkum auknar kröfur atvinnulífsins um menntun, svo og lakara atvinnu- ástand. Blaðamenn verðlaunaðir Agnes Bragadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu hlaut í gær blaða- mannaverðlaun ársins 2003 fyrir greinaflokk sinn um baráttuna um Íslandsbanka og skattamál Jóns Ólafssonar. Brynhildur Ólafsdóttir á Stöð 2 fékk verðlaun fyrir rannsókn- arblaðamennsku ársins og Reynir Traustason, Fréttablaðinu, fyrir bestu umfjöllun ársins. Annan lofar rannsókn Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hét því í gær að kannað yrði ítarlega hvað hæft væri í ásökunum þess efnis, að starfsmenn samtakanna hefðu þegið mútur af stjórn Saddams Husseins, fyrrverandi Íraksforseta, í tengslum við sölu á olíu í skiptum fyrir mat. Tugir biðu bana Hátt í sjötíu manns hið minnsta biðu bana í gær í samræmdum sprengjutilræðum í írösku borginni Basra og nágrenni. Meðal þeirra sem létust voru skólabörn sem áttu leið framhjá einu skotmarkanna. Héraðsstjórinn í Basra kenndi al- Qaeda um ódæðin. Um allan geiminn ljómar ljósblátt vorið svo langt sem augað sér og lítil brum og litlar gróðurnálar þau laumast til að heilsa þér, og vorið, blessað vorið, spyr og brosir; hvað viltu mér? Og úti í okkar garði er verk að vinna og vinir bíða þín. og vorið spyr: er ást þín góð og göfug, er gjöful höndin þín við börnin mín, er hugur þinn í ætt við sól og sumar – og sólin skín. Þitt gæfugull er máske moldu fólgið og máske á þessum stað. og því er gott að sjá þig vernda og vökva hvern víðistilk og kornungt reyniblað. og þó það komi mold á hné og hendur þá hvað um það? Og þér er gott í gullnu skini vorsins að gegna dýrri kvöð: Þú gróðursetur agnarlítinn anga með aðeins fjögur pínulítil blöð, svo rót hans verði sæl í sinni moldu og sál þín glöð. Og seinna þegar þú ert gamall maður og þetta vaxið tré, í skjóli þess þú situr máske og minnist þess morguns er þú beygðir hér þín kné og blessað vorið yljar ástúð sinni þín ellivé. Guðmundur Böðvarsson (1904–’74) Gróðursetning | Fornir skógar Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 38 Erlent 14/16 Minningar 38/40 Minn staður 18 Kirkjustarf 41 Höfuðborgin 20 Umræðan 42/44 Landið 21 Bréf 50/51 Akureyri 24 Myndasögur 50 Suðurnes 26 Dagbók 52/53 Austurland 27 Staksteinar 52 Listir 28/30 Íþróttir 54/57 Daglegt líf 31 Fólkið 58/65 Neytendur 32 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Þjónusta 36 Veður 67 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá Bílabúð Benna. Einnig fylgir blaðinu í dag auglýs- ingablað frá Speedo. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is BRESK stjórnvöld ætla að draga úr losun á geislavirka efninu teknetíni frá kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield um 90%. „Þetta er mjög góður sigur fyrir okkur og þá sem hafa verið að berjast gegn þessari losun. Segja má að þessi Sellafield- deila sé leyst,“ segir Siv Friðleifs- dóttir umhverfisráðherra en breski starfsbróðir hennar greindi henni frá ákvörðuninni á fundi umhverf- isráðherra OECD-ríkjanna í París í fyrradag. Umhverfisráðherra fagnar þess- ari niðurstöðu og segir þetta stórt og mikilvægt skref. Lögð hafi verið áhersla á að vernda hreinleika hafs- ins innan umhverfisráðuneytisins enda byggi Íslendingar afkomu sína mikið á sölu sjávarafurða. Þetta sé einkum barátta fyrir þeirri ímynd að hafið umhverfis landið sé það hreinasta í heimi. Efnið geymt í föstu formi Nú verður teknetínið hreinsað úr frárennsli Sellafield og geymt í föstu formi, inngreypt í gler, í geymslum fyrir kjarnorkuúrgang í jörðu á Bretlandi. Efnið endist lengi í nátt- úrunni og er helmingunartími þess um 213 þúsund ár í hafi. Umhverf- isráðherra segir ekki aðra meng- unaráhættu felast í almennri vinnslu í stöðinni fyrir Íslendinga. Siv segist hafa átt fjölmarga tví- hliða fundi með breskum umhverf- isráðherrum. Hún heimsótti Sella- field í nóvember 2002 og ræddi við stjórnendur endurvinnslustöðvar- innar um losun teknetíns. Hefur hún ásamt umhverfisráðherrum hinna Norðurlandanna og Írlands ítrekað beitt bresk stjórnvöld þrýstingi vegna þessa máls. Á OSPAR-fundi um umhverfismál Norður-Atlants- hafsins í júní 2003 náði hún ásamt Norðmönnum, Írum, Svíum, Dönum og Hollendingum að fá samþykki fyrir því að í yfirlýsingu ráð- herranna var lýst yfir áhyggjum af losun teknetíns í hafið frá Sellafield. Jafnframt að vilji væri til að hætta losun efnisins í hafið tímabundið á meðan rannsóknir um hvernig megi geyma það varanlega eða eyða yrðu framkvæmdar. Um haustið var bannað að losa teknetín í hafið og nú hefur umhverfisstofnun og kjarn- orkueftirlitsstofnun Bretlands sam- þykkt nýju aðferðina við geymslu geislavirka efnisins í jörðu. Niður- stöður tilraunaverkefnisins voru birtar í gær. Siv segir að losunin nú verði að- eins 5% af því sem hún var árið 2000. Samkvæmt mælingum hafi engin aukning orðið á geislavirkum efnum við strendur Íslands. Hins vegar hafi Norðmenn mælt hærra gildi bæði í humri og þangi og séu þau gildi yfir viðmiðunarmörkum Evrópusambandsins. „Baráttan hef- ur skilað árangri,“ segir Siv. Losun geislavirkra efna í hafið við Sellafield minnkar um 90% með nýrri aðferð Umhverfisráðherra segir Sellafield-deiluna leysta Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og breski starfsbróðir hennar Elliot Morley ræðast við á fundi umhverfisráðherra OECD-ríkja í París þar sem sá breski skýrði Siv frá niðurstöðum tilraunaverkefnisins. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra fagnar ákvörðun breskra stjórn- valda að minnka verulega losun á geislavirku efni í hafið við Sella- field og segir Breta eiga hrós skilið. Þessi niðurstaða hafi komið þægi- lega á óvart. Hann segir að Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, hafi staðið sig afar vel í þessu máli. „Hún hefur fylgt því vel eftir alla tíð og verið óþreytandi að berjast fyrir því. Hún á því heiður skilinn líka eins og margur annar,“ segir forsætisráð- herra. Fagnar ákvörð- un Breta um allt land í sumar. Vegagerðin og umferð- ardeild Ríkislögreglustjóra, ásamt umferð- ardeild lögreglunnar í Reykjavík hafa að und- anförnu verið í nánu samstarfi um eftirlit með HRAÐAMÆLIR sem getur mælt hraða ökutækja í meira en eins kílómetra fjarlægð og af mikilli nákvæmni bættist í tækjasafn Ríkislögreglu- stjóra á dögunum. Lögreglan í Reykjavík hefur haft mælinn til afnota undanfarið og hafa 300 ökumenn verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur síðustu tíu daga með aðstoð tækisins. „Það má segja að þetta sé ný kynslóð af radar, þótt hann hafi verið í notkun hjá lögregluemb- ættum í Evrópu í nokkurn tíma. Þetta er bylting- arkennt tæki,“ segir Árni Friðleifsson, varð- stjóri í umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík. Hraðamælirinn kostar um eina milljón króna. Árni segir að þeir hraðamælar sem lögreglan notist mest við nú séu byggðir á hljóðbylgju- kerfi. „Þeir kasta hljóðbylgjum og skila þeim til baka. Þessi notar ljósbylgjur, eða leysigeisla. Við getum mælt hraða bíla í mun meiri fjarlægð. Gamli radarinn nær að hámarki svona 400 metra þannig að mælingin sé góð. Þessi radar fer allt upp í kílómetra í venjulegri umferð,“ segir Árni. Þar sem nýi hraðamælirinn sendir ekki frá sér hljóðbylgjur geta svokallaðir radarvarar ekki greint þegar hann er í nánd. Ætlunin er að þetta nýja tæki verði í notkun umferð. Blaðamaður og ljósmyndari Morgun- blaðsins fengu að fylgjast með lögreglu og vega- gerðarmönnum að störfum á Kjalarnesi en þar er ætlunin að koma upp starfsstöð til að hægt sé að sinna umferðareftirliti rétt við syðri enda Hvalfjarðarganga. Með þar til gerðri vigt geta starfsmenn Vegagerðarinnar gengið úr skugga um að þyngd ökutækja sé í samræmi við það sem leyfilegt er og með nýjum hraðamæli, auk hraða- myndavéla og annars búnaðar, getur lögreglan haldið uppi réttum hraða á umferð. „Það hefur verið samstarfssamningur í gangi frá því í desember 2000 milli Ríkislögreglustjóra og Vegamálastjóra sem felur í sér að Ríkislög- reglustjóri útvegar fjóra lögreglumenn til að starfa með í eftirliti með Vegagerðinni. Þetta samstarf hefur gefist mjög vel og gerir það að verkum að það er hægt að taka á nánast öllum umferðarlagabrotum sem koma upp,“ segir Sæv- ar Ingi Jónsson, deildarstjóri umferðareftirlits Vegagerðarinnar. Að sögn Árna, sem hvað mest hefur notað nýja hraðamælinn frá því hann kom til landsins, hafa um 30–40 ökumenn, af þeim 300 sem lögreglan hefur stöðvað, ekið á 130–150 kílómetra hraða. Nákvæmari hraðamælingar lögreglu Morgunblaðið/RAX Árni Friðleifsson reynir nýja hraðamælinn á Kjalarnesinu. Lögreglumenn þurfa að sækja sér- stakt námskeið í notkun tækisins, en ætlunin er að nota það um allt land. ÍSLENDINGAR vinna að meðal- tali um 48 og hálfa klukkustund á viku eða um 10% meira en þær þjóðir sem næstar koma, Grikkir og Bretar, samkvæmt vinnumark- aðsskýrslu Evrópsku hagstofunn- ar. Vinnutíminn er mældur í átján löndum og er hann stystur í Nor- egi og Frakklandi. Er hann þar um 39 tímar. „Samanburður milli Norðurlandanna sýnir ennfremur umtalsverðan mun milli Íslands annars vegar og annarra Norður- landa hins vegar þar sem meðal- vinnutími á viku er almennt sjö til níu tímum styttri en hér á landi,“ segir um niðurstöðurnar í vefriti fjármálaráðuneytisins. Sex tímum lengur en Bretar Í vefritinu er vakin athygli á því að íslenskir karlar vinni að jafnaði um 51 og hálfan tíma á viku, eða um sex tímum lengur en breskir og grískir karlmenn, en íslenskar konur vinni að jafnaði um 43 og hálfan tíma á viku, þ.e. utan veggja heimilisins, eða um einum og hálfum tíma lengur en kynsyst- ur þeirra í Grikklandi. Íslendingar vinna um 481⁄2 tíma á viku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.