Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 9
TALIÐ er að 32 geðfatlaðir einstak-
lingar séu heimilislausir í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði og á Akur-
eyri, eins og fram kom í úttekt Tíma-
rits Morgunblaðsins á málefnum
heimilislausra á sunnudag. Þjónusta
við geðfatlaða er á hendi heilbrigð-
isráðuneytis en búsetumálin heyra
undir félagsmálaráðuneyti.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra segir að búsetumál geðfatl-
aðra hafi verið sérstaklega til skoð-
unar hjá ráðuneyti sínu. „Það liggur
fyrir að við erum með á fjárlögum
þessa árs peninga til að byggja upp
allavega tvö ný sambýli fyrir fatlaða í
Reykjavík og tvö á Reykjanesinu.
Það er gert ráð fyrir að einhver hluti
af þessu rými sem þarna skapast
geti nýst þessum hópi. Varðandi
þessa úttekt sem gerð var núna í til-
efni af svörum mínum við fyrirspurn
Jóhönnu Sigurðardóttur þá höfum
við ákveðið að hafa samband við fé-
lagsmálastjóra á höfuðborgarsvæð-
inu og kalla þá til fundar þar sem far-
ið verður yfir málin.“
Vilja leysa vandann
til frambúðar
Árni segir vilja til að fara yfir það
með forsvarsmönnum félagsþjónust-
unnar hvernig sá hópur geðfatlaðra
sem ekki hefur húsnæði greinist og
hvaða úrræði henti. „Ætlum að kalla
eftir því hvað verið er að gera á
hverjum stað til að sjá heildarmynd-
ina. Bráðavandi eins og þegar fólk
býr við heimilisleysi er auðvitað mál
félagsþjónustu sveitarfélaga. Við í
ráðuneytinu erum fyrst og fremst að
horfa á það hvernig við getum leyst
þennan vanda til frambúðar. Það er
fullur vilji til þess innan ráðuneyt-
isins.“
Í svari sínu við fyrirspurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur á Alþingi fyrr
í mánuðinum kemur fram að ákveðið
hafi verið að setja af stað samráðs-
hóp í samstarfi við heilbrigðisráðu-
neyti sem fær það verkefni að greina
þörf geðfatlaðra fyrir húsnæði og
koma með tillögur til úrbóta.
Áhyggjur af vaxandi eftirspurn
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segist ekki vita til þess að geð-
sjúku fólki hafi verið vísað af sjúkra-
húsum, eins og hann telur hafa verið
ýjað að í leiðara Morgunblaðsins á
mánudag. „Ég kannast ekki við
þetta að hér hafi fólki verið vísað út
af sjúkrahúsum. Það sem við höfum
álitið vera hlutverk okkar og höfum
einbeitt okkur að, er að efla þjónustu
við geðsjúkt fólk,“ segir Jón.
Spurður um úrræði fyrir þann hóp
sem á við geðfötlun að stríða og er
heimilislaus segir Jón það auðvitað
óviðunandi að til sé fólk sem á hvergi
höfði sínu að halla. „Að sjálfsögðu
stefnum við að því að veita geðsjúk-
um og heimilislausum þjónustu og
höfum verið að vinna á fjölmörgum
sviðum að þessu. Því miður er þjóð-
félagið þannig samansett að þessi
eftirspurn hefur farið vaxandi. Menn
þyrftu að beina sjónum að þessum
mikla fjölda geðraskana og mikilli
eftirspurn eftir vistun.
Menn lenda á götunni einhverra
hluta vegna og það er erfitt að segja
hver ástæðan er fyrir því. Auðvitað
er það ekki viðunandi að menn eigi
hvergi höfði sínu að halla. Borgin
hefur verið að vinna að mínu mati
gott starf í þessum málum. Við telj-
um það helsta hlutverk okkar að
veita þjónustuna. Við höfum verið að
veita verulega auknum peningum í
málefni geðfatlaðra á síðustu árum.
En það er áhyggjuefni hvað eftir-
spurnin vex,“ segir Jón.
Hann segir áherslu lagða á að efla
þjónustu við þá sem eru útskrifaðir
af sjúkrahúsum. „Það er ekki tak-
markið að loka geðfatlaða inni, það
er takmarkið að koma þeim til bata
og gera þeim kleift að vinna í sam-
félaginu,“ segir Jón.
Búsetuvandi geð-
fatlaðra til skoðunar
Jón Kristjánsson Árni Magnússon
ÞRJÁR ungar stúlkur úr Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi
stóðu nýlega fyrir styrktartónleikum í félagsheimilinu í
bænum og afhentu afraksturinn, um 160 þúsund krón-
ur, Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL,
að gjöf. Er fénu ætlað að styrkja tómstundastarf á
deildinni.
Styrktartónleikarnir voru haldnir að frumkvæði
stelpnanna, þeirra Telmu Bjarkar Wilson, Kristínar
Gunnarsdóttur og Hildar Bjargar Gunnarsdóttur, og
kom til í gegnum Samfés-verkefnið Þor, sem er nokk-
urs konar árangursvottunarkerfi fyrir grunnskóla-
nemendur sem vilja láta gott af sér leiða í leik og starfi.
Í tilkynningu frá BUGL segir Valgerður H. Jensen
hjúkrunarfræðingur að framtak stelpnanna sé frábært
og öllum unglingum til fyrirmyndar. Það sýni að sam-
hugur sé í verki gagnvart jafnöldrum sem eiga í vanda.
Valgerður segir að margt sé hægt að gera fyrir styrkt-
arféð til að létta líf þeirra sem á deildinni eru.
Söfnuðu fé fyrir BUGL með tónleikahaldi
Morgunblaðið/Sverrir
Hildur Björg Gunnarsdóttir, lengst til vinstri, afhendir Valgerði H. Jensen frá Barna- og unglingageðdeildinni
styrkinn og á milli þeirra eru Thelma Björk Wilson og Kristín Gunnarsdóttir.
Ítalskir skór - Ný sending
Laugavegi 63 • (Vitastígsmegin) • sími 551 2040
www.ropeyoga.com
Kringlunni sími 581 2300
GLEÐILEGT
SUMAR
Heimsferðir bjóða beint flug til Barcelona alla
fimmtudaga í sumar á hreint frábærum kjörum.
Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl
á frábærum kjörum eða eitt af okkar vinsælu
hótelum í
hjarta Barcelona. Bókaðu fyrir
1. maí og tryggðu þér bestu
kjörin.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 23.995
Flugsæti m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
m.v. 20. maí. Netverð. Sjá bækling
Heimsferða.
Verð kr. 59.990
Vikuferð, flug og gisting með
morgunmat og sköttum, m.v. 2 í herbergi,
Atlantis, 3. júní. Netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
· Flug
· Flug og bíll
· Flug og hótel
Vikulegt flug – alla fimmtudaga í sumar
Barcelona
í sumar
frá kr. 23.995 Borðstofu- Ljósakrónur
húsgögn Íkonar
www.simnet.is/antikmunir
— Ný sending —
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Laugavegi 34, sími 551 4301.
Opnum
kl. 9.00
virka daga
Ný sending
Þýskir blazer jakkar - verð kr. 13.800
Sumarbolir - verð frá kr. 800