Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 10

Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT samtölum, sem Morg- unblaðið átti í gær við talsmenn þeirra tíu skóla sem starfa á háskóla- stigi hér á landi, virðist stefna í að að- sókn verði víðast hvar gríðarleg, ekki síst í stærri skólunum. Í vetur voru nærri 16 þúsund manns skráðir í há- skólana, þar af ríflega níu þúsund í Háskóla Íslands, og góðar horfur eru á enn frekari fjölgun þó að Háskólinn á Akureyri ætli að grípa til fjöldatak- markana, eins og fram kom í blaðinu í gær. Dæmi eru um að allt að fimm nemendur séu um hvert laust pláss í skólunum og ljóst að hundruðum og jafnvel þúsundum umsækjenda þarf að vísa frá. Steinn Jóhannsson, forstöðumaður kennslusviðs Háskólans í Reykjavík, segir að aðsóknin stefni almennt í að verða mjög góð. Gerir hann ráð fyrir allt upp undir þúsund umsóknum en skráðir nemendur í HR voru um 1.400 í vetur. Steinn segir að aðsókn í MBA- nám og lögfræði sé afar góð og um- fram væntingar. Að sögn hans eru nú þegar komnar inn 340 umsóknir, eftir að fyrri umsóknarfrestur rann út í vikunni, en seinni frestur er til maí- loka. Síðustu ár hafa á bilinu 55-60% umsækjenda fengið inni í Háskólan- um í Reykjavík en Steinn reiknar með að næsta haust verði um 450 nýnemar teknir inn og skráðir nemendur verði alls tæplega 1.500. Þrengd inntökuskilyrði í HÍ Í Háskóla Íslands voru skráðir ríf- lega níu þúsund nemendur, þar af um 5.700 í fullu námi. Samkvæmt upplýs- ingum frá nemendaskrá hafa lang- flestir af núverandi nemendum, sem ekki eru að klára í vor, skráð sig til áframhaldandi náms næsta haust, en fjöldi nýnema liggur ekki fyrir fyrr en um mánaðamótin maí/júní. Ákvarðan- ir um fjöldatakmarkanir í einstökum deildum liggja ekki fyrir en fjárveit- ing til HÍ miðast við 5.200 nemendur í fullu námi. Nýnemar á síðasta ári voru upp undir þrjú þúsund og nemar í framhaldsnámi skipta hundruðum. Inntökuskilyrði í Háskóla Íslands voru þrengd í fyrra og nú þarf að vera með stúdentspróf af bóknámssviði í framhaldsskóla og skilaboð til deild- anna í ár eru að veita engar undan- þágur ef umsækjendur eru ekki með stúdentspróf. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur Háskólinn á Akureyri ákveðið fjöldatakmarkanir í öllum deildum næsta haust, í fyrsta sinn í 17 ára sögu skólans. Reiknað er með að nýnemar verði þá 590, en þeir voru 760 sl. haust. Skráðir nemendur í HA voru 1.175 en stjórnendur skólans gera ráð fyrir nærri 1.500 nemum næsta vetur. Metumsóknir um framhaldsnám hjá Kennaraháskólanum Kennaraháskóli Íslands getur vegna aukinna framlaga frá ríkinu tekið við fleiri nemendum næsta skólaár, allt frá 150 til 200 nemend- um, en í vetur voru skráðir 2.300 nem- endur í KHÍ. Ingvar Sigurgeirsson, deildarforseti og prófessor í kennslu- fræði, segir að aðsóknin sé gríðarleg. Nú þegar er umsóknarfrestur runn- inn út um framhalds og kennslurétt- indanám. Ingvar segir umsóknir aldr- ei hafa verið fleiri um framhaldsnám, eða 328 en 260 fyrir ári. Eingöngu fjarnám til kennsluréttinda var aug- lýst, þar bárust 306 umsóknir en að- eins 100 verða teknir inn. Að sögn Ingvars var um eitt þúsund umsækj- endum vísað frá í fyrra og um 570 nemar teknir inn í grunnnám og um 200 í framhaldsnám. Hann segir mikla eftirspurn vera eftir leikskólakennurum og þroska- þjálfum. Umsóknarfrestur um þær greinar og fleiri er til 17. maí nk, eins og í íþróttafræði, grunnskólakennara- námi og tómstundafræði. „Það er að verða æ vinsælla að taka nám meðfram starfi. Til viðbótar hef- ur ekki ræst sem menn höfðu spáð að atvinnuástand myndi stórbatna með framkvæmdunum á Austurlandi. Við höfðum búið okkur undir að það myndi herða að hjá okkur en það hef- ur ekki gengið eftir,“ segir Ingvar. Tækniháskóli Íslands fékk viðbót- arframlag fyrir yfirstandandi skólaár eftir að skólinn varð að vísa frá upp undir 70% umsækjenda árið áður. Nú eru ríflega 800 nemendur skráðir. Oddný Árnadóttir, kynningarfulltrúi og aðstoðarmaður rektors, segir að fyrirspurnir um næsta ár séu þegar farnar að berast en umsóknarfrestur fyrir nýnema er til 10. júní nk. Oddný á von á enn fleiri umsóknum í ár en í fyrra. Þá komu inn um 520 umsóknir og þar af innrituðust 377. Því var um 28% hafnað. Oddný reiknar með að mörgum umsóknum verði hafnað í ár, þó að það skýrist ekki fyrr en að lokn- um umsóknarfresti. Fjölmargir fá ekki inni í Listaháskólanum Listaháskóli Íslands finnur sömu- leiðis fyrir mikilli aðsókn. Hjálmar H. Ragnarsson rektor segir að frá upp- hafi hafi ávallt verið fastir kvótar á fjölda nemenda samkvæmt samningi við ríkið. Í vetur voru 345 nemendur en fyrir hvert skólaár berast á sjötta hundrað umsóknir, að sögn Hjálmars. Segir hann að í sumum deildum hafi verið allt að fimm nemendur um hvert pláss. Fjöldatakmarkanir eru miklar, t.d. sóttu síðast um 130 manns um leiklistarnám en aðeins átta voru teknir inn. Nú hafa borist 260 um- sóknir um hönnunarnám en teknir verða inn 50 nemendur, og í myndlist- ardeild verða 26 nýir nemar teknir inn af 116 umsóknum. Hjálmar bend- ir á að Listaháskólinn líti ekki á ein- kunnir. Annað hvort komist nemend- ur inn með inntökuprófum eða að mat er lagt á verk þeirra. Tekur þessi vinna allt að þrjá mánuði og segist Hjálmar hafa bent á að þetta fyrir- komulag mætti vera í fleiri háskólum. Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er liðinn, að kennaranámi undan- skildu, sem hægt er að sækja um til 5. maí. Um 30 manns komast þar að. Menntunarkröfur að aukast Í Viðskiptaháskólanum í Bifröst voru skráðir 350 nemendur í vetur og að sögn Magnúsar Árna Magnússon- ar, aðstoðarrektors og deildarforseta viðskiptadeildar, stefnir í að ríflega 400 manns verði á Bifröst næsta haust, að meðtöldum nemendum í fjarnámi og meistaraprófsnámi. Um 100 manns voru teknir inn í skólann í fyrra en vísa þurfti álíka mörgum frá. Næsta haust verður í fyrsta sinn boð- ið upp á meistaranám í lögfræði, sem tekur tvö ár, en í vor er verið að út- skrifa fyrstu lögfræðingana með BS- gráðu eftir þriggja ára nám. Umsóknarfrestur í Bifröst er til 10. júní. Magnús Árni segir að menntun- arkröfur atvinnulífsins séu stöðugt að aukast og ef fólk ætli að eiga mögu- leika á vinnumarkaði þurfi það að mennta sig meira. Umsóknarfrestur um nám í Há- skólann á Hólum rennur einnig út 10. júní nk. Skúli Skúlason rektor segir að miklar breytingar eigi sér stað í skólanum með nýrri námskrá fyrir ferðamála- og fiskeldisbraut á há- skólastigi. Um 100 manns voru í Hóla- skóla í vetur og þrátt fyrir mikla að- sókn í t.d. nám á hestabraut, þar sem vísa þarf mörgum frá, segir Skúli engin áform uppi um fjöldatakmark- anir. Enda ætli Hólaskóli sér að stækka og meginmarkmiðið sé að fjölga nemendum. Umsóknir um skólavist í fyrra voru vel á annað hundraðið. Háskólanám í garðyrkju að hefjast Í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri hafa um 100 manns verið í háskólanámi í vetur og 160 nemar að meðtöldu fjarnámi og bændadeild á framhaldsskólastigi. Fyrirspurnir og umsóknir eru farnar að berast og allt stefnir í mjög góða aðsókn, að sögn Dagnýjar Sigurðardóttur, starfs- manns skólans. Landbúnaðarháskól- inn er að byrja með nýja námsbraut, skógrækt á háskólastigi, en fyrir er háskólanám í búvísindum, landnýt- ingu og umhverfisskipulagi. Í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera- gerði hefst nám á háskólastigi í fyrsta sinn næsta haust. Að sögn Sveins Að- alsteinssonar skólameistara er búist við 20-30 nemendum en fyrir eru um 100 nemendur á framhaldsskólastigi. Háskólarnir finna fyrir gríðarlegri aðsókn Morgunblaðið/Kristján Háskólinn á Akureyri hefur ákveðið að grípa til fjöldatakmarkana í öllum deildum í haust, í fyrsta sinn í 17 ára sögu skólans. Aðrir háskólar í landinu munu flestir þurfa að vísa frá fjölda umsækjenda í vor. Dæmi um að allt að fimm nemendur séu um hvert laust pláss SNJÓLAUG Guðrún Stefánsdóttir lést í gær á líknardeild Landspít- alans tæplega 53 ára að aldri. Snjólaug var ötul baráttukona fyrir bættum hag barna og ungmenna og lét sig varða málefni útlend- inga á Íslandi. Snjólaug fæddist í Reykjavík 25. maí 1951. Foreldrar hennar eru Margrét Guð- mundsdóttir, húsmóðir og fyrrverandi dómritari, og Stefán Sigurður Gunnlaugsson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri í Hafn- arfirði. Snjólaug lauk fil. cand. prófi í upp- eldisfræði frá Háskólanum í Uppsöl- um vorið 1980 og framhaldsnámi í námsráðgjöf frá Háskóla Íslands 1992. Hún starfaði sem verkefnis- stjóri í fjölskyldu- og forvarnarmál- um hjá Reykjavíkurborg fram á þetta ár. Hún var verkefnisstjóri þróunarverkefna á vegum fram- kvæmdanefndar Reykjavíkurborgar um reynslusveitarfélög 1995–1996, verkefnisstjóri Vímuvarnanefndar Reykjavíkur 1996–1999 og Sam- starfsnefndar um afbrota- og fíkni- varnir 1999–2004 og verkefnisstjóri samstarfsáætlunar ríkis og borgar, Íslands án eiturlyfja, 1997–2002. Snjólaug var formaður nefndar um fjölmenningar- stefnu Reykjavíkur- borgar 1999–2000 og hafði frumkvæði að og bar ábyrgð á undirbún- ingi og stofnun Al- þjóðahúss sem nú er rekið af Reykjavíkur- deild Rauða kross Ís- lands. Snjólaug starfaði á Unglingaheimili ríkis- ins á árunum 1973–1981 og á skóla- heimilinu á Breiðuvík 1973–1974. Snjólaug hóf störf hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar 1981 og veitti forstöðu Unglingaathvarfi stofnunarinnar fram til haustsins 1985 þegar hún var ráðin yfirmaður nýstofnaðrar Unglingadeildar Fé- lagsmálastofnunar. Snjólaug sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir opin- bera aðila og var höfundur fjöl- margra greina um málefni barna, fjölskyldna og forvarna. Bræður Snjólaugar eru Gunnlaug- ur, sóknarprestur í Heydölum, Guð- mundur Árni alþingismaður, Ásgeir Gunnar flugmaður og Finnur Torfi tónskáld. Snjólaug lætur eftir sig tvær dæt- ur. Andlát SNJÓLAUG G. STEFÁNSDÓTTIR GÍSLI Halldórsson, heiðursforseti Íþrótta- og ólympíusambands Ís- lands, færði í gær ÍSÍ alla muni og skjöl sem honum hafa áskotnast í störfum sínum fyrir íþróttahreyf- inguna í áratugi. Þar eru á þriðja hundrað verðlauna- og minjagripir ásamt ýmiss konar heiðursskjölum og orðum, og Gísli gaf jafnframt ÍSÍ sérsmíðaða skápa þar sem munirnir verða varðveittir hjá ÍSÍ. „Eftir að ég hætti störfum fyrir íþróttahreyfinguna fyrir tíu árum hef ég unnið að því að koma öllum mínum gögnum í röð og reglu og mér fannst að þessir munir þyrftu að komast í hendur ÍSÍ. Ég hef verið viðloðandi íþróttahreyfinguna í 80 ár, frá 9 ára aldri, og á langri leið hef ég safnað mörgu saman sem er hluti af íþróttasögu 20. aldarinnar,“ sagði Gísli, sem verður níræður síð- ar á þessu ári en ber aldurinn vel og leggur enn stund á íþróttir með því að spila golf reglulega. Hann var forseti ÍSÍ í 18 ár og forseti Ólympíu- nefndar Íslands í 21 ár en áður gegndi hann margvíslegum störfum fyrir íþróttahreyfinguna. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, þakkaði Gísla gjöfina. „Þetta er glæsilegt safn og fer vel hér í miðstöð íþróttahreyf- ingarinnar í landinu,“ sagði Ellert. Morgunblaðið/Sverrir Gísli Halldórsson og Ellert B. Schram fyrir framan minjaskápana sem Gísli afhenti ÍSÍ í gær. Allir gripir Gísla komnir til ÍSÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.