Morgunblaðið - 22.04.2004, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 22.04.2004, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ S íðustu dagana hafa ýms- ir verið að rifja upp reynslu Bandaríkja- manna í Víetnam á sjö- unda og áttunda ára- tugnum, með hliðsjón af þeim atburðum sem hafa verið að eiga sér stað í Írak. Í nóvember sl. fékk ég þá snilld- arhugmynd, að því mér fannst, að reyna að ná tali af Robert McNam- ara, sem var varnarmálaráðherra Bandaríkjanna þegar bandarískir hermenn voru fyrst sendir til Víet- nam 1963. Sannarlega hlyti McNamara (sem hætti sem ráð- herra 1968) að hafa eitthvað mark- vert að segja um ástandið í Írak. Nýverið hafði þá verið sýnd á Ís- landi heimildarmynd Errols Morr- is The Fog of War (sem átti eftir að hljóta verðlaun á Óskarsverð- launahátíð- inni í febrúar) en hún byggist á viðtölum við McNamara og er sett upp sem eins konar kennslustund fyrir nútíma- manninn, hvaða lærdóma hann megi draga af sögunni. McNamara er orðinn 87 ára gamall en virðist við hestaheilsu, það var allavega kraftur í honum þegar ég síðan ræddi við hann í tví- gang síðasta haust. Aldrei varð þó af því að Morgunblaðið birti nein viðtöl við ráðherrann fyrrverandi, McNamara reyndist algerlega ófá- anlegur til að segja nokkurn skap- aðan hlut „on record“ sem túlka mætti sem gagnrýni á núverandi valdhafa í Bandaríkjunum í Íraks- málunum; sem fyrrverandi ráð- herra í ríkisstjórn Bandaríkja- forseta taldi hann slíkt ekki við hæfi (jafnvel þó að McNamara hafi verið ráðherra í stjórn demókrata). Hann var ekki einu sinni til í að rifja upp ýmsa hluti sem hann þeg- ar hefur sagt opinberlega. Pistlahöfundur Newsweek, Jonathan Alter, hefur svipaða sögu að segja í grein sem birtist í blaðinu 3. nóvember 2003. Þar kemur fram að McNamara hafi ekki viljað tjá sig um hugsanleg mistök arftaka hans í embætti, nú- verandi varnarmálaráðherra, Donalds Rumsfelds. En Alter virð- ist að einhverju leyti hafa á meiru að byggja, hugsanlega er hann þó aðeins að byggja á því sem McNamara lét frá sér fara í end- urminningum sínum, In Retro- spect, sem komu út 1995. In Retrospect vakti mikla at- hygli þegar hún kom út, þar við- urkennir McNamara að gerð hafi verið „ægileg mistök“ í tengslum við þátttöku Bandaríkjamanna í átökunum í Víetnam. Alter segir í grein sinni að McNamara hafi lagt áherslu á þetta: þú verður að geta sett þig í spor óvinarins. Það er ekki það sama og að hafa samúð með mál- stað óvinarins eða finna til með honum en að ótækt sé að menn byggi ákvarðanir sínar á öðru en góðum skilningi á því hverju óvin- urinn vilji ná fram og hvers vegna. Alter segir að McNamara rifji upp í þessu samhengi að bæði hann og Lyndon B. Johnson Bandaríkjaforseti hafi viljandi lát- ið fram hjá sér fara tækifæri til að ræða beint við óvininn í Víetnam. Þetta hafi valdið því að þeir áttuðu sig aldrei á hversu mjög leiðtogar N-Víetnam hötuðust við komm- únistastjórnina í Kína (sem þýddi að dómínó-kenningin sem hern- aðaríhlutun Bandaríkjamanna byggðist á átti hugsanlega ekki við að sama marki og menn gáfu sér). Alter segir að önnur ábending ráðherrans fyrrverandi hafi verið sú að þegar æðstu embættismenn leggi á ráðin um stríðsrekstur sé bráðnauðsynlegt að ólíkum sjón- armiðum sé leyft að fljóta upp á yf- irborðið. McNamara skýri mál sitt með því að vísa til þess að þegar hann réð ríkjum í Pentagon hafi embættismenn, sem lýstu efa- semdum um að það skipti sköpum fyrir öryggishagsmuni Bandaríkj- anna að koma í veg fyrir að Suður- Víetnam félli í hendur komm- únistum, aldrei fengið tilhlýðilega áheyrn fyrir Johnson forseta. Ég hef ekki tilfinningu fyrir því að Paul Bremer, landstjóri Banda- ríkjamanna í Írak, hafi neina til- finningu fyrir því hvað „óvinurinn“ er að hugsa. Kannski er honum vorkunn, erfitt er að vita hvort um einn óvin er ræða eða marga; ólíkir óvinir eiga sér ólík markmið. Svo má velta fyrir sér því hver sé eig- inlega óvinur og hver ekki: er rétt að skilgreina óbreyttan Íraka, sem ekki tekur þátt í neinum ógn- arverkum en sem dáist að hluta til að þeim sem nú halda uppi baráttu, sem óvin? Eru þá ekki flestir eða allir Írakar í óvinaliðinu? Ég hef heldur ekki tilfinningu fyrir því að Bush Bandaríkja- forseti hafi gefið efasemdarödd- unum nægilegan gaum í aðdrag- anda þess að hann ákvað að ráðast á Írak. Ný bók Bobs Woodwards bendir allavega ekki til þess. Og sannarlega gerðu Bandaríkjamenn afdrifarík mistök á fyrstu dögum hernámsins í fyrra og raunar mörg síðan (Juan Cole, prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Michigan- háskóla í Bandaríkjunum, færði ágæt rök fyrir þessu fyrir utanrík- ismálanefnd Bandaríkjaþings í fyrradag, sjá http://foreign.- senate.gov/testimony/2004/ Cole- Testimony040420.pdf). Það er gott að Saddam Hussein er farinn frá völdum í Írak. Ég hef stuðst svolítið við íraska bloggara í þessum viðhorfsskrifum að und- anförnu, það er enginn vafi á að þeir geta bloggað nokkurn veginn eins og þeim sýnist nú um stundir einmitt af því að þeir njóta meira frelsis en áður. En þetta er ekki nóg, það var ekki nóg að vinna stríðið og velta Saddam úr sessi, Bandaríkjamenn verða líka að „vinna friðinn“, ef hann er þá nokkur lengur. Þeir verða að vinna hug og hjarta Íraka ef þeir ætla að ná markmiðum sínum þar fram og ef þeir vilja ekki að afleiðingar ákvörðunar þeirra að ráðast á Írak verði enn alvarlegri fyrir alla heimsbyggðina. Einmitt af þessum sökum væri afar áhugavert að heyra hvað Robert McNamara finnst í raun og veru um frammi- stöðu Bandaríkjastjórnar. Ætli hann hafi af því áhyggjur, að Bandaríkjamenn séu að gera „ægi- leg mistök“ í Írak? „Ægileg mistök“? […] af þessum sökum væri afar áhuga- vert að heyra hvað Robert McNamara finnst í raun og veru um frammistöðu Bandaríkjastjórnar. Ætli hann hafi af því áhyggjur, að Bandaríkjamenn séu að gera „ægileg mistök“ í Írak? VIÐHORF Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Mamma fæddist á Þórshöfn á Langanesi, á sumardaginn fyrsta 22. apríl 1920. Hún var þriðja barn foreldra sinna Stefaníu Sigurbjargar Krist- jánsdóttur og Tryggva Sigfússonar og var fyrsta barnið sem lifði af 13 börnum þeirra. Stefanía amma hafði áður eignast Alfreð með Birni Jóns- syni unnusta sínum en Björn veiktist ungur og dó. Björn var bróðir mynd- höggvarans og listamannsins Einars Jónssonar. Þar sem mamma var næstelst í svo barnmargri fjölskyldu hjálpaði hún til við hvers konar störf í þágu hennar og þar sem fjölskyldan stundaði útgerð byrjaði mamma að beita línu aðeins 10 ára gömul. Að loknu námi í barnaskólanum á Þórs- höfn og námi í orgelleik fór hún alfar- in að heiman þá sextán ára gömul, til náms í Húsmæðraskólann á Hall- ormsstað, sem var tveggja vetra nám. Einnig vann hún í tvö sumur á Hall- ormsstað, það fyrra í skógræktinni og var það kveikjan að ræktunaráráttu hennar, hún hafði sannarlega græna fingur og var fram á síðasta dag að sá bómum og rækta garðinn sinn sem er Þursstöðum til mikillar prýði. Síðara sumarið var hún vinnukona skóla- stýrunnar á Hallormsstað og fóru vinnulaunin í að borga námið fyrir síðari námsveturinn. Eftir dvölina á Hallormsstað fór mamma sem kaupa- kona í Flóann, hún var þá að vinna sér fyrir námsdvöl í Reykjavík, þar sem hún ætlaði að læra kjólasaum en í þá daga var iðnnám ekki launað. Kjóla- sauminn lærði mamma og tók námið hana tvö ár. Að kjólasaumsnáminu loknu hafði hún löngun til að eignast saumavél og vinna sjálfstætt, en skorti peninga til þess. Hún réð sig því aftur í sveit sem kaupakona og þá upp í Borgarfjörð. Mamma ætlaði sér alltaf að setjast að í Reykjavík og starfa þar, en enginn ræður sínum næturstað. Vinur Helga Jónasar Helgasonar bónda á Þursstöðum bað mömmu að aðstoða vin sinn sem vant- aði bústýru til að annast móður sína og bróður í fjarveru sinni. Mamma af- tók það í fyrstu en lét undan, hún seinkaði för sinni til Reykjavíkur og GUÐRÚN TRYGGVADÓTTIR ✝ GuðrúnTryggvadóttir fæddist á Þórshöfn á Langanesi 22. apríl 1920. Hún andaðist á heimili sínu á Þurs- stöðum 27. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Borgarkirkju 6. mars. flutti að Þursstöðum, þá var hún aðeins 21 árs. Voru örlög hennar þar með ráðin því hún gift- ist Helga föður mínum og bjuggu þau á Þurs- stöðum til dauðadags, en pabbi lést 7. apríl 1983. Foreldrar mínir gengu í hjónaband hinn 1. júní 1946. Hann 40, hún 26 ára. Mamma var falleg kona. Hún var grönn, meðalhá og þá með mittissítt jarpskol- litað hár sem hún venju- lega fléttaði og setti upp í hnút í hnakkann og með þessi stóru bláu, djúpu og hlýju augu sem lýstu oft miklum tilfinningum. Augun voru spegill sálar hennar. Við börnin þeirra erum þrjú, elstur er Helgi Jón- as, f. 9.4. 1943, þá ég, Guðrún Magn- ea, f. 28.4. 1947, og Þórunn, f. 9.12. 1951. Auk þess ólu foreldrar mínir upp fóstursystur okkar, Lilju Báru Gruber, f. 6.7. 1952, sem varð eftir á Þursstöðum þegar mamma hennar fór til náms í Reykjavík. Þá voru það ekki fá ungmenni sem vegna ættar- tengsla og vinskapar foreldra minna við þau dvöldu sumarlangt á Þurs- stöðum og eigum við, afkomendur foreldra minna, marga góða vini vegna þeirrar dvalar. Alltaf var gest- kvæmt á Þursstöðum, þá sérstaklega á sumrin, það voru kærir vinir þeirra og ættingjar úr sveitinni, Reykjavík, Kópavogi, Keflavík og Garðinum, sem þar voru á ferð. Öllum var tekið opnum örmum. Pabbi greiddi lax úr neti niðri í Skipatanga og alltaf var slegið upp veislu. Mamma matreiddi og bjó til sína einstöku laxasúpu. Þar var ekkert til sparað, hvorki í mat né drykk, og oftar en ekki var tappi tek- inn úr flösku af einhverju eðalvíni og oft var mamma fengin til að spila á orgelið sitt. Það bárust hljómar org- elleiks og söngs út á hlaðið á Þurs- stöðum á þessum gleðistundum. Pabbi fæddist 5. maí 1906 og mamma 22. apríl 1920. Frá þeim tíma til dagsins í dag hafa orðið meiri breytingar á íslensku þjóðlífi en í margar aldir þar á undan. Foreldrar mínir lifðu kreppuárin og allsleysi þeirra fyrir og eftir 1930 og síðari heimsstyrjöldina um 1940. Ekki er nokkur efi á að þau ár hafa mótað þau og þá sem á þessum árum voru unga fólkið á Íslandi. Nýtni, útsjónarsemi og iðni ásamt miklum rausnarskap í garð annarra var foreldrum mínum í blóð borið. Þau voru heiðarlegt fólk og lögðu sig fram við að hjálpa öðrum. Á þessum dögum og allt fram undir 1960 var allt framleitt heima. Það voru ræktaðar kartöflur og hvers konar grænmeti. Á haustin var kjöt saltað, reykt og súrsað. Búin var til saft úr berjum, rabarbari sultaður, kjöt niðursoðið, slátur tekið og alltaf var öll mjólk unnin til fullnustu. Hill- urnar í búrinu hennar mömmu svign- uðu undan öllu saman. Þá var allur fatnaður heimagerður af mömmu. Hún prjónaði peysur, nærföt, húfur, sokka og vettlinga annaðhvort í hönd- unum eða í prjónavél. Og að sauma nýjar flíkur upp úr gömlum fötum var það sem mamma var svo flink við. Hún spretti upp kápum og frökkum sem henni áskotnuðust, sneri röng- unni út og saumaði á handsnúnu saumavélina sína hverskonar tísku- flíkur á okkur, sem engan hefði grun- að að ekki væru úr nýjum efnum eða hannaðar af frægustu tískukóngum. Mamma var ein af þessum konum sem eru alltaf að gera eitthvað, iðju- semi hennar var einstök. Hún heklaði dúka og gardínur, prjónaði lopapeys- ur, saumaði og ræktaði garðinn sinn allt til síðasta dags. Þá var hún liðtæk ef einhver falaðist eftir aðstoð henn- ar, heima og að heiman, sama hver verkefnin voru. Hvort það var að gæta heimilis og barna fyrir okkur eða sauma gardínur í heilu íbúðirnar og allt þar á milli. Þá einnig tók hún að sér að ábyrgjast lán einstaklings í fjölskyldunni sem ekki gat leitað ann- að og varð sú ábyrgð mömmu til þess að endanlega varð aðskilnaður á milli okkar systkinanna, en sá aðskilnaður var alltaf fyrir hendi vegna ágangs sérstaklega Helga, sem vildi fá full yf- irráð og eignarhald á Þursstöðum eft- ir að pabbi dó. Þurfti mamma ítrekað, þá á níræðisaldri, að leita aðstoðar lögreglu varðandi öryggi sitt vegna hótana frá systkinum mínum. Á bernskuárum okkar barna hennar dekraði hún við okkur. Hún lagði á sig mikla vinnu okkar vegna, t.d. vorum við ávallt best klædd og fínust til fara og það á þessum fyrstu árum lýðveld- isins þegar skortur og skömmtun vegna viðskiptahafta var allsráðandi á Íslandi. Nei okkur skorti aldrei neitt. Og þá gleymi ég ekki hversu fínar við systurnar vorum í rauðu flauelsupphlutunum sem mamma saumaði á okkur, hún skreytti þá og puntaði af svo mikilli natni og metnaði fyrir okkar hönd. Elsku mamma mín, þegar ég núna rifja upp ævi þína þá rifjast upp fjöld- inn allur af þeim góðu minningum sem ég á frá æskuárum mínum og tár rennur niður kinn. Minningar úr fal- legu sveitinni minni á Þursstöðum, þar sem afi minn og amma, Helgi Jón- as Jónsson og Guðrún Magnea Þórð- ardóttir, byggðu sér bæ sinn … Og þar á eftir pabbi minn. Á þeim stað þaðan sem útsýnið er óviðjafnanlega fallegt út yfir allan Borgarfjörðinn al- settan skerjum og eyjum út að sjón- deildarhring þar sem himinn og haf renna saman í eitt. Æðarfuglinn sem tekið hefur sér búsetu í eyjunum með unga sína nýskriðna úr eggjum á sundi í ætisleit. Þá fýllinn í klettunum sem af miklu miskunnarleysi sendir óboðnum gestum illa lyktandi lýsis- gusur ef hann telur öryggi hreiðurs síns ógnað og sendlingurinn í flæð- armálinu sem hreyfir fætur sína svo ört að mannlegt auga hættir að skynja hreyfinguna, það er sem hann líði áfram áreynslulaust … Þessi ein- staka fjallasýn þar sem öll Skarðs- heiðin og Hafnarfjallið gnæfa yfir öllu svo nálæg og voldug með Akrafjallið sunnar í fjarska. Þarna í firðinum er líka Digranesið og Brákarey gegnt Þursstöðum en þar er Borgarnes- kauptún byggt á og teygir sig langt fram í sjó … Þá sumarkvöldin þegar sólin, rétt áður en hún hverfur á bak við Snæfellsnesfjallgarðinn, kastar geislum sínum á vesturhimininn og litar hann eldrauðan, það er sem him- inninn standi í björtu báli … Þvílík fegurð og þvílík forréttindi að hafa fengið að alast upp í svo fögru um- hverfi. Hvergi annars staðar en þarna hefði ég frekar kosið að hafa slitið barnsskónum. Ég þakka þér, mamma mín, fyrir allt og allt. Og allt það ómetanlega sem þú gerðir fyrir börn- in mín öll, þú stóðst alltaf við hlið okk- ar. Megirðu hvíla í friði, elsku mamma mín, hjá góðum Guði okkar. Guðrún Magnea Helgadóttir. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Samúðarblóm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.