Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 39

Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 39 Hinn 25. mars síð- astliðinn kvaddi ég elskulega frænku mína, hún þurfti að lúta í lægra haldi fyrir erfiðum sjúkdómi. Hrönn var besta frænka sem hægt var að hugsa sér, hlý og góð, alltaf áhugasöm um allt sem ég gerði. Hún fylgdist vel með skóla- göngu minni og ég fann hversu stolt hún var af mér. Það er erfitt að sætta sig við að hún hafi þurft að kveðja, vegir guðs eru sannarlega órannsakanlegir. Í hjarta mínu geymi ég mikið að góðum minningum, öll aðfangadags- kvöldin okkar, alveg frá því ég man eftir mér, öll matarboðin í Jakasel- inu, þegar hún renndi við í kaffi á leiðinni heim úr vinnunni, og síðasta heimsóknin, þegar við sátum saman og borðuðum uppúr stórum konfekt- kassa og hlógum, sama hvað gekk á, hún hafði alltaf húmorinn í lagi. Ég er svo sannarlega rík af minn- ingum, sem ég geymi um ókomna tíð. Ég kveð þessa frábæru frænku með mikilli sorg, missir okkar er mikill. Elsku Jónas, Kalli, Doddi og fjöl- skylda, Guð gefi ykkur styrk og veiti ykkur huggun. Elsku frænka, minning þín lifir, hvíl í friði að eilífu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Þín litla frænka Eyrún. Mig langar að minnast elsku frænku minnar Hrannar í nokkrum orðum. Þegar Hrönn hringdi í mig fyrir rúmu ári að segja mér að hún HRÖNN ÞÓRÐARDÓTTIR ✝ Hrönn Þórðar-dóttir fæddist í Reykjavík 4. maí 1944. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 16. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Mos- fellskirkju fimmtu- daginn 25. mars. væri orðin veik fór sól- in bak við skýin. Ég á fá orð til að lýsa því hversu harmi slegin ég varð þegar Jónas mað- urinn hennar hringdi að segja mér að hún væri látin. Það er sárt að missa frænku eins og Hrönn, en gleði yfir því að hafa átt margar góðar stundir með henni. Hrönn lifði fyrir fjöl- skylduna sína og var einstaklega góð mamma sona sinna, Dodda Geirs og Kalla. Henni þótti líka mikið vænt um barnabörnin sín, Önnu Lind, Gígju Hrönn og Krist- ján, og talaði mikið um þau og hlakkaði alltaf mikið til að hitta þau. Hrönn var mikil barnagæla og var sérstaklega góð við ungt fólk og átti þess vegna stórt pláss í mörgum ungum hjörtum. Hún leyfði syni mínum, Richard, að búa hjá sinni fjölskyldu eitt sumar og hann mun alltaf vera henni þakklátur fyrir það og talar enn um hvað hún hafi verið honum góð. Hrönn var sérstaklega vel gefin og dugleg strax frá barnæsku og tókst að gera allt sem hún ætlaði sér. Við urðum fljótt góðar vinkonur sem litlar stelpur og sá vinskapur var ævilangur. Þótt ég byggi í Eng- landi og hún á Íslandi síðustu 35 ár- in var vinskapur okkar alltaf jafn sterkur. Hrönn var dugleg að heim- sækja mig og mína fjölskyldu og við þökkum henni fyrir það, því okkur fannst alltaf svo gaman að fá hana til okkar. Það var oftast Hrönn sem tók á móti mér á flugvellinum þegar ég kom til Íslands og ég þakka henni það og það mun aldrei verða eins að koma án hennar. Mér fannst sárt að geta ekki fylgt Hrönn síðasta spölinn en var nýbúin að vera á Íslandi og gat heimsótt hana daglega og við kvöddumst þá. Það voru góðar stundir því við töl- uðum um gamla daga og allt það sem við höfðum gert saman í gegn- um árin. Hrönn var andlega hress og vildi minnst tala um sín veikindi og vildi bara tala um það skemmti- lega og góða sem hafði gerst í henn- ar lífi. Hún var ekki búin að gefa upp vonina um að fá bata og talaði um að hún og Jónas færu til Spánar í sum- ar. Hrönn kvaddi mig í gegnum árin með því að segja: Við hittustum fljótlega, hressar og kátar og það er góð minning að síðast þegar við hitt- umst vorum við það þótt hún væri svona veik. Ég þakka Hrönn fyrir vinskapinn og allar góðu stundirnar sem við átt- um saman og bið algóðan Guð að geyma hana og varðveita. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Elsku Jónas, Kalli, Doddi og öll fjölskyldan okkar, megi Guð styrkja ykkur og vernda á þessum erfiðu tímum og í framtíðinni. Jonny frænka. Björt er minningin um hana Hrönn frænku okkar, sem barðist svo hetjulega við sjúkdóm sinn. Söknuður er orðið sem kemur upp í hugann þegar ég horfi á alla í kring- um hana kveðja. Eiginmaður og synir, fjölskylda og vinir, öll erum við þakklát fyrir að fá að vera sam- ferða svo góðri, gáfaðri og skemmti- legri konu sem hún var, hún elsku Hrönn. Við sem sitjum eftir eigum öll góðu minningarnar um jólin, ára- mótin og allar hinar óteljandi góðu samverustundirnar með henni. Það var aðdáunarvert að fylgjast með hversu elskulegur, natinn, og góður vinur hann Jónas reyndist konu sinni í þeim erfiðu veikindum sem hún barðist við. Alltaf var samt svo stutt í brosið hennar blíða þó erfitt ætti hún. Bros, ást og virðing eru orð mín til hennar. Þangað til næst, elsku Hrönn, hafðu þökk fyrir allt og allt. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund, fagurt með frjóvgum hreina fyrst um dags morgun stund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blóð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Þín Unnur Guðný. Með nokkrum fátæk- legum orðum langar mig, fyrir hönd fjöl- skyldunnar úr læknis- húsinu, að minnast hennar Steinu sem nú er til moldar borin og þakka fyrir áratuga langa samfylgd og vináttu. Nágrenni okkar hófst fljótt eftir að við komum til Ólafsvíkur haustið 1944 og stóð í tæp tuttugu ár, hún í Arnarhvoli og við í Sunnuhvoli, hlið við hlið „út með stíg“ eins og sagt var í gamla daga. Við henni Steinu virtist blasa góð og björt framtíð með dugnaðarmann, útgerð, nýtt hús, og tvær litlar tápmiklar dætur. Ekki er þó allt sem sýnist. Fljótt var að henni mikill harmur kveðinn, þegar Lárus hennar og fé- lagar hans fórust hér uppi í lands- steinum haustið 1947. Í einni svipan kollvarpaðist allt hennar líf og þá reyndi af fullum þunga á atgervi hinn- STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR ✝ Steinunn Þor-steinsdóttir fæddist í Ólafsvík 28. júní 1922. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudag- inn 28. mars síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Ólafsvíkurkirkju 10. apríl. ar ungu konu. Víst bognaði hún og brákað- ist, en rétti sig aftur eins og kjörviða er sið- ur. Seinna kom að því að þau rugluðu saman reytum sínum, hún og Haukur Sigtryggsson. Þeim varð fimm barna auðið og lifa fjögur. Svo liðu árin og maður sá hópinn stækka og dafna. Allt er þetta fólk löngu komið á lífsins ak- ur og yrkir hann vel. Synirnir í útgerðinni og dætur tvær í Danmörku og ein í Reykjavík. Steina og Haukur höfðu góða nærveru og óteljandi urðu stundirnar sem maður átti í eldhúsinu í Arnarhvoli yfir kaffisopa og sögum af öllu mögulegu, því húsbóndinn var sérlega laginn við að halda áheyrend- um við efnið og húsfreyjan óspör á glaðlyndið, hláturinn, og kaffið. Öll þeirra elskulegheit ganga svo aftur í niðjum þeirra, þess hefur maður óspart notið í áranna rás, bæði hér heima og svo ekki síður í Sommer- sted. Fyrir það að hafa kynnst henni Steinu og hennar fólki þökkum við af heilum hug, og biðjum Guðs blessun- ar öllum þeim er nú sakna sárast. Pálína, Halldóra, Jón og Bjarni Arngrímssynir. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Englasteinar Einstakir legsteinar Elskulegi sonur okkar og bróðir, ARON RAFN JÓHANNESSON, Eyjahrauni 6, Þorlákshöfn, sem lést fimmtudaginn 15. apríl, verður jarð- sunginn frá Þorlákskirkju laugardaginn 24. apríl kl. 14.00. Sigríður Garðarsdóttir, Jóhannes G. Brynleifsson, Pétur Freyr Jóhannesson, Númi Snær Jóhannesson. Elsku konan mín og systir okkar, SVANHILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR frá Djúpalæk, Krummahólum 2, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 8. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á deild 11-E Landspítala við Hringbraut. Árni Sigurðsson, Aðalsteinn Þórarinsson, Þórdís Þórarinsdóttir og aðrir vandamenn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, EYFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR frá Nefsholti, áður til heimilis í Austurbrún 6, lést á öldrunarheimilinu Víðinesi, Kjalarnesi, þriðjudaginn 20. apríl. Sigríður Ásta Guðmundsdóttir, Þóra Vilbergsdóttir, Kristinn Guðnason, Guðmundur Guðnason, Vilberg Guðnason, Eyþór Guðnason, langömmubörn og langalangömmubarn. Frændi minn og vinur, SIGURÐUR ELÍS SIGURJÓNSSON, Vegamótum, Þórshöfn, lést á dvalarheimilinu Nausti þriðjudaginn 20. apríl 2004. Útförin fer fram frá Þórshafnarkirkju föstudaginn 30. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Sigurjón Ágústsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför GUÐMUNDAR MÁS BRYNJÓLFSSONAR, Breiðagerði 19, Reykjavík. Sigríður M. Þorbjarnardóttir, Una María Guðmundsdóttir, Sólrún Erla Guðmundsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, ODDUR THORARENSEN fyrrv. sóknarprestur, lést á dvalarheimilinu Grund þriðjudaginn 20. apríl. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Óskar Ingi Thorarensen, Jóhann Thorarensen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.