Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 43

Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 43 ÍRLAND hefur stigið mikilvægt skref í tóbaksvörnum og bannað reyk- ingar á öllum opinberum stöðum. Bann þetta nær til allra veitingastaða og tryggir starfsfólki þau sjálfsögðu réttindi að þurfa ekki að vera í tóbaks- reyk í vinnunni – að ekki sé minnst á gestina. Það er ástæða til að samgleðj- ast Írum með að vera fyrstir Evrópuþjóða og ef til vill fyrsta þjóðin í heiminum til að stíga þetta skref. Það verður jafnframt spennandi að sjá hvernig þeim reiðir af með innleiðingu þess- ara nýju laga og hvernig almenningur kemur til með að bregðast við þeim. Á næstu vikum mun Malta taka upp svipuð lög auk þess sem frændur vorir Norð- menn stíga þetta skref 1. júní. Svíar stefna á gera slíkt hið sama árið 2005. Nokkur ár eru síðan byrjað var að banna reykingar á öllum opinberum stöðum á ýmsum land- svæðum í Bandaríkjunum sem tryggði starfsfólki og gestum þessi bættu lífsgæði. Nú er hvert fylkið á fætur öðru að taka upp þessa stefnu. Rúmt ár er liðið frá því lög tóku gildi í New York borg sem tryggja starfsfólki rétt til reyklauss umhverfis í vinnunni, þar með talið á veitinga- húsum og börum. Í nýlegu viðtali segir Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, að lögin hafi fyrst og fremst verið sett til að tryggja öryggi starfsfólksins en þau hafi haft ýmis önnur jákvæð áhrif svo sem að velta veitingastaða hafi aukist um 8,7%, stöðunum hafi fjölgað og starfsfólki einnig. Michael Bloom- berg segir að þó að andstæðingar bannsins á sínum tíma hefðu fundið því allt til foráttu og í raun talið það óframkvæmanlegt hafi annað komið í ljós. Hann segir staðina hreinni og að fólk virði almennt bannið. Samkvæmt niðurstöðum þriggja kannana á síðasta ári um daglegar reykingar í aldurshópnum 18–69 ára reykja tæplega 24% Ís- lendinga. Ef notaður er aldurshópurinn 15–89, sem margar þjóðir miða við, er tíðnin tæplega 22%. Margir halda að þessar tölur séu mun hærri. Fyrir hvern reykj- andi einstakling eru því rúmlega þrír sem ekki reykja. Þegar komið er inn í strætisvagn, flugvél, verslun eða banka finnst flestum sjálfsagt að þar sé ekki reykt. Þegar hins vegar kemur að því að kaupa þjónustu á veitingastað blasir allt annað umhverfi við. Samkvæmt lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002 má leyfa reykingar á veitinga- og skemmtistöðum á afmörkuðum svæð- um, en tryggja skal fullnægjandi loft- ræstingu. Meiri hluti veitingarýmis skal þó ávallt vera reyklaus og tryggja skal að aðgangur að því liggi ekki um reykingasvæði. Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir tveimur árum fóru 49 af 50 veit- ingastöðum sem heimsóttir voru ekki að lögum. Þá var gerð könnun í maí 2002 fyrir Tóbaksvarnaráð þar sem spurt var hvort fólk færi oftar eða sjaldnar á veitingastaði eða kaffihús ef þessir staðir væru alveg reyklausir. Niðurstaðan var sú að tæplega 80% færu jafnoft eða oftar ef þessir staðir yrðu alveg reyklausir. Þetta eru svip- aðar tölur og Írar höfðu undir höndum frá sínum könnunum. Skaðsemi reykinga má fyrst og fremst rekja til þeirra þúsunda efna- sambanda sem verða til í reyknum. Þetta er flókið efnasamband sem verður til við bruna þeirra fjölmörgu efna sem sett er í tóbakið af framleið- endum, auk tóbaksins sjálfs. Reyk- urinn fer ekki í manngreinarálit held- ur skaðar alla sem fyrir honum verða. Reykurinn þekkir heldur ekki lög og reglugerðir og svífur yfir öll mörk reyksvæða og reyklausra svæða. ,,Ef þú vilt ekki reyk getur þú valið aðra veitingastaði“ eru rök sem verða vonandi jafnhjákátleg og að sagt yrði við þig í dag að þú gætir þá alveg tekið reyklausa strætisvagninn eða farið í reyklausa bankann. Það augljósa er að þeir sem kjósa og vilja ekki anda að sér eiturmett- uðum og skaðlegum reyknum eiga ekki að þurfa þess. Það er vonandi tímanna tákn að þjóðir skuli annaðhvort vera búnar að ákveða bann við reykingum á öllum opinberum stöðum eða eru með slík lög og reglugerðir í smíðum. Vonandi eigum við Íslendingar ekki eftir að sitja eftir í þessari jákvæðu þróun og getum í auknu mæli farið að snúa okk- ur að því að ala upp kynslóðir sem líta ekki á reykingar sem valkost. Jákvæð þróun Viðar Jensson skrifar um tóbaksvarnir ’Það er vonandi tím-anna tákn að þjóðir skuli annaðhvort vera búnar að ákveða bann við reykingum á öllum opinberum stöðum eða eru með slík lög og reglugerðir í smíðum. ‘ Viðar Jensson Höfundur er starfsmaður Lýð- heilsustöðvar. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.