Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 52

Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 52
DAGBÓK 52 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Vigri RE vænt- anlegur. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Ikar vænt- anlegt. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðjudaga kl. 16–18. sími 867 7251. Fjölskylduhjálp Ís- lands Eskihlíð 2–4, í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016. Mannamót Aflagrandi 40. Heim- sókn í Seðlabankann 27. apríl nk. Bankinn skoðaður undir leið- sögn Stefáns Jóhanns. Kaffiveitingar í boði bankans. Rúta kr. 300. Skráning í Aflagranda. Árskógar 4. Hand- verkssýning verður föstudaginn 23. apríl kl. 9–16.30 og laug- ardaginn 24. apríl kl. 13–16.30 apríl. Bingó fellur niður föstudag- inn 23. apríl. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraun- seli. Leikhúsferð 21. maí. Skráning er haf- in. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Starfsfólk sendir þátttakendum, samstarfsaðilum og öllum velunnurum bestu óskir um gleði- legt sumar með þakk- læti fyrir frábært starf í vetur. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun sund- leikfimi í Grafarvogs- laug kl. 9.30. Kvenfélagið Hrönn, leikhúsferð á Tenórinn í Iðnó sunnudaginn 25. apríl kl. 20. FÁÍA. Leikfimin fellur niður í dag. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufu- tími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud.: Kl. 18.15, Seltjarnar- neskirkja, Seltjarn- arnesi. Miðvikud.: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogi og Egils- staðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud.: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud.: Kl. 20, Víðistaðakirkja, Hafnarfjörður. Laug- ard.: Kl. 10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík, og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl. 19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 genga að Katt- holti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar almennu göngufólki og gönguhópum frá kl. 10–11.30 alla virka daga. Blóðbankabílinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blod- bankinn.is. Minningarkort Minningarkort Sjálfs- bjargar félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu fást hjá Sjálfsbjörg fé- lagi fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu, Há- túni 12, sími 551 7868 Kortin er einnig hægt að panta með tölvu- pósti, rfelag@sjalfs- bjorg.is Kortin eru innheimt með gíróseðli. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingardeildar Landspítalans Kópa- vogi (fyrrverandi Kópavogshæli), s. 560 2700 og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551 5941 gegn heimsendingu gíróseð- ils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í s. 565 5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í s. 588 9390. Í dag er fimmtudagur 22. apríl, 113. dagur ársins 2004, sumar- dagurinn fyrsti. Orð dagsins: Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann. (Mt. 7, 14.)     Gylfi Ólafsson er einnhinna fjölmörgu sem halda úti svokallaðri bloggsíðu, þar sem fólk birtir hugrenningar sín- ar. Ekki er mjög algengt að bloggsíður séu helg- aðar stjórnmála- viðhorfum, en Gylfi ligg- ur ekki á skoðunum sínum og birtir margar slíkar hugleiðingar. Slóð- in er gylfiolafsson.blog- spot.com.     Í nýlegum pistli víkurGylfi að ritstjórn- argrein á politik.is. Gef- um honum orðið: „Nú er stutt síðan ritstjórn- argrein birtist, sem bar nafnið „Lánsama eyland þar sem allir menn eru jafnir en ekki lítilsvirtir – ekki enn“. Þar er talað um jafnrétti. Mig langar til þess að leiðrétta það sem þar kemur fram,“ segir Gylfi og vitnar í greinina:     Jafnrétti meðal fólks erþað að allir sama hverrar trúar, kyn- hneigðar, kynþáttar og kyns fólk er hafi það jafna möguleika til að nýta sína hæfileika og getu. Tækifærin bjóðist öllum sem hlut geta átt að máli. Þetta er eitthvað sem flestir geta samþykkt og styðja að minnsta kosti í orði en ákaflega margir guggna á borði.“     Um þessa klausu segirGylfi: „Þetta sam- þykki ég ekki. Jafnrétti er ekki að allir hafi jafna möguleika, heldur jafnan rétt (sbr. orðabókina). Stelpa sem á ríkan pabba hefur alltaf meiri mögu- leika á að kaupa sér íbúð heldur en stelpa sem á fá- tækan pabba. Þær hafa hins vegar sama rétt til þess að kaupa sér íbúð.     Jafnrétti virðist í með-förum vinstrimanna alltaf snúast um að fá það ókeypis sem þeim finnst mikilvægt. Þeir segja t.d. að menntun sé mikilvæg og þar með sé það jafn- rétti að fá menntunina ókeypis.     Mikið verk bíðurvinstrimanna, því samkvæmt þeirra skil- greiningu ríkir enn ekki jafnrétti til íbúðakaupa (við þurfum að borga af lánunum), enn ríkir ekki jafnrétti til bílakaupa, ekki er jafnrétti til utan- landsferða (er ekki mik- ilvægt að allir fái að sjá aðra menningu en þá ís- lensku?), enn ríkir ekki jafnrétti til tímarita- kaupa og enn ríkir ekkert jafnrétti til matarinn- kaupa, því enn fá þeir ríku að kaupa betri ávexti og kjarnríkara brauð- meti.     Látið bara peningaskattgreiðenda í friði og veitið okkur hið eina sanna jafnrétti; jafnrétti til að gera það við sinn tíma og sína peninga sem hver og einn vill.“ STAKSTEINAR Jafnir möguleikar eða jafn réttur? Víkverji skrifar... Víkverji þarf að brjóta eigin boð-orð í umfjöllunarefni dagsins sem – ef Víkverji þekkir rétt mann- legan breyskleika og sjálfhverfni – mun hafa verið tilefni frétta í gær og í dag. Boðorðið er eitthvað á þá leið að blaðamenn eigi ekki að skrifa eða fjalla um sjálfa sig eða eigin störf í fjölmiðlum nema í algerum und- antekningartilvikum. Að mati Vík- verja eiga hugleiðingar eða pistlar um starf fjölmiðlamanna almennt ekkert sérstakt erindi við almenning – slík skrif eiga nær undantekning- arlaust heima í greinum á heimasíðu Blaðamannafélagsins, í blaði félags- ins eða á sérstökum pressukvöldum þess. x x x Tíðarandinn sem lofar stöðuga já-kvæðni, hressleika, heilbrigði o.s.frv. hefur ekki haft mikil áhrif á Víkverja sem öndvert við straum aldar er ákaflega neikvæður og and- stæðingur tilskipaðrar glaðlegrar og alltof heilbrigðrar hjarðmennsku nútímans. Fólk sem er í heilun hefur haft orð á að frá Víkverja stafi mikl- ar neikvæðar bylgjur og niðurríf- andi köld leiðni. Víkverji á sér örfáa félagslega vanhæfa skoðanabræður en eðli málsins samkvæmt hefur aldrei komið til tals að stofna samtök af neinu tagi. En að umfjöllunarefni dagsins sem að sjálfsögðu er pressuball blaðamanna með æsispennandi verðlaunaafhendingu í mörgum flokkum. Víkverji er, eðli sínu sam- kvæmt, frekar neikvæður gagnvart þessu fyrirtæki. En svo allrar sann- girni sé gætt þá hefur hann ekki á móti því að blaðamenn slái upp balli og veiti verðlaun. Það er allt í besta lagi með það enda situr Víkverji bara heima og sleppur við að leigja smóking, hvítta í sér tennurnar og fá harðsperrur í andlitið við að smæla framan í kollegana og væntanlega líka myndavélar og ljósmyndara. Tilnefningar til verðlaunanna þóttu fjölmiðlamönnum mikið frétta- efni og var frá þeim greint í fréttum í sjónvarpi, útvarpi og blöðunum þannig að Víkverji rennir í grun að ekki verði áhuginn minni á gala- kvöldinu sjálfu þótt hann viti það ekki fyrir víst þegar hann skrifar þessar línur. Víkverja finnst ballið og verðlaunin vera heldur ómerki- legt fréttaefni sem einna helst lýsir því hversu uppteknir fjölmiðlamenn virðast stundum vera af sjálfum sér. Eða hvað þætti mönnum um ef bif- vélavirkjar héldu uppskeruhátíð þar sem veitt væru verðlaun í flokknum best útfærða pústviðgerðin, besta bremsuklossaviðgerðin og síðan aðalverðlaun í flokknum viðgerð árs- ins og því væri slegið upp í máli og myndum í öllum fjölmiðlum lands- ins? Reuters Gjald fyrir kattareign ÞAÐ var ung kona sem hringdi í mig eftir að hafa lesið í Fréttablaðinu 19. apríl sl. að starfshópur væri að vinna að því að undirbúa skráningarskyldu og gjald á ketti. Þessi unga kona er sjúk- lingur og býr ein. Hún var alveg að gefast upp þegar mjálmað var við dyrnar hjá henni og í rigningunni stóð lítill grindhoraður kettling- ur sem hún tók inn til sín. Hún reyndi að finna eig- andann en fann ekki. Þetta var stuttu fyrir síðustu jól og nú var hún ekki ein um jólin. Þegar hún las þetta í Fréttablaðinu var hún að hugsa um hversu hátt þetta gjald yrði og hvort hún yrði að láta kisu frá sér, sem er sólargeislinn í hennar lífi, vegna þess. Ég sá í fréttum í fyrra að það hefði verið rannsakað að gæludýr gætu hjálpað bæði eldra fólki, sjúkling- um og einmana fólki, gætu jafnvel lagað heilsu þess. Ég vil því benda því fólki sem er í þessum starfshóp á að kynna sér þessar rann- sóknir. Það ætti aldrei að vera forréttindi hinna ríku að eiga gæludýr. Sigurðu Helgi Guðjóns- son, formaður Húseigenda- félagsins, var í Frétta- blaðinu vegna sama máls. Þegar segir hann að mikið sé kvartað undan ágangi katta – en ég hef heyrt fólk líka kvarta yfir því að það sjái ekki kött, það sé orðið lítið af köttum og það sakn- ar þess. Við viljum manneskju- lega borg, en ekki að dýrin séu hrakin á brott. Við er- um nokkur hér sem langar að stofna félag og leggja þessu máli lið. Þeir sem áhuga hafa geta haft sam- band við mig í síma 663 5207. Sigrún Á. Reynisdóttir. Mengun frá bílum í gangi ÖKUMENN flutningabíla sem eru að koma með mat- væli í verslanir skilja bílana oft eftir í gangi. Þetta eru yfirleitt dísilbílar og meng- unin er gríðarleg, svartur mökkur stendur aftur úr bílunum. Oft nær stybban alla leið inn í verslanirnar. Þetta hef ég líka séð hjá sjoppum. Það er helst að drepið sé á bílunum frá Mjólkursamsölunni. Beini ég því þeim tilmæl- um til bílstjóra þessara bíla að drepa á bílnum á meðan þeir eru að afhlaða þá. Í Englandi hefur verið mikið um asmatilfelli síð- ustu ár og þar sér varla til sólar fyrir mengun af bíl- um. Velti ég því fyrir mér hvort svona mengun hafi ekki áhrif á börn, þ.e. að þau fái t.d. ofnæmi, asma eða bólgur í ennis- og kinn- holur. Rúna. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 mjög veikur, 8 með- vindur, 9 hörkufrosts, 10 aðgæti, 11 munnbiti, 13 rás, 15 nagdýrs, 18 vinn- ingur, 21 tryllt, 22 sori, 23 æviskeiðið, 24 blys. LÓÐRÉTT 2 viðdvöl, 3 þolna, 4 votir, 5 snúin, 6 ljómi, 7 duft, 12 mánuður, 14 vafi, 15 stæk, 16 syllu, 17 stillt, 18 hvell, 19 borguðu, 20 streymdi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fölur, 4 skörp, 7 ræfil, 8 aular, 9 arð, 11 aurs, 13 egna, 14 ótukt, 15 hnýt, 17 alda, 20 ata, 22 afinn, 23 rúmar, 24 nagga, 25 auður. Lóðrétt: 1 förla, 2 lofar, 3 rola, 4 spað, 5 öflug, 6 púrra, 10 raust, 12 sót, 13 eta, 15 hjarn, 16 ýring, 18 lamað, 19 akrar, 20 ansa, 21 arða. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.