Morgunblaðið - 22.04.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 22.04.2004, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 57 RAGNA Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir komust í gær í átta manna úrslit í tvíliðaleik á Evr- ópumeistaramótinu í badminton sem nú stendur yfir í Genf í Sviss. Þær sátu hjá í 32 manna úrslit- unum en höfðu betur á móti Mayu Ivanovu og Diönu Dimovu frá Búlgaríu, 2:1, í 16 manna úrslit- um, 4:15, 15:7 og 15:7. Andstæð- ingar Rögnu og Söru í átta manna úrslitunum verða Mia Audina og Lotte Bruil frá Hollandi og eftir því sem næst verður komist fer sú viðureign fram í dag. Þetta er síðasta mótið sem þær stöllur taka þátt í sem gefur þeim stig inn á heimslista badminton- manna, en staða á þeim lista um næstu mánaðamót ræður því hverjum verður boðið að taka þátt í badmintonkeppni Ólympíu- leikanna í Aþenu í sumar. Ragna og Sara eru nærri því að tryggja sér öruggt sæti og því getur góð- ur árangur á þessu móti gefið þeim mikilvæg stig inn á listann. Þær tóku einnig þátt í einliða- leik en báðar heltust þær úr lest- inni í fyrstu umferð. Ragna, sem er nýkrýndur Íslandsmeistari, tap- aði fyrir enskri stúlku, 11:2 og 11:0. Sara tapaði einnig í tveimur lotum, báðum lyktaði 11:2. Ragna og Sara eru einu íslensku badmin- tonleikararnir sem taka þátt í Evrópumeistaramótinu að þessu sinni. Ragna og Sara í átta manna úrslit á EM í Genf FÓLK  EFTIR að Celtic hafði leikið 32 deildarleiki án taps á keppnistíma- bilinu, varð liðið að þola sitt fyrsta tap á keppnistímabilinu í gærkvöldi á heimavelli sínum í Glasgow, Park- head. Það voru leikmenn Aberdeen sem stöðvuðu sigurgöngu Celtic með sigurmarki David Zdrilic eftir að komið var fram yfir venjulegan leiktíma, 2:1. Henrik Larsson skor- aði fyrsta mark leiksins og var það 99. deildarmark Celtic í vetur.  DRAGAN Stojanovic, serbneskur knattspyrnumaður sem hefur leikið með Fjarðabyggð og Þrótti í Nes- kaupstað undanfarin sex ár, er genginn til liðs við 1. deildarlið Þórs á Akureyri. Stojanovic er 36 ára og var þjálfari og leikmaður Fjarða- byggðar í 3. deild á síðasta ári.  HEIÐAR Davíð Bragason, kylf- ingur úr Mosfellsbæ, hefur leik í dag á Opna spænska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Kanaríeyjum. Heiðar Davíð vann sér rétt til að keppa í mótinu, sem er hluti af evr- ópsku mótaröðinni, með sigri á móti á Spáni fyrr í vetur.  KAPPINN hefur leik á fyrstu holu klukkan 12.45 að íslenskum tíma ásamt Daniel Gaunt frá Ástralíu og Carlosi Balmased frá Spáni. Heiðar Davíð hefur dvalið á Spáni undan- farnar vikur við æfingar og segist vera tilbúinn í slaginn.  GEOFFREY Richmond, sem starfað hefur sem ráðgjafi stjórnar Leeds, er hættur og er ástæðan sögð heilsufar hans og persónulegar ástæður. Richmond var um tíma forseti Bradford en hefur undan- farna mánuði aðstoðað Leeds við að koma undir sig fótunum á nýjan leik með endurskipulagningu og fjár- mögnun. Sonur hans, David, mun með þessu ráða ansi miklu hjá Leeds.  GEORGE Hardwick, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins í knatt- spyrnu, lést á mánudaginn, 84 ára að aldri. Hardwick lék með Middles- brough og þjálfaði hollenska landsli- ið á árunum 1959–61. Hann er einn þeirra 100 sem settir voru í flokkinn „Goðsögn fótboltans“ árið 1998. Hann lék 17 landsleiki í síðari heimsstyrjöldinni og var fyrirliði í þeim öllum, en á þessum árum var hann í konunglega flughernum. Eft- ir stríðið lék hann 12 landsleiki en varð að hætta vegna hnémeiðsla. Stytta af honum stendur utan við Riversite Stadium í Middlesbrough.  ALAN Shearer, framherji New- castle, segist tilbúinn til að fórna svo til öllu fyrir sigur í UEFA bik- arnum. Newcastle tekur á móti Marseille í dag. „Auðvitað vildi ég bæði ná langt í deildinni heima og UEFA-bikarnum, það væri það æskilegasta. En í raunveruleikanum eins og hann er núna væri ég til í að fórna deildinni fyrir UEFA-bikarn- inn,“ sagði Shearer í gær. ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknattleik hafa hafið við- ræður við Atla Hilmarsson um að hann verði næsti þjálfari liðsins. Stjórnarmaður í handknattleiks- deild Hauka staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að rætt hefði verið við Atla og að hann væri efstur á óskalista félagsins um að taka við liðinu. Atli ákvað að hætta sem þjálfari hjá Fries- enheim í Þýskalandi síðastliðið vor eftir eins árs starf en þar áð- ur var hann þjálfari KA og gerði liðið að Íslandsmeisturum fyrir tveimur árum. Páll Ólafsson er nú við stjórn- völinn hjá Haukum en hann tók við af Viggó Sigurðssyni þegar hann hætti störfum í byrjun febr- úar í kjölfar þess að honum var tilkynnt að samningur hans við félagið yrði ekki endurnýjaður. Páll tilkynnti strax að þetta væri aðeins til bráðabirgða og hann sæktist ekki eftir því að halda áfram með liðið á næstu leiktíð, en undir hans stjórn voru Haukar krýndir deildarmeistarar á dög- unum. Ekki eru fyrirséðar miklar breytingar á leikmannahópi Hauka fyrir næsta tímabil. Nær allir leikmenn liðsins eru samn- ingsbundnir en þó rennur samn- ingur Aliksandr Shamkuts línu- manns út í sumar og er óvíst hvort hann verður framlengdur. Þá þykir líklegt að Halldór Ing- ólfsson hætti. Haukar vilja fá Atla Leikurinn í gær var afskaplega tíð-indalítill og sumir myndu örugg- lega taka svo djúpt í árinni að segja að hann hefði verið tíðindalaus. Það á altént við um fyrri hálfleikinn sem er einn sá daufasti sem sést hefur í Meistaradeildinni. Gestirnir frá Spáni komu greinilega til leiks með það eina markmið að fá ekki á sig mark. Svo alvarlega tóku þeir þetta hlutverk sitt að þegar þeir fengu hornspyrnur í fyrri hálfleik var með herkjum að tveir leikmenn kæmu sér fyrir í og við vítateig Porto. Hvorugt lið fékk færi í fyrri hálfleik og í raun var langt frá því að leikmönnum tæk- ist að skapa hættu við mark mótherj- anna. Í síðari hálfleik fengu heimamenn þrjú þokkaleg færi, skot í slá, skalli rétt framhjá stönginni eftir auka- spyrnu og einu sinni þurfti Molina markvörður Deportivo að slá boltann af kolli heimamanna á markteignum. Andrade, sem lék í eina tíð með Porto, var rekinn af velli undir lok leiksins, danglaði laust með fætinum í Deco þar sem hann sat á vellinum, en þetta var greinilega gert til gamans því hann brosti til kappans þegar hann gerði þetta. Dómarinn var samt ekki í vafa. Rautt spjald og bann í síð- ari leiknum rétt eins og Silva sem krækti sér í gult spjald í fyrri hálfleik fyrir mótmæli. „Mér sýnist að við verðum að leika jafnvel í síðari leiknum og við gerðum á móti AC Milan þegar við unnum þá í La Coruna,“ sagði Andrade, leik- maður Deportivo eftir leikinn. Fyrir leikinn sagðist hann vera ánægður með 1:1 jafntefli en hann var að sjálf- sögðu enn ánægðari með 0:0 jafntefli. Jose Mourinho, þjálfari Porto, var ekki ánægður eftir leikinn. „Þetta var dapurt og ef lið kemur með svona ásetning til leiks og dómarinn lætur það viðgangast að menn megi ekki fá boltann án þess að vera sparkaðir niður þá verður alltaf erfitt fyrir mót- herjann að gera eitthvað. Jafnteflið er samt ekki alslæmt því við eigum eftir að leika í La Coruna og við eig- um enn möguleika. Leikmenn mínir voru mjög leiðir eftir leikinn enda vorum við með boltann nær allan tím- ann, en einhver pressa hefur sjálf- sagt verið á mínum mönnum þannig að þeir náðu ekki að skapa sér nægi- lega mörg færi,“ sagði þjálfarinn. Reuters Carlos Alberto, leikmaður Porto, hoppar yfir Jorge Andrade og félagi hans Manuel Pablo fylgist með. Varnarleikur Deportivo dugði PORTO og Deportivo la Coruna gerðu markalaust jafntefli í af- skaplega daufum leik þegar liðin mættust í fyrri leik sínum í undan- úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Leikið var í Porto og geta leikmenn Deportivo vel við unað því þeir eiga heimaleikinn eft- ir og þar hafa þeir ekki fengið á sig mark í deildinni til þessa. ROMAN Abramovich, eigandi Chelsea, ásamt stjórnarformanninum Peter Kenyon fóru hálfgerða fýluferð til Vigo á Spáni í vikunni, sólarhring áður en Chelsea spilaði einn sinn mik- ilvægasta knattspyrnuleik frá upp- hafi. Þeir félagar hugðust eiga leyni- legan fund með José Mourinho, þjálf- ara Porto, en á síðustu stundu afboð- aði Mourinho komu sína og sendi umboðsmann sinn til fundar við þá Chelsea-menn. Mourinho, sem er 41 árs, hefur skip- að sér á bekk með þeim þjálfurum sem eftirsóttastir eru, eftir frábært gengi Porto í Meistaradeildinni, og for- ráðamenn Chelsea sjá hann fyrir sér sem arftaka Ítalans Claudio Ranieris. Fýluferð Chelsea- manna til Spánar HANDKNATTLEIKSDEILD Þórs á Akureyri á í viðræðum við Rúnar Sigtryggsson, landsliðmann í handknattleik, um að hann taki að sér þjálfun liðsins á næstu leiktíð, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Mun Rúnar ekki hafa tekið því fjarri að taka að sér þjálfun hjá sínu gamla félagi en hann lék með Þór áður en hann gekk til liðs við Val, síðar Víking og Hauka áður en hann flutti til Spánar og Þýskalands þar sem hann leikur nú með 1. deild- arliðinu Wallau Massenheim. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu á dögunum þá kemur ekki til þess að Rúnar leiki með Wallau á næsta vetri og flest bendir til þess að hann flytji heim. Samhliða þjálf- un hyggst Rúnar leika með Þórslið- inu og erði það mikill styrkur fyrir liðið. Mikill hugur er í forráðamönn- um handknattleiksdeildar Þórs og hyggjast þeir blása til sóknar á handknattleiksvellinum og er koma Rúnars aðeins einn liður í sókninni, ef af komu hans verður. Þórsarar í viðræðum við Rúnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.