Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 2

Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992 FYRS# FREMST einar oddur kristjánsson: Hættir hjá VSÍ eftir samninga. sigurður gíSli pálmason: Ungur, en þó einn af kandídötunum hjá VSÍ. NYTT SKILTI SAMI SENDIHERRA Kannski er hægt að segja að þetta sé alveg pínulítill vitnisburður um ofboðslega stóra atburði. Úr sér gengin ráðstjórnin féll, ekki með brauki og bramli heldur öllu fremur með langvinnu skrölti. Nú er það ærinn starfi að fjarlægja vegsummerki hennar í stóru og smáu, á öll- um sviðum mannlífsins, og reyndar vonandi að ekki verði gengið svo langt að eyðileggja menjar sem teljast sögulegar. Heimsviðburða sér líka merki á íslandi, þótt í smáu sé. Það er búið að skipta um skilti, sendiráð Sovétríkjanna er orðið sendi- ráð Rússlands. Sendiherrann er þó hinn sami og áður, Igor Krassavin — sá sem ólíkt ýmsum kollegum sínum glaptist ekki til að ánetjast valdaránsmönnum í örvænt- ingarfullri byltingartilraun þeirra í sumar. EINAR ODDUR Á ÚTLEIÐ Allt bendir til að nú sé upp runnið síðasta samninga- stríðið sem Einar Oddur Kristjánsson berst í fyrir hönd Vinnuveitendasam- bandsins. Mun það vera ásetningur Einars Odds að víkja úr formannsstóli hjá VSÍ áður en langt um líður og sinna þeim mun betur fyrir- tæki sínu, Hjálmi á Flateyri. Þvi ríður á miklu fyrir Einar Odd að samningar verði hag- stæðir og hann fái góð eftir- mæli í starfi. Þegar hafa verið néfndir nokkrir kandidatar í þessa áhrifamiklu stöðu og eru það allt nokkuð ungir menn, sem þegar hafa komist til metorða en gætu kannski hugsað sér að seilast ennþá lengra. Þessir eru taldir helst- ir: Kristinn Björnsson, for- stjóri Skeljungs, Jóhann Óli Guðmundsson, forstjóri Securitas, og Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarformað- ur Hagkaups. GUÐRÚN FÓRNAÐI SÉR Eins og PRESSAN skýrði frá fyrir skemmstu var mikill ágreiningur í þingflokki Al- þýðubandalagsins um skipan fulltrúa í Þjóðleikhúsráð. Er- lingur Gíslason, sem er bandamaður Ólafs Ragnars Grímssonar formanns, vildi komast í ráðið, en Svavari Gestssyni og fleiri þing- mönnum leist mátulega á. Laddi, talaðir þú líka inn á aukamyndina á Strumpamyndbandinu? „Nei, en ég lék í henni Laddi, Þórhallur Sigurðsson, talaði inn á Strumpamyndina frægu. Eins heyrðust háværar raddir innan úr Þjóðleikhúsi um að Erlingur mætti ekki komast í slíka lykilstöðu, en þeir eru litlir vinir hann og Stefán Baldursson þjóðleikhús- stjóri sem reyndi að reka Brynju Benediktsdóttur, konu Erlings, úr starfi. Enda fór svo að Erlingur hreppti ekki hnossið, heldur urðu lyktir þær að Guðrún Helga- dóttir ákvað að fórna sér fyr- ir samstöðuna í flokknum. Henni mun þó hafa verið þvert um geð að gera eitt- hvað á hlut Erlings, enda er hann gamall skólabróðir hennar og ennfremur mun Brynja hafa sett upp Óvita, leikrit Guðrúnar, í tvígang. HAFNFIRÐINGAR ERU ÓMETANLEG- IR Tímamótaviðburður í ís- lenskum handbolta varð nú í vikunni og er það kannski til marks um hvað handboltinn hefur fallið í áliti hjá þjóðinni að hérumbil enginn tók eftir því. Það sem gerðist á svo- kölluðu Austurríkismóti var að Kristján Arason stór- skytta skoraði l.lOOasta mark sitt í landsleik. Endur- koma hans í landsliðið hefur semsagt haft margvíslegt gildi. Það má líka vera ljóst á markaskorun landsliðs- manna að Hafnfirðingar eru þjóðinni ómetanlegir. Næst- mestu markamennirnir eru náttúrlega líka úr Hafnar- firði, þeir Þorgils Óttar Mat- hiesen og Geir Hallsteins- son. Þó eru þeir varla nema hálfdrættingar á við Kristján með um 550 mörk hvor. VILJA ÞORSTEIN BURT Eins og kemur fram á öðr- um stað í blaðinu ríkir mikil úlfúð meðal kvikmyndagerð- armanna. Einn þeirra sem fast er sótt að er Þorsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. Tilefnið er fjárframlag íslendinga til svo- kallaðs Norræns kvikmynda- verkefnis. Þar var Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra úthlutað stórum styrk til að gera myndina „Svo á himni sem á jörðu", þó gegn því skil- yrði að íslendingar létu líka fé af hendi rakna. Var ætlunin að það yrði greitt með sér- fjárveitingu úr menntamála- ráðuneyti. Svavar Gestsson, fyrrum menntamálaráð- herra, útvegaði 10 miiljónir í þessu skyni, en auk þess gaf hann á síðustu ráðherradög- um sínum loforð um að ekki skyldi standa á að þær 14 milljónir sem vantaði upp á yrðu greiddar af ráðuneytis- fé. Var gefin út svohljóðandi skuldaviðurkenning, sem Tíu-Tíu, fyrirtæki Kristínar, þurfti.til að standa í skilum við hin Norðurlöndin. Nú þykir andstæðingum Þor- steins að þarna hafi hann ver- ið býsna auðtrúa. Hann hafi treyst því svo mjög að fjár- veitingin kæmi úr ráðuneyt- inu að hann hafi sjálfur skrif- að undir skuldaviðurkenn- inguna. Engin fjárveiting hafi hins vegar komið og því sé Kvikmyndasjóður nú gerður ábyrgur fyrir greiðslunum til Kristínar. Reyndar mun þeg- ar búið að klípa sex milljónir af ráðstöfunarfé sjóðsins vegna þessa. Hrafn Gunn- laugsson, stjórnarmaður í Kvikmyndasjóði, og stuðn- ingsmenn hans telja þetta svo alvarlegt mál að þeir vilja að Þorsteinn víki úr starfi. Ýmsir andstæðingar Hrafns hafa hins vegar brugðist við með því að samþykkja yfirlýsingu um stuðning við Þorstein. kristinn björnsson:: Líka vonarpeningur hjá VSl. þorsteinn jónsson Treysti ráöuneytinu og skrifaöi upp á skuldaviðurkenningu. hrafn gunnlaugsson: Vill Þorstein burt úr Kvikmyndasjóði. erlingur gislason: Komst ekki í Þjóðleikhúsráð. guðrún helgadóttir: Sest í ráðið en langaði ekki mikið. kristján arason: Ellefu hundruð mörk. L í T I L R Æ Ð I afhagnýtu klámi Mér er sagt að mörg stór- kostlegustu afrek manns- andans í raunvísindum hafi verið unnin fyrir slys, mis- skilning eða hreina tilviljun. Þegar allir gáfuðustu, virt- ustu og hæfustu efna- og eðl- isfræðingar veraldarinnar voru í því, fyrir nokkur- .hundruð árum, að reyna að- finna aðferð til að búa til gull — einsog það er nú gáfulegt — urðu framfarir í eðlis- og efnafræði meiri en nokkru sinni fyrr eða síðar, þó aldrei tækist að búa til gull. Menn semsagt „duttu niðrá“ allan skollann fyrir tilviljun. Og enn er þetta að ske. Arum saman hafa virtustu fræðimenn þjóðarinnar úr sálgeira félagsvísindanna verið að velta því fyrir sér hvernig haga bæri kyn- fræðslu í skólum svo það lokamarkmið næðist að strákunum yrði Ijóst að typpið er ekki bara til að pissa með því og stelpurnar þyrftu ekki frameftir öllum aldrei að vaða í villu og svíma um fjölnotagildi síns apparats. Auðvitað er Ijóst að þekk- ingarskortur í þessum efn- um getur valdið umtalsverð- um „atferlisvandá' og þess- vegna hefur það brunnið á sálvísindamönnum að finna lausn á kynfræðsluvandan- um. Nú er sú lausn fundin. Að sáldra ríðingum inní námsefni barna og myndum af köllum og kellingum að gera do-do á myndbands- spólur til afþreyingar. Hinar vinsælu mynd- bandsspólur með Strumpun- um urðu fyrir valinu en mér er sagt að Strumpamyndir endi gjarnan á samförum til glöggvunar fyrir börn. Þetta þótti svo fréttnæmt að sjónvarpið brá á dögun- um upp sýnishorni af þeim Strumpaspólum sem kváðu vera á boðstólum sem kyn- lífsfræðsla fyrir börn; afar djarfri mynd af berrassaðri konu sem ég sá ekki betur en væri að hnoða mör eða kökudeig. Ég fagna því af hjartans grunni að þessi gamla að- ferð til kynlífsfræðslu barna skuli aftur vera komin í gagnið. Hér er nefnilega um að ræða sjálfsnám með svipuðu sniði og þegar ég var barn. Við strákarnir vestur í bæ vorum aldrei í teljandi kyn- lífsfræðslusvelti. Þegar for- eldrarnir héldu að við vær- um að safna frímerkjum vor- um við að safna píkumynd- um og klámkortum og þegar foreldrarnir glöddust í hjarta sínu yfir því hvað við værum iðnir að lesa biblíusögur lás- um við „Kamasútra", ind- verska fræðibók, sem þýdd hafði verið á dönsku og hafði að geyma bæði myndir og nákvæmar lýsingar á sex- tíu aðskiljanlegum ástarlífs- stellingum sem síðan voru sannreyndar í öllum hugsan- legum skúmaskotum án þess fræðilegur möguleiki væri á því að stíga skrefið til fulls. Þegar stelpurnar þóttust vera að leika sér með dúkk- urnar sínar voru þær í raun og veru með okkur strákana einhversstaðar að húsabaki í læknaleik og það voru sko skemmtilegri læknisvitjanir en þær sem maður þarf að búa við núna, kominn á efri ár. Allir urðu, uppúr Kama- sútra á dönsku, sérfræðing- ar í kynferðismálum án þess nokkrum dytti kynfræðsla nokkurntíma í hug. Og það sem meira var. All- ir fengu yfir níu í dönsku. Með Strumpaspólunum hefur þessi aðferð verið end- urvakin. Að læða áríðandi kyn- fræðslu inni hugskot bless- aðra barnanna svona nánast með móðurmjólkinni og án þess þau verði þess vör. Það er fyllsta ástæða til að fagna þessu framtaki sem er í raun lausn á aðsteðjandi kynfræðsluvanda sálvís- indageirans. Heimanám barna í kynlífi, með aðstoð Stumpanna, verður til þess að unglingar fara ekki, vegna menntunar- skorts, að gera neina vit- leysu milli rekkjuvoðanna. Börnum landsins er opið að hefja sjálfsnám í þessari eftirsóttu fræðigrein. Eða einsog segir í vísu námsstjórans. Jæja, nú er komið klám með kynlífsfrseðslu á spólum hentar fyrir heimanám sem hæfir ekki í skólum. Flosi afsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.