Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 34

Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 34
34 ____FIMMTUDAGUR PRCSSAN 30. JANÚAR 1992_ ERLENDAR FRÉTTIR Ekki tilkippilegar þrátt fyrir karlmannlega tilburði embættismanna. Embættismenn í fjármálaráðuneytinu í Singapore leggja sig alla fram við að gera konur þar óléttar. Þær hafa hins vegar lítinn áhuga á barneignum og dekri við ríkisreknar karlrembur. Jakútía til stjarnanna Jakútía, sjálfstjórnarsvæði austast í Síberíu, hefur ákveð- ið að hleypa af stokkunum eigin geimferðaáætlun. Mikl- ar deilur standa yfir um hvort leggja skuli áherslu á að koma fyrsta Jakútanum út í geiminn eða ómönnuðu geimfari. Burtséð frá því eru embættismenn þess fullvissir að geimfar merkt Jakútíu verði komið á sporbraut um jörðu fyrir 1995. Nágranna- lönd Jakútíu hafa látið í Ijós vonir um að sporbraut geim- farsins sneiði hjá borgum og bæjum. Lloyd's stokkað upp Breska tryggingamiðlunin Lloyd’s hefur á undanförnum árum farið illa út úr hvers kyns hamförum, bæði af manna völdum og náttúru, og var á tímabili óttast að Lloyd’s liðaðist í sundur. Nú eru hafnar víðtækar breyt- j ingar á miðluninni, hinar fyrstu í 300 ár, en þær fela í sér að ábyrgð tryggingasal- anna er ekki lengur tak- markalaus. Breska tímaritið The Economist telur þó að meira þurfi að koma til. Höggdeyfður geislaspllarí Þrátt fyrir smæð geislaspil- ara hefur verið erfitt að nota þá á ferð, því þeir hökta við hverja snögga hreyfingu. Nýr Fisher-geislaspilari leysir þetta vandamál. Diskurinn er látinn snúast tvisvar sinnum hraðar og les inn tónlist 4 sek- úndur fram í tímann áður en hlustandinn heyrir hana. Jafnvel þótt spilarinn hökti er tími til þess að endurlesa þann kafla og hlustandinn tekur ekki eftir neinu mis- jöfnu. Verðið verður um tvö- falt hærra en á venjulegum spilurum. I Singapore er sagður brandari sem hljóðar eitt- hvað á þessa leið: „Settu tvo Breta með fallegri konu á eyðiey og þeir fara að berjast um hana. Settu tvo Frakka með fallegri konu á eyðiey og þeir ákveða að deila henni með sér. Settu tvo Singa- pore-búa með fallegri konu á eyðiey og f>eir bíða eftir fyrir- mælum frá ríkinu um hvað þeir eiga að gera." Brandarinn væri fyndnari ef að baki honum lægi ekki þjóðfélagsvandamál, sem er barneignaleysi meðal há- skólamenntaðra Singa- pore-búa. Þetta hefur valdið stjórnvöldum svo miklum áhyggjum að fyrmm forseti og alfaðir landsins, Lee Kuan Yew, hefur lagt til að fjöl- kvæni verði leyft.svo að nýta megi vel menntaðar konur (og þá væntanlega greindar) til undaneldis, þjóðinni til frambúðarheilla. Vandinn er ekki getuleysi, heldur öllu heldur kunnáttu- leysi. Kynfræðsla í Singapore er engin. í könnun sem gerð var árið 1990 kom í Ijós að þriðjungur aðspurðra kvenna komst ekki að því hvernig getnaður á sér stað fyrr en eftir að þær höfðu lok- ið námi. „Það veit enginn hvar á að setja hvað,” segir dr. Vytia- lingam Atputharajah, sem stóð fyrir könnuninni. Hann er kvensjúkdómafræðingur og hefur fengið til sín konur sem héldu að þær væru ófrjó- ar, en reyndust vera óspjall- aðar. Dæmi eru um hjóna- bönd sem staðið hafa í þrett- án ár án þess að til náinna kynna tækist að stofna milli hjónanna. Hámenntaðar konur eru heldur ekki gæfulegt efni í al- mennilegar eiginkonur að mati karlmanna í Singapore. Þeir hafa alist upp við undir- gefni og dekur af kvenfólks hálfu og gefa sig ekki í nein nútímahjónabönd ótilneydd- Og þá reynir ríkið að koma til bjargar. Á fertugustu hæð í fjármálaráðuneytinu í Singa- pore er stofnun sem heitir Fé- lagsþróunardeildin. Þetta er kynningar- og hjónabands- miðlun sem ríkið rekur fyrir einhleypt, háskólamenntað fólk. Þar er boðið upp á allt frá námskeiðum í snyrtingu til niðurgreiddra siglinga á skemmtiferðaskipum. Þeir sem vinna hjá ríkinu geta tek- ið sér leyfi á fullum launum til að taka þátt í því sem fjár- málaráðuneytið býður ein- hleypum upp á. En það virðist ætla að fara fyrir þessu ríkisframtaki eins og mörgum öðrum: góður ásetningur breytir ekki mannanna hjartalagi. Þrátt fyrir ríkisafskipti hefur við- koma hjá háskólamenntuð- um konum í Singapore minnkað síðustu ár og emb- ættismenn virðast ekki búa yfir ímyndunaraflinu sem þarf til að bæta úr því. 1.500 fallnir á Haítí Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að meira en 1.500 manns hafi fallið á eynni Haítí frá valda- ráni hersins þar í september síðastliðnum. Börn á glapstigum Lögreglan í Napólí er nú farin að glugga í kladda grunnskóla i borginni. Ekki svo að skilja að hún hafi sér- stakar áhyggjur af námsfram- vindu barna þar, heldur hinu, að mafían í borginni notfæri sér í auknum mæli börn og unglinga sem eiturlyfja- sendla. Foreldrar, sem ekki sjá til þess að börn þeirra gangi í skóla. eiga á hættu sekt eða forræðissviptingu. ÍSLENSKT SJÓNARHORN Gjaldþrot í velferðinni Það hefur fátt kitlað dönsku kaupmannssálina meira upp á síðkastið í hrynj- andi velferðarkerfi en gjald- þrot tveggja manna, annars vegar yfirvofandi gjaldþrot Klaus nokkurs Riskærs, fyrr- um undrabarns í fjármála- heiminum, og hins vegar uppgjör á þrotabúi Boje Niel- sens, sem eitt sinn átti að heita „ríkasti maður Dan- merkur". Gjaldþrot byggingastórlax- ins Boje (sem heitir víst Bogi upp á íslensku) varð fyrir níu árum, að því er mér skilst einkum að undirlagi fyrrver- andi félaga hans, „Smukke Axel“ Juhl-Jorgensens, en hann vildi víst koma undir sig fótunum einn og sjálfur í bransanum og leist ekki á augljósar geðveilur og of- drykkju Boje. Karlinn þver- neitaði öllu því sem heitír greiðslustöðvun — vildi að sögn ekki „láta setja sig í spennitreyju" — og heill her- skari lögfræðinga settist við það með sveittan skallann að gera upp búið. Boje flutti úr fína húsinu sínu hjá Næstved, þar sem kranarnir voru úr gulli, sundlaugin risastór og bílskúrinn fullur af dýrum bíl- um í litla íbúð á Fredriksberg og hafði ekki lengur úr að spila öðru en bótunum frá fé- lagsmálastofnun. Jú, reyndar minnir 30 milljónir eða meira (því Boje skuldaði náttúrlega níu ára skatt af milljónafúlgu sem hann kom ekki svo mik- :ð sem litlaputta á) og samt á hann eftir einar fimmtíu millj- ónir, að því er fjölmiðlar hér „B0je flutti úrfína húsinu sínu hjá Nœstved, þar sem kranarnir voru úr gulli, sundlaugin risastór og bílskúrinn fullur af dýrum bílum í litla íbúð á Fredriksberg... “ — „Smukke Axel" sendi hon- um tuttugu þúsund kall danskan á mánuði, fyrir að „halda kjafti og vera stilltur". Ef Baje birtist á mynd í dag- blaði sást þar beiskur maður sem var á því að á sér hefði verið framið dómsmorð. Og gott ef'karl hafði ekki rétt fyrir sér með það. Nú er semsagt búið að gera upp bú- ið, kröfuhafar allir búnir að fá sitt með vöxtum, lögfræðing- arnir einar 40—50 milljónir danskar, skatturinn að mig komast næst. „Þrotabúið" hefur þá verið rúmir tveir milljarðar danskir, því mikið af því sem undir það féll var selt á smánarverði. Og nú þegir Boje þunnu hljóði um það, hvort hann ætlar að höfða skaðabótamál til að fá uppreisn æru og eitthvað af aurunum sínum aftur. Beje Nielsen er nú sosem ekkert blessað guðslamb, þótt hann sé alinn upp á sannkristnu heimili og hafi alltaf haldið barnatrúnni. Eft- ir að konan hans dó lagðist hann í drykkju og lenti í vondum málum, veifaði m.a. byssum og sýndi á sér ófagrar hliðar í slagsmálum við lög- reglu. Eftir að hann var lýstur gjaldþrota 1982 skellti Juhl- Jorgensen sér til Frakklands til að eiga ekki á hættu að Boje svifi á hann með byssur og grimma hunda, og for- stjóri þess kröfuhafa sem var fremstur í flokki, Niels Forms- gaard í Dansk Kaution, fór í felur í hálfan mánuð eða svo, auk þess að fá vörð við fyrir- tækið. En kannski hefur Guð bara þennan háttinn á við áfengismeðferð eða verið að reyna Beje eins og Job forð- um, en þá ætti karl auðvitað að fá allt sitt margfalt aftur, samkvæmt bókinni. Það verður framtíðin að leiða í Ijós — þessa dagana ku Boje Nielsen vera uppi í sveit með nýju konunni, væntanlega að sleikja sárin og hugsa sinn gang. Þeir Danir sem ég hef heyrt oní hafa nokkra samúð með Boje, en það hlakkar aftur á móti í þeim þegar eigurnar reytast af Riskær, sem hefur m.a. orðið uppvís að því að hafa austurlenskar þjónustur á smánarlaunum. Nú er hann að selja vinum sínum flugvél- ar og bíla og er hættur að tala kjaftgleiöur og sólbrúnn í sjónvarpi um auð sinn og vel- megun. Á mánudaginn kom stærsta blaðið hans, Frede- riksborg Amts Avis, út í síð- asta sinn og brúnkan farin að fölna á kappanum. Eflaust er þarna í uppsiglingu athyglis- vert gjaldþrotamál, en það verður víst að bíða betri tíma að velta vöngum yfir því. Höfundur er rithöfundur i Danmörku Magnea J. Matthíasdóttir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.