Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 43

Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR PRMSSAN 30. JANÚAR 1992 43 LÍFIÐ EFTIR VINNU 3ÖNG8TJARNA FRÁ AUSTDRRÍKI Þessi stórföngulega kona var nýstlgin út úr flugvél, kvart- aði sáran undan þreytu við Ijósmyndara PRESSUNNAR, en leyfði honum þó að taka mynd af sér I rokinu og rign- ingunni utan við Hóskólabfó. Annars heitir hún Claudia Dallinger, er rísandi söngstjarna frá Austurrikl og stundar —■ hvort tveggja geistlegan söng í kirkjum og veraldlegri söng í leikhúsum. Claudia hefur upp raust sfna á árlegum Vínartónlelkum Sinfóníuhljómsveitarlnnar sem verða f Háskólabíól á fimmtudagskvöld og sfðdegis á laugardag. ★ ★ Út yffir ★ Héraðsflóa Þorfinnur Guðnason fréttatökumaður rýnir í leyndardóma íslenskrar náttúru. „Fyrst og fremst er myndin tilfinningamál fyrir mig. Svo er vinnan mestanpart yfir- lega,“ segir Þorfinnur Guðna- son kvikmyndagerðarmaður um heimiidamynd sem hann vinnirr að og hefur vinnuheit- ið „Út yfir flóann". Þorfinnur fékk á dögunum tveggja og hálfrar milljónar króna styrk úr Kvikmynda- sjóði til að gera myndina, en það munu þó ekki vera nema tæp tuttugu prósent af heild- arkostnaði hennar. í myndinni verður kafað djúpt ofan í lífríki íslands, nánar tiltekið náttúru og allar myndir dýralífs við mynni Héraðsflóa eystra. Þar renna saman á afskekktum stað í einn ós Lagarfljót og Jökulsá á Brú og úr verður einstök líf- keðja á mörkum saltvatns og ferskvatns. Og þar í miðjunni er jörðin Húsey og fólkið þar, eins konar eyja á landi, um- lukin jökulvatni. Hugmyndin að myndinni hefur lengi verið að gerjast í huga Þorfinns. „Ég var þarna í sveit sem polli og upplifði líf- ið þarna og umhverfið sem hreinasta ævintýri." Það er heldur ekki flanað að neinu við gerð myndar- innar. í henni verður leitast við að sýna hvernig árstíðirn- ar speglast í náttúrunni og því munu Þorfinnur og félag- ar hans dvelja þar eystra í eina sex mánuði, reyndar með nokkrum hléum. Það er ekki htaupið að því að mynda skepnur á borð við sel, lóm og skúm og þess vegna verð- ur stór hluti myndarinnar tekinn með fjarstýrðri myndavéi sem gerir töku- manninum kleift að vera í um kílómetra fjarlægð frá mynd- efninu. Felutjöld verða einnig notuð og að auki neðansjáv- armyndavél sem kemur hing- að frá Danmörku í sumar. Þorfinnur fussar þegar hann er spurður hvort mynd- in verði ef til vill tekin á myndband. Sjálfur er hann tökumaður á fréttastofu Sjón- varps og vanur hröðum og á tíðum nokkuð fljótfærnisleg- um vinnubrögðum. Heim- ildamyndin verður hins veg- ar tekin á hágæðafilmu, eins og slíku efni hæfir. • KK-band verður á Púlsinum bæði föstudags- og laugardagskvóld. KK er með ýmis járn i eldinum þessa dagana, því hann er nú að vinna tón- listina i „Þnjgur reiðinnar" eftir Steinbeck, sem frumsynt verður i Borgarleikhúsinu i febrúar. Gott hjá honum. • Hálft í hvoru verður með allan hugann við tónlistina á fimmtu- dagskvöldið. Gisli og Herdís komin frá Kanari og á Gaukinn að flytja visnatónlist. Ákaflega hreint þægi- legt kvöld og enginn fer á hausinn. • Glen Gunner er diskótekari frá London. Hann er ekki af íslenskum ættum eins og nýi sendiherrann frá Amriku. Engu að siður á Borginni á föstudagskvöldið. • Silfurtónar verða á Tveimur vin- um á fimmtudagskvöldið. Þeir eru hið nýja eftirlætisband ungu intell- igensíunnar. Valdimar Flygenring verður þar einnig með kettlingana sína. • Deep Jimi and the Zep Creams verða hjá Tveimur vinum sínum um helgina. Þeir eru nýbúnir að gera samning upp á tiu milljónir úti í LA, þannig að strákarnir hans Rúna Júl eru að upplifa drauminn hans pabba sins. Búnir að meika það, gott hjá þeim og gott á þá sem héldu að þetta væri ekki hægt! • Stjórnin heilsar upp á Akureyr- inga um helgina og spilar i Sjallan- um. Innan Stjórnarinnar hafa orðið sviptingar eins og oft vill verða með stjórnir. Ekki vitum við hvort greidd- ur var arður. • Peres leikur djass á Blúsbarnum á laugardagskvöldið Þetta er ekki flautuleikari frá Andesfjöllum heldur útfrymi íslandsvina með Pálma Sig- urhjartarson pianóleikara fremstan meðal jafningja. VEITINGAHÚS • Það er ekki ýkja langt síðan skrif- að var um Hornið í Hafnarstræti hér í blaðinu og því fundið ýmislegt til foráttu. Þá hafði allt í einu birst gítar- leikari á staðnum og farið var að taka frá borð i stórum stíl með þeim afleiðingum að staðurinn var hálf- tómur. Það er rétt að segja eins og er: Jakob vert á Horninu hefur bætt ráö sitt. Staðurinn er eins og hann á að sér að vera og hefur verið I hart- nær fimmtán ár, hæfilega íhalds- samur og laus við alla tilgerð. Þjón- ustan er kannski ekki fullkomin, en þægileg og mátulega afskiptalítil, í hlutfalli við verð er maturinn prýði- legur og þaö er dásamleg upplifun í kreppunni að geta fengið ágæta tví- réttaða máltið (til dæmis heimatil- búið hreindýrapaté plús rauð- sprettu) fyrir 750 kall. Ingibjörg Stefánsdóttir afgreiðslustúlka í Skífunni, Kringlunni. Hvað ætlar þú að gera um helgina, Ingibjörg? „Á föstudagskuöldiö œtla ég aö vera heima meö kunn- ingjum mínum, boröa osta, drekka rauövín og hlusta a franska tónlist. Ég verö aö vinna frameftir laugardegin- um en um kvöldið er aldrei aö vita nema ég skreppi í Casa. Og d sunnudaginn œtla ég kannski í bíó. “ Rúnar Þór Pétursson tónlistarmaður (raular) „Rúnar hér, Rúnar hér, ekki við eins og er. Legð'inn skilaboð eftir són." POPPIÐ Annaðhvort eru það bókmenntaverðlaunin eða Tómas Jónsson. Að minnsta kosti virðist Guðbergur Bergsson hafa komist að leyndardómi eilífs lífs, Hann eldist ekki. Fyrri myndin var tekin ðrið 1966 þegar Tómas Jónsson - metsölubók var gefin út. Sú síðari fyrir skömmu þegar Guðbergur fékk bók- menntaverðlaunin. Kvartöld síðar. Símsvarinn Æfðu i skíðagöllum BARIR • Fordómar eru til á barröltinu sem annars staðar. Þannig hefur maður mjög ákveðnar efasemdir um stað, sem auglýsir það eitt að Sigurður yf- irþjónn verði á staðnum, en hver veit nema það sé skemmtilegasti skemmtistaður á höfuðborgar- svæðinu þó svo að auglýsingin sé ekkert sérstaklega lokkandi? A móti kemur að aðrir staðir eru gróflega ofmetnir, sérstaklega ef þeir gefa sig mjög út fyrir að vera staðir „fal- lega fólksins" og svo framvegis. Ing- ólfskaffi eða Ingó er þannig staður. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um vand- aðan stað fyrir vandað fólk er hann bara venjulegt islenskt diskótek. Barþjónarnir eru í hvítum bolum, á gólfinu hljómar afar hávær og heila- laus danstónlist, innréttingarnar eru hvorki betri né verri en gerist í Glæsibæ og síðan hefur einhver lit- blindur snillingur ákveðið að íðil- grænir veggirværu einmitt það sem staðurinn þyrfti til þess að gefa hon- um „klassa". Ingó er ekkert vondur skemmtistaður, hann er bara eins og nokkrir tugir annarra. En til hvers að hafa úr hundrað skemmtistöðum að velja ef fjölbreytnin er engin? Nei, þá held ég að Egilsbúö + Neskaup- stað sé betri. „Sviðið er hefðarsetur frá þeim tíma er allir dönsuðu charleston. Þetta er morð- gáta í stíl Agöthu Christie með ýmsum óvæntum uppá- komum," segir Valgard Sv. Valgardsson, framkvæmda- stjóri Stúdentaleikhússins. Annað kvöld klukkan níu frumsýnir Stúdentaleikhúsið „Hinn eina sanna Seppa" eft- ir breska háðfuglinn Tom Stoppard í Tjarnarbíói. Stoppard skrifaði meðal ann- ars handritið að kvikmynd- unum Brasil og The Russia House. Seppinn er spennu- leikrit en hinn beitti húmor Stoppards fær einnig að njóta sín, og er leikritið jafnframt ádeila á breska leikhúshefð. Æfingar hafa ekki gengið alveg andskotalaust, því þeg- ar þær hófust var enginn hiti í Tjarnarbíói og ekki heldur klósett. Því var æft í skíða- göllum og á stundum í spreng. Þessu hefur nú verið kippt í lag. Leikstjóri er Jakob B. Ól- afsson en Steinunn Ólafsdótt- ir þjálfaði leikarana, sem er níu talsins, í framsögn. VlÐ MÆLUMI MEÐ Að útvarpsmenn kynni og afkynni lög maður getur orðið hroðalega taugaveiklaður á þvi að heyra sama lagið trekk í trekk án þess að vita hverjir spila það. Islensku bókmenntaverð- laununum menningarvitarnir hafa þó allt- ént einhvern fastan punkt í til- verunni til að nöldra yfir. Bílaþvottagtöðinni KlSpp é Skúlagðtu strákarnir þar þvo bíla með svo miklum bravúr. ísland væri par- adís á jörðu ef allir ynnu vinn- una sína með slíkum stæl. Að fólk fari é bókaútsölur og bókamarkaði það er svo gaman að kaupa jólabókina sem kostaði þrjú þúsund krónur fyrir þarsíðustu jól á þrjú hundruð krónur. ÍNNÍ Bókasöfn. Það eru til tvær leið- ir til að bregðast við krepp- unni. Eyða eins og brjálæðing- ur í mat, vín og óþarfa og sökkva til botns með þjóðar- skútunni eða nota hvert tæki- færi til að leita uppi ókeypis eða ódýrar skemmtanir. Ars- kort á Borgarbókasafninu kost- ar ekki nema 400 krónur fyrir fullorðna, 100 krónur fyrir ung- linga og ekki neitt fyrir börn. Því eru bókasöfn alveg sérstak- ir fyrirmyndarstaðir þegar hart er í ári, enda er haft fyrir satt að íslendingar hafi aldrei lesið meira en í heimskreppunni miklu. Svo má heldur ekki gleyma því að lestrarsalir bóka- safna eru fjarskalega ákjósan- legir staðir til að mæla út hitt kynið og komast í kynni við það, lestrarsalir eru í raun ákaf- lega kynferðislegir. / • UTI Spaugstofan. Þjóðin er í start- holunum að láta sér mislíka al- varlega við hana. Þetta byrjar með tuldri úti í hornum sem smátt og smátt gerist háværara og almennara. Nú segir tuldrið að þeir þeir séu alltof víða, þeir vasist í alltof mörgu, þeir séu ekki næstum eins fyndnir og í fyrra og hitteðfyrra. Bráðum kemst almenningsálitið að þeirri niðurstöðu að þeir séu jafnútbrunnir og Edda Björg- vins, Laddi og allir hinir gleði- bankarnir sem einu sinni voru sprenghlægilegir.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.