Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 13

Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PBMSSAN 30. JANÚAR 1992 13 200 milljónir króna 190-4 180 170 160 150 140 130 120 0 at 110 - o z Að neðan sést velta íslenskra aðalverktaka frá 1979 til 1990. Skífuritið þar fyrir neðan sýnir hlutföll milli útgreiðslna Sameinaðra verktaka og eigna, sem eftir eru, en alls ræðir þar um 5.375 milljónir króna. Til vinstrí má svo sjá hvernig Halldór H. Jónsson og Byggingamiðstöðin hafa ávaxtað sitt pund frá 1957. (Til samanburðar má geta þess að Halldór gæti tekið bíl frá BSR á Lælqartorgi og farið sex sinnum til tungslins — fram og til baka — fyrir andvirði raunávöxtunarfnnar (9.170%) og samt gefið bílstjóranum ríflegt þjórfé.) Neðst í rammanum er svo að finna töflu, sem sýnir hvað helstu hluthafar í Sameinuðum verktökum hafa fengið í sinn hlut og hver hlutdeild þeirra er í eignunum, sem eftir verða. 6.000 milljónir króna að núvirði--------- 100 90 80 70 60 Q < l> W 0) ot < z 0 V) U) z '0 “í 50 U) at '0 Q J 40----^ X 30 20 0 < J £ < Ot u. z U. 10 0 h w 0 ™ PRESSAN/AM Ot D h 3 J I Ot < z 0 ui Q 0 ot D J U) Q ■M U1 o: o h O Utgreiðslur S.V. & ElGIÐ FÉ arðgreiðslur FRÁ ÁRINU 1959 UTGREIÐSLUR FRA Í.A.V. VEGNA SAMN- INGS VIÐ RÍKIÐ Eftirstandandi EIGIÐ FÉ S.V. ’I Utgreiðslur ÚR S.V. TIL HLUTHAFA 'O □ ■’« í’v y'r' W J J < reginn hf 7,46% 100,0 100,7 28,7 171,6 401,0 Félag vatnsvirkja HF 7,00% 93,8 94,5 27,0 161,0 376,3 STOÐ HF (Halldór H. Jónsson, Thor Ó. Thors og fleiri) 4,48% 60,0 60,5 17,2 103,0 240,7 BRÚ HF (Erfingjar Þorbjörns í Borg og fleiri) 4,48% 60,0 60,5 17,2 103,0 240,7 goði hf 4,48% 60,0 60,5 17,2 103,0 240,7 Halldór H. jónsson 3,42% 45,8 46,2 13,2 78,7 183,9 Rafvirkjadeildin HF 3,68% 49,3 49,7 14,2 84,6 197,8 IÐNSAMTÖK HF 2,98% 40,0 40,2 1 11,5 68,5 160,2 Gulltoppur HF ; T (Erfingjar Árna Snævarrs) 2,90% 38,9 39,1 11,2 66,7 155,9 Erfingjar GÚSTAVS Pálssonar borgarverkfræðings 2,90% 38,9 39,1 11,2 66,7 155,9 ÝMSIR i Þorkell Ingibergsson | 2,23% 29,9 30,11 8,6 51,3 119,9 Ingólfur Finnbogason 2,08% 27,9 28,1 8,0 47,8 111,8 Jón G. Halldórsson 1,66% 22,2 22,4 i 4,7 38,2 87,5 Thor Ó. Thors 0.90% 12,1 12,2 2,5 20,7 47,5 Snorri Tómasson 0,90% 12,1 12,2! 2,5 20,7 47,5 Gissur Símonarson 0,60% 8,0 8,1 2,3 13,8 32,2 á 33 árum hafa Sameinaðir greitt hluthöfum sínum sam- tals 338 milljónir króna að núvirði, þar af um 235 millj- ónir frá 1983 til og með 1991 og búast má við því að tæp- lega 47 milljónir bætist við í vor. Við þessar 385 milljónir bætast úthlutanir með þeim hætti sem gert var með 900 milljónirnar; gefin eru út jöfnunarhlutabréf og þau lækkuð samdægurs og greidd hluthöfum. Á fáeinum árum hafa þessar greiðslur til hluthafa numið um 1.350 milljónum króna að núvirði. Arðgreiðslur upp á 385 milljónir, útgreiðsla hlutafjár upp á 1.350 milljónir og nið- urfærslan frá ÍA upp á 1.340 milljónir gera til samans ná- lægt 3.100 milljónum króna til eigenda SV. Eftir stendur jákvæð eiginfjárstaða upp á 2.300 milljónir. Fyrir utan fasteignir og bankainnstæður er þar um að ræða mikilvæg hlutabréf, sem stjórnarmenn SV hafa notað til að auka áhrif sín í öðrum fyrirtækj- um. SV á 2,13 prósenta hlut í Eimskipafélaginu, sem met- inn er á um 115 milljónir — og Eimskipafélagið ræður öllu í Flugleiðum. SV er fimmti stærsti hluthafinn í íslands- banka með 3,76 prósent hlutafjár. Friðrik Þór Guömundsson Frá fundi hjá Sameinuðum. Samsetning eigenda SV hefur breyst verulega frá stofnun. Margir iðnaðarmenn eru enn meðal eigenda, en hluthafahópurinn einkennist nú ekki síð- ur af ekkjum, börnum og barnabörnum stofnenda. Guðmundur og Pétur ekki hluthafar í SV Guðmundur Pétursson og Fétur Guömundsson lögfræð- ingar segjast enga aðild eiga að SV og enga fjármuni hafa fengið í gegnum félagið vegna útdeilingar á 900 millj- ónunum margumtöluðu, eins og sagt var í síðasta tölublaði PRESSUNNAR. Þar sagði að þeir feðgar væru eigendur Stoðar hf., sem aftur væri eigandi Stál- hamars sf. Hið rétta er að Pét- ur er skráður stjórnarformað- ur, eini aðalstjórnarmaður- inn og prókúruhafi Stoðar, en Guðmundur eini varastjórn- armaðurinn. Þeir gegna trún- aðar- og ábyrgðarstöðum, en segjast ekki vera eigendur. Ástæðan fyrir því að aðeins einn maður skipar stjórn fé- lagsins er að eigendur Stoðar eru fjórir eða færri. í Morgun- blaðinu er sagt að Thor Ó. Thors og Halldór H. Jónsson séu meðal eigendanna. Þá hefur komið í ljós að eignarhlutur Stálhamars sf. í SV var seldur Sameinuðum sjálfum. Eigendur Stálhamars eru eftir sem áður Stoð og Thor Ó. Thors. Eignaraðild feðganna að SV er sam- kvæmt þessu engin og biðjast höfundar greinarinnar afsök- unar á því að hafa haldið öðru fram._______________ Friðrik Þór Guðmundsson Sigurður Már Jónsson UNDIR ÖXINNI Ární Kolbeinsson RÁÐUNHYTISSTJÓRI SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEVTISINS “Ekki okkar að leggja mat á lögin“ — Af hverju mega rækjusjómenn ekki selja afla sinn hverjum sem er? „Það er af því að um rækjuvinnslu gilda aðrar regl- ur en um aðra fiskvinnslu. Ofugt við aðgang að mið- unum er fiskvinnsla almennt ekki háð opinberum leyfum, ef frá eru skildar almennar kröfur um heil- brigðisástand. Frá þessu er ein mikilvæg undantekn- ing í lögum nr. 25 frá 1975 um samræmda vinnslu sjávarafla og veiða sem háð eru sérstökum leyfum. Þar segir meðal annars að leita skuli leyfis sjávarút- vegsráðuneytisins til vinnslu á innfjarðarrækju. Þarna eru líka ákvæði sem heimila ráðuneytinu að skipta kvóta á milli báta og vinnslustöðva." — Nú ertu að lýsa því hvernig lögin eru, en ekki af hverju þau eru svona. „Já, enda eru það stjórnmálamenn sem setja lögin og færa rök fyrir þeim, ekki embættismenn. Þessi lög voru sett áður en ég tók til starfa hér í ráðuneytinu, en ég hygg að ákvæðin eigi rætur i því að þessar veiðar eru nátengdari ákveðnum byggðarlögum en flestar aðrar veiðar. Þær eru stundaðar grunnt víða á Vestfjörðum og Húnaflóa og eru stundum kallaðar kálgarðaveiðar. Það eru margir sem telja að það sé réttur viðkomandi byggðarlaga að hafa einkaleyfi til vinnslu á þeim rækjuafla sem kemur af innfjarðar- miðum." — Er það ekki undarleg ráðstöfun árið 1992 að skikka menn til að selja afla sinn tilteknu fyrirtæki? „Eg er hræddur um að þú verðir að spyrja stjórn- málamennina um hvort þessar reglur eru góðar eða vondar. Það er ekki embættismanna að segja til um gæði laga; okkar hlutverk er að framfylgja þeim." — En svo koma upp mál eins og á Bíldudal, þar sem seljandinn vill ekki selja en er skikkaður til þess af ráðuneytinu. Er þetta algengt? „Svona mál koma alltaf upp á annað slagið. Ég dreg enga dul á að það hefur alltaf verið erfitt að framfylgja þessum lögum. Þetta mál er dæmi um það." — Stendur nokkuð til að breyta þessu? „Þessi lög hafa alltaf veríð hluti af umræðunni um stjórnun fiskveiða á íslandi. Nefndin, sem síðast end- urskoðaði lögin, lagði ekki til neinar breytingar. Ég veit ekki hvernig verður farið með málið í þeirri nefnd sem nú situr." Nýlega komu upp deilur á Bíldudal vegna reglna sem gilda um veiðar og vinnslu á innfjardarrækju. Rækjuvinnslan á staðnum, Rækjuver hf., hafði ekki fyrr i vetur getað tekið við afla til vinnslu og lönduðu þá Bíldudalsbátar annars staðar. Nú eftir áramótin gat fyrirtækið tekið við afla, en þá neituðu sjómenn að selja nema lögð yrði fram bankatrygging fyrir greiðslu. Málið kom til kasta sjávarútvegsráðuneytis, sem sagði að sjómennimir yrðu að selja fyrirtækinu afla sinn, sama hvað öllum bankaábyrgðum liði.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.