Pressan - 30.01.1992, Síða 9

Pressan - 30.01.1992, Síða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992 9 Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis Miklir erfiðleikar steðja nú að verktakafyrirtækinu Hagvirki. Heildarskuldir eru um tveir milljarðar og engar stórframkvæmdir framundan. Fjárfestingar fyrirtækisins í Smárahvammi hafa aukið skuldirnar verulega og um leið er óvíst hvort fyrirætlanir Hagvirkis um strætis- vagnarekstur ganga eftir. Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis, berst nú fyrir lífi þessarar mestu verktakasamsteypu landsins og hefur átt í við- ræðum við íslenska aðalverktaka um að þeir kaupi Hag- virki. Því hefur verið hafnað, en Hagvirki leitar annarra leiða til að fá fjármagn inn í fyrirtækið. Eitt mesta verktakafyrirtæki landsins riðar nú til falls vegna erfiðleika undanfarinna ára. Undanfarið hefur Jóhann G. Bergþórsson, forstjóri Hag- virkis, átt í óformlegum við- ræðum við forráðamenn ís- lenskra aðalverktaka um sölu á fyrirtækinu. Viðræðurnar hafa snúist um að íslenskir aðalverktakar keyptu stóran hluta af Hagvirkissamsteyp- unni. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR ætla íslenskir aðalverktakar sér stærri hlut á íslenskum verktakamark- aði og hafa því ieitað að heppilegu fyrirtæki til sam- starfs, meðal annars til að fá hagnýta verktakaþekkingu inn í fyrirtækið. Eftir því sem næst verður komist hefur til- lögum Jóhanns hins vegar verið hafnað. Eitt það helsta sem Hag- virki getur boðið fram í slík- um viðræðum við hugsan- lega kaupendur er verulegt skattalegt tap, sem fylgir fyr- irtækinu eftir erfiðan rekstur undanfarinna ára. Er þar rætt um tap upp á 600 til 700 millj- ónir. Þetta geta hins vegar ís- lenskir aðalverktakar ekki nýtt sér, vegna þess að um sameignarfélag er að ræða. Jóhann sagðist i samtali við PRESSUNA ekkert vilja tjá sig um þessar viðræður. Hann staðfesti hins vegtu- að Hagvirki ætti í erfiðleikum sem verið væri að reyna að greiða úr. Stefán Fridfinns- son, forstjóri íslenskra aðal- verktaka, vildi heldur ekkert tjá sig um málið. Benti Jóhann á tvö atriði sem einkum hefðu farið illa með stöðu Hagvirkis. Á árinu 1989 tapaði fyrirtækið sölu- skattsmáli og var gert að greiða 108 milljónir í sölu- skatt sem, að sögn Jóhanns, aldrei var innheimtur. Á verðlagi dagsins í dag er þarna um að ræða 137 millj- ónir. Þetta sagði Jóhann að hefði verið þungt högg fyrir fyrirtækið. 600 MILLJÓNIR BUNDNAR í SMÁRAHVAMMI Hitt atriðið sem Jóhann benti á eru framkvæmdir fyr- irtækisins í Smárahvammi í Kópavogi. í samvinnu við Frjálst framtak hefur verið undirbúin verslunar- og íbúð- arbyggð, sem illa hefur geng- ið að selja. Sagði Jóhann að það léti nærri að fyrirtækið væri með 600 milljónir bundnar þar. Hagvirki er eitt mesta verk- takafyrirtæki landsins og hef- ur á undanförnum áratug unnið að flestum stórfram- kvæmdum hér á landi. í kjöl- far samdráttar í verklegum framkvæmdum var fyrirtæk- ið stokkað upp og ýmsar eignir seldar. Þetta átti sér stað á síðasta ári. Þá varð til fyrirtækið Hagvirki-Klettur hf., sem hét reyndar áður Hagtala, Hamar og Vélsmiðj- an Klettur. Þetta fyrirtæki hefur staðið að stórfram- kvæmdum fyrirtækisins síð- an. Áfram var þó rekið fyrir- tækið Hagvirki hf., sem hefur haft með byggingarfram- kvæmdir á höfuðborgar- svæðinu að gera. Það mun einkum vera það fyrirtæki sem á í erfiðleikum nú. Einnig voru stofnuð fyrir- tækin Hagtak hf. og Nortak hf. Hagtak var stofnað 21. desember 1990 og er skráð með 60 milljónir í hlutafé. Nortak var stofnað í sam- vinnu við norskt verktakafyr- irtæki, NCC. Þessi fyrirtæki eru í raun pappírsfyrirtæki sem áttu að vera til taks ef að- stæður á verktakamarkaðin- um byðu upp á slíkt. Þá til- heyra Hagvirkissamsteyp- unni Hagþing hf. og Verk- fræðiþjónusta Jóhanns Berg- þórssonar. FRESTUN FUÓTSDALSVIRKJUNAR ÞUNGT ÁFALL Auk söluskattsmálsins og Smárahvammsvandræðanna má nefna það áfall er snýr að framtíðinni; frestun fram- kvæmda við Fljótsdalsvirkj- un vegna frestunar á álverinu nýja. „Þetta var rothöggið og í raun banabiti Hagvirkis," sagði einn heimildamanna PRESSUNNAR. Hagvirki lagði fram veru- lega fjármuni bæði vegna Hafskips og Arnarflugs og tapaði því fé. Einnig jók það erfiðleika fyrirtækisins hversu treg sala var lengst af á framkvæmdum þess í Kol- beinsstaðamýri í Reykjavík. Þá má nefna að Hagvirki og Samherji keyptu á sínum tíma gömlu bæjarútgerðina í Hafnarfirði. Samherji fékk þrjá togara til sín, en frysti- húsið, sem er í eigu Hagvirkis eða dótturfyrirtækis, hefur staðið autt og ónotað um nokkurt skeið. GÁTU EKKI LEYST ÚT SCANIA- ALMENNINGSVAGNANA Það er enn til marks um erfiðleikana hjá Hagvirki að dótturfyrirtækið Hagvagnar hf. er komið í vandræði með að standa við samninga um almenningsvagnaakstur á höfuðborgarsvæðinu. Al- menningsvagnar sf. stóðu að útboði á akstri um Hafnar- fjörð, Kópavog, Garða- bæ/Bessastaðahrepp, Mos- fellsbæ og hraðleiðina Hafn- arfjörður-Reykjavík. Hag- vagnar gerðu tilboð í þessar leiðir, að Mosfellsbæ undan- skildum, og fengu verkið. Samkvæmt samningnum eiga Hagvagnar að fá árlega 216 milljónir fyrir aksturinn, en tilboð fyrirtækisins var rúmlega 1 prósenti yfir kostn- aðaráætlun. Samningurinn var undirritaður í desember sl. og samkvæmt honum á akstur að hefjast 1. júní. Þeg- ar er séð fram á að það kunni að dragast. Hagvagnar voru með samningsdrög í höndum um kaup á 20 vögnum af Scania, en þegar til kom tókst ekki að leggja fram viðun- andi tryggingar. „Þeir höfðu hvorki getu né tryggingar til að leysa þessa vagna út,“ sagði heimildamaður PRESS- UNNAR. Nú á fyrirtækið í viðræðum við Volvo og alls óvíst hvernig þær takast. Sigurður Már Jónsson og Friðrik Þór Guðmundsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.