Pressan - 30.01.1992, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 30. JANÚAR 1992
Sameinaðir verktakar
Einokunin gaf hluthöfum
hundraðfalt stofnframlag
• Stofnhlutafé í Sameinuðum verktökum var 58 milljónir að núvirði 1957. no
í vasann
Stofnhlutafé í Sameinuðum verktökum var 58 milljónir að núvirði 1957.
hafa 5.400 milljónir verið uppskornar og þar af 3.100 milljónir beint í hendur
hluthafa.# Framkvæmdirnar fyrir varnarliðið hafa þrefaldast að umfangi síðustu
12 ár. Framundan er hins vegar mikill samdráttur og þá þykir rétt að úthluta pen-
ingum og breyta félaginu í almenningshlutafélag.
Þorkell Jónsson, byggingarmeistari og starfsmaður Samein-
aðra verktaka. Hann á persónulega 0,28 prósent hlut í SV og
tók því við 2,5 milljóna króna tékka um daginn.
Sameinaðir verktakar (SV)
hafa greitt hluthöfum sínum
eða greiða á allra næstu árum
samtals um 3,1 milljarð króna
í arð og úttektir. Eftir standa
2,3 milljarðar í hreinni eign
SV. Upprunalegt hlutafé í SV
frá 1957 nam hins vegar 58
milljónum króna að núvirði.
Halldór H. Jónsson lagði þá
fram 255 þúsund í eigin nafni,
en færgreiddar 13,5 milljónir
og á persónulega 10 milljónir
til viðbótar af því sem eftir
stendur. Ávöxtunin er góð;
stofnframlag hans hefur nær
hundraðfaldast.
Framkvæmdir fyrir varnar-
liðið hafa þrefaldast frá 1980
og hagnaður íslenskra aðal-
verktaka (ÍA) eftir skatta hin
síðari ár numið nálægt 500
milljónum króna. Nú er hins
vegar þíða í heiminum og
flestum stórverkefnum fyrir
varnarliðið að mestu lokið.
Uppgripsárunum er lokið. Þá
er fyrirhugað að breyta ein-
okunarfyrirtækjunum í al-
menningshlutafélög.
SV voru stofnaðir 1951 sem
sameignarfélag 43 einstak-
linga og fyrirtækja. Þá var fé-
lagið virkur framkvæmdaað-
ili, en varð pappírsfyrirtæki
þegar ÍA voru stofnaðir. Sum-
arið 1957 komu málarameist-
arar, húsasmíðameistarar,
trésmíðameistarar, bygging-
armeistarar, pípulagninga-
menn og annars konar iðnað-
armenn saman á fund og
nokkrir verkfræðingar voru
mættir og svo vitaskuld Hall-
dór H. Jónsson og Thor O.
Thors. Þá breyttist SV í hluta-
félag og hætti sjálfstæðri
verktöku.
EKKJUR OG DÁNARBÚ
LEYSTU IÐNAÐARMENN
AF HÓLMI
Félagið var stofnað til að
vera samnefnari fyrir helm-
ingshlut einkaframtaksins í
einokun IA á framkvæmdum
fyrir va'rnarliðið. í samþykkt-
um var það gert að skilyrði
að aldrei mætti selja hluta-
bréf í félaginu öðrum en
verktökum eða meisturum í
iðngreinum og æ síðan hefur
félagið verið lokað.
Árið 1983 var svo komið að
alls 17 dánarbú voru meðal
147'hluthafa. Árið 1990 töld-
ust hluthafar 183. Þar af voru
23 fyrirtæki eða félög, 152
einstaklingar og 8 dánarbú.
Það segir sína sögu um breyt-
ingarnar að einstaklingarnir
skiptust þannig að karlar
voru 87 en konur orðnar 65.
Hér er mikið til um að ræða
ekkjur, börn og barnabörn
upprunalegra stofnenda.
Úpprunalegt hlutafé SV ár-
ið 1957 hljóðaði upp á 50.000
nýkrónur. Framreiknað kem-
ur í ljós að þessi fórnarkostn-
aður fyrir einokunina sam-
svarar 58 milljónum króna.
Af einstökum hluthöfum má
nefna að Halldór H. skrifaði
sig persónulega fyrir 220
krónum, sem framreiknað
gera 255 þúsund í dag.
Til að átta sig betur á því
hvaða upphæðir þetta voru
má nefna að dagvinnukaup i
almennri hafnarvinnu var á
þessum tíma tæplega 20 ný-
aurar. Þá var dagvinnan 48
stundir á viku og samsvöruðu
220 krónurnar hans Halldórs
því liðlega 23ja vikna dag-
vinnu hafnarverkamanns.
4 MILUARÐA
FRAMKVÆMDIR -
UMSVIFIN HAFA
ÞREFALDAST
Allt frá þessum tíma hafa
ÍA haft einokun á fram-
kvæmdum fyrir varnarliðið
og þessi útvaldi hópur haft
einokun á helmingshlut af
„hermanginu". Með þessari
einokun og fulltingi stjórn-
valda myndaðist grundvöllur
fyrir því að rukka varnarliðið
um óhemjufé fyrir fram-
kvæmdirnar. Af og til hafa
borist fregnir af umkvörtun-
um bandarískra þingmanna
yfir hinum geysilega háu út-
gjöldum vegna framkvæmda
á Keflavíkurflugvelli. Þau
hafa hins vegar verið útskýrð
sem kostnaður til að halda
frið á Islandi um herstöðina.
Um leið fékk fyrirtækið
sérstöðu hvað tolla varðar og
önnur gjöld. Svo dæmi sé tek-
ið má nefna að árið 1983 var
verðmæti tollfrjáls innflutn-
ings IA vegna varnarliðs-
framkvæmda 1,3 milljarðar
að núvirði.
Síðustu ár hafa árlegar
framkvæmdir á vegum IA
hljóðað upp á 60 til 65 millj-
ónir dollara á ári að meðal-
tali. Á núverandi gengi þýðir
þetta árlegar framkvæmdir
upp á 3,5 til 3,8 milljarða
króna. Heildarvelta ÍA hefur
farið vaxandi á síðustu árum
— þrefaldast að raungildi frá
1979. Veltan var þannig að
meðaltali 1,5 milljarðar 1979
til 1981, 3,2 milljarðar 1982 til
1985 og fór upp í 4,4 milljarða
að meðaltali 1986 til 1990.
HALLIR REISTAR ÁN
LÁNA - MILLJARÐAR
í BÖNKUM
Á þessu ári er búist við
svipuðum framkvæmdum og
í fyrra, en reiknað er með
samdrætti 1993 og 1994.
Hafa ber í huga að flestum
stórframkvæmdum, sem í
gangi hafa verið allt frá 1983,
verður brátt að mestu lokið
— og ekki að búast við veru-
lega stórum verkefnum í kjöl-
farið á þessum þíðutímum.
Mestu uppgripsárin eru því
liðin.
Á síðustu árum hefur hagn-
aður eftir skatta verið 10 til
12 prósent af veltu að meðal-
tali og var 12,4 prósent árið
1990. Hagnaður eftir skatta
var um 150 til 170 milljónir
Bergur Haraldsson á fundi Sameinaðra verktaka, stjórnar-
maður um langt árabil sem fulltrúi Félags vatnsvirkja hf.,
sem á 7 prósent í SV. Af 3.100 milljóna útgreiöslum renna
215 milljónir til FV og af eftirstandandi 2.300 milljóna króna
eignum er 161 milljón merkt félaginu. Fyrir nokkrum árum
voru aðeins 24 einstaklingar á hluthafaskrá félagsins.
Hvað fengu Karl kennari og Hanna hjúkka?
Samsetning eigenda Sam-
einaðra verktaka hefur
breyst mikið í tímans rás. Enn
er þar marga iðnaðarmenn
að finna, en hópurinn ein-
kennist nú ekki síst af fjölda
ekkna, dánarbúa og afkom-
enda „frumherjanna". Ef ein-
ungis er litið til þeirra 900
milljóna sem nýverið var út-
hlutað kemur í Ijós að fólk úr
ýmsum stéttum hefur fengið
væna búbót.
Lítum á nokkur nöfn: Karl
Sœmundsson kennari, Afla-
granda 40, fékk 5,4 milljónir.
Sigþrúður Ingólfsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Faxa-
túni 38, fékk 2,2 milljónir. Sig-
urbergur Árnason iðnfræð-
ingur, Grundarlandi 18, fékk
8,1 milljón. Pétur Gudmunds-.
son verslunarmaður,
Nökkvavogi 15, fékk 2,7 millj-
ónir. Inga Þorkelsdóttir hár-
greiðslukona, Víðimel 19,
fékk 6,7 milljónir. Hanna
María Kristjónsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, Jakaseli 9,
fékk 2 milljónir. Karvel Ög-
mundsson útgerðarmaður í
Njarðvík fékk 4 milljónir og
Adolf Wendel heildsali, Sörla-
skjóli 26, fékk 2,5 milljónir.
Einar Þorbjörnsson Jóhannessonar í kjötbúðinni Borg, til
hægri, við setningu fundar Brúar hf., þar sem 40 milljónir
komu til úthlutunar. Erfingjar Þorbjörns eiga 30 prósent í
Brú og fengu því 12 milljónir til skipta. Útgreiðslur og hluti
af eftirstandandi eigum í Sameinuðum nema 5.375 milljón-
um. Þar af er 241 milljón í nafni Brúar, sem lagði 2,6 milljónir
fram við stofnun SV. Af 241 milljón eiga erfingjar Þorbjörns
72 milljónir. Brú hf. er um leið einstætt félag; Það var tekið
til gjaldþrotaskipta 1967, en 19 árum síðar var búið afhent
eigendunum án þess að til úrskurðar kæmi.
árin 1979 til 1981 en var 450
til 520 milljónir á ári 1986 til
1990. Hreinn hagnaður á tólf
ára tímabili til 1990 hefur ver-
ið nálægt 4,3 milljörðum
króna.
Lengstum framan af söfn-
uðust fjármunir og fasteignir
upp hjá félaginu sjálfu. Byggð
var „Watergate“-höllin við
Höfðabakka þar sem SV eiga
stóran hlut í húsum og lóðum
í eigin nafni á móti ÍA. Eins og
ÍA hafa SV lagt áherslu á að
dreifa bankainnstæðum á
innlánsstofnanir, en Lands-
bankinn hefur ávallt verið að-
albanki félagsins. Með því að
eiga dagleg viðskipti við
Landsbankann og með því að
SV er fimmti stærsti einstaki
eigandi íslandsbanka eru
bein og óbein áhrif leiðandi
manna í þessum fyrirtækjum
augljós.
HLUTHAFARNIR SKIPTA
MEÐ SÉR 3 MILLJÖRÐUM
Árið 1990 var ákveðið að
breyta eignarhlutföllum í ÍA
með því að ríkið, Reginn og
SV tækju út misháar upphæð-
ir úr sjóðum fyrirtækisins,
þannig að eftir úttekt yrði rík-
ið meirihlutaeigandi. Úttekt-
in fólst í því að af 4,5 milljarða
króna bankainnstæðum
skyldi taka 2,4 milljarða. Þar
af skyldu 1.340 milljónir
renna til SV og 670 milljónir
til Regins. Til að ofgera ekki
bönkunum var ákveðið að
dreifa útgreiðslunum á fimm
ára tímabil.
Arður til hluthafá SV var
fyrst greiddur árið 1959 og
var lengi framan af aðeins 3
til 5 milljónir króna að nú-
virði á ári eða þar til 1983.
Frá 1959 til og með 1991 eða
Tjarnargata 12 í Keflavík, eign SV og Aðalverktaka.
Einokunarfyrirtækin hýsa þar Sparisjóð Keflavíkur. Bein og
óbein áhrif fyrirtækjanna á banka eru mikil. Sparisjóðurinn
hefur fengið að geyma um 6 prósent af heildarinnstæðum ÍA
í bönkum landsins (hlutfall frá 1983).