Pressan - 30.01.1992, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992
15
I kjölfar úthlutunar úr Kvikmyndasjóði á dögunum hefur verið stofnað nýtt félag kvik-
myndastjóra til höfuðs áhrifum Hrafns Gunnlaugssonar í greininni
Spörfugl fyrir
sólinni
segir Þráinn
Bertelsson
„Það var löngu tímabært
að stofna stéttarfélag sem
gætir hagsmuna allra kvik-
myndastjóra á íslandi," sagði
Þráinn Bertelsson, formaður
Félags kvikmyndastjóra, í
samtali við PRESSUNA. „Guð
blessi leiknu myndirnar, en
kvikmyndastjórn nær yfir
svo miklu fleira en þær. Inn-
tökuskilyrði í Samtök kvik-
myndaleikstjóra voru svo
ströng að í þau komst til
dæmis ekki fólk sem hefur
borið uppi gerð heimilda-
kvikmynda árum saman, en
á þó til höfundarréttar að
telja. Það er hrópleg ósann-
girni að vera að þvarga um
hagsmunamál allra kvik-
myndastjóra í hópi sem er
kerfisbundið að útiloka stór-
an hluta þeirra frá þátttöku.
Þetta á ekki að vera hægt i
nútímanum."
Aö hve miklu leyli stendur
stofnun félagsins í tengslum
vid ólgu innan kvikmynda-
gerdarinnar nú?
„Ég lagði á það áherslu á
stofnfundinum að þótt það sé
margt spjallað í kvikmynda-
gerðinni um þessar mundir
og rík ástæða til, þá sé þetta
félag stofnað til að líta eftir
stórum hagsmunum til lengri
tima. Þótt það sé stofnað í
skugga ákveðinna deilna, þá
eru þær vonandi bara eins og
lítið ský eða eins og að litill
spörfugl fljúgi fyrir sólina
andartak."
Hrafn Gunnlaugsson er
kominn með fingurna í of
margt sem tengist íslenskri
kvikmyndagerð. Þetta er
undirrótin að klofningi sem
varð í Samtökum kvik-
myndaleikstjóra í síðustu
viku þegar þriðjungur félaga
sagði sig úr þeim og stofnaði
nýtt Félag kvikmyndastjóra. í
nýja félaginu er fjöldi leik-
stjóra sem ekki voru í hinum
eldri samtökum og stefnir í
átök um hvort félagið telst
fulltrúi þeirra sem eiga höf-
undarrétt að kvikmyndum. Á
yfirborðinu er tekist á um
hvernig félagsmálum stéttar-
innar verði best fyrir komið,
en undir krauma persónuleg
átök um aðgang að og úthlut-
un á þeim peningum sem ís-
lenskir kvikmyndagerðar-
menn skipta á milli sín.
TÓLF MANNA
STÉTTARFÉLAG
Það eru ekki nema um tvö
ár síðan stofnuð voru Samtök
kvikmyndaleikstjóra með
það að leiðarljósi að gæta
hagsmuna þeirra. Hrafn var
einn aðalhvatamaðurinn, en í
lögum félagsins var það sett
sem skilyrði fyrir inngöngu
að einstaklingur hefði gert
tvær leiknar kvikmyndir,
samtals 120 mínútur að
lengd, hvort heldur væri fyrir
kvikmyndahús eða sjónvarp.
Stétt kvikmyndaleikstjóra er
ekki fjölmenn á íslandi, en
reglurnar þrengdu enn frekar
hóp þeirra sem gátu verið í fé-
laginu. Undir það síðasta
voru í því tólf manns. For-
maður er Friörik Pór Friö-
riksson.
Minnihluta í félaginu þótti
sem meirihlutinn, átta
manns, gætti ekki hagsmuna
allra félagsmanna og því síð-
ur hagsmuna þeirra sem fyrir
utan félagið stóðu. Tilraun
var gerð til að opna félagið og
forsprakki minnihlutans, Þrá-
inn Bertelsson, bauð sig fram
til formennsku gegn Friðriki
á aðalfundi skömmu fyrir
áramótin, en varð undir. Upp
úr því og í kjölfar úthlutunar
úr Kvikmyndasjóði fyrir
skömmu var boðað til stofn-
fundar Félags kvikmynda-
stjóra. Félagar eru átján og
formaður Þráinn Bertelsson.
OPNARA FÉLAG
Nafn nýja félagsins gefur
vísbendingu um þann fag-
lega ágreining sem gerður
hefur verið að ásteytingar-
steini. Þetta er félag kvik-
myndastjóra en ekki kvik-
mynda/e/'festjóra og á þessu er
meira en blæbrigðamunur.
Forsvarsmenn nýja félagsins
skilgreina stéttina á mun víð-
tækari hátt og undir þá skil-
greiningu falla til dæmis þeir
sem gera heimildakvikmynd-
ir og stuttmyndir. Til að
ganga í félagið þarf viðkom-
andi að hafa annaðhvort lok-
ið námi við viðurkenndan
kvikmyndaskóla eða haft
kvikmyndastjórn að atvinnu
í eitt ár.
Þeir sem yfirgáfu Samtök
kvikmyndaleikstjóra og
stofnuðu nýja félagið voru
Þráinn Bertelsson, Ágúst
Guömundsson, Lárus Ymir
Óskarsson og Þorsteinn Jóns-
son. Meðal annarra félaga
sem hafa stýrt leiknum
myndum eru Asdís Thorodd-
sen, Kristín Pálsdóttir, Óskar
Jónasson, Þórhildur Þorleifs-
dóttir og Guöný Halldórsdótt-
ir, en Guðný hafði reyndar
sótt um aðild að eldra félag-
inu og verið hafnað.
HRAFN ER
AÐALÁSTÆÐAN
Tilurð Félags kvikmynda-
stjóra verður þó ekki skýrð
eingöngu með tilvísun í fag-
legan ágreining. Eftir tölu-
verðar fjarvistir erlendis er
Hrafn Gunnlaugsson aftur
farinn að láta til sín taka í
málefnum kvikmyndagerðar
á íslandi. Eins og PRESSAN
hefur greint frá er hann for-
maður Sambands íslenskra
kvikmyndaframleiðenda, í
stjórn Samtaka kvikmynda-
leikstjóra, formaður Menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva
(sem beita á æ frekar í þágu
kvikmyndagerðar), dag-
skrárstjóri innlendrar deildar
hjá Sjónvarpinu (í leyfi um
stundarsakir þó) og stjórnar-
maður og helsti styrkþegi
Kvikmyndasjóðs frá upphafi.
Hrafn hefur sem sagt „sest á
alla pósta alls staðar" þar sem
hagsmuna er að gæta í kvik-
myndagerð.
í þessu Ijósi verður að
skoða átökin innan Samtaka
kvikmyndaleikstjóra. Þar
hefur átta manna meirihluti
ráðið ferðinni og er með rétiu
eða röngu litið á þá sem vild-
arvini Hrafns sem stundi þar
gagnkvæma hagsmuna-
gæslu á kostnað annarra. Það
er talinn lokaður klúbbur,
sem takmarki inngöngu, en
geri um leið kröfu til að fara
með hagsmunamál þeirra
sem fyrir utan eru. Einnig er
bent á að til þess að gerast fé-
lagi í Samtökum kvikmynda-
leikstjóra þurfi annaðhvort
að gera tvær bíómyndir eða
sjónvarpskvikmyndir. í báð-
um tilvikum hafi Hrafn tölu-
verð áhrif á hverjir fá til þess
fé og því geti varla fjölgað ört
í félaginu nema fyrir tilstilli
hans. Þegar úthlutað var úr
Kvikmyndasjóði á dögunum
sauð loks upp úr og Félag
kvikmyndastjóra er stofnað
til höfuðs þessari „samtrygg-
ingu" Hrafns og hans fólks.
EKKI PLÁSS FYRIR
TVÖ FÉLÖG
Samtök kvikmyndaleik-
stjóra hafa farið með höfund-
arrétt fyrir stéttina og annast
meðferð fjár sem fæst frá Inn-
heimtumiðstöð gjalda, en þar
er um að ræða gjald sem lagt
er á auðar myndbandsspólur.
Samtökin hafa einnig tilnefnt
fulltrúa í Norræna kvik-
myndasjóðinn, sem er hinn
„félagslegi" sjóðurinn sem ís-
lenskir kvikmyndagerðar-
menn hafa aðgang að.
Með stofnun nýs félags er
boðið heim árekstrum um
hvort félagið telst réttmætur
fulltrúi íslenskra kvik-
mynda(leik)stjóra. Það kem-
ur í ljós á næstu vikum og
mánuðum hvaða mæli-
kvarða stjórnvöld og aðrir,
sem slíka afstöðu þurfa að
taka, leggja á það. Miklir
hagsmunir eru í húfi og að-
standendur beggja félaganna
telja sig réttmæta fulltrúa
starfsgreinarinnar.
Upptökustjórafélag
segir Hrafn
Gunnlaugsson
„Mér skilst að þetta sé upp-
tökustjórafélag," sagði Hrafn
Gunnlaugsson, stjórnarmað-
ur í Samtökum kvikmynda-
leikstjóra, í samtali við
PRESSUNA, en formaðurinn,
Friðrik Þór Friðriksson, er
staddur í Japan. „Mér var
ekki boðið á stofnfundinn af
einhverjum ástæðum, en það
er ekki að vita nema ég sæki
um inngöngu.
Lögum Samtaka kvik-
myndaleikstjóra var breytt á
síðasta aðalfundi, þannig að
þeir sem ekki geta orðið full-
gildir félagar geta fengið
aukaaðild með 1/3 úr at-
kvæði. Um þetta var fullt
samkomulag, en eftir for-
mannskjör virðist samstaðan
hafa rofnað og þá var þetta
félag stofnað. Ég vona sann-
arlega að þetta sé ekki gert af
öfund út í Friðrik Friðriksson,
sem hefur gengið mjög vel
með myndirnar sínar, en eins
og þú veist er velgengni refsi-
verð á íslandi."
Þau urðu eftir
Friðrik Þór Friðriksson, Ari Kristinsson, Egill Eðvarðsson, Hilmar Oddsson, Hrafn Gunnlaugsson, Kristín Jóhannesdóttir, Sigurður Pálsson, Viðar
Stofnfélagar í
Félagi kvikmyndastjóra
Ágúst Guðmundsson, Ásdfs Thoroddsen, Brynja Benediktsdóttir,
Guðný Halldórsdóttir, Hákon Oddsson, Hjálmtýr Heiðdal, Karl
Slgtryggsson, Krlstín Pálsdóttir, Lárus Ýmir Óskarsson, Magnús
Magnússon, Óskar Jónasson, Ralph Christians, Sigurbjörn
Aðalstelnsson, Valdlmar Leifsson, Þorstelnn Jónsson, Þórhitdur
Þorleifsdóttir, Þráinn Bertelsson.