Pressan - 30.01.1992, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. JANÚAR 1992
37
inga er óvíst, en hitt er ljóst að þeir
bera af öðrum Vestfirðingum hvað
getraunaþáttöku varðar. í biaðinu
Bæjarins besta eru tölur um hversu
margar raðir í getraunum eru að
jafnaði seldar á hvern íbúa í einstök-
um byggðarlögum á Vestfjörðum.
Eins og áður sagði eru Suðureyring-
ar í forystu, með tæpar fimm raðir á
íbúa. Þingeyringar eru í öðru sæti
en Súðvíkingar kaupa fæstar raðir
allra Vestfirðinga, eða 1,34 raðir að
jafnaði á íbúa ...
s
l»_7uðureyri hefur verið í frettum
síðustu ár vegna vandræða í at-
vinnulífi. Nýir eigendur hafa tekið
við Freyju, stærsta fyrirtæki staðar-
ins. Hvort það eykur vonir Súgfirð-
H lýindi og snjóleysi hafa víða
haft áhrif. Til dæmis hafa skíða-
svæði landsins verið nánast lokuð í
allan vetur, með tilheyrandi tekju-
tapi. Þá hafa þeir kaupmenn sem
selja skíðavörur og reyndar ailar
vetrarvörur orðið fyrir áföllum.
Merki um þetta eru að útsölur á
vetrarvörum eru þegar hafnar, áður
en janúar er liðinn ...
óhann G. Jóhannsson og fé-
lagar á Púlsinum standa í stórræð-
um þessa dagana. Erlendir tónlistar-
------------ menn eru væntan-
legir hingað í hrönn-
inum. Meðal ann-
arra gamli Cream-
trommarinn Ginger
Baker, sem kemur
. hingað líklega með
djasssveit og spilar á Púlsinum 19.
og 20. febrúar. Kætast nú gamlir
hippar og aðrir popparar ...
rátt fyrir að Kristján Arason
gefi kost á sér í landsliðið á ný nær
hann ekki að slá landsleikjamet.
Metið á félagi hans,
Þorgils Óttar Mat-
hiesen, en hann
hefur leikið yfir 240
landsleiki. Kristján
hefur hins vegar
leikið 226 landsieiki
og vantar því um
tuttugu leiki til að ná Óttari. En
Kristján á annað met, sem sennilega
verður seint slegið, en það er í
markaskorun. Kristján hefur skorað
1.085 mörk fyrir íslenska landsliðið,
eða 4,8 mörk að meðaltali í leik.
Porgils Óttar hefur skorað næstflest
rnörkin, eða 568, sem gerir 2,35
mörk í leik að meðaltali. Þriðji
markahæsti leikmaður landsliðsins
frá upphafi er Geir Hallsteinsson,
en hann gerði 529 mörk í 116 lands-
leikjum, sem gerir 4,56 að jafnaði í
leik. FH-ingar skipa sér greinilega í
efstu sæti markaskorara í íslenskum
handbolta...
c
kJigurður Ólafsson, veitinga-
maður á Hressó, hefur tekið upp á
því að efna til bókmenntakynningar
fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði.
Nú á þriðjudaginn verður Iesið upp
úr verkum spænska skáidsins Fe-
derícos Garcia Lorca. Lesarar
verða meðal annarra Guðbergur
Bergsson, Baldur Óskarsson og'
Helgi Hálfdanarson, sem allir
hafa þýtt verk eftir Lorca. Auk þess
verður lesið upp úr snilldarþýðing-
um Geirs _ Kristjánssonar og
Magnúsar Ásgeirssonar . . .
ANNA
VILHJÁLMS
drottning íslenskrar
kántrí-tónlistar ásamt
hljómsveit í
KLÚBBNUM
föstiidagskvöld.
20 ára aldurstakmark
KLUBBURINN
Borgartúni 32
Símar 624588 624533
KUIBBURINN
/. OHGAHTÚWI\
L0R3Ð
Hótel Loftleidum
býdur um þessa helgi
freistandi hladbord í
vistlegu umhverfi.
Ekki adeins í hádeginu
heldur líka á kvöldin,
Hladborð með þorraívafi
á aðeins 1,980 kr
pr, mann.
Borðapantanir í síma
22321
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Réttur Hallqrgarðsins nr. 40:
Nautalundir með fivítlauft og cfiallottulauk í rauðvínssósu
Símon ívarsson,
gítarleikari, leikur
Ijúfa tónlist fyrir
matargesti.
Við kynnum nýjar
matargerðarperlur
á lystilegum
matseðli.
Verið velkomin á veitingastað vandlátra.
Borðapantanir isíma 678555 eða 30400.
H allargarðurinn
íHúsi verslunar.