Morgunblaðið - 28.04.2004, Síða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavík | Krakkarnir í 9. bekk í
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði sigr-
uðu í gær í KappAbel-stærð-
fræðikeppninni, en lokahluti
keppninnar fór fram í Háskólabíói
í gær.
Fullur salur af áhorfendum
fylgdist með þar sem 12 nem-
endur úr 9. bekkjum þriggja skóla
spreyttu sig á flóknum stærð-
fræðiþrautum. Alls tók 51 bekkur
af öllu landinu þátt í fyrsta hluta
keppninnar sem fór fram í vetur.
Á mánudag kepptu svo níu bekkir
í undanúrslitum og komust þrír
áfram í úrslitin. Það voru 9. bekk-
ir í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði,
Garðaskóla í Garðabæ og Haga-
skóla í Reykjavík.
Einbeitingin skein úr andlitum
krakkanna þar sem þeir leystu
stærðfræðiþrautir, og stóðu allir
sig vel við úrlausn verkefnanna.
Áhorfendurnir, sem voru um 300
aðrir 9. bekkingar, voru ekki
skildir út undan heldur gátu þeir
líka leyst þrautirnar úr sætum
sínum, þótt sumir eyddu reyndar
frekar tímanum í að teikna það
sem var að gerast á sviðinu.
„Í sjöunda himni“
Nemendur og starfsfólk Víði-
staðaskóla voru að vonum ánægð
með árangur krakkanna. „Við er-
um í sjöunda himni, það er mikil
gleði hér í skólanum,“ segir Sig-
urður Björgvinsson, skólastjóri
Víðistaðaskóla. „Við höfum verið
að leggja mjög mikla áherslu á
stærðfræði undanfarin ár, það var
mikið átak hérna í Hafnarfirði
fyrir þremur eða fjórum árum, og
þetta skilar sér. Svo eru þetta líka
svo frábærir krakkar.“
Sigurlið Víðistaðaskóla fer nú
til Kaupmannahafnar í júlí og et-
ur kappi við krakka frá Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. Einnig
fengu liðin 60.000 krónur sem
skólastjórar skólanna ráðstafa
fyrir nemendur.
KappAbel-stærðfræðikeppnin
er norsk að uppruna og varð til
sem tilraun kennara til að auka
áhuga nemenda á stærðfræði og
fá þá til að glíma saman við
ákveðin verkefni. Keppnin var
fyrst haldin árið 1998 en varð að
landskeppni í Noregi árið 2000.
Hér á landi var keppnin fyrst
haldin skólaárið 2001–2002, og
hefur fjöldi þátttakenda aukist
mikið ár frá ári, og nú tekur um
þriðjungur allra 9. bekkja þátt í
keppninni.
Kepptu í úrlausn stærðfræðiþrauta
Morgunblaðið/Jim Smart
Gott gengi: Í liði Víðistaðaskóla voru (f.v.) Ragnar Stefánsson, Jóhann Þór
Kristþórsson, Eva Hauksdóttir og Sigrún Ósk Jakobsdóttir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Skemmtileg stemmning: Nemendur skemmtu sér vel og klöppuðu þátttak-
endum lof í lófa milli þess sem þau spreyttu sig á stærðfræðiþrautunum.
ÞAÐ var gífurleg spenna í stærð-
fræðikeppninni og munaði mjög
litlu á sigurvegurunum og hinum
skólunum tveimur. Krakkarnir úr
Víðistaðaskóla fengu 28 stig af 30
mögulegum og voru að vonum
stolt af árangrinum.
„Þetta var rosalega hörð
keppni, við vorum alveg að fara á
taugum,“ segir Sigrún Ósk Jak-
obsdóttir. Hún segir að það hafi
skipt miklu máli að nota allan tím-
ann sem gefinn var fyrir hverja
þraut til að fara yfir lausnirnar
þó að það sem virðist vera rétt
lausn komi snemma.
Sigrún segir að það sé ekki
bara nauðsynlegt að vera klár í
stærðfræði til að standa sig vel í
svona keppni, rökhugsun skipti
einnig miklu máli til að leysa
þrautirnar. Hún segir að þraut-
irnar hafi verið miserfiðar, sum-
um hafi þau áttað sig á strax en
aðrar hafi verið erfiðari.
Gott samstarf og
góður kennari
„Það er nú aðallega gott sam-
starf og góður kennari sem skýrir
hversu vel þetta gekk,“ segir Jó-
hann Þór Kristþórsson. Hann seg-
ir að nemendurnir hafi ekki æft
sig mikið sérstaklega fyrir keppn-
ina þó að þeir hafi hist nokkrum
sinnum. Nemendurnir reyndu þó
að slappa vel af fyrir keppnina,
og fóru saman út að borða.
Jóhann segir að sér finnist
stærðfræðin ekkert sérstaklega
skemmtileg námsgrein, en þraut-
irnar séu mun skemmtilegri en
jöfnureikningur og annað í þeim
dúr. Hann segir að þrautirnar í
keppninni hafi í sjálfu sér ekki
verið svo erfiðar en tíminn hafi
verið naumt skammtaður og á
mörkunum að þau næðu að klára.
Skólafélagar fjórmenninganna
voru að vonum ánægðir með gott
gengi félaga sinna, og hlupu fagn-
andi upp á sviðið þegar úrslitin
voru ljós. Nú liggur leið fjór-
menninganna til Kaupmannahafn-
ar þar sem þau munu láta reyna á
stærðfræðina í keppni við aðra
Norðurlandabúa.
„Vorum alveg að fara á taugum“
Reykjavík | Borgarstjórinn í
Reykjavík auglýsir eftir tilnefning-
um til Umhverfisviðurkenningar
Reykjavíkurborgar 2004.
Viðurkenningin er veitt árlega
fyrirtæki eða stofnun í borginni sem
þykir hafa leitast við að haga rekstri
sínum eða einstökum rekstrarþátt-
um í samræmi við grunnregluna um
sjálfbæra þróun. Viðurkenningin
verður veitt formlega á umhverfis-
degi Sameinuðu þjóðanna hinn 5.
júní nk. Tilnefningar þurfa að hafa
borist Umhverfis- og heilbrigðis-
stofu eigi síðar en 15. maí nk. Við-
urkenningin kom í hlut Umslags ehf.
árið 2003 og var það í sjöunda sinn
sem hún var veitt.
Óska eftir
tilnefningum
Hafnarfjörður | Olía, rányrkja,
mengunarefni, ofauðgun – Dropinn
sem fyllir mælinn? er heitið á nýjum
bæklingi sem gefinn er út alls staðar
á Norðurlöndunum, og var afhentur
fyrstu íslensku framhaldsskólanem-
endunum í gær, en allir framhalds-
skólar á landinu fá send eintök á
næstunni.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra mætti í kennslustund í líffræði
í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og
afhenti nemendum fyrstu eintökin,
en það er Landvernd sem stendur að
útgáfu hans hér á landi.
Bæklingurinn er 24 síður, ætlaður
sem ítarefni fyrir framhaldsskóla-
nemendur í líffræði, segir Tryggvi
Felixson, framkvæmdastjóri Land-
verndar. Honum fylgir verkefnahefti
á dönsku, svo nemendur ættu að fá
æfingu í tveimur ólíkum námsgrein-
um, dönsku og líffræði, þegar þeir
vinna með efnið, segir Tryggvi.
Ræddu baráttuna
gegn Sellafield
Í líffræðitímanum í Flensborg
ræddu Auður H. Ingólfsdóttir frá
Landvernd og Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra losun geislavirks
úrgangs í sjó, með áherslu á kjarn-
orkuendurvinnslustöðina í Sellafield,
og baráttu íslenskra stjórnvalda
gegn losun hennar á geislavirkum
efnum í sjóinn.
Nemendur fengu svo tækifæri til
að ræða málið við ráðherra, og kom í
ljós á svörum hennar að eftir sigur
nýlega í baráttunni gegn Sellafield
taki nú við barátta gegn kjarnorkuvá
annars staðar í heiminum, t.d. frá
Kólaskaga í Rússlandi. Siv sagði
vandamálið fráleitt að hverfa, verið
sé að reisa fleiri og fleiri ný kjarn-
orkuver, t.d. í Finnlandi og Japan og
Íslendingar og aðrir þurfi að hafa
augun opin fyrir þessum málaflokki í
framtíðinni.
Afhenti nemendum
bækling um hafið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ræddu umhverfismál: Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra talaði um bar-
áttu stjórnvalda gegn kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield.
Reykjavík | Átakshópur gegn
færslu Hringbrautar afhenti borg-
arráðsmönnum fyrirspurn fyrir
borgarráðsfund í gær, þar sem
hver og einn fulltrúi var beðinn að
svara spurningunni „Ert þú sam-
þykk(ur) því að frestað verði fram-
kvæmd við færslu Hringbrautar?“
með einföldu já eða nei fyrir 30.
apríl nk.
Í tilkynningu frá átakshópnum
kemur fram að ekkert svar hafi
enn borist frá borgarfulltrúum eft-
ir að ályktun frá fundi átakshóps-
ins frá 30. mars var send til þeirra,
þrátt fyrir ítrekun.
Segir þar ennfremur: „Munu
borgaryfirvöld standa við yfirlýs-
ingar sínar um íbúalýðræði, fresta
áætlaðri framkvæmd við færslu
Hringbrautar og gefa borgarbúum
tækifæri til að ákvarða framtíð
borgarinnar með því að láta kjósa
um þetta stórmál 26. júní nk.?“
Afhentu
fyrirspurnir
Morgunblaðið/Jim Smart
Vilja svör: Fulltrúar átakshópsins afhentu borgarfulltrúum fyrirspurn.